Fréttablaðið - 30.08.2012, Síða 50
30. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR34 34tónlist
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Í SPILARANUM
tonlist@frettabladid.is
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 23. - 29. ágúst 2012
LAGALISTINN
Vikuna 23. - 29. ágúst 2012
Sæti Flytjandi Lag
1 Lykke Li .......................................................I Follow Rivers
2 Fun ..................................................................Some Nights
3 Ásgeir Trausti ................................................. Leyndarmál
4 Train ....................................... 50 Ways To Say Goodbye
5 Jónas Sigurðsson .......................................... Þyrnigerðið
6 Jón Jónsson .........................................................All, You, I
7 Moses Hightower ............................. Sjáum hvað setur
8 Þórunn Antonía ...................................................So High
9 Florence & The Machine .................................Spectrum
10 Owl City / Carly Rae Jesper .........................Good Time
Sæti Flytjandi Plata
1 Of Monsters And Men .................. My Head Is An Animal
2 Sigur Rós ............................................................................. Valtari
3 Moses Hightower .........................................Önnur Mósebók
4 Eivör ......................................................................................Room
5 Helgi Bj. & reiðm. vindanna ..............Heim í heiðardalinn
6 Ýmsir ..................................................................... Ég sé Akureyri
7 Mannakorn .................................................. Í blómabrekkunni
8 Ýmsir ....................................................................... Hljómskálinn
9 Mugison .................................................................... 5 CD Pakki
10 Björk .............................................................................. Gling gló
SUMARLIÐI, HIPPINN OG ALLIR HINIR með Bjartmari Guðlaugssyni
er plata vikunnar ★★★★★
„Langþráð safn bestu laga Bjartmars Guðlaugssonar.“ - TJ
Tónlist ★★★★ ★
Room
Eivør Pálsdóttir
Tutl
Strax og ég sá Eivøru Páls dóttur
syngja á tónleikum í fyrsta sinn
varð mér ljóst að þarna væri
engin meðalmanneskja á ferð.
Eivør er mögnuð söngkona og býr
yfir náttúrulegum tónlistarhæfi-
leikum sem aðeins þeim bestu eru
gefnir.
Hún hefur fengist við alls
konar tónlist: Hún rokkaði með
Clickhaze, söng sveitatónlist með
Kanadamanninum Bill Bourne,
bauð upp á fagmannlega unnið
þjóðlagapopp með Íranum Dónal
Lunny og gerði eina plötu með
Stórsveit danska ríkisútvarpsins,
svo við nefnum nokkur dæmi.
Sönghæfileikar Eivarar koma
alltaf í gegn, en tónlistin sem hún
hefur gefið út með öllum þessum
ólíku samstarfsmönnum er mjög
misáhugaverð. Manni hefur stund-
um fundist að hæfileikar hennar
fengju ekki alveg að njóta sín.
Eivør vann nýju plötuna, Room,
með eiginmanni sínum Tróndi
Bogasyni. Þau semja flest lögin
og textana, saman eða hvort í sínu
lagi. Tróndur sá um út setningar
og saman stjórnuðu þau upp-
tökunum. Og það er mikið gleði-
efni að samstarf þeirra hjóna
skuli virka svona vel. Room er
mjög vel gerð og sannfærandi
plata og á meðal þess allra besta
sem Eivør hefur gert.
Það eru mörg umfjöllunarefni á
Room. Fyrirferðarmest er ástin,
æskuárin og fráfall ást vinar
(faðir Eivarar féll skyndilega
frá á síðasta ári). Textarnir eru
allir á ensku, en það kemur ekki
að sök. Tónlistin á Room er góð
blanda af fáguðu poppi og þjóð-
lagatónlist. Hún minnir af og til á
Björk eða Kate Bush, en samt er
tónlistin mjög persónuleg og fyrst
og fremst Eivarar.
Útsetningarnar eru fagmann-
legar og flottar. Píanóið er
stundum áberandi og rödd Eivarar
fær alltaf að njóta sín. Á heildina
litið er Room frábær plata. Ein af
bestu plötum Eivarar Páls dóttur.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Eivør og eiginmaðurinn
Tróndur með frábæra plötu
Gjöfult samband
The xx - Coexist Deerhoof - Breakup Song Yagya - The Inescapable
Decay of My Heart
DJ Shadow er listamannsnafn Kaliforníubúans Josh Davis sem er
þekktastur fyrir plötuna Entroducing sem kom út árið 1996 og er eitt
af höfuðverkum instrúmental hip-hop tónlistarbylgjunnar sem oftast
er kölluð trip-hop. Hún var áberandi á síðari hluta tíunda ára tugarins
hjá útgáfum eins og Ninja Tune og MoWax. Entroducing er algjört
meistaraverk, marglaga samsuða af töktum og tónum, sem stundum
birtist þegar spekúlantar
velja bestu plötur sögunnar
– eins og skrattinn úr sauða-
leggnum innan um allar
Bítla- og Radiohead-plöt-
urnar …
DJ Shadow er búinn að gera
fjórar plötur síðan Entro-
ducing kom út, en þær
standa henni allar langt að
baki. Fyrir fjórum árum
byrjaði Josh hins vegar að
gefa út tónlist sem hann
gerði á árunum 1990 – 1992.
