Fréttablaðið - 19.09.2012, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 19. september 2012 13
Í tilefni af 70 ára sögu félagsins og forvera þess verður sérstök afmælisráðstefna
haldin í Hörpu þann 25. september. Þar munu lykilmenn í sjávarútvegs- og
smásöluiðnaði fjalla um margvísleg málefni tengdum iðnaðinum.
13.30 Setning ráðstefnu og ávarp, Herdís Fjeldsted, stjórnarformaður Icelandic Group
Ráðstefnustjóri: Lárus Ásgeirsson, forstjóri Icelandic Group
13.40 Efnahagsleg áhrif sölusamtaka á sjávarútveginn og Ísland
Daði Már Kristófersson, dósent, Háskóli Íslands
14.25 Retail and Seafood – Umræðustjóri: Anita Barker, framkvæmdastjóri Coldwater
o Seafood from a Retailers Perspective – Andrew Mackenzie, sölustjóri hjá Marks & Spencer
o Highliner Foods – Henry Demone, forstjóri Highliner Foods
15.30 Kaffihlé
15.50 Seafood Branding – Umræðustjóri: Árni Geir Pálsson, stjórnarmaður Icelandic Group
o Saucy Fish Co.: From minnow to mammoth – Simon Smith, sölu- og markaðsstjóri Seachill
o The brand Icelandic – Hjörleifur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Icelandic Iberica
17.00 Ráðstefnuslit
17.00 –18.00 Léttar veitingar
Vinsamlegast hafðu samband við Lilju Valþórsdóttur
(liljav@icelandic.is) fyrir kl. 14.00, 24. september til að
skrá þig á ráðstefnuna. Takmarkað sætaframboð.
Verð 7.900 kr.
Við hlökkum til að sjá þig á ráðstefnunni.
Afmælisráðstefna
Icelandic Group
Dagskrá
EFNAHAGSMÁL Forsvarsmenn aðila
vinnumarkaðarins fagna nýrri
skýrslu Seðlabankans um valkosti
Íslands í gjaldmiðilsmálum. Fram-
kvæmdastjóri SA segir að treysta
þurfi krónuna og forseti ASÍ segir
ljóst að upptaka evru sé besti kost-
urinn í stöðunni. Þá telja þeir báðir
mikilvægt að skýrslan verði rædd.
„Mér sýnist að Seðlabankinn
hafi lagt sig fram við að greina
þessi mál og gert það eins faglega
og unnt er. Eftir stendur sú niður-
staða að þetta sé álitamál og að
rökstyðja megi tvo kosti. Annars
vegar að okkur sé betur borgið í
ESB með evru og hins vegar að
halda krónunni,“ segir Vilhjálmur
Egilsson, framkvæmdastjóri SA,
og heldur áfram: „Ég held að það
sé rétt sem fram kemur að upptaka
evrunnar er miklu fremur lang-
tímamál en að hún sé skyndilega
hrist fram úr erminni. Verkefnið
til skamms tíma hlýtur því að vera
að fá krónuna til að virka.“
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir skýrslu Seðlabankans vand-
aða. „Ég held að það sé alveg klárt
að niðurstaða hennar er að hags-
munum atvinnulífsins sé best
borgið með upptöku evrunnar,“
segir Gylfi. „Þá er Seðlabankinn
mjög opinskár í því mati sínu að
reynslan af fljótandi krónu sé alls
ekki góð. Hún hafi ýkt sveiflur
fremur en að bregðast við þeim.“
Þá bendir Gylfi á að aðild að
ESB kunni að vera ófær. Ef svo
reynist sjái hann ekki hvernig
fljótandi króna geti verið lausn-
in. „Mér finnst þess virði að skoða
hvort ekki sé eðlilegt að taka aftur
upp fast gengi í ljósi þeirra tak-
markana sem við munum þurfa
að hafa á gjaldeyrishreyfingum.
