Fréttablaðið - 23.06.2012, Page 10

Fréttablaðið - 23.06.2012, Page 10
23. júní 2012 LAUGARDAGUR10 Laust nú þegar. Hiti í gólfum, vandaðar innréttingar. Húsið skiptist m.a. í 3 stór svefnher- bergi og 2 baðherbergi, samliggjandi stofur og rúmgott eldhús. Mjög stór verönd og innbyggður lítill bílskúr fyrir golfbílinn undir húsinu. Glæsilegt útsýni. Heitur pottur. Möguleg skipti á íbúð. Leiðarlýsing: Ekið Þingvallarafleggjara frá Þrastarlundi ca. 8 km. að Syðri-Brú. Agnar í s. 820-1002 tekur á móti ykkur á milli kl. 15-16 á Sunnudag. SUÐURLANDSBRAUT 50 BLÁU HÚSIN Í SKEIFUNNI WWW.HUSID.IS • S: 513-4300 VILHJÁLMUR BJARNASON LÖGG. FAST.SALI - Heilshugar um þinn hag - OPIÐ HÚS SUNNUDAG 24.06. KL. 15-16 Glæsilegt 127fm. sumarhús á 1,5 ha eignarlandi. HEILBRIGÐISMÁL Landlækni ber að fá allar þær upplýsingar úr heil- brigðiskerfinu sem hann óskar eftir til að sinna eftirliti sínu, en sumar má hann bara geyma í til- tekinn tíma. Heilbrigðisyfirvöld telja ótvírætt að læknum beri skylda til að afhenda landlækni þau gögn sem hann telur nauðsyn- leg og eru persónugreinanlegar upplýsingar þar með taldar. Þetta kemur fram í greinargerð frum- varps velferðarnefndar Alþingis um breytingu á lögum um land- lækni og lýðheilsu. Helstu lagabreytingarnar eru þær að landlæknir má ekki varð- veita persónugreinanleg gögn og upplýsingar sem aflað hefur verið á grundvelli eftirlitshlutverks, lengur en nauðsynlegt er. Slíkt á þó ekki við um varan legar heilbrigðis- skrár á landsvísu. Varðveisla upp- lýsinganna standi því aldrei lengur en eftirlitsverk efnið og er sá tími almennt talinn í mánuðum frekar en árum. Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands (LÍ), segir valdmörkin í frumvarpinu óskýr. „Það er lagt í hendurnar á land- lækni að skilgreina hvaða skrár þetta eru og það virðist vera algjör- lega opin heimild,“ segir hann. „Einnig ætti að tilgreina einhver efri tímamörk til að halda skrána en ekki leggja það í hendurnar á þeim sem kemur henni upp.“ Þorbjörn furðar sig á því að ekki hafi verið óskað eftir umsögn LÍ við gerð frumvarpsins. „Lykil- atriðið er að það hefði átt að leita eftir áliti mismunandi aðila. Það er svo mikilvægt að fleiri sjónarmið komi fram.“ Geir Gunnlaugsson, land læknir, segir brýnt að lagaramminn sé þannig að embættið geti sinnt hlut- verki sínu án vandkvæða. Hann segir upplýsingaöflun frá lýta- læknum í kring um PIP-málið svo- kallaða hafa gengið hægt. „Við fórum fram á upplýsingar frá lýtalæknum og fengum bara frá hluta þeirra. Öflun gagnanna hefur því ekki gengið sem skyldi,“ segir hann. „Það er eitt af þeim stóru verkefnum sem við þurfum að skerpa á. Ná sátt og skilningi um mikilvægi þess að þessar tölur séu aðgengilegar.