Alls komu þrjár plötur frá
þessu tímabili sem DJ Sha-
dow kallar The 4-Track Era,
enda vann hann tónlistina á
fjögurra rása kassettutæki
(Yamaha MT-100). Skemmtilegar plötur.
Fyrir nokkrum vikum kom svo út platan Total Breakdown: Hidden
Transmissions From The MPC Era, en hún hefur að geyma áður óút-
gefna tónlist frá næsta skeiði, 1992 – 1996. Þá tónlist vann Josh á Akai
MPC-tæki, en það var MIDI-upptökutæki og trommuheili sem kom
upphaflega á markað árið 1988, en þróaðist með árunum yfir í öflugan
sampler. Á meðal efnis á Total Breakdown er EP-plata sem DJ Shadow
gerði með rapparanum Gift of Gab úr Blackalicious, en sú plata kom
aldrei út á sínum tíma. Eins og 4-Track Era plöturnar er nýja platan
stórskemmtileg. Tónlistin er einfaldari og frumstæðari heldur en hún
varð á seinni stigum, en samt mjög flott.
DJ Shadow sýnir gamla takta
GÓÐ GRÆJA Það er mynd af Akai MPC-tækinu
framan á nýju DJ Shadow-plötunni.
Önnur plata ensku popp-
sveitarinnar The xx kemur
út 10. september. Eftirvænt-
ingarnar eru miklar enda
hlaut frumburðurinn mjög
góðar undirtektir.
Þrjú ár eru liðin síðan enska popp-
sveitin The xx sló í gegn með lág-
stemmdum en grípandi frum-
burði sínum. Hann lenti ofarlega
á mörgum árslistum það árið, þar
á meðal í níunda sæti hjá Rolling
Stone og öðru hér á Fréttablaðinu.
Árið eftir hlaut The xx hin virtu
Mercury-tónlistarverðlaun í Bret-
landi fyrir plötuna.
Eftirvæntingin eftir nýju efni
frá The xx er því mikil og verður
forvitnilegt að fylgjast með
hvernig viðbrögðin við Coexist
verða.
Til að fylgja eftir síðustu plötu
ferðaðist The xx til Bandaríkjanna,
Japans, Ástralíu og um Evrópu og
spilaði við góðar undir tektir. Með-
limirnir, þau Romy Madley Croft,
Oliver Sim og Jamie Smith, sáu
varla heimili sín allt árið 2010.
Þegar þau sneru aftur endurnýjuðu
þau kynnin við fjölskyldur og vini
sína og reyndu að ná áttum.
Smith var mest áberandi með-
limur The xx á síðasta ári. Hann
spilaði víða sem plötusnúður og
þróaði sig áfram sem upptöku-
stjóri. Hann endurhljóðblandaði
lag Adele, Rolling in the Deep, og
endurhljóðblandaði plötu banda-
ríska tónlistarmannsins Gil Scott
Heron, I´m New Here, og kallaði
hana We´re New Here. Einnig gaf
hann út sína fyrstu sólósmáskífu,
Far Nearer, og var upptökustjóri í
lagi rapparans Drake, Take Care.
Að þessari vinnutörn lokinni
hófust upptökur á nýju plötunni,
Coexist. Hún er að sögn Smith
undir áhrifum frá klúbba senunni
sem hljómsveitin missti af á
sínum tíma, auk þess sem áhrif
frá nýbylgjutónlist, Bristol-hljóm-
inum í kringum 1995 og r&b eru
enn fyrir hendi.
„Hugmyndin sem ég var með
í kollinum þegar við byrjuðum
að semja plötuna var ekki rétt
því ég var búinn að semja tónlist
fyrir Drake, sjálfan mig og annað
fólk, og hafði gleymt hvernig var
að vinna með hinum tveimur í
hljómsveitinni. Það er allt öðru-
vísi vegna þess að við erum svo
náin,“ sagði Smith um Coexist.
„Að vinna saman sem fullorðnir
einstaklingar var mjög krefjandi.
Það hafði mest áhrif á gerð
plötunnar. Við þurftum að finna
jafnvægi.“ freyr@frettabladid.is
ÁHRIF FRÁ KLÚBBATÓNLIST
THE XX Frá vinstri: Jamie Smith, Romy Madley Croft og Oliver Sim. NORDICPHOTOS/GETTY
BESTU BROTIN
ÚR ÞÁTTUM
FM 957
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
Við bjóðum Karólínu Ólafsdóttur sjúkraþjálfara
velkomna aftur til starfa.
Aðstaða: Þjónusta sem er í boði:
Fyrir starfa á stofunni eftirfarandi sjúkraþjálfarar:
Sjúkraþjálfunin Sporthúsinu Dalsmára 9-11
Tímapantanir í síma 564 4067