Fréttablaðið - 19.09.2012, Side 34
19. september 2012 MIÐVIKUDAGUR18
„Þetta kom mér algjörlega á óvart,“
segir Hildur Hákonardóttir mynd-
listarkona sem hlaut heiðursverð-
laun Íslensku sjónlistarverðlaunanna
fyrir helgi.
Hildur var meðlimur í SÚM-hópn-
um og tók virkan þátt í kvennabar-
áttunni og þeim miklu þjóðfélags-
hræringum sem áttu sér stað á
árunum eftir stúdentabyltinguna
árið 1968. Í list sinni lagði Hildur
einkum fyrir sig myndvefnað sem
hafði sterkar skírskotanir til atburða
eða ástands í samtímanum. Hildur bjó
sem ung kona í Bandaríkjunum og
segist hafa skynjað þegar hún sneri
aftur heim til Íslands að það hefði
haft mjög sterk áhrif á lífssýn hennar.
„Það var heilmikil gerjun í Banda-
ríkjunum, bæði félagslega og í mynd-
listinni. Þegar ég kom til Íslands
og byrjaði að vinna hér bjó ég yfir
ákveðinni reynslu miðað við samfé-
lagið eins og það var þá. Ég hafði á
vissan hátt búið í framtíðinni sem átti
eftir að verða veruleiki hér. Ég flyt
heim 1963, fimm árum fyrir 68-bylt-
inguna, en hún átti auðvitað sinn
aðdraganda. Ég flæddi með þeim
straumum en var um leið mjög með-
vituð um það sem var að gerast, ekki
síst vegna dvalar minnar þar vestra.“
Auk listsköpunar sinnti hún margs
konar störfum sem tengdust mynd-
list. Meðal annars kenndi hún við
Myndlista- og handíðaskóla Íslands
á árunum 1969 til 1982 og var síðar
skólastjóri hans frá 1975 til 1978 og
stofnaði þá með Magnúsi Pálssyni
hina umdeildu nýlistadeild en einnig
málaradeild til mótvægis. Hildur telur
viðurkenninguna sem hún fékk fyrir
helgi ekki síst vera fyrir störf hennar
við Myndlista- og handíðaskólann.
„Mér finnst ég alltaf „eiga“ mjög
sterka kynslóð af myndlistar-
mönnum; ekki í þeim skilningi að ég
hafi kennt þeim heldur gaf ég þeim
möguleika á að opna nýjar gáttir,
til dæmis með stofnun nýlistadeild-
arinnar. Það var sérstaklega mikill
kraftur í Hollendingum á þessum
tíma enda studdu þeir mjög við bakið
á myndlistarmönnum sínum og við
sóttum kraft þaðan. Svo þurfti að
ýta undir þá vakningu sem Dieter
Roth hafði kveikt hér á landi með
íslenskum félögum sínum. Það þurfti
að nýta þennan kraft og þessa gerjun
og gera hana aðgengilega þeim sem
voru ungir.“
Eftir að hafa slasað sig á hendi
neyddist Hildur til að draga sig í hlé
frá myndvefnaðinum og gerðist for-
stöðumaður Byggða- og listasafns
Árnessýslu frá 1982 og 1992 og einnig
Listasafns Árnesinga allt til ársins
1996. Síðastliðna tvo áratugi hefur
hún fengist við ræktun og ritstörf.
Hún sneri aftur á myndlistarvöllinn í
fyrra með nokkurs konar yfirlitssýn-
ingu í Listasafni ASÍ og í samsýningu
í Sjónlistarmiðstöðinni fyrr á þessu
ári og sýndi þar ný verk.
„Það má eiginlega segja að ég hafi
verið mönuð og mér ýtt út í hring-
rásina aftur. Mér líður eins ég hafi
flogið út úr ákveðnu fagi með tímavél
en verið skilað aftur á allt annan stað.
Ég er enn að reyna að horfa í kring-
um mig og átta mig á því hvar mynd-
listin er stödd og hvert hún stefnir og
sannleikurinn er að mér finnst það
mjög skemmtilegt.“
bergsteinn@frettabladid.is
timamot@frettabladid.is
Mér líður eins ég
hafi fl ogið út úr
ákveðnu fagi með tímavél
en verið skilað aftur á allt
annan stað.
HILDUR HÁKONARDÓTTIR: HEIÐRUÐ VIÐ AFHENDINGU SJÓNLISTARVERÐLAUNANNA
Tók þátt í að opna nýjar gáttir
HILDUR HÁKONARDÓTTIR Segir dvöl í Bandaríkjunum á yngri árum hafa mótað lífssýn sína, en þar kynntist hún gerjun bæði í samfélagi og
myndlist sem átti síðar eftir að rata til Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS
LESLIE TWIGGY LAWSON fyrrverandi ofurfyrirsæta er 63 ára í dag.
„Þegar ég var sextán ára var ég horaður og furðulegur unglingur, einungis augnhár og lappir.
Allt í einu fór fólk svo að segja mér að ég liti vel út. Mér fannst fólk vera orðið ruglað.“
63
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
KRISTÍN ZOËGA
Dyngjuvegi 1,
sem andaðist á Hrafnistu sunnudaginn
16. september, verður jarðsungin frá Áskirkju
föstudaginn 21. september kl. 13.00.
Geir Agnar Zoëga
Helga Zoëga Guðmundur Kristjánsson
Geir Þórarinn Zoëga Vilborg Traustadóttir
Þórdís Zoëga Ólafur E. Friðriksson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
mér samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður minnar,
MARGRÉTAR VALTÝSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir fyrir frábæra umönnun
fær starfsfólk á Dvalarheimilinu Hlíð og
Sjúkrahúsi Akureyrar.
Óskar Harðarson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KARITAS JENSEN
Stóragerði 42, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
föstudaginn 7. september. Útförin fer fram
frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
21. september kl. 15.00. Þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Minningarsjóð líknardeildar LSH,
s.: 543 1159.
Steinunn Margrét Tómasdóttir Aðalsteinn Karlsson
Þórunn Elín Tómasdóttir Kjartan Jónsson
Bryndís María Tómasdóttir Thomas Möller
Lára Anna Tómasdóttir Hörður Jón Gærdbo
Óskar Már Tómasson Auður Pálmadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og systir,
DÓRÓTHEA M. BJÖRNSDÓTTIR
Keldulandi 19,
lést á Landspítalum aðfaranótt
16. september. Útför hennar fer fram
frá Bústaðakirkju föstudaginn 21. september
kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Félag aðstandenda Alzheimersjúklinga, FAAS.
Birgir Ólafsson
Guðrún Björk Birgisdóttir Hörður J. Oddfríðarson
Birna Birgisdóttir Kristján Sverrisson
barnabörn, langömmubörn og systkini hinnar látnu.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
LILJA ÞORBJARNARDÓTTIR
frá Mel, Þykkvabæ,
lést 15. september á Hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð í Kópavogi. Útför hennar fer fram
frá Digraneskirkju í