Betur gekk að tryggja stöðugleika,
lága verðbólgu og lága vexti með
fast gengi en þegar við þurftum
að fleyta krónunni á sínum tíma
vegna áhættunnar af árásum spá-
kaupmanna-,“ segir Gylfi. - mþl
Forsvarsmenn aðila vinnumarkaðarins fagna nýrri skýrslu Seðlabankans um valkosti í gjaldmiðilsmálum:
Skýrsla Seðlabanka krefst mikillar yfirlegu
GYLFI
ARNBJÖRNSSON
VILHJÁLMUR
EGILSSON
FRAKKLAND, AP Dómstóll í Frakk-
landi hefur bannað útgáfunni
Mondadori Magazines, sem
gefur meðal annars út blaðið
Closer, að birta
fleiri myndir
af Kate her-
togaynju af
Cambridge
berbrjósta.
Þá var blaðið
dæmt til þess
að afhenda öll
afrit af mynd-
unum sem
teknar voru af
Katrínu. Jafnframt þarf blaðið
að borga sekt ef myndir birtast
aftur.
Myndirnar sem um ræðir hafa
þegar birst á Írlandi og Ítalíu
og eru víða á netinu. Málið sem
breska konungsfjölskyldan
vann í gær kemur því ekki í veg
fyrir dreifingu á myndunum, en
önnur lögsókn er í bígerð.
- þeb
Frönsk útgáfa dæmd:
Banna myndir
af hertogaynju
HERTOGAYNJAN.
SVÍÞJÓÐ, AP Tvær sænskar konur
hafa fengið grædd í sig leg sem
tekin voru úr mæðrum þeirra.
Aðgerðirnar voru gerðar í
Gautaborg um helgina. Þær
verða ekki sagðar hafa geng-
ið vel nema konunum takist
að verða þungaðar eftir ár.
Þær eiga báðar fósturvísa og
munu ef allt gengur að óskum
læknanna geta gengið með tvö
börn. Að þeim meðgöngum lokn-
um verða legin tekin úr þeim á
ný.
Mesta hættan við þunganir
af þessu tagi er að fylgjan vaxi
ekki eðlilega og barnið fæðist
fyrir tímann og vaxi ekki eðli-
lega. Þetta segir skoskur pró-
fessor.
- þeb
Legígræðslur í Svíþjóð:
Dætur fengu
leg úr mæðrum
DANMÖRK Átta manns á aldr-
inum 27 til 71 árs voru hand-
teknir í gær á Sjálandi vegna
fjárhagslegs stuðnings við kúr-
dísku samtökin PKK sem eru á
lista Evrópusambandsins yfir
hryðjuverkasamtök.
Hinir handteknu eru grun-
aðir um að hafa á árunum 2009
til 2012 safnað tugum milljóna
danskra króna fyrir PKK, að
því er kemur fram á fréttavef
Jyllands-Posten.
Þar er vitnað í skýrslu Evr-
ópsku lögregluskrifstofunnar
þar sem fram komi að „gjafir“
athafnamanna til PKK séu í
raun ólöglegur skattur. PKK-
samtökin eru sögð afla fjár með
kúgunum og ólöglegri skattlagn-
ingu víða í Vestur-Evrópu.
- ibs
Handtökur í Danmörku:
Söfnuðu fé fyrir
kúrdísk samtök
RÚSSLAND Forsætisráðherra Rúss-
lands, Dimitry Medvedev, vill að
ungu konurnar í rússnesku pönk-
sveitinni Pussy Riot verði látnar
lausar úr haldi 1. október næst-
komandi.
Forsætisráðherrann telur að það
þjóni ekki tilgangi að hafa Pussy
Riot lengur í fangelsi og best færi
á því að skilorðsbinda afganginn af
dómi þeirra.
Konurnar voru dæmdar í
tveggja ára fangelsi fyrir að efna
til mótmæla gegn Pútín forseta í
kirkju.
Forsætisráðherra Rússlands:
Pussy Riot verði
sleppt úr haldi