Fréttablaðið - 30.08.2012, Page 31

Fréttablaðið - 30.08.2012, Page 31
KYNNING − AUGLÝSING Atvinnumiðlun & ráðgjöf 30. ÁGÚST 2012 FIMMTUDAGUR 3 NÝR RÁÐGJAFI Sverrir Briem er nýjasti ráðgjafinn hjá Hagvangi en hann kemur til starfa á haustmánuðum. Sverrir lauk M.Sc. í sálfræði frá Kaupmannahafn- arháskóla og hefur nýlokið prófi í starfsmanna- vali og viðtalstækni frá BI Norwegian Business School. Undanfarið hefur Sverrir starfað sem sálfræðingur hjá Kongsberg Sykehus í Noregi. Það er engin tilviljun að Hagvangur er enn eitt öflugasta ráðningar- og ráð-gjafarfyrirtæki á íslenskum vinnu- markaði,“ segir Katrín Óladóttir, fram- kvæmdastjóri Hagvangs. „Ráðgjafar okkar búa yfir mikilli reynslu og faglegri þekkingu hvað varðar ráðningar og önnur mannauðs- mál en meirihluti ráðgjafanna hafa há- skólamenntun á sviði sálfræði, mannauðs- stjórnunar og viðskiptafræði. Víðtæk þekk- ing ráðgjafa okkar á íslensku atvinnulífi er einnig mikilvægur styrkur.“ Hagvangur leggur áherslu á að koma til móts við þarfir hvers viðskiptavinar og getur því komið að ráðningarferlinu á öllum stigum. Katrín segir reynsluna þó hafa sýnt að best takist til með ráðningu þegar ráð- gjafinn vinnur allt ferlið með fyrirtækinu. Ráðgjafinn sparar einnig mannauðsstjórum og stjórnendum mikla vinnu og tryggir fagleg vinnubrögð sem kemur bæði umsækjendum og fyrirtækinu til góða. En er vinnu að hafa í dag? „Atvinnuástandið síðastliðna mánuði hefur farið batnandi og vonandi fara horfur að skýrast betur hvað varðar fjárfestingar og önnur tækifæri til atvinnuuppbyggingar. Framkvæmdir, stórar sem smáar, hafa mikla þýðingu fyrir atvinnulífið og fólkið almennt í bættum lífsgæðum. Þannig skapast störf og staða annarra fyrirtækja batnar að sama skapi,“ segir Katrín. „Við teljum að bjartari tímar séu fram undan, skráð atvinnuleysi hefur mælst lægra undanfarið eða 4,4% og er það með því minnsta síðan í nóvember 2008. Aukin breidd er í eftirspurn eftir fólki til starfa og sóknar- hugur er í mörgum fyrirtækjum. Mörg fyrir- tæki hafa spjarað sig vel eftir hrunið og finna hægt og bítandi aukna þörf fyrir þjónustu. Það kallar á aukinn mannafla. Talsverð eftirspurn er eftir starfsfólki í verkfræði- og tæknistörf, bæði hér heima og erlendis. Það er alltaf þörf fyrir fólk sem vill sýna árangur í starfi.“ Traust, trúnaður og fagleg vinnubrögð Hagvangur er fyrsta ráðningarþjónustan sem tók til starfa á Íslandi. Hagvangur starfar á þremur meginsviðum; við ráðningar, ráðgjöf, greiningar og próf. Framúrskarandi þjónustulund, trúnaður, traust og fagleg vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi hjá Hagvangi og leggur starfsfólk sig fram um að samþætta hag einstaklinga og velgengni fyrirtækja. Starfsfólk Hagvangs leggur sig fram við að samþætta hag einstaklinga og velgengni fyrirtækja. Það er því engin tilviljun að Hagvangur er eitt öflugasta ráðgjafar- og ráðningarfyrirtæki á Íslandi. MYND/GVA ■ Ferilskrá og umsóknir ■ Greiningar á stjórnendateymum ■ Hönnun starfsmannavalskerfa ■ Launastefna ■ Námskeið í notkun persónuleikaprófa ■ Persónuleg ráðgjöf ■ Persónuleikapróf ■ Ráðgjöf vegna uppsagna ■ Ráðningar ■ Sérhæfð leit að starfsmanni ■ Starfsleit ■ Starfslýsingar ■ Starfslokagreining ■ Starfsmannahandbók ■ Starfsmannasamtöl ■ Starfsþróun ■ Stefnumótun í mannauðsmálum ■ Stjórnendamat og þjálfun ■ Styrking og greining vinnuhópa ■ Streitustjórnun ■ Undirbúningur viðtala ■ Viðhorfskannanir ■ Vinnustaðagreiningar ■ Öryggis- og gæðamál Heildarþjónusta á sviði mannauðsmála Hagvangur er aðili að alþjóðasamtökunum EMA Partners International, Excellence in Executive Search og dreifingaraðili fyrir bandaríska prófaframleiðandann Hogan Assessment Systems. Hagvangur, Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík, sími 520 4700, www.hagvangur.is.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.