Fréttablaðið - 30.08.2012, Page 32
KYNNING − AUGLÝSINGAtvinnumiðlun og ráðgjöf FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 20124
Capacent rekur ráðningar-stofurnar Capacent ráðn-ingar og Vinna.is. Til sam-
ans þjónusta fyrirtækin allan
vinnumarkaðinn. Capacent sér-
hæfir sig í ráðningum í allt frá sér-
hæfðum skrifstofustörfum til ráðn-
inga stjórnenda, jafnt í einka- og
opinbera geiranum, en Vinna.is
sér hæfir sig í ráðningum sem ekki
krefjast háskólamenntunar. Auður
Bjarnadóttir, ráðningarstjóri hjá
Capacent ráðningum og Agla Sig-
ríður Björnsdóttir, ráðningarstjóri
Vinna.is, segja þjónustu beggja
fyrirtækja sýna vel þá breidd sem
boðið er upp á. „Við sjáum um
ráðningar frá framlínufólki til
stjórnenda fyrirtækja og aðlögum
þjónustuna að þörfum viðskipta-
vinarins,“ segir Auður.
Agla segir fyrirtæki í dag mun
meðvitaðri en áður um kosti þess
að leita með ráðningar starfsmanna
til ráðningarstofa. „Þeir sem stýra
starfsmannamálum fyrirtækja í
dag eru vel menntaðir í mannauðs-
fræðum og vita um mikilvægi þess
að láta fagmenn sjá um ráðningar
auk þess sem tölu verður tíma-
sparnaður felst í því. Fyrir tækin
eru líka almennt orðin upp lýstari
um hlutverk ráðningarstofa en áður
og hversu fjölbreytta þjónustu þær
bjóða upp á auk hefð bundinna
ráðninga.“ Þær segja fyrir tækin
einnig koma betur undir búin en
áður og með vel skilgreindar þarfir.
„Störfin eru betur skilgreind en
áður. Við hjálpum með starfs-
greiningar og höfum ýmsar leiðir
til þess að sjá hvernig einstaklinga
þarf í starfið með tilliti til mennt-
unar og starfsreynslu.“
Nýjar valaðferðir
Mikil reynsla starfsmanna beggja
fyrirtækja er helsti styrkleiki þeirra
segja Auður og Agla, enda meiri-
hluti starfsfólks fyrirtækjanna búið
að starfa um árabil við ráðningar.
Fyrirtækið hefur verið í fararbroddi
við innleiðingu nýrra valaðferða
í ráðningum hérlendis. Má nefna
að auk hefðbundinna matsaðferða,
s.s. sérsniðinna viðtala og umsagna,
þá leggur fyrirtækið raunhæf verk-
efni fyrir umsækjendur og hefur
notað persónuleikamat og hæfnis-
próf með góðum árangri. Með
notkun persónuleikamats kemur
fram hvort umsækjandinn hafi þá
eigin leika sem nauðsynlegir eru
til að ná árangri í starfinu, matið
hefur verið staðlað og viðmiðunar-
hópurinn eru íslenskir sérfræðingar
og stjórnendur. Hæfnisprófin sem
Capacent ráðningar beita kanna
hæfni svarenda til að skilja flókinn
texta eða lesa úr tölum og próf sem
mæla hversu mikla hæfni svarandi
hefur til að greina og leysa vanda-
mál. Matsmiðstöðvar eru einkum
notaðar við val starfsmanna í
stjórnunarstöður. Þá er mats ferlið
ítarlegra þar sem umsækjendur
vinna verkefni sem endurspegla
meginþætti þess starfs sem um er
að ræða. Persónuleika- og hæfn-
isprófin eru helst notuð hjá Capa-
cent ráðningum en Vinna.is hefur
einnig aðgang að þeim. „Vinna.is
tók síðast liðinn vetur í notkun ör-
yggis- og áhættumat sem er frábær
viðbót við þau próf sem við erum
með frá SHL,“ segir Agla. „Þau
henta einkar vel fyrir framlínustörf
og eru þau með íslenskan viðmið-
unarhóp,“ bætir hún við.
Aukin breidd í eftirspurn
Auður og Agla segja eftirspurn
eftir starfsfólki hafa aukist síðustu
tvö árin og það sem er jákvæðast
við breytinguna frá því sem var
er að aukin breidd er komin í aug-
lýst störf. Töluverð eftirspurn er
eftir tæknimenntuðu fólki, t.d.
forriturum, verkfræðingum, starfs-
mönnum með sterkan fjármála-
grunn auk þess sem mikill skortur
er á iðnmenntuðum einstak-
lingum. Þessir hópar hafa reyndar
lengi vel verið eftirsóttir.
Auður og Agla hvetja fyrirtæki
stór og smá til að kynna sér þjón-
ustuframboð Capacent ráðninga
og Vinna.is og skoða hvaða mögu-
leikar eru í boði fyrir fyrirtæki og
stofnanir og hvers konar viðbætur
þjónustan getur verið fyrir starf-
semi viðkomandi fyrirtækja.
Ráðningar fyrir allt atvinnulífið
Ráðgjafar Capacent ráðninga og Vinna.is hafa víðtæka þekkingu og reynslu af ráðningum. Fyrirtækin bjóða upp á persónuleika- og
hæfnispróf auk matsmiðstöðvar við mat á umsækjendum.
Auður Bjarnadóttir, ráðningarstjóri hjá Capacent ráðningum og Agla Sigríður Björnsdóttir, ráðningarstjóri Vinna.is.
