Fréttablaðið - 19.09.2012, Page 27
KYNNING − AUGLÝSING Sparneytnir bílar19. SEPTEMBER 2012 MIÐVIKUDAGUR 9
Nýr smábíll, Peugeot 208, var að koma á markað nú á dögunum hjá Bernhard
sem er umboðsaðili Peugeot á Ís-
landi. Bíllinn er með nýja hönnun,
bæði hvað varðar útlit og aksturs-
eiginleika. „Peugeot 208 er hlað-
inn staðal búnaði eins og snertiskjá
í ökumannsrými og að sjálfsögðu
„cruise control“ og loftkælingu.
Bíllinn fékk mjög góða einkunn í
nýjum og endurbættum árekstr-
arprófunum hjá Euro NCAP, eða
fimm stjörnur, en það er hæsta
eink unn sem bíll í þessum stærðar-
flokki hefur fengið í þessari könn-
un,“ segir Gestur Benediktsson,
söluráðgjafi hjá Bernhard.
Rúmgóður og sparneytinn
Peugeot 208 er rúmgóður miðað við
bíl í þessum stærðarflokki. „Innra
rýmið hefur verið aukið þó að bíll-
inn hafi ekki verið að stækka. Það
er betra fótapláss aftur í og meira
pláss í farangursrými. Bíllinn er
hagkvæmur í rekstri en eyðsla í
blönduðum akstri er frá 3,4 lítr-
um á hundraðið. Peugeot-fram-
leiðandinn hefur lengi verið með-
vitaður um umhverfið og slæm
áhrif útblásturs á það. Hann legg-
ur því mikla áherslu á að þróa bíla
sem eru með lægri útblásturstöl-
ur, og þá um leið lægri eyðslutölur,
en þeir bílar sem eru fyrir á mark-
aði. Peugeot er alltaf að bæta sína
eigin framleiðslu. Þó þeir komi með
nýjan bíl á markað halda þeir allt-
af áfram að þróa hann, eyðsla og
útblástur minnka ár frá ári með
hverjum bíl.“
Grænir í öllum stærðum
Það eru grænir bílar í boði í öllum
stærðarflokkum frá Peugeot. „Þeir
eru eyðslugrannir og umhverf-
isvænir. Útblásturstölur Peugeot
208 eru frá 87 grömmum upp í
104 grömm en til að flokkast sem
grænn bíll þarf útblásturinn að
vera undir 120 grömmum þannig
að Peugeot 208-bílarnir eru langt
undir þessum viðmiðum. Allar
útfærslur af Peugeot 208 eru hag-
kvæmar og umhverfisvænar en
eyða frá 3,4 upp í 4,5 lítra á hundr-
aðið í blönduðum akstri. Þannig að
óhætt er að segja að Peugeot 208-
línan er mjög hagkvæm í rekstri.“
Nýr smábíll frá Peugeot á markað
Peugeot 208 er kominn á markað. Hann er sparneytinn og umhverfisvænn eins og aðrir bílar frá Peugeot en framleiðandinn leggur
mikinn metnað í að þróa bíla sem eru með lægri útblásturstölur en þeir sem eru fyrir á markaði. Peugeot 208 eyðir aðeins frá 3,4
lítrum á hundraðið í blönduðum akstri.
Gestur Benediktsson söluráðgjafi við nýja Peugeot 208 sem er bæði hagkvæmur í rekstri og umhverfisvænn. MYND/GVA
Gestur segir það orðið vinsælt
að kaupa dísilbíla á Íslandi. Hann
segir að það hafi aukist mikið að
fólk hugsi um sparneytni þegar
það velur sér nýjan bíl. Áhersla á
umhverfisvitund hafi líka aukist.
„Þetta helst auðvitað í hendur, út-
blástur og eyðsla. Framleiðendur
reyna að ná útblásturstölum niður
og eyðslan helst í hendur við það,“
segir Gestur.
Fyrstir með dísil-hybrid
Nú í byrjun nóvember koma til
landsins fyrstu dísil-hybrid-bíl-
arnir til landsins en um er að ræða
Peugeot 3008 HYbrid 4 og Peu-
geot 508 RXH. Báðir bílarnir eru
fjórhjóladrifnir, 200 hestöfl og eru
með koltvísýringsútblástur frá 97
grömmum og upp í 107 grömm eftir
útfærslum.
Bernhard í 50 ár
Bernhard fagnar fimmtíu ára af-
mæli sínu á árinu en fyrirtækið
hefur verið í eigu sömu fjölskyld-
unnar allan þann tíma. Auk þess
var fyrirtækið valið Fyrirtæki árs-
ins í millistærð af VR fyrr á þessu
ári. „Þetta er fjölskyldufyrirtæki
þar sem áhersla er lögð á framúr-
skarandi þjónustu á öllum sviðum,
bæði í sölu nýrra og notaðra bíla og
í allri þjónustu sem snertir bílana
og eigendur þeirra.“
Eyðslugrannur
Bíllinn eyðir frá 3,4 lítrum á
hundraðið í blönduðum akstri.
Umhverfisvænn
Útblásturstölur Peugeot 208
eru frá 87 grömmum upp í 104
grömm en til að flokkast sem
grænn bíll þarf útblásturinn
að vera undir 120 grömmum.
Rúmgóður
Innra rýmið hefur verið aukið
þó að bíllinn hafi ekki verið að
stækka að ytra rými.
Reykjavík
Grjóthálsi 10
Sími 590 6940
Reykjavík
Skeifunni 5
Sími 590 6930
Hafnarfjörður
Hjallahrauni 4
(við Helluhraun)
Sími 590 6900
Kópavogur
Skemmuvegi 6
(bleik gata)
Sími 590 6935
Reykjanesbær
Holtsgötu 52
(við Njarðarbraut)
Sími 590 6970
www.adalskodun.is
HJÁ AÐALSKOÐUN ER BÍLLINN
Í GÓÐUM HÖNDUM
HVAR HENTAR ÞÉR AÐ LÁTA SKOÐA?
Við erum með fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og
eina í Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka
á móti þér á þeim öllum. HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG!
Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 18 ár
Opið kl. 8-17 virka daga
18%
afslát
tur
af sko
ðuna
rgjald
i
í tilef
ni af 1
8 ára
afmæ
li
Aðals
koðu
nar
Ef þú kemur með bílinn í skoðun fyrir hádegi
í september færðu 18% afmælisafslátt.