Fréttablaðið - 30.08.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Fimmtudagur
skoðun 18
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
Atvinnumiðlun
& ráðgjöf
30. ágúst 2012
203. tölublað 12. árgangur
SVART Í VETURTískuhönnuðir hafa flestir sýnt ýmsar útfærslur buxna-
dragta á haust- og vetrarsýningum sínum fyrir 2012-13.
Hér er sænska fyrirsætan Frida Gustavsson í svörtum
samfestingi hönnuðum af Jean-Paul Gaultier en vetrar-
lína hans var öll í dökkum litum.
E lísabet Inga Sigurðardóttir er tæplega 17 ára Kvennaskólapía, en hún er að hefja sitt annað ár í skólanum. Hún stundar auk þess dans-nám í Dansskóla Birnu Björns og kennir sjálf dans í söng- og leiklistarskólanum Sönglist. Jafnframt afgreiðir hún í Body Shop, svo það er nóg að gera hjá henni.Varðandi fatastíl sinn segir hún þæg-indin skipta mestu máli. Peysuna sem hún klæðist á myndinni keypti hún í Lin-dex og buxur kaupir hún yfirleitt í Júnik í Smáralindinni. „Þær eru teygjanlegar og þægilegar,“ segir hún. Annars segist hún ekki fara í ákveðnar búðir þegar hún kaupir sér föt. „Ef ég sé flott föt í búðum, þá fer ég inn.“ Hálsmenið sem hún ber þykir henni vænt um en það er þó í eigu mömmu hennar: „Hún fékk það í Namibíu þegar við fórum þangað að heimsækja ömmu, en hún bjó þar þegar ég var lítil,“ segir Elísabet.
PEYSUFATADA
Kvennó, ásamt þremur öðrum meðlim-
um Peysufatanefndar. „Þetta er líklega
skemmtilegasti dagur annars árs,“ segir
Elísabet, en þann 28. september munu
nemendur á öðru ári klæða sig upp í hinum þjóðlega stíl, dansa þjóðdansa,
borða vöfflur og halda svo á ball um kvöldið. Þeim sem ekki eiga þeim mun þjóðlegri fjölskyldur getur reynst
þrautin þyngri að útvega sér peysuföt
fyrir herlegheitin, en hægt er að leigja
föt meðal annars hjá Þjóðdansafélagi Reykjavíkur.
HUGURINN REIKAR VÍÐAElísabet segist ekki viss um hvort hún
ætli að taka Kvennó á þremur eða fjórum árum. Varðandi framhaldið er hún einnig tvístígandi: „Mig langar annað hvort í blaða- og fréttamennsku
í Háskóla Íslands eða framhaldsnám ílýðheilsuvísindu É
VELUR ÞÆGINDIN UNDIRBÝR PEYSUFATADAG Elísabet Inga Sigurðardóttir hefur nóg að gera.
Fyrir utan að stunda fullt nám í Kvennaskólanum kennir hún dans, afgreiðir í
Body Shop og undirbýr árlegan Peysufatadag ásamt félögum úr skólanum.
HVERSDAGSLEGI FATASTÍLLINN Elísabet Inga klæðist helst þægilegum buxum úr teygjanlegu efni og notalegum peysum dagsdaglega. MYND/GVA
HLAKKAR
TIL PEYSU-FATAD
Létt fylltur bh á AÐEINS KR. 2.500,- buxur við á AÐEINS KR. 1.000,-
TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.10-14 laugardaga
Vertu vinur okkar á Facebook
Ný sending frá
Vandaðir
og þægilegir leðurskór
Laugardaga kl. 11-16 virka daga kl. 9 -18 Stórhöfða 25 569 3100 eirberg.is
Opið á
laugardögum
Kynningarblað Persónuleikapróf, ráðningar, atvinnuviðtalið, starfsmannaráðgjöf og heildarþjónusta.
