Fréttablaðið - 30.08.2012, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 30. ágúst 2012 19
Í grein sem birtist í Frétta-blaðinu í kjölfar búsáhalda-
byltingar, snemma árs 2009,
varpaði ég fram þeirri spurn-
ingu hvort það væri sanngjörn
ályktun að lýðveldisstjórnar-
skráin hefði brugðist íslensku
samfélagi og hvort það væri
óhjákvæmilegur þáttur í við-
reisn Íslands að byrjað væri frá
grunni við mótun íslenskrar
stjórnskipunar.
Sjálfur leitaðist ég við að svara
spurningunni á þá leið að holl-
usta við grunngildi núverandi
stjórnarskrár væri mikilvægari
en setning nýrrar og áferðar-
fallegri stjórnarskrár. Þótt yfir-
vegaðar breytingar á afmörkuð-
um atriðum stjórnarskrárinnar
væru af hinu góða (og það væru
vissulega atriði í íslenskri stjórn-
skipun sem færa mættu til betri
vegar) gegndi öðru máli um
„stjórnskipulega óvissuferð“ á
umbrotatímum. Slíkri vegferð
kynni að lykta með því að stjórn-
arskránni yrði í heild sinni varp-
að fyrir róða með ófyrirséðum
afleiðingum.
Nú, rúmlega þremur árum
síðar eftir birtingu framan-
greindrar greinar, liggur fyrir
frumvarp Stjórnlagaráðs að
nýrri stjórnarskrá sem felur
í sér breytingar á velflestum
ef ekki öllum meginatriðum
íslenskrar stjórnskipunar, jafn-
vel á sumum sem ekki hafa
valdið sérstökum ágreiningi.
Þótt ætluð áhrif breytinganna,
sem sumar hverjar eru róttæk-
ar, hafi lítt verið könnuð og hin
nýja stjórnskipun sé í raun þoku-
kennd þegar litið er á frumvarp-
ið í heild, hefur verið ákveðið
að frumvarpið verði borið undir
atkvæði þjóðarinnar 20. októ-
ber nk. í ráðgefandi atkvæða-
greiðslu. Þar sem vilji núverandi
ríkisstjórnar virðist standa til
þess að frumvarpið verði sam-
þykkt fyrir næstu kosningar
til Alþingis getur það alls ekki
talist fjarstæðukennt að frum-
varp Stjórnlagaráðs verði, með
eða án einhverra breytinga, sam-
þykkt sem stjórnskipunarlög á
næsta kjörtímabili. Það er því
löngu tímabært að frumvarp
Stjórnlagaráðs sé tekið og rætt
af fullri alvöru.
Eins og stjórnarskrármálið
liggur fyrir á þessari stundu
kann svo að virðast að valkost-
irnir séu aðeins tveir: Að sætta
sig við óbreytta stjórnarskrá
og stjórnskipulega stöðnun eða
samþykkja frumvarp stjórn-
lagaráðs og þá hugsanlega með
einhverjum breytingum. Þá leið
að nálgast endurskoðun stjórn-
arskrárinnar með meiri var-
kárni og yfirvegun en leiðir af
frumvarpi Stjórnlagaráðs hefur
vissulega borið á góma með
almennum hætti. Að mínum
dómi hefur það hins vegar háð
umræðunni um þetta mál að ekki
hafa komið fram nánar útfærð-
ar hugmyndir um hvernig slík
stjórnarskrártillaga gæti litið út.
Úr þessu höfum við Ágúst Þór
Árnason, deildarformaður laga-
deildar Háskólans á Akureyri,
séð okkur knúna til að bæta með
því að birta opinberlega heild-
stæða tillögu að endurskoðaðri
stjórnarskrá lýðveldisins Íslands
ásamt skýringum.
Tillaga okkar að endurskoð-
aðri stjórnarskrá er að megin-
stefnu byggð á atriðum sem
hafa verið til umræðu á undan-
förnum árum og áratugum og
hafa hlotið nokkuð rækilega
athugun. Jafnframt er hér um
að ræða atriði, þar sem veruleg
samstaða ríkir um breytingar,
en sneitt hjá þeim þáttum sem
sætt hafa ágreiningi. Hér er því
ekki endilega um að ræða ein-
hvers konar draumastjórnarskrá
tveggja háskólamanna heldur
tilraun til þess að festa hendur á
þeim breytingum sem um ríkir
víðtæk samstaða. Von okkar er
sú að tillagan verði uppbyggilegt
framlag til umræðu um stjórnar-
skrármál á komandi misserum.
