Fréttablaðið - 30.08.2012, Qupperneq 12
30. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR12 12
hagur heimilanna
Neytendur eiga rétt á að flug-
félag greiði fyrir nýjan flug-
miða með fyrsta mögulega flugi
á ákvörðunar stað þótt það sé með
öðru flugfélagi. Það er ekki nóg að
flugfélag bjóði endurgreiðslu eða
miða með næsta flugi þess sjálfs
hafi flugferð verið aflýst.
Á fréttavefnum metroxpress.
dk er greint frá því að dómstóll í
Kaupmannahöfn hafi dæmt flug-
félagið KLM til að bæta kostnað
lögfræðingsins Bente Hagelund
og fjölskyldu hennar sem sætti
sig ekki við sex daga seinkun og
keypti miða með öðru flugfélagi.
Vegna fannfergis á Schiphol-
f lugvellinum í Amsterdam
veturinn 2010 var flugi til Ghana
í Afríku, þangað sem fjölskylda
Hagelund hafði keypt ferð til,
fyrst seinkað um tvo daga. Fluginu
var aftur seinkað og þá um fjóra
daga. Ekki er greint frá ástæðum
seinni seinkunarinnar í fréttinni.
Fjölskyldan sætti sig ekki við við-
bótarseinkunina og pantaði ferð
með öðru flugfélagi.
KLM vildi ekki greiða kostn-
aðinn vegna þeirrar ferðar. Sú
ferð var 15.700 dönskum krónum
dýrari en ferðin með KLM sem
kostaði 29.000 danskar krónur.
Lögfræðingurinn höfðaði mál
gegn KLM sem var dæmt til að
greiða báðar upphæðirnar.
Hagelund kveðst ekki hafa
þekkt reglur Evrópusambandsins
varðandi rétt neytenda. Hún segir
það vera alltof erfitt að finna út úr
því hvaða reglur séu í gildi, jafn-
vel fyrir lögfræðinga. Haft er eftir
lögfræðingi dönsku neytendasam-
takanna að reglurnar gildi aðeins
sé ferðast til eða frá Evrópusam-
bandslandi og ef flugfélagið er
staðsett í aðildarríki sambandsins.
Kristín Einarsdóttir, fulltrúi
Neytendasamtakanna, segir að
unnið sé hér á landi eftir reglu-
gerðum Evrópusambandsins varð-
andi réttindi flugfarþega.
Dómstóll í Kaupmannahöfn úrskurðar flugfarþegum í hag:
Næsta mögulega flug gildir
Á SCHIPHOL Danskur lögfræðingur sætti sig ekki við að þurfa að bíða í sex daga eftir
flugi. NORDICPHOTOS/GETTY
PRÓSENT er sú hlutfallslega hækkun sem varð á
verði á eggjum á Íslandi frá maí 2009 til maí 2012.16,6
Neytendasamtökin segja
að sníða þurfi nemakort
Strætó að raunverulegri
þörf nemenda þótt verð-
hækkun hafi ekki verið
umflúin, eins og talsmenn
Strætó hafa greint frá.
Samtökunum hafa borist
margar kvartanir frá náms-
mönnum og aðstandendum
þeirra vegna breytinga á
fyrirkomulagi kortanna. Nú
er eingöngu hægt að fá 12
mánaða nemakort sem kost-
ar 38.500 krónur. Í fyrra-
haust gátu nemendur keypt
kort sem gilti í 9 mánuði og
kostaði 20 þúsund krónur.
Þuríður Hjartardóttir, fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtak-
anna, gagnrýnir breytt fyrir-
komulag á nemakortum Strætó.
„Í fyrrahaust kostaði 9 mánaða
nemakort 20.000 krónur, rúm-
lega 2.200 krónur á mánuði, en
mánaðarlegur kostnaður er nú
rúmlega 3.200 krónur miðað við
12 mánaða kort á 38.500 krónur.
