Fréttablaðið - 23.06.2012, Side 62

Fréttablaðið - 23.06.2012, Side 62
23. júní 2012 LAUGARDAGUR34 Hvað ertu gömul Stella? „Ég er nýorðin 22 ára.“ Hvernig lékstu þér helst sem barn? „Mér fannst skemmti- legast að leika úti og helst að fara í eina krónu eða skotbolta.“ Horfðir þú mikið á sjónvarp sem krakki? „Ég horfði aðal- lega á barnatíminn á laugardög- um og svo fannst mér Alladín myndirnar allar skemmtilegar og horfði mikið á þær.“ Hvenær fórstu f yrst t il útlanda? „Þegar ég var sjö ára fór ég með fjölskyldunni til London að heimsækja systur mömmu sem bjó þar. Það var eftirminnilegt ferðalag.“ Ferðu stundum út á land? „Já, pabbi er frá Þykkvabæ og við eigum bústað þar. Það er allt- af gott og gaman að slappa af í sveitasælunni.“ Ætlar þú í útilegu í sumar? „Já, mér finnst alveg nauðsyn- legt að fara í nokkrar úti legur á sumri. Meðal annars býst ég við að fara í útilegu fyrstu helgina í júlí með hjólhýsi sem tengdaforeldrar mínir eiga.“ Hvaða matur finnst þér best- ur? „Uppáhaldsmaturinn minn er rjúpa sem mamma eldar á gamlárskvöld með brúnuðum kartöflum og sósu.“ Hvar vinnur þú núna? „Ég vinn á leikskólanum Sjálandi í Garðabæ og það er svo gaman að dagarnir og vikurnar fljúga áfram.“ Hvenær og af hverju byrjaðir þú í handbolta? „Ég byrjaði að æfa í Fram sex ára og eiginlega bara af því að eldri systir mín var að æfa og ég gerði allt eins og hún. Svo höfum við Karen Knúts landsliðskona verið eins og samlokur síðan við vorum litlar enda eru mömmur okkar systur. Nú er hún í Þýska- landi.“ Hversu oft æfir þú í hverri viku? „Ég æfi með Fram fimm til sex sinnum í viku, svo fer ég sjálf á aukaæfingar.“ Ertu búin að vera lengi í lands- liðinu? „Ég lék minn fyrsta landsleik þegar ég var 17 ára og er búin að fara að meðaltali sex sinnum á ári til útlanda síðan.“ Hvar og hvenær verður EM- keppnin háð? „EM verður haldin í Serbíu 4. til 16. des- ember. Það verður eflaust mikil upplifun að fara þangað og keppa við bestu þjóðir Evr- ópu. Því er mikil tilhlökkun hjá liðinu og nú verðum við að nýta tímann og æfa vel.“ krakkar@frettabladid.is 34 Ég lék minn fyrsta landsleik þegar ég var 17 ára og er búin að fara að meðaltali sex sinnum á ári til útlanda síðan. Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is Bókaormur vikunnar NAUÐSYNLEGT AÐ FARA Í NOKKRAR ÚTILEGUR Stella Sigurðardóttir, landsliðskona í handbolta, lék sér í einni krónu og skotbolta þegar hún var lítil. Hún byrjaði sex ára að æfa handbolta og býr sig nú undir að keppa við bestu þjóðir Evrópu á EM í Serbíu. HANDBOLTASTJARNA „Ég byrjaði að æfa sex ára og eiginlega bara af því að eldri systir mín var að æfa og ég gerði allt eins og hún,“ segir Stella. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL 1. Hvað heitir þú fullu nafni? Ég heiti Muhammed Faisal Ólafsson. 2. Hvað ertu gamall? Ég er 9 ára. 3. Ertu mikill lestrarhestur? Já, mjög mikill. 4. Hvenær lærðir þú að lesa? Þegar ég var 4 ára. 5. Hvað er skemmtilegt við að lesa bækur? Það er gaman að ímynda sér það sem gerist í bókunum. 6. Manstu eftir fyrstu bók- inni sem var í uppáhaldi hjá þér? Já, það var Úkk og Glúkk. 7. Hvers lags bækur þykja þér skemmtilegastar? Ævin- týrabækur. 8. Hvaða bók lastu síðast og hvernig var hún? Dagbók Kidda klaufa. Hún var mjög skemmtileg. 9. Í hvaða hverfi býrð þú? Í Vesturbænum. 10. Í hvaða skóla gengur þú? Vesturbæjarskóla. 11. Hvaða námsgrein er skemmtilegust? Íþróttir. 12. Hver eru þín helstu áhugamál? Ég hef mörg áhugamál, til dæmis karate. Borgarbókasafnið, Fréttablaðið og Forlagið hvetja öll börn til að lesa í sumar. Í hvert sinn sem þú klárar bók getur þú sett nafn hennar í pott í öllum útibúum Borgarbókasafns. Í hverri viku er nýr bókaormur dreginn úr pottinum sem fær bók að gjöf og er kynntur á Krakkasíðu Fréttablaðsins. BRÚÐUBÍLLINN Uppáhaldsbíll margra íslenskra barna er á sveimi í sumar eins og síðustu rúmu þrjátíu árin. Lilli api hefur fengið óvæntan gest, frænda sinn apann Mongó, sem kemur alla leið frá Afríku. Brúðubíllinn verður á leikskólanum Smárahvammi næsta föstudag, 29. júní, en nánari upplýsingar um dagskrá er að finna á Brudubillinn.is. Kona segir við eiginmann sinn: „Læknirinn er kominn.“ Maðurinn svarar að bragði: „Ég vil ekki hitta hann. Segðu honum að ég sé veikur!“ Hvers vegna hætti tann- læknirinn störfum? Hann reif kjaft! Arnar: „Ég heyrði nýjan brandara um daginn! Var ég búinn að segja þér hann?“ Bjarki: „Ég veit það ekki. Er hann fyndinn?“ Arnar: „Já!“ Bjarki: „Þá hefur þú ekki sagt mér hann.“ Maður í skóbúð: „Seljið þið krókódílaskó?“ Starfsmaður: „Já, að sjálf- sögðu. Númer hvað notar krókódíllinn þinn af skóm?“

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.