“ Velferðarnefnd lagði frum- varpið fram í kjölfar umræðu sem skapaðist þegar LÍ var í vafa um hvort lýtalæknum bæri skylda til að afhenda landlækni nöfn og kennitölur kvenna sem höfðu farið í brjóstastækkun hér á landi. sunna@frettabladid.is Landlæknir skal eyða gögnum eftir eftirlit Landlækni ber að fá allar nauðsynlegar upplýsingar til að sinna eftirliti. Vissum gögnum ber þó að eyða að eftirliti loknu, samkvæmt nýju frumvarpi. Undarlegt að ekki hafi verið óskað eftir umsögn Læknafélagsins í málinu, segir formaður. BRJÓSTASTÆKKUN Persónuvernd úrskurðaði á dögunum að lýtalæknum bæri ekki skylda til að afhenda landlækni upplýsingar um konur sem hafa farið í brjósta- stækkun hér á landi. NORDICPHOTOS/AFP Enginn vafi Úr frumvarpi velferðarnefndar: „Með hliðsjón af þeim brýnu almannahagsmunum sem í húfi geta verið verður ekki við það unað að nokkur vafi leiki á um rétt landlæknis til að afla nauðsynlegra gagna og upplýsinga, þ.m.t. persónugreinanlegra upplýsinga, sem nauðsynlegar eru til þess að hann geti sinnt þeirri skyldu sinni að hafa eftirlit með heilbrigðis- þjónustu.“ HITABYLGJA Sumarið er sannarlega komið til New York-borgar og Tommaso Danielli notaði tækifærið og kældi sig niður í gosbrunni í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP INDÓNESÍA, AP Umar Patek, 45 ára meðlimur í Al-Kaída hryðju- verkasamtökunum var á fimmtu- dag dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að hafa smíðað bílsprengju sem notuð var til að sprengja skemmtistað á indónesísku eyjunni Balí árið 2002. Alls létust 202 í sprengingunni, þar á meðal 88 Ástralar og sjö Bandaríkja- menn. Saksóknarinn í málinu hafði farið fram á lífstíðarfangelsi yfir Patek en hann var ákærður fyrir morð, brot á innflytjendalöggjöf, að hafa haldið hlífiskildi yfir hryðjuverkamönnum og að hafa haft ólögleg vopn undir höndum. Hlaut Patek refsingu vegna árásanna á Balí en einnig fyrir þátttöku í hryðjuverka árásum sem gerðar voru á kirkjur í Djakarta á aðfangadag árið 2000 og urðu nítján að bana. Patek var handtekinn á síðasta ári í Pakistan, í sama bæ og Osama bin Laden faldi sig í síðustu ár ævi sinnar. Hann hafði þá verið í felum í níu ár en hann var sá síðasti þeirra sem grunaðir voru um þátt- töku í hryðjuverkunum sem tekinn var höndum. Í vörn sinni lagði Patek áherslu á að hann hefði ekki leikið stórt hlutverk í smíði sprengjunnar þótt hann hefði vissulega tekið þátt. Þá bað hann fjölskyldur fórnar- lambanna sem og stjórnvöld í Indónesíu afsökunar og sagðist hafa verið á móti árásunum. Á hann hefði hins vegar ekki verið hlustað. - mþl Síðasti þátttakandinn í hryðjuverkaárásunum á Balí árið 2002 dæmdur í fangelsi: Dæmdur vegna hryðjuverka á Balí DJAKARTA Í GÆR Lögreglumenn leiddu Patek út úr réttarsalnum í Djakarta eftir að dómur féll. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIÐSKIPTI Nýtt ráðgjafarfyrirtæki, NýNA ehf., tók til starfa um síð- ustu mánaðamót en markmiðið stofnandans er að veita einstak- lingum, fyrirtækjum og stofn- unum ráðgjöf um hvernig sækja megi um styrki frá Evrópusam- bandinu (ESB), þar á meðal um hina svokölluðu IPA-styrki sem veittir eru í tengslum við aðildar- umsókn Íslands að ESB. „Ég held að þetta sé klárlega vannýtt tækifæri hér á Íslandi. Kannski ekki síst vegna þess að fæstir virðast meðvitaðir um þenn- an möguleika. Þá er mjög tíma- frekt að standa í umsóknum sem þessum og því tals- verður kostn- aður fólginn í því fyrir fyrir- tæki að finna út úr þessu sjálf,“ segir María Lóa Friðjóns dóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri NýNa. María segir háar upphæðir