Fréttablaðið - 19.09.2012, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 19.09.2012, Blaðsíða 24
KYNNING − AUGLÝSINGSparneytnir bílar MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 20126 Bíllinn hefur vakið mikla at-hygli nú þegar fyrir fagur-lega hönnun að innan jafnt sem utan og ljóst er að mikil spenna ríkir fyrir komu hans. Nýtt grillið að framan er fallega hannað sem og straumlínulagaðar hliðar bíls- ins og sportlegur afturhluti hans. Mikið er lagt upp úr vönduðu efni í innréttingunni sem er mjög sport- leg og falleg. Mikil eftirvænting eftir bílnum „Það hefur ríkt mikil eftirvænting eftir nýjum A-Class og bíllinn er greinilega að slá í gegn þótt salan á honum sé víðast hvar ekki enn hafin. Þegar liggja fyrir pantanir á yfir fimmtíu þúsund A-Class-bílum og verksmiðjurnar anna vart eftir- spurn,“ segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, sem er umboðsaðili Mercedes-Benz á Ís- landi. Nýr A-Class er framleidd- ur í verksmiðju Mercedes-Benz í Rastatt í Þýskalandi og í nýrri verk- smiðju í Kecskemét í Ungverja- landi. Bíllinn er væntanlegur til Ís- lands fyrir jól og segir Jón Trausti að mikið hafi verið spurt um hann hér heima. „A-Class er nýr og glæsileg- ur bíll sem mætir til leiks í vin- sælasta flokki bíla, sem eru litlir, sparneytnir og umhverfismildir bílar. A-Class er óvenju glæsilegur fulltrúi í þann flokk bíla, lítill lúx- usbíll með framúrskarandi akst- urseiginleika, mikinn búnað og margar nýjungar. Við bíðum spennt eftir að kynna bílinn til leiks hér heima. Það má segja að ný kynslóð A-Class sé til marks um spennandi tíma hjá Mercedes-Benz og það er mikið í gangi hjá þýska lúxusbíla- framleiðandanum.“ Eyðslugrannur og umhverfis- mildur Nýjar bensín- og dísilvélar verða í boði í nýjum A-Class sem eru af- kastamiklar en einnig eyðslu- grannar og umhverfismildar. Þannig verður koltvísýringslosun- in aðeins um 98 g/km í umhverfis- mildustu vélinni. A-Class verð- ur í boði með tveimur bensínvél- um, 1,6 og 2,0 lítra. Vélin í A 180 mun skila 122 hestöflum en í A 200 verður 156 hestafla vél. Þá verð- ur vélin í A 250 feykiöflug og mun skila alls 211 hestöflum. Úrval afl- mikilla dísilvéla er einnig í boði í nýju kynslóðinni. A 180 CDI verð- ur með 109 hestafla vél sem togar 250 Nm en A 200 CDI verður með 136 hestaf la vél sem togar 300 Nm. A 220 CDI mun skarta geysi- öflugri 2,2 lítra, 170 hestafla dísil- vél sem togar alls 350 Nm og mun skila ótrúlega miklu afli eins og töl- urnar bera vitni um. Allar vélarn- ar í nýjum A-Class verða með ECO startstopp-búnaði sem gerir hann enn sparneytnari og umhverfis- mildari. Hægt verður að fá A-Class með nýrri sex gíra beinskiptingu eða 7G-DCT sjálfskiptingu. Mjög góðir aksturseiginleikar Aksturseiginleikar bílsins eru mjög góðir eins og Mercedes- Benz er von og vísa. Veggripið er afar gott og bíllinn liggur mjög vel á veginum. Þar spilar inn í að þyngdarpunkturinn hefur verið lækkaður og nýr fjöðrunarbún- aður sem og nýir afturöxlar gera það að verkum að aksturinn verð- ur enn betri. Þá má ekki gleyma 