Fréttablaðið - 30.08.2012, Blaðsíða 56
30. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR40
sport@frettabladid.is
búin að æfa svo mikið og stefni á að
setja Íslandsmet,“ segir Matthildur
sem keppir í sinni uppáhaldsgrein
strax á morgun.
Sterkust í skriðsundinu
Sundkonan Kolbrún Alda Stef-
ánsdóttir hefur þrátt fyrir ungan
aldur töluverða reynslu af keppni
á alþjóðavettvangi.
„Ég er orðin spennt, mér líst vel
á hópinn og held að þetta eigi eftir
að vera rosalega gaman,“ segir
Kolbrún Alda sem er sterkust í 200
metra skriðsundinu.
„200 metra skriðsund er uppá-
haldsgreinin mín. Þar á ég mögu-
leika á að standa mig best,“
segir Kolbrún Alda sem valin
var íþróttakona ársins úr röðum
fatlaðra á síðasta ári. Jón Mar-
geir Sverrisson hlaut verðlaunin í
karlaflokki en hann ætlar að passa
upp á spennustigið í London.
„Ég ætla að vera afslappaður og
rólegur,“ segir Jón Margeir sem
keppir í baksundi á morgun líkt og
Kolbrún Alda. Greinarnar eru þær
sem þau leggja síst áherslu á og því
kærkomið tækifæri til að ná úr sér
skrekknum sem vafalítið fylgir svo
stóru sviði sem Ólympíumótið er.
„Ég stefni á að komast á pall í
200 metra skriðsundi,“ segir Jón
Margeir sem á annan besta tíma
ársins í greininni í sínum flokki.
Sundkappinn hefur æft í langan
tíma með Ólympíumótið í huga en
fór að finna fyrir öndunarerfið-
leikum í upphafi sumars sem ollu
honum og þjálfurum hans miklum
áhyggjum. Fljótlega fékkst leyfi
fyrir astmalyfjum sem virðast hafa
komið honum á beinu brautina á ný.
„Ég notaði þau áður en ég fór á
Evrópumótið og þau virkuðu mjög
vel. Svo hef ég notað þau síðan. Það
er eitthvað að hrjá mig og lyfin
hjálpa mér,“ segir Jón Margeir en
hans fyrsta verk að mótinu loknu
verður að fá sér húðflúr með merki
Ólympíumótsins á kálfann.
kolbeinntumi@365.is
RAGNAR SIGURÐSSON og félagar í FC Kaupmannahöfn töpuðu í gær fyrir Lille í Frakklandi, 2-0, í framlengdum
leik. Lille tryggði sér þar með sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu en dregið verður í riðla í dag. Ragnar lék allan
leikinn en Sölvi Geir Ottesen sat á bekknum. Þar með er ljóst að enginn Íslendingur verður í Meistaradeildinni í vetur.
ÓLYMPÍUMÓT Fulltrúar Íslands á
Ólympíumóti fatlaðra í London
hefja allir keppni á morgun. Hópur
Íslands er sá næstfámennasti í
sögu mótsins auk þess sem kepp-
endurnir eiga það allir sameigin-
legt að vera að keppa í fyrsta skipti
á mótinu.
Engu að síður eru keppendur
Íslands borubrattir en allir keppa
í þremur greinum. Í Peking fyrir
fjórum árum tókst íslensku kepp-
endum í fyrsta skipti ekki að
komast á verðlaunapall. Strákarnir
ætla sér að bæta úr því og
stelpurnar, sem báðar eru aðeins
fimmtán ára, stefna á Íslandsmet
og sjá hverju það skilar.
Segja má að frjálsíþrótta fólkinu
Helga Sveinssyni og Matthildi
Ylfu Þorsteinsdóttur hafi skotið
upp á stjörnuhimininn á skömmum
tíma. Þrátt fyrir að hafa aðeins
æft frjálsar í rúmt ár unnu þau
bæði til verðlauna á Evrópumótinu
í sumar. Í kjölfarið er búist við
miklu af tvíeykinu.
„Ég hef passað mig á að segja
ekki of mikið en ég stefni á sæti,
stefni á pening. Við verðum að
sjá til hvað gerist,“ segir Helgi.
Aldursforseti hópsins segist ekki
hafa fundið fyrir utanaðkomandi
pressu í aðdraganda leikanna.
„Mesta pressan er aðallega frá
mér. Ég hef séð að ég get gert
ýmislegt. Ég set standardinn hátt
og stefni hátt.“
Innblásin af Ólympíuleikunum
Matthildur Ylfa fylgdist vel með
gangi mála á Ólympíuleikunum á
milli æfinga hjá sér.
„Þetta var allt svo flott. Öll
heimsmetin í frjálsum og eigin-
lega bara allt sem ég sá,“ segir
Matthildur greinilega innblásin
af afrekum keppenda á leikunum.
Sömu sögu má segja um Helga.
„Þetta er eins og þegar maður
var lítill strákur að horfa á aðal-
hetjurnar í fótboltanum, körfu-
boltanum og handboltanum.