ATVINNUMIÐLUN
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2012
&RÁÐGJÖF
Sex á leið til Tyrklands
Landslið Íslands í golfi tekur
þátt í Heimsmeistaramóti
áhugamanna.
golf 42
SJÓNVARP „Mér finnst óviðunandi
að manneskja geti horfið sporlaust
í okkar litla samfélagi,“ segir
frétta konan
Helga Arnar-
dóttir sem senn
fer af stað með
nýja sjónvarps-
þætti á Stöð 2
þar sem fjallað
verður um
mannshvörf á
Íslandi.
„Mér hefur
verið mjög vel
tekið. Aðstandendur, sama hversu
langur tími er liðinn frá hvarfinu,
eru alltaf að bíða og leita að svör-
um um afdrif einstaklingsins.“
Alls rata fjórar íslenskar
þáttaraðir sem fjalla um manns-
hvörf, sakamál, slys og óútskýrða
atburði á skjái landsmanna í
vetur. - áp / sjá síðu 46
Nýir þættir um mannshvörf:
Leitar svara
um horfið fólk
HELGA
ARNARDÓTTIR
Iceland
frystivörurnar
eru komnar aftur
Opið til
21
í kvöld
TÖFRANDI
SAMGÖNGUR Gylfi Sigfússon, for-
stjóri Eimskips, kveðst hafa veru-
legar áhyggjur af aukinni ásókn
hælisleitenda sem reyna að komast
um borð í Ameríkuskip félagsins.
Í bréfi til innanríkisráðuneytisins
segir Gylfi alvarlega stöðu koma
upp sleppi laumufarþegi með skipi
vestur um haf.
„Slíkt myndi kosta Eimskip háar
fjársektir, hættu á handtöku skip-
stjóra og möguleika á að skip
félagsins yrði kyrrsett með tilheyr-
andi kostnaði,“ skrifar Gylfi og
bætir við að að beinum siglingum
milli Íslands og Norður- Ameríku
sé ógnað: „Yfirvöld í Ameríku
fylgjast grannt með og gætu mögu-
lega ályktað sem svo að siglinga-
leiðin sé ótrygg og gætu gert kröfu
til þess að vörur milli Íslands og
Norður-Ameríku yrðu fluttar í
gegnum hafnir á meginlandi Evr-
ópu,“ útskýrir forstjóri Eimskips
sem kveður þessar siglingar þá til
dæmis geta orðið um Rotterdam.
Þetta hefði mikinn kostnað í för
með sér fyrir útflytjendur.
Þá bendir Gylfi á að sumir hælis-
leitendanna hafi ítrekað verið hand-
teknir á athafnasvæði Eimskips eða
um borð í skipum þess. Þeir hafi
gert sjö „atlögur“ að því að lauma
sér með skipum félagsins úr landi.
„Það er eins og þessir aðilar séu
eftirlitslausir og að engin lög taki
á ítrekuðum brotum þeirra sem
valda tjóni á mannvirkjum og
síðast en ekki síst viljum við ekki
hugsa þá hugsun til enda ef til
handalögmála kæmi við öryggis-
verði eða sjómenn,“ segir for-
stjórinn í bréfinu þar sem fram
kemur að reyndar hafi legið við
átökum. „Í síðustu tveimur til-
raunum sýndu aðilar tilburði til
að ráðast á öryggisverði félagsins.“
Óskað er eftir aðgerðum af hálfu
innanríkisráðuneytisins. „Fundir
hafa verið haldnir með embættis-
mönnum ráðuneyta, útlendingaeftir-
lits, siglingamála, lögregluembætta
og hafnaryfirvalda. Þær viðræður
hafa hingað til því miður litlu sem
engu skilað,“ skrifar Gylfi ráðu-
neytinu og biður um skjót viðbrögð.
Bréfi Eimskips, sem dagsett er
16. júlí, hefur enn ekki verið svarað
að sögn upplýsingafulltrúa ráðu-
neytisins. „Við erum enn að bíða,“
segir Ólafur William Hand, upplýs-
ingafulltrúi Eimskips.