MYND/ANTON
Að vera atvinnulaus um tíma getur haft mikil áhrif á þá sem í því lenda. Það er eðli-
legt að sjálfstraustið minnki og
fólk verði niðurdregið. Það er þó
ýmislegt hægt að gera til að gera
þennan tíma auðveldari.
Mikilvægt er að koma sér upp
nokkurs konar stundaskrá. Gott
er að fara að sofa og fara á fætur
á sama tíma á hverjum degi, ekki
snúa sólarhringnum við. Hugsið
um atvinnuleitina eins og hefð-
bundna vinnu og gerið eitthvað
í þeim málum á hverjum degi.
Setjið dagleg markmið. Það er ef til
vill erfitt að sjá heildarmyndina í
þessum aðstæðum og auðveldara
að setja sér minni markmið í einu.
Farið eitthvað út á hverjum
degi. Það er ekki gott að hanga
bara heima, þá er auðvelt að
detta í þunglyndi. Farið í göngu-
túr í miðbænum eða bara í kring-
um húsið ykkar. Það er líka gott
að hitta annað fólk og tala um
ástandið. Þegar, og ef, ástandið
fer að leggjast of þungt á sálina er
nauðsynlegt að koma því frá sér og
byrgja ekki tilfinningarnar inni.
Snúið ykkur til þeirra sem þið
treystið og eru bestir til stuðnings
í þessum málum. Þetta þarf ekki
endilega að vera maki eða besti
vinur. Stundum er gott að leita til
vina sem standa aðeins fjær og sjá
málin í öðru ljósi.
Þetta er góður tími til að læra
eitthvað nýtt. Nýtið tækifærið
og lærið eitthvað sem ekki hefur
verið tími til áður. Nám heldur
fólki uppteknu um leið og það
eykur möguleika á að fá nýtt starf.
Atvinnulausir geta fengið af-
slátt af líkamsræktar-, sund- og
bókasafnskortum og því um að
gera að nýta sér það til að hafa
ofan af fyrir sjálfum sér. Nú
er nægur tími til að lesa allar
bækurnar sem fólk hefur langað
til að lesa í langan tíma eða taka
almennilega á því í ræktinni.
Hreyfing er góð fyrir alla. Við
áreynslu losna endorfín og seró-
tónín sem eru taugaboðefni sem
valda vellíðan. Fólk sem hreyfir
sig sýnir færri merki um kvíða,
þunglyndi og stress. Auk þessa þá
verður líkams ástandið betra. Það
er líka mikilvægt að borða hollan
og góðan mat af sömu ástæðum.
Fagnið litlum sigrum. Þó að at-
vinnuviðtal gangi ekki jafn vel
og von var til er ástæða til þess
að gleðjast yfir því að hafa kom-
ist í viðtal. Það er erfitt að vera já-
kvæður í þessum aðstæðum en vel
þess virði að reyna það meðvitað.
Auðveldara atvinnuleysi
Háskóli Íslands býður upp á
masters nám í mannauðs stjórnun.
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson
dósent heldur utan um námið.
„Mannauðsstjórnun er þverfag-
legt nám og fólk með fjölbreyttan
bakgrunn sækir það; sálfræðingar,
stjórnmálafræðingar, viðskipta-
fræðingar, kennarar og f leiri.
Námið er hugsað fyrir þá sem
vilja bæta við sig þekkingu og öðl-
ast skilning á því hvernig hægt er
að ná hámarksárangri í að stjórna
mannauðnum. Það eru ekki allir
sem ætla að vinna eingöngu sem
mannauðsstjórar. Margir starfa
sem fræðslustjórar, starfsþróunar-
stjórar eða hjá ráðningar- og ráð-
gjafarskrifstofum. Þetta er góð al-
menn menntun sem eykur færni
til að vera góður stjórnandi og
þeir sem eru með mannaforráð og
stýra litlum deildum eða stórum
eru í sjálfu sér mannauðsstjórar og
námið tilvalið fyrir þá.“
Mannauðsstjórnun er 90 ein-
inga nám þar sem komið er inn á
helstu grundvallarþætti reksturs
f yrirtækja og stofnana. „Við
byggjum mikið á rannsóknum sem
tengjast atvinnulífinu. Snertiflöt-
urinn er því mjög breiður og námið
gríðarlega hagnýtt og fjölbreytt.“
Gylfi segir mikla aðsókn hafa
verið í mannauðsstjórnun að
undan förnu og yfir hundrað
manns hafi sótt um í haust. „Það
komast þó ekki allir að þar sem
gerðar eru ýmsar kröfur sem
ekki allir ná að uppfylla. Frá því
að boðið var upp á námið upp
úr aldamótunum hafa yfir tvö
hundruð manns útskrifast.“
Margt hefur breyst í starfi
mannauðsstjóra á undan förnum
árum. „Fyrir hrun var hlutverk
mannauðsstjóra að skapa eftir-
sóknarvert starfsumhverfi enda
eftirspurnin og samkeppnin
um besta starfsfólkið mikil. Það
breyttist svo snögglega yfir í að
aðstoða við uppsagnir, breyt-
ingastjórnun, endurskipulagn-
ingu ásamt fleiru. Á þessu tíma-
bili hefur skapast dýrmæt þekking
og reynsla innan þessa geira sem
mun nýtast í framtíðinni.“
Aukin aðsókn í mann-
auðsstjórnunarnám
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson dósent.