Fréttablaðið - 16.06.2012, Blaðsíða 96
16. júní 2012 LAUGARDAGUR64
sport@frettabladid.is
SJÖUNDU UMFERÐ PEPSI-DEILDAR KARLA lýkur í dag með þremur leikjum sem
allir hefjast klukkan 14.00. KR tekur á móti Selfossi, Grindavík mætir Blikum á Kópavogsvelli og FH
sækir Keflavík heim. Fylgst verður með öllum leikjunum á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins.
Allt um leiki
gærkvöldsins
er að fi nna á
0-1 Ian Jeffs (63.), 0-2 Christian Olsen (66.),
0-3 Christian Olsen (88.), 0-4 C. Olsen (93.)
Skot (á mark): 12-17 (5-13)
Varin skot: Páll Gísli 8 - Abel 4.
ÍA (4-3-3): Páll Gísli Jónsson 6 - Guðmundur
Böðvar Guðjónsson 4 (68., Aron Ýmir Pétursson
5), Ármann Smári Björnsson 4, Andri Geir Alex-
andersson 3, Einar Logi Einarsson 4 - Jóhannes
Karl Guðjónsson 6, Arnar Már Guðjónsson 3, Jón
Vilhelm Ákason 4 - Andri Adolphsson 6, Ólafur
Valur Valdimarsson 4 (61., Eggert Kári Karlsson
4), Gary Martin 3 (67., Garðar Bergmann Gunn-
laugsson 4)
ÍBV (4-5-1): Abel Dhaira 6 - Arnór Eyvar Ólafsson
6, Brynjar Gauti Guðjónsson 7, Rasmus Christian-
sen 6, Matt Garner 6 - Þórarinn Ingi Valdimarsson
8, Guðmundur Þórarinsson 7 (80., Tonny Mawejje
-), Víðir Þorvarðarson 5 (87., Gunnar Már Guð-
mundsson -), Ian Jeffs 6, Tryggvi Guðmundsson 5
- Christian Olsen 8*. * MAÐUR LEIKSINS
Akranesvöllur Kristinn Jakobsson (8)
0-4
EM í knattspyrnu:
Úkraína-Frakkland 0-2
0-1 Jeremy Menez (53.), 0-2 Yohan Cabaye (56.)
Svíþjóð-England 2-3
0-1 Andy Carroll (23.) 1-1 Sjálfsmark (49.), 2-1
Olof Mellberg (59.), 2-2 Theo Walcott (64.),
2-3 Danny Welbeck (78.)
STAÐAN:
Frakkland 2 1 1 0 3-1 4
England 2 1 1 0 4-3 4
Úkraína 2 0 1 1 1-3 1
Svíþjóð 2 0 0 2 3-5 0
STAÐAN Í PEPSI-DEILD KARLA:
ÍA 7 4 2 1 11-11 14
FH 6 4 1 1 14-3 13
KR 6 4 1 1 12-8 13
Stjarnan 7 3 3 1 14-12 9
Valur 7 3 0 4 11-9 9
Fylkir 7 2 3 2 8-14 9
ÍBV 7 2 2 3 12-8 8
Keflavík 6 2 1 3 8-9 7
Selfoss 6 2 1 3 8-10 7
Breiðablik 6 2 1 3 3-6 7
Fram 7 2 0 5 7-10 6
Grindavík 6 0 3 3 10-18 3
ÚRSLIT
1-0 Alexander Scholz (7.), 1-1 Sjálfsmark
(13.), 2-1 Tryggvi Bjarnason (26.), 3-1 Alex-
ander Scholz (41.), 3-2 Guðjón Lýðsson (43.)
Skot (á mark): 16-12 (10-4)
Varin skot: Ingvar 3 - Ásgeir Þór 7.
STJARNAN (4-5-1): Ingvar Jónsson 6 – Jóhann
Laxdal 6, Tryggvi Bjarnason 7(64. Bjarki Ey-
steinsson 5 ), Daníel Laxdal 6, Hörður Árnason
7 - Alexander Scholz 7, Atli Jóhannsson 5, Halldór
Orri Björnsson 6 - Kennie Knak Chopart 8,
Mads Laudrup 6 (71. Baldvin Sturluson -), Ellert
Hreinsson 6.
VALUR (4-4-2): Ásgeir Þór Magnússon 3 - Brynjar
Kristmundsson 5, Atli Sveinn Þórarinsson 5, Hall-
dór Kristinn Halldórsson 4, Matarr Jobe 5 - Guðjón
Pétur Lýðsson 6, Haukur Páll Sigurðsson 5 (87.,
Ásgeir Þór Ingólfsson -), Rúnar Már Sigurjónsson 7
(79., Andri Fannar Stefánsson) - Kolbeinn Kárason
5, Hörður Sveinsson 6 (75., Kristinn Freyr Sigurðs-
son -), Matthías Guðmundsson 6. * MAÐUR LEIKSINS
Stjörnuvöllur, áhorf.: 411 Örvar Sær Gíslason (6)
3-2
FÓTBOLTI Tottenham leitar nú log-
andi ljósi að arftaka Harry Red-
knapp í starf knattspyrnustjóra en
Redknapp var rekinn í vikunni.
Andre Villas-Boas, fyrrum
stjóri Chelsea, er sagður efstur
á óskalistanum en hann er enn
atvinnulaus eftir að hafa verið
rekinn frá Chelsea.
Aðrir sem hafa verið orðað-
ir við starfið eru David Moyes,
stjóri Everton, og Roberto Mart-
inez, stjóri Wigan. - hbg
Spurs leitar að stjóra:
Villas-Boas
efstur á lista
FÓTBOLTI Allt útlit var fyrir að Eng-
lendingar myndu enn eina ferðina
fara frá borði með skiptan hlut í
viðureign gegn Svíum. Tvö mörk
Svía í upphafi síðari hálfleiks
gerðu skallamark Andy Carroll
aðeins að fjarlægri minningu.
England hafði aldrei lagt Svía að
velli í keppnisleik í knattspyrnu
karla en hálftími var til stefnu.
Roy Hodgson landsliðsþjálfari
Englands, sem hóf starfsferil sinn
með miklum ágætum í Svíþjóð á
áttunda áratugnum, var á öðru
máli. Hann skipti Theo Walcott,
vængmanninum eldfljóta, inn á
og skiptingin skipti sköpum.
Augnablikum eftir innkomuna
skoraði Walcott með langskoti
sem Andreas Isaksson, markvörð-
ur Svía, hefði á góðum degi varið.
Honum til varnar virtist skotið
hafa örviðkomu í varnarmanni
Svía.
Stundarfjórðungi síðar fengu
Svíar að kenna á hraða Arsenal-
mannsins Walcott. Hann lék þá
á tvo Svía, sendi fyrir markið á
Danny Welbeck, framherja Manc-
hester United, sem stýrði boltan-
um glæsilega í netið undir mikilli
pressu. Örvæntingarfullir Svíar
voru aldrei líklegir til þess að
jafna og Englendingar, sem líkt og
íslenska handboltalandsliðið hefur
glímt við Svíagrýlu lengur en elstu
menn muna, fögnuðu ákaft.
Með sigrinum komust Englend-
ingar upp að hlið Frakka með fjög-
ur stig að loknum tveimur leikjum
í riðlinum. Frakkar lögðu Úkraínu
2-0 að velli í Donetsk í leik sem
þurfti að fresta um klukkustund
vegna úrhellis og eldinga. Bæði
mörk Frakka komu snemma í síð-
ari hálfleik.
Leikurinn hófst reyndar á til-
skyldum tíma en hollenskum dóm-
ara leiksins leist ekki á blikuna
eftir rúmlega fjögurra mínútna
leik þar sem því sem næst flæddi
yfir völlinn auk þess sem eldingar
gerðu vart við sig. Klukkustund
síðar var leiknum framhaldið
en heimamenn komust aldrei
almennilega í gang.
Eftir leiki gærdagsins er ljóst að
Frökkum dugar jafntefli í lokaleik
sínum gegn Svíum sem eru úr leik
og hafa ekki að neinu að keppa.
Englendingum dugar sömuleiðis
jafntefli gegn Úkraínu sem getur
þó tryggt sig áfram með sigri.
Keppni í A-riðli lýkur í dag með
viðureignum Tékka gegn Pólverj-
um og Rússa og Grikkja. - ktd
England og Frakkland unnu leiki sína á EM í gærkvöldi og eru í góðum málum:
Svíagrýla Englendinga á enda
HETJURNAR Theo Walcott og Danny Welbeck stíga létt dansspor við fögnuð sigurmarks þess síðarnefnda í gærkvöldi. Englend-
ingar hafa slegið á gagnrýnisraddir sparkspekinga í bili og eru í góðum málum eftir gærkvöldið. NORDICPHOTOS/AFP