Stjórn Faxaflóahafna segist hins
vegar taka undir að viðeigandi yfir-
völd eigi að grípa til nauðsynlegra
ráðstafana vegna ítrekaðra tilrauna
til innbrota á svæði Eimskips. - gar
Óttast að Bandaríkin loki á
siglingar héðan til Ameríku
Eimskip segir hættu á að skipum verði meinað að sigla héðan til Bandaríkjanna ef laumufarþegar komast
vestur um haf. Innaríkisráðuneytið hefur ekki svarað erindi félagsins sem óttast um öryggi starfsmanna.
LAUMAST Í SUNDAHÖFN Þrír hælis-
leitendur læðast um á afgirtu svæði
Eimskips. MYND/EIMSKIP
MENNTAMÁL Lagaákvæði um að
tveir þriðju hlutar starfsmanna
leikskóla skuli hafa lokið leik-
skólakennaraprófi verður ekki
uppfyllt fyrr en í fyrsta lagi árið
2041, að óbreyttu. Þetta kemur
fram í skýrslu starfshóps um
aðgerðir til eflingar leikskóla-
stigsins. Árið 2010 vantaði 1.369
stöðugildi til að uppfylla laga-
ákvæðið.
Nám leikskólakennara var lengt
í fimm ár árið 2011. Nokkuð hefur
dregið úr aðsókn í námið síðan.
Haraldur Freyr Gíslason, for-
maður Félags leikskólakennara,
segir ástandið alvarlegt. Útskrifa
þurfi 180 leikskólakennara á ári á
næstu árum til að viðhalda stétt-
inni. Aðeins 105 hófu nám í haust.
Þá segir Haraldur að bæta þurfi
launakjörin.
„Við verðum sem þjóð að ákveða
hvernig menntun við viljum veita.
Ef við ætlum að veita úrvals-
menntun þá verðum við að fram-
leiða leikskóla kennara, en þeir
eru ekki að skila sér í námið.
Ástæðan fyrir því er fyrst og
fremst tengd launum og starfs-
kjörum. Ef við ætlum að laga
þetta þá verður að gera eitthvað
róttækt.“
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, segir
þetta áhyggjuefni. Meðal þess
sem skoðað verði er hvort búa eigi
til útgönguleiðir í náminu með því
að hlutaskipta því. „Fólk getur þá
fengið það metið í starfi á leikskól-
um.“ Þannig væri hægt að skipta
fimm ára náminu upp í áfanga sem
ljúka mætti síðar. - kóp / sjá síðu 4
Lengra leikskólakennaranám gerir erfiðara að fjölga menntuðum kennurum:
Vantar á annað þúsund kennara
Ef við ætlum að laga
þetta þá verður að
gera eitthvað róttækt.
HARALDUR FREYR GÍSLASON
FORMAÐUR FÉLAGS LEIKSKÓLAKENNARA
Teppin seldust upp
Samstarfsverkefni Farmers
Market og Sigur Rósar
vekur mikla lukku.
fólk 46
DÁLÍTIL VÆTA sunnan og vestan
til en bjart veður á Norður- og
Austurlandi. Fremur hæg suðlæg
átt og hlýnandi veður. Vaxandi
vindur með rigningu SV-til í kvöld.
VEÐUR 4
11
10 10
11
11
ÓLYMPÍULEIKAR FATLAÐRA Setningarathöfn Ólympíuleika fatlaðra í London í gærkvöldi
gaf athöfninni fyrir Ólympíuleikana fyrr í mánuðinum ekkert eftir. Fjórir íslenskir keppendur eru í London og keppa
þeir allir í fyrsta sinn á Ólympíuleikum. Fjórmenningarnir stefna allir á verðlaun. Sjá síðu 40. NORDICPHOTOS/AFP
Óður til amma
Sigmundur Ernir
Rúnarsson segir skriftir fara
vel með þingstörfum.
tímamót 24