Þetta er 45 prósenta hækkun. Við
höfum fengið margar kvartanir
vegna þessa.“
Hún segir að með breytta fyrir-
komulaginu sé í raun verið að
neyða námsmenn til að kaupa
kort sem gildir þremur mánuðum
lengur en skólaárið er. „Ferða-
venjur margra nema breytast á
sumrin, til dæmis þeirra sem taka
fram hjólið eða fara út á land að
vinna. Fyrir þennan hóp verður
verðhækkunin því um 93 prósent,
úr 20.000 í 38.500 krónur.“
Reynir Jónsson, forstjóri
Strætó, segir að ekki hafi verið
komist hjá því að hækka verðið.
„Ákveðið var að lina sársaukann
með því að láta kortið gilda í 12
mánuði.“
Hann getur þess einnig að
Strætó hafi borist margar athuga-
semdir þegar nemakortin voru
annatengd eins og í fyrra. „Við
vorum spurð af hverju þau giltu
ekki einnig yfir sumarið. Nem-
endafélög sögðu kannanir sýna að
það væri ósk nemenda að kortin
giltu að sumarlagi. Við gáfum út
sumarkort í fyrra en það seldist
illa. Nú veitum við kaupauka. 12
mánaða kortið er til dæmis ódýr-
ara en 9 mánaða kort á venjulegri
gjaldskrá sem kostar 42 þúsund
krónur en það er auðvitað enginn
sáttur að fá svona mikla hækkun.“
Þuríður telur líklegra að kaup-
aukinn sé fyrir Strætó en ekki
nemendur. „Þeir hljóta að vera
stór og mikilvægur viðskipta-
hópur. Þeir hafa ekki mikið fé
á milli handanna og haustið er
kostnaðarsamur tími. Strætó á að
bjóða skástu leiðina til að lækka
kostnað fyrir námsmenn en ekki
gefa þrjá mánuði í búbót. Það á að
sníða nemakort að raunverulegri
þörf þeirra.“
Reynir segir ýmsa velta því
fyrir sér hvað réttlæti niður-
greiðslu fyrir einn hóp umfram
annan. „Hvers vegna ætti til
dæmis að niðurgreiða kort fyrir
nemanda í MBA-námi sem er í
fullri vinnu?“ - ibs
Gagnrýna breyttan
gildistíma nemakorta
Á BIÐSTÖÐ Nemakort í Strætó gilda nú í 12 mánuði. Ekki var komist hjá verðhækkun, að sögn forstjóra Strætó. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nú eru til á markaðnum fjórar tegundir
af hreinu hvítu skyri, að sögn sölustjóra
MS, Aðalsteins Magnússonar. Óhrærða
skyrið merkt KEA er það skyr sem einna
helst líkist því sem var til sölu áður fyrr.
Það hefur aðallega verið selt á Norður-
landi en fæst einnig í einhverjum versl-
ana Nettó á höfuðborgarsvæðinu. Líf-
tími óhrærða KEA-skyrsins er 15 dagar
en líftími hinna skyrtegundanna er 30
dagar, að því er sölustjórinn greinir frá.
■ Matvæli
Nokkrar tegundir til af hreinu hvítu skyri
Lágfargjaldaflugfélagið Ryanair
krefst þess að allir farþegar
skrái sig í flug á netinu. Þeir
þurfa einnig að prenta út brott-
fararspjald og koma með það
á flugvöllinn. Geri þeir það ekki
þurfa þeir að greiða sekt upp á
60 evrur. Suzy McLeod frá Bret-
landi og samferðamenn hennar
þurftu að greiða alls 300 pund
þar sem þau höfðu ekki prentað
út brottfararspjöldin. McLeod segir frá þessu á Facebook-síðu sinni. Yfir hálf
milljón manns hafa lýst því yfir á Facebook að þeir séu sammála henni um að
gjöldin séu óréttlát.
■ Samgöngur
Sektað ef brottfararspjald er ekki prentað út
GÓÐ HÚSRÁÐ málningarvinna
Gott er að smyrja sápu á glerið.
Þegar haustar fara margir að huga aftur að viðhaldi innanhúss, þar á meðal
málningarvinnu. Eitt gott ráð þegar kemur að því að mála gluggakarma og í
kring um annað gler er að smyrja sápu á glerið. Þá festist málningin ekki þar
við, verði slys líkt og gerast vill, og málning klínist í glerið. Einfalt er svo að
hreinsa sápuna og málningarleifar af glerinu eftir að málningin hefur fengið
að þorna.