Fréttablaðið - 19.09.2012, Síða 26
KYNNING − AUGLÝSINGSparneytnir bílar MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 20128
R úmlega þúsund metanbílar eru í umferðinni í dag og fer þeim fjölg-andi ár frá ári. „Árið í fyrra var metár
og það verður spennandi að sjá hvort það
verði toppað í ár,“ segir Magnús Ninni
Reykdalsson, verkefnisstjóri metanmála
hjá Metanbill.is. Þar er gömlum og nýjum
bensínbílum breytt í metanbíla sem er til
hagsbóta jafnt fyrir veskið sem umhverfið.
„Við erum mikið í því að breyta nýjum
bílum fyrir bílaumboðin en sömuleið-
is fyrir einstaklinga. Það getur oft komið
betur út enda kemur ríkið til móts við fólk
sem ákveður að breyta bíl sínum í formi
endurgreiðslu á vörugjöldum, allt að
1.250.000. Metanbreytingin kostar kannski
500.000 og þá er fólk að fá bílinn 750 þús-
undum ódýrari,“ segir Magnús og á það
sérstaklega við um dýrari bíla sem eigend-
ur greiða há vörugjöld af.
Ef um er að ræða ódýrari bíla kemur
breytingin oft út á eitt sökum endurgreiðsl-
unnar. Þeir sem breyta notuðum bílum
sem eru yngri en sex ára fá auk þess tutt-
ugu prósent af verði breytingarinnar end-
urgreidd.
En er þá ekki hægt að breyta eldri bílum?
„Jú, vissulega. Elstu bílarnir eru frá 1998.
Skilyrðið er að þeir séu með OBD-tengi en
þau voru að koma þarna á árunum 1998 til
2000 en voru orðin stöðluð í öllum bílum
árið 2000. En hvernig fer breytingin fram?
„Það eru settir kútar i skottið eða undir
bílana. Svo setjum við sérstaka metan-
tölvu í bílinn og sitthvað fleira en breyt-
ingin tekur um tíu daga. Þetta er algerlega
sjálfstætt kerfi og það eina sem breytist inni
í bílnum er lítill takki og mælir sem segir til
um hversu mikið er eftir á kútnum.
Hægt er að slökkva og kveikja á kerfinu
en þegar það er sjálfvirkt fer það í gang á
bensíni. Þegar bíllinn er orðinn fjörutíu
gráðu heitur, sem tekur yfirleitt tvær til
þrjár mínútur, skiptir hann yfir í metan.
Lítrinn af bensíni kostar um 260 krónur en
lítrinn af metani 149 krónur svo sparnaður-
inn er umtalsverður. Þá kemur ríkið á móti
metanbílaeigendum með því að lækka bif-
reiðagjöld niður í lægsta flokk eða 11.300 á
ári. Það borgar sig sérstaklega fyrir eigend-
ur stærri bíla sem eru að borga í kringum 50
þúsund í bifreiðagjöld ári,“ segir Magnús.
En er framboðið á metani nægjanleg? Já á
meðan lífrænn úrgangur fellur til er nóg af
metani. Þarna er verið að breyta óumhverf-
isvænu efni í umhverfisvænt og því mikill
ávinningur fyrir umhverfið. Auðvitað þarf
að beisla þessa orku og það kostar peninga
en miklar þreifingar hafa verið með að opna
metanver þar sem metan yrði framleitt og
er sú hugmynd að verða komin á fram-
kvæmdaplan. Við hjá Metanbil.is erum því
jákvæð hvað framtíðina varðar.
En hvernig er aðgengi að metani? „N1
er sem stendur eina olíufélagið sem selur
metangas. Hægt er að fylla á kútana hjá
N1 í Tinhellu og N1 í Ártúnsbrekku en þar
hefur verið ákveðið að fjölga um einn staur
þar sem stundum hefur myndast röð við
metandælurnar og mun það verða mikill
munur fyrir metanbílaeigendur. Þá stytt-
ist í að fleiri aðilar fari að selja metangas.“
Metan er 43% ódýrara en bensín
Metanbílum fer fjölgandi ár frá ári enda kemur það betur út fjárhagslega að aka slíkum bíl en hefðbundnum bensínbíl svo ekki sé
talað um umhverfislegan ávinning. Hjá Metanbill.is er hefðbundnum bensínbílum breytt í metanbíla og var metár í fyrra.
Magnús segir fólk geta komið með notaða sem nýja
bíla á verkstæði Metanbill.is í Gufunesi. Þar er hægt
að sjá þær útfærslur sem eru í boði og fá tilboð.
„Við erum mikið í því að breyta nýjum bílum fyrir bílaumboðin en líka fyrir einstaklinga sem þess óska,“ segir Magnús Ninni Reykdalsson, verkefnisstjóri metanmála hjá Metanbill.is. MYND/STEFAN
HVAÐ ER METAN?
Metan er einfaldasta samband
kolefnis og vetnis sem til er; efna-
formúlan er CH4. Metan er lyktar-
laus gastegund og skaðlaust við
innöndun. Það er léttara en loft og
gufar því mjög fljótt upp komist
það í snertingu við andrúmsloft.
Orkan sem felst í metaninu er
nýtt með bruna, oftast með bruna
til hitunar en einnig til rafmagns-
framleiðslu eða jafnvel í iðnaði
eða á ökutæki. Metan er aðaluppi-
staðan í jarðgasi. Metan er skæð
gróðurhúsalofttegund en með
bruna verður til vatn og koltvísýr-
ingur. Þótt sameindin sé sú sama
(CH4) er sá meginmunur á jarðgasi
og metani úr lífrænu efni að með
bruna á jarðgasi er verið að bæta
við gróðurhúsalofttegundum í
andrúmsloftið en með bruna á
metani úr lífrænum efnum er verið
að skila til baka koltvísýringi sem
plöntur hafa úr andrúmsloftinu.
Mesti sparnaðurinn við að
nota metan er fólginn í um-
hverfislegum sparnaði. Samkvæmt
útreikningum sænska verkfræði-
fyrirtækisins SWECO má aka
113.000 metanbílum fyrir hverja
þúsund bensínknúna bíla.
Heimild: www.visindavefurinn.is
og www.sorpa.is