Tillagan, ásamt skýringum, er
birt á vefsíðunni Stjornskipun.is.
Valkostur í stjórnarskrármálinu
Ný stjórnarskrá
Skúli
Magnússon
dósent við Lagadeild HÍ
Hér er því ekki endilega um að ræða ein-
hvers konar draumastjórnarskrá tveggja
háskólamanna heldur tilraun til þess að
festa hendur á þeim breytingum sem um ríkir víðtæk
samstaða.
Sumri hallar, sumarleyfum lýkur og skólarnir hefjast.
Lífið heldur áfram sinn vana-
gang. Margt er þó öðruvísi en
fyrir fáeinum misserum. Margt
hefur færst til hins betra eins
og margir verða varir við. Við
höfum þó ekki enn jafnað okkur
fyllilega eftir áföll efnahags-
hrunsins. Vanskil eru enn óeðli-
lega tíð þótt vísbendingar séu
um að úr þeim kunni að draga
á næstunni.
Eitt af því sem breyst hefur
eru viðhorf almennings til lífs-
ins og tilverunnar eins og þau
eru mæld af ýmsum ábyrgum
aðilum. Flestar eru breyting-
arnar ánægjulegar og bera vott
um að Íslendingum líði almennt
betur en fyrstu tvö árin eftir
bankahrunið. Allt í kring-
um okkur sjáum við merki um
jákvæða þróun efnahagslífsins
og vonir vakna um bættan hag
og aukið fjárhagslegt öryggi.
Þessi kennd á sér fótfestu í
áþreifanlegum breytingum sem
orðið hafa til batnaðar. Stjórn-
arandstöðuflokkarnir virðast
eiga afar erfitt með að sætta sig
við þetta og reyna enn að telja
þjóðinni trú um að hvítt sé svart
og svart sé hvítt í málflutningi
sínum.
Vélin er hætt að hökta
Það er gott að hafa hugfast að
með hruninu minnkaði lands-
framleiðslan um 13% og henni
fylgdi ógnvænleg kaupmáttar-
rýrnun og greiðsluerfiðleikar
fyrirtækja og heimila. Í samfellt
tvö ár hafa þessi mál verið að
þróast til betri vegar og nú vant-
ar okkur aðeins um 2,5 prósentu-
stig til að landsframleiðsla verði
jafnmikil og hún var á hátindi
bóluhagkerfisins fyrir hrunið.
Það markmið er vel innan seil-
ingar. Þetta helst í hendur við
minnkandi atvinnuleysi og auk-
inn kaupmátt eins og allir geta
kynnt sér í gögnum Hagstofu
Íslands, Seðlabankans og Vinnu-
málastofnunar. Fæst lönd geta
státað af því að atvinnuleysi sé
undir 5% eins og reyndin er hér
á landi. Sama á við um hagvöxt-
inn sem er nálægt þremur pró-
sentum. Þá berast ánægjuleg tíð-
indi af lækkun verðlags síðustu
fjóra mánuði, en verðbólga síð-
ustu 12 mánaða mælist nú 4,1%.
En ef einhver er ekki viss
um að breytingar hafi orðið til
batnaðar er ágætt að rýna í það
sem fólk hefur sjálft um ástand-
ið að segja og hvernig það lítur
á málin. Þess vegna eru ýmsir
félagsvísar og mælingar á lífs-
ánægju æði merkilegar.
Það sem fólk segir sjálft
Eurobarometer, eins konar þjóð-
arpúls Evrópulandanna, hefur
birt könnun meðal mismunandi
þjóða þar sem spurt er hvort
íbúar telji land sitt á réttri eða
rangri leið. Um þetta var fjallað
í netmiðlum í síðustu viku. Þar
kom fram að fleiri Íslendingar
telja nú samfélagið á réttri leið
en rangri og fleiri Íslending-
ar eru jákvæðir gagnvart sam-
félagsþróuninni en íbúar flestra
annarra Evrópulanda. Aðeins
Svíar eru jákvæðari en Íslend-
ingar í afstöðu sinni að þessu
leyti. Um helmingur aðspurðra
hér á landi telur nú að landið sé
á réttri leið.
