Fréttablaðið - 30.08.2012, Síða 33
KYNNING − AUGLÝSING Atvinnumiðlun og ráðgjöf30. ÁGÚST 2012 FIMMTUDAGUR 5
Intellecta er 12 ára gamalt sjálfstætt þekk-ingarfyrirtæki með áherslu á þróun og innleiðslu lausna sem skila árangri fyrir
viðskiptavini. Fyrirtækið starfar á þremur
meginsviðum: Rannsóknum, ráðningum og
rekstrarráðgjöf.
Fagmennska í vali á starfsmönnum
Ráðgjafar Intellecta á sviði ráðninga, Ari Ey-
berg, Helga Rún Runólfsdóttir, Torfi Mark-
ússon og Þórður S. Óskarsson, hafa starfað
í mörg ár við ráðgjöf og ráðningar. Auk þess
hafa Ari, Torfi og Þórður starfað sem starfs-
mannastjórar í ólíkum atvinnugreinum.
„Mikil reynsla er innan Intellecta sem
nýtist viðskiptavinum í öllum málum sem
snúa að ráðningum og öðrum þáttum er
tengjast mannauði fyrirtækja. Hjá Intellecta
er lögð mikil áhersla á faglegt hæfnismat á
einstaklingum. Við erum valkostur þeirra
sem kjósa að vanda til verka við ráðningar
og ráðningarferlið í heild. Það er aukin og
vaxandi krafa um að fagmennska í valferli sé
tryggð. Allt okkar starf miðast við að uppfylla
ströngustu kröfur í þeim efnum,“ segir Ari.
Ráðningar stjórnenda og lykilstarfsmanna
„Áherslusvið okkar eru lykilstarfsmanna-
og stjórnendaráðningar, háskóla menntaðir
sérfræðingar og upplýsingatæknigeirinn í
heild sinni. Einnig bjóðum við viðskipta-
vinum upp á að sjá um ráðningar í öll al-
menn skrifstofustörf,“ segir Þórður. Fyrir-
tækið annast einnig beina leit (headhunting)
lykil stjórnenda. Markmið ráðgjafa Intellecta
er að finna hæfileikaríka einstaklinga sem
skara fram úr í starfi ásamt því að hafa pers-
ónuleika sem fellur að viðkomandi starfsum-
hverfi.
Intellecta notar eitt fullkomnasta ráðn-
ingar kerfi sem völ er á hérlendis. „Kerfið
veitir öllum þeim sem skráðir eru í gagna-
grunn okkar fullan aðgang að eigin gögnum,
svipað og aðilar hafa í heimabankanum
sínum. Allir skráðir einstaklingar geta breytt
gögnum sínum sjálfir og bætt við þau ef þarf,“
segir Torfi.
Virðisaukandi ráðgjöf á mannauðssviði
Intellecta býður upp á heildstæða ráðgjöf á
sviði mannauðsmála. Þar mætti helst nefna
uppbyggingu starfsmannastefnu, innleið-
ingu og framkvæmd frammistöðumats,
vinnustaðagreiningar, kjarakannanir, upp-
byggingu árangurslaunakerfa, aðstoð við úr-
lausn ágreiningsmála og ráðgjöf við stjórn-
endur vegna uppsagna. Einnig er veitt upp-
byggjandi ráðgjöf til starfsmanna sem sagt
hefur verið upp.
Þórður S. Óskarsson, Ph.D. í vinnu- og
skipulagssálfræði og framkvæmdastjóri In-
tellecta, leiðir ráðgjöf í mannauðsmálum.
Ráðgjafar Intellecta eru meðal annars mennt-
aðir í félagsvísindum, fjármálum, stjórnun,
sálfræði, viðskiptum og verkfræði og búa yfir
umfangsmikilli reynslu í ráðgjöf og rekstri.
Gæði í ráðningum skiptir máli
Hver einstök ráðning er mikilvæg fjárfest-
ing og er það hagur viðkomandi fyrir tækis
og einstaklings að vel takist til. Árangur
fyrir tækja ræðst að miklu leyti af þekkingu
og getu starfsmanna og því er mikilvægt að
ráðningar séu faglega unnar. „Flestir eru
sammála um að mannauður sé ein mikil-
vægasta auðlind fyrirtækja. Hann er upp-
spretta vaxtar og samkeppnisyfirburða. Ár-
angursríkar ráðningar byggjast á fag legum
vinnubrögðum, skilningi á mannlegri
hegðun og notkun viðurkenndra aðferða,“
segir Helga Rún.
Nánari upplýsingar um starfsemi og þjón-
ustu Intellecta er að finna á heimasíðu fyrir-
tækisins www.intellecta.is.
Tólf ára reynsla af ráðningum,
ráðgjöf og rannsóknum
Intellecta er þekkingarfyrirtæki á sviði ráðninga, ráðgjafar og rannsókna og býður upp á sérhæfðar lausnir tengdar mannauði
fyrirtækja. Helga Rún Runólfsdóttir segir mannauð uppsprettu vaxtar og samkeppnisyfirburða og því mikilvægt að vanda til verka.
Ari Eyberg, Helga Rún Runólfsdóttir, Torfi Markússon og Þórður
S. Óskarsson hafa starfað í mörg ár við ráðgjöf og ráðningar.
MYND/GVA