Maður fór alltaf beint út á völl og
ætlaði að gera eins og þeir. Þetta
er nákvæmlega það sama þegar
maður sér spretthlaupara hlaupa
á asnalega góðum tímum. Maður
vill vera eins og þeir, fer niður á
braut að æfa sig og reynir að vera
eins góður,“ segir Helgi.
Helgi segir möguleika sína
mesta í spjótkastinu og lang-
stökkinu en minni í 100 metra
hlaupinu. Matthildur er bjartsýn á
góðan árangur í langstökkinu.
„Það er mín besta grein og
möguleikar mínir mestir þar. Ég er
Stefnan sett á verðlaun í London
Eftir verðlaunaþurrð á síðasta Ólympíumóti í Peking ríkir töluverð bjartsýni fyrir Ólympíumótið sem sett
var í London í gær. Keppendur Íslands, sem allir hefja keppni á morgun, eru vel stemmdir fyrir mótið.
Dagskrá
Föstudagurinn 31. ágúst
09.08 Langstökk kvenna
Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir, F37
10.07 100 m baksund karla
Jón Margeir Sverrisson, S14
10.18 100 m baksund kvenna
Kolbrún Alda Stefánsdóttir, S14
18.20 Langstökk karla
Helgi Sveinsson, F42
Helgi
Sveinsson
Fæðingarár: 1979
Félag: Ármann
Fötlun: Hreyfihömlun - T42
Keppnisgreinar:
Langstökk
100 metra hlaup
Spjótkast
Matthildur Ylfa
Þorsteinsdóttir
Fæðingarár: 1997
Félag: ÍFR
Fötlun: Hreyfihömlun - T37
Keppnisgreinar:
Langstökk
100 metra hlaup
200 metra hlaup
Jón Margeir
Sverrisson
Fæðingarár: 1992
Félag: Fjölnir/Ösp
Fötlun: Þroskahömlun - S14
Keppnisgreinar:
100 metra baksund
100 metra bringusund
200 metra skriðsund
Kolbrún Alda
Stefánsdóttir
Fæðingarár: 1997
Félag: Fjörður/SH
Fötlun: Þroskahömlun - S14
Keppnisgreinar:
100 metra baksund
100 metra bringusund
200 metra skriðsund
HIN FJÖGUR
FRÆKNU Helgi,
Matthildur Ylfa,
Kolbrún Alda
og Jón Margeir
Sverrisson eru
klár í slaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Pepsi-deild kvenna
ÍBV - Þór/KA 1-1
1-0 Kristín Erna Sigurlásdóttir (36.), 1-1 Katrín
Ásbjörnsdóttir (45.).
Fylkir - Selfoss 2-3
0-1 Eva Lind Elíasdóttir (21.), 0-2 Valorie O‘Brien
(41.), 0-3 Guðmunda Brynja Óladóttir (46.), 1-3
Anna Björg Björnsdóttir (54.), 2-3 Anna Björg
Björnsdóttir (70.).
FH - Valur 1-4
0-1 Telma Hjaltalín Þrastardóttir (33.), 0-2 Elín
Metta Jensen (36.), 0-3 Elín Metta Jensen (40.),
0-3 Elín Metta Jensen (73.), 1-3 Sigrún Ella Einars-
dóttir (89.).
Afturelding - Stjarnan 0-3
0-1 Sjálfsmark (17.), 0-2 Inga Birna Friðjónsdóttir
(50.), 0-3 Inga Birna Friðjónsdóttir (87.).
Breiðablik - KR 1-1
0-1 Olga Kristina Hansen (41.), 1-1 Rakel
Hönnudóttir (68.).
STAÐAN
Þór/KA 16 12 3 1 42-15 39
Stjarnan 16 11 2 3 48-19 35
ÍBV 16 10 2 4 47-21 32
Valur 16 9 3 4 44-22 30
Breiðablik 16 7 4 5 36-21 25
Selfoss 16 4 4 8 29-64 16
FH 16 4 3 9 23-24 15
Fylkir 16 3 3 10 21-39 12
Afturelding 16 3 3 10 14-38 12
KR 16 1 5 10 17-37 8
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Þór/KA verður meistari
í fyrsta sinn í sögu félagsins ef
liðið vinnur Selfoss á heimavelli á
þriðjudagskvöldið en þá fer fram
næstsíðasta umferð tímabilsins í
Pepsi-deild kvenna.
Norðankonur gerðu 1-1 jafn tefli
við ÍBV í Vestmannaeyjum í gær
en á sama tíma vann Stjarnan
öruggan 3-0 sigur á Aftur eldingu.
Stjarnan er ríkjandi meistari og
fjórum stigum á eftir toppliði
Þórs/KA.
„Það er frábært að ná stigi í
Vestmannaeyjum,“ sagði Jóhann
Kristinn Gunnarsson, þjálfari
Þórs/KA. „Við eigum enn mögu-
leika á að klára mótið taplausar
og stefnum við að því.“ - esá, gts
Pepsi-deild kvenna:
Þór/KA nálgast
sinn fyrsta titil
ENN TAPLAUSAR Þór/KA getur orðið
meistari á þriðjudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON