Fréttablaðið - 30.08.2012, Side 58
30. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR42
golfogveidi@frettabladid.is
5.694 METRAR er lengd Geysisvallarins af gulum teigum. Af rauðum teigum er völlurinn
4.704 metrar en 6.070 af hvítum.
Sex íslenskir kylfingar, þrír karlar
og þrjár konur, munu innan
skamms keppa á Heims-
meistaramóti áhugamanna
í golfi sem fer fram í Tyrk-
landi dagana 27. september
til 7. október.
Íslenska liðið var valið
samkvæmt afreksstefnu
Golfsambands Íslands
sem þýðir að Úlfar Jóns-
son landsliðsþjálfari valdi
tvo kylfinga af sex, tveir
fara til Tyrklands þar sem
þeir eru efstir á stiga-
lista Eimskipsmóta-
raðarinnar og tveir
vegna þess að
þeir eru efstir á
heimslista áhuga-
manna.
Ú l fa r seg i r
mótið vera mjög
krefjandi. Leiknir
séu fjórir hring-
ir og við það bæt-
ist fjórir æfinga-
hringir. Keppendur
verði því að vera í
góðu líkamlegu og
andlegu ástandi.
„Þetta er gríðarlega
mikið tækifæri fyrir
okkar fólk,“ segir
Úlfar. „Þetta verður
einstakt tækifæri
til þess að bera sig
saman við þá bestu
því þarna verða
flestir af fremstu áhuga kylfingum
heims.“
Ísland hefur best náð
20. sætinu á þessu móti,
en það var fyrir tveim-
ur árum. Aðspurður
um væntingarnar í
haust segir Úlfar að
takmarkið sé að bæta
þennan árangur, lenda
ofar en í 20. sæti.
Um sextíu þjóðir
taka þátt í mótinu.
Liðakeppni
karla nefnist Eisenhower Trophy
og kvennakeppnin nefnist Espi-
rito Santo Trophy. Bæði mótin fara
fram á Gloria Golf golf svæðinu í
Antalaya í Tyrklandi en keppt
verður á tveimur völlum, Nýja
og Gamla vellinum. Heims frægir
kylfingar á borð við Jack Nick-
laus, Tiger Woods og Rory McIlroy
stigu sín fyrstu skref á þessu móti.
Karlamótið hefur verið haldið
síðan árið 1958 eða 27 sinnum.
Bandaríkjamenn hafa oftast
sigrað eða 13 sinnum en Frakkar
sigruðu í fyrra þegar mótið var
haldið í Argentínu.
Kvennamótið fór fyrst fram árið
1964 og hefur því verið haldið 24
sinnum. Líkt og hjá körlunum
hefur lið Bandaríkjanna oftast
hrósað sigri eða 13 sinnum. Lið
Suður-Kóreu sigraði í Argentínu í
fyrra. - th
Sex íslenskir kylfingar fara á Heimsmeistaramót áhugalandsliða í Tyrklandi:
Gríðarlegt tækifæri fyrir okkar fólk
Íslenska liðið
Landslið kvenna
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir ...................GR *
Valdís Þóra Jónsdóttir .............................GL **
Guðrún Brá Björgvinsdóttir ...............GK ***
Landslið karla
Haraldur Franklín Magnús .....................GR *
Axel Bóasson ...........................................GK **
Rúnar Arnórsson ...................................GK ***
* Efst(ur) á stigalista
Eimskipsmótaraðarinnar
** Heimslisti áhugamanna
*** Val landsliðsþjálfarans
Breytingar eru hafnar
hjá golfklúbbnum Geysi
í Haukadal. Nýr golfskáli
verður tekinn í notkun auk
þess sem ný braut verður
opnuð og farið verður í
breytingar á flestum öðrum
brautum.
„Við ætlum að gera völlinn aðeins
auðveldari, án þess þó að breyta
karakter hans eða fegurð,“ segir
Einar Tryggvason sem rekur
Haukadalsvöll við Geysi ásamt
konu sinni, Ágústu Þórisdóttur.
Einar og Ágústa hafa rekið golfvöll-
inn að Geysi frá upphafi samhliða
gistiheimili á svæðinu. Nú hafa þau
hins vegar selt gistiheimilið og ætla
að einbeita sér að rekstri golfvallar-
ins. Því fylgir að breyta þarf vellin-
um töluvert enda hafði golfskálinn
áður aðsetur í gistiheimilinu.
Nýtt hús og breyttar holur
Að sögn Einars eru ekki til teikn-
ingar að breyttum velli, þær séu
hins vegar vel geymdar í höfði hans
og Edwins R. Rögnvaldssonar golf-
vallahönnuðar. Edwin teiknaði upp
völlinn í núverandi mynd og breyt-
ingarnar sem nú er unnið að.
Helstu breytingarnar eru þær
að nýtt klúbbhús verður reist þar
sem þriðji teigur er nú og verður
sú hola sú fyrsta á breyttum velli.
Teigurinn verður jafnframt hækk-
aður og færður framar, svo þeir
sem vilja geta reynt við flötina í
fyrsta höggi. Fjórða holan helst
óbreytt en við fimmtu holuna, sem
verður sú þriðja á nýjum velli,
verður meðal annars sett sand-
glompa aftan við flötina og jafn-
vel eitthvað fleira. Vinstra megin
við sjöttu flötina verður grassvæði
breikkað á kostnað lyngs og kjarr-
gróðurs til að auðvelda innáhöggið.
Fallegasta lokahola landsins
Edwin og Einar eru enn að bræða
með sér hvernig sjöunda brautin,
sem er 147 metra löng par 3 hola,
verði. Áttunda brautin verður
óbreytt í bili en í stað gömlu níundu
verður æfingasvæðið lagt undir
nýja braut sem verður þá sjöunda
brautin í framtíðinni. Níunda braut-
in, eins og hún er í dag, verður sam-
einuð þeirri fyrstu en þær liggja
samsíða frá gistiheimilinu. Önnur
brautin, sem nú er, verður lokahol-
an á breyttum velli, þó með stærri
flöt og stærra grassvæði í kring.
„Þetta verður örugglega ein falleg-
asta lokahola landsins,“ segir Einar
hógvær að vanda.
Vilja gera völlinn auðveldari
Geysisvöllurinn hefur þótt afar
krefjandi, ekki síst út af lynginu
sem umlykur hann. Ef kylfingur
missir bolta rétt út fyrir braut, á
lyngið það til að gleypa hann svo
hvorki finnst tangur né tetur af
honum. Ekki er óalgengt að fjöldi
golfkúlna sem kylfingar nota á
Geysisvellinum hlaupi jafnvel á
tveggja stafa tölu, þótt auðvitað
séu líka margir sem spila með sama
boltann allan hringinn.
Einar segir að þetta sé vissu-
lega eitt af karaktereinkennum
vallarins.
„Völlurinn getur vissulega verið
svínslegur en við erum að reyna
að ala upp góða kylfinga í anda
Íþróttaskólans í Haukadal, sem rek-
inn var hér við Geysi í hálfa öld eða
svo,“ segir hann og hlær en bætir
þó við að á síðustu árum hafi völlur-
inn breyst þannig að lyngið sé víða
búið að þjappast niður og gleypi
ekki jafn mikið af boltum og áður.
„Það hefur verið kallað eftir því
af sumum að við léttum völlinn og
erum við með þessum breytingum
að koma til móts við þá kylfinga.
Áður höfum við bætt við nýju teiga-
setti, gylltum teigum á brautirnar.
Þeir eru þá fremstir teiga, hugsaðir
fyrir byrjendur og þá sem vilja
losna frá því að slá yfir árnar okkar
eða náttúrugróður af teig.“
Að sögn Einars eru fram-
kvæmdir við að breyta vellinum
þegar hafnar. Búið er að sá í nýja
flöt á æfingasvæðinu, nýja púttflöt
og teig við væntanlegt klúbbhús.
Eins sé búið að breikka og breyta
þremur brautum með tætingum og
sáningum.
„Þetta mun ekki trufla leik,
nema til að gera hann auðveldari,
það eru blámerkt svæði í stað nátt-
úrugróðurs áður. Hluti af breyting-
unum mun detta inn á næsta ári og
hluti 2014,“ segir Einar.
Lítill klúbbur
Að sögn Einars eru ekki nema um
þrjátíu kylfingar skráðir í Golf-
klúbbinn Geysi.
„Sumarkorthöfum fjölgar hins
vegar alltaf og traffíkin hefur allt-
af vaxið milli ára frá opnun árið
2006. En eins og á mörgum öðrum
landsbyggðarvöllum vildum við
gjarnan sjá meiri traffík á virkum
dögum.“
Töluverður fjöldi útlendinga
spilar á Geysisvellinum. „Það eru
nokkur hundruð útlendingar sem
spila hér yfir sumarið, njótum við
þar sennilega nálægðar við hvera-
svæðið, Strokk og Geysi, sem
flestir skoða á ferðum sínum um
Ísland. Það er misjafnt hvort þeir
leigja sett af okkur eða koma með
sjálfir. Þeir eru allavega drýgstir
í að kaupa merkjavöru og eru
almennt góðir kúnnar,“ segir Einar.
„Við erum spennt fyrir þessum
breytingum og vonumst til að kylf-
ingum líki það sem við erum að
braska hér. Útsýnið úr nýja klúbb-
húsinu verður magnað þar sem
hægt verður að fylgjast með spili
um nær allan völl. Við teljum það
góða breytingu að færa golfskál-
ann, þótt við fjarlægjumst auð vitað
hverasvæðið um nokkur hundruð
metra. Geysir og Strokkur verða
þarna áfram og við sjáum þann
síðarnefnda í það minnsta gjósa
reglulega meðan á leik stendur hér
eftir sem hingað til,“ segir Einar.
kristjan@frettabladid.is
Geysisvöllurinn gerður auðveldari
AF FYRSTA TEIG Fyrsta holan á breyttum velli verður þar sem
þriðja holan er núna.
ÚR KLÚBBHÚSINU Svona verður síðasta holan á vellinum séð
frá klúbbhúsinu. MYNDIR/GOLFKLÚBBURINN GEYSIR
1
5
2
6
3
7
4
8
9
Gamla
æfingasvæðið
Almenningsá
Beiná
Gistiheimilið
Geysir og
klúbbhús
Til
Rv
k.
Þjóð
vegu
r 35
Geysir
Strokkur
Fyrirhugað klúbbhúsNÝI VÖLLURINN
Svona kemur
breyttur völlur til
með að líta út
eftir breytingarnar.
DVD
VERÐ AÐEINS
KR
Kræsingar & kostakjör
ALLT SPORTIÐ
Á ÞÍNUM
HEIMAVELLI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
74 ER PAR Geysisvallarins. Að spila átján holur kostar frá 2.500 krónum upp í 3.200 krónur sam-
kvæmt verðskrá á Golf.is.