í boði á íslenskan mælikvarða sem geti skipt lítil fyrirtæki verulegu máli. „Við beinum sjónum okkar helst að skapandi greinum og ferðaþjónustunni sem eru kannski þær greinar sem eru í örustum vexti á Íslandi. Ég tel mjög trúlegt að hægt sé að aðstoða fyrirtæki í þessum greinum að nálgast styrki innan úr ESB,“ segir María. Fyrirtækið byggir á viðskipta- áætlun sem María vann á svo- kölluðu Brautargengisnámskeiði hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Var áætlun Maríu valin besta við- skiptaáætlunin úr hópi þeirra sem útskrifuðust af námskeiðinu í vor. - mþl Stofnandi ráðgjafarfyrirtækis segir styrki frá ESB vannýtt tækifæri á Íslandi: Hjálpar fyrirtækjum að fá ESB-styrki MARÍA LÓA FRIÐJÓNSDÓTTIR AFGANISTAN, AP Vígbúnir talib- anskir uppreisnarmenn réðust inn í hótel norður af Kabúl, höfuð- borg Afganistans, og skutu á gesti í gær. Átján féllu, flestir þeirra óbreyttir borgarar. Uppreisnarmennirnir héldu hót- elgestum í gíslingu í tólf klukku- stundir á meðan þeir börðust við afganskar öryggissveitir. Talið er að með árásinni hafi taliban- ar viljað sýna styrk sinn áður en bandarískar her sveitir hverfa frá Afganistan í lok árs 2014. - bþh 18 hótelgestir féllu: Talibanar réð- ust á borgara IÐNAÐUR Landsvirkjun og GMR Endurvinnslan tilkynntu í gær að fyrirtækin hefðu komist að sam- komulagi um nýjan raforkusölu- samning. Landsvirkjun afhendir GMR allt að tíu megavött af raf- magni til næstu sjö ára. Orkuna mun GMR nota til að endurvinna straumteina og tinda- efni sem notað er við álfram- leiðslu. Jafnframt mun GMR endurvinna og framleiða stál í stangir til útflutnings. GMR áformar að hefja rekstur verksmiðju sinnar á Grundar- tanga í ársbyrjun 2013. Í fyrstu er gert ráð fyrir framleiðslu um 30 þúsund tonna á ári en fram- leiðslugeta verksmiðjunnar er um 100 þúsund tonn á ári. - shá Landsvirkjun og GMR: Samið um 10 MW af raforku GRUNDARTANGI Sífellt bætist í hóp fyrir- tækja á iðnaðarsvæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BANDARÍKIN, AP Hæstiréttur í Ark- ansasríki í Bandaríkjunum hefur dæmt lög um dauðarefsingar þar ógild og segir þau ekki standast stjórnarskrá. Tíu fangar sem bíða þess að dauðadómi þeirra verði fullnægt höfðu áður gagn- rýnt lögin. Árið 2009 kaus ríkisþingið að ákvarðanir um dauðarefsingar myndu liggja hjá fangelsismála- yfirvöldum ríkisins. Þá ákvörðun ógilti hæstiréttur og klofnaði í afstöðu sinni. Meirihluti dóm- aranna taldi löggjafarvaldið hafa afsalað valdi sínu til fram- kvæmdavaldsins. Það er ekki heimilt samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna. Arkansasríki hefur ekki tekið fanga af lífi síðan árið 2005, meðal annars vegna deilna um löggjöfina. - bþh Hæstiréttur í Arkansasríki: Mega ekki fram- selja vald sitt Góðgerðargolf Kiwanis Góðgerðargolfleikur Kiwanishreyf- ingarinnar er í gangi, en ætlunin er að slá golfkúlu meðfram hringveginum. Ögmundur Jónasson innanríkisráð- herra sló upphafshöggið í leiknum. Leiknum lýkur 4. júlí í Reykjavík þegar Stefán Eiríksson lögreglustjóri slær lokahöggið. Safnað verður áheitum á hvert högg. GÓÐGERÐARMÁL

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.