4MATIC-kerfinu sem deilir vél- arafli og snúningsvægi til allra fjögurra hjóla bílsins eftir þörfum hverju sinni. Þetta á við jafnt þegar ekið er á bundnu slitlagi sem utan- vega. 4MATIC-kerfið bætir veg- grip og stefnustöðugleika bílsins og eykur snerpu hans og öryggi í akstri. Tækni- og öryggisbúnaður í hávegum hafður Mercedes-Benz setur ný við- mið í tæknibúnaði með A-Class en þar verður meðal annars að- gengi fyrir snjallsíma. Ökumað- ur og farþegar geta því tengt iP- hone við tæknibúnað bílsins og nýtt möguleika símans til fulls. A- Class er hlaðinn öryggisbúnaði og má þar nefna árekstrarvara (Coll- ision Prevention Assist) en bún- aðurinn greinir þegar fjarlægð frá bíl eða kyrrstæðri mótstöðu er of lítil og lætur ökumann vita með mynd- eða hljóðmerki. Þessi bún- aður hefur hingað til aðeins verið í boði í mun stærri og dýrari bílum. Þá er A-Class einnig búinn Pre Safe-kerfinu sem er fyrirbyggjandi öryggisbúnaður fyrir ökumann og farþega. Greini búnaðurinn vara- samar akstursaðstæður strekkjast bílbeltin í framsætunum á broti úr sekúndu og hliðarrúður og sóllúga lokast sjálfkrafa. Þannig næst full virkni öryggisbelta og öryggis- púða sem veita hámarksvörn ef til áreksturs kemur. Nýr og glæsilegur A-class Nýr Mercedes-Benz A-Class er glæsilegur og sportlegur bíll sem kynntur var á bílasýningunni í Genf í mars. Þessi nýja kynslóð bílsins er mikið breytt frá fyrri gerð hvað varðar hönnun og aksturseiginleika. Þá er bíllinn með nýjar vélar sem eru bæði aflmiklar en um leið sparneytnar og umhverfismildar. Mercedes Bens A-Class hefur vakið mikla athygli fyrir fagurlega hönnun að innan jafnt sem utan. Mikil eftirvænting hefur ríkt eftir nýjum A-Class og er bíllinn væntanlegur hingað til lands fyrir jól. ALLT SEM ÞÚ VILDIR VITA UM SÓLARKNÚNA BÍLA Sólarknúnir bílar eru rafmagnsbílar sem eingöngu eru knúnir orku frá geislum sólarinnar. Sólarsellum, sem umbreyta sólarorkunni í raforku, er komið fyrir á yfirborði bílsins. Sellurnar fanga sólargeislana og umbreyta þeim í rafmagn. Bíla sem eingöngu eru knúnir sólarorku er ekki hægt að kaupa til almennra nota. Þeir eru hins vegar oft til sýnis á sýningum, sólarbílakappakstri eða notaðir sem hvati í verkfræðikeppnum sem þá eru gjarnan styrktar af fyrirtækjum eða stofnunum ríkisins. Orkan sem fæst úr sólinni til að knýja bílinn áfram er takmörkuð við stærð bílsins og yfirborð hans sem þakið er sólarsellum. Þó hægt væri að nota rafhlöðu til að hlaða rafmagni inn á bílinn og nota þegar sólin skín ekki, þá er það ekki vænlegur kostur nema á smáa rafhlöðu. Ástæðan er sú að þyngd rafhlöðunnar myndi krefjast aukinnar orku til að koma bílnum áfram. Sólarknúnir bílar eru oftast aðeins fyrir einn farþega og geta ekki borið neinn far- angur. Grind þeirra og yfirbygging eru úr léttbyggðu efni til að auka ekki þyngd hans. Líklega er langt þar til sólarknúnir bílar verða að raunverulegum kosti sem fararskjóti hins vinnandi manns, og enn langsóttara að þeir verði það á sólarlitlum svæðum líkt og á Íslandi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.