Þetta kemur ágætlega heim og
saman við aðra tegund mælingar
sem Capacent hér á landi hefur
gert á lífsmati og lífsánægju.
Niðurstöðurnar eru áhugaverð-
ar. Þeir sem eru mjög ánægðir
og bjartsýnir, dafna m.ö.o., voru
43% svarenda árið 2010 en eru
nú 65%. Fjölgun í þessum hópi
er meiri en 50% frá árinu 2010.
Sá hópur sem er í basli – er
hvorki ánægður né óánægður
– minnkar úr 53% í 32% svar-
enda á sama tíma. Þeir sem eru
í verstu stöðu og telja sig búa við
þrengingar voru um 5% en hefur
fækkað í tæplega 3% núna.
Mikilvægi þess að draga úr
ójöfnuði
Þessar breytingar á viðhorf-
um tala sínu máli og bæta þá
mynd sem við þurfum að hafa
af framvindunni. Hér er því
ekki haldið fram að allt sé nú
orðið eins og best verður á
kosið. En á móti fullyrði ég að
sú stefna sem ríkisstjórnin og
þingmeirihluti Samfylkingar
og VG hefur fylgt, hefur ein-
mitt miðað að því að færa byrð-
ar hrunsins á herðar hinna
ríkari og um leið hlífa þeim
sem lakar standa eftir megni.
Aðgerðir hafa miðað að því að
draga úr ójöfnuði og verja vel-
ferðarkerfið. Vísbendingar og
talnagögn um að dregið hafi úr
ójöfnuði þeim sem hægrimenn
ýttu undir fyrir hrun tala sínu
máli. Við höfum náð eftirtektar-
verðum árangri við að verja vel-
ferðarkerfið og lífskjör þeirra
sem veikast stóðu þegar hrun-
ið skall á. Fólkið sem aldrei tók
þátt í gróðabralli bóluhagkerf-
isins en hefði án nokkurs vafa
orðið harðast úti í afleiðingum
hrunsins, ef hægrimenn hefðu
verið við völd.
Það hefur verið sérstakt
markmið ríkisstjórnarinnar að
draga úr ójöfnuði með því að
beita skattkerfinu og bótakerf-
inu og draga úr byrðum þeirra
sem síst geta borið þær. Það
hefur borið ríkulegan árang-
ur. Árið 2010 vorum við loks í
hópi þeirra 10 þjóða sem búa við
minnstan ójöfnuð í heiminum
en á árunum fyrir hrun stefndi
Ísland hraðbyri í að verða eitt
af mestu ójafnaðarlöndum
okkar heimshluta. Fátt sýnir
með áþreifanlegri hætti mun-
inn á stjórnarstefnu velferðar-
ríkisstjórnar Samfylkingar og
VG og þeirra hægristjórna hér
sem hafa starfað undir leiðsögn
Sjálfstæðisflokksins.
Hægrimönnum er í mun að
láta aukna skatta á hina tekju-
hæstu líta út sem almenna vax-
andi skattpíningu. Það er auð-
vitað fjarstæða. Reyndin er
auk þess sú, að eftir því sem
úr ójöfnuði dregur batnar líðan
fólks og ekki aðeins það, því
bætt lýðheilsa og minni tíðni
glæpa virðist einnig haldast í
hendur við minnkandi ójöfnuð.
Við þetta staldra nú fræðimenn
beggja vegna Atlantshafsins
og Íslendingar finna í vaxandi
mæli að þetta er rétta leiðin.
ht.is
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ SELFOSSI HÚSAVÍK S: 464 1600
AKUREYRI REYKJAVÍK S: 569 1500
Í ÖLLUM STÆRÐUM
Komið skilaboðunum
á framfæri með stæl.
Hægt er að setja
allt að 16 skjái
saman á einn vegg.
SKJÁVEGGIR
Meirihluti telur Ís-
land á réttri leið
Efnahagsmál
Jóhanna
Sigurðardóttir
forsætisráðherra
Það hefur verið sérstakt markmið ríkis-
stjórnarinnar að draga úr ójöfnuði með
því að beita skattkerfinu og bótakerf-
inu og draga úr byrðum þeirra sem síst geta borið
þær. Það hefur borið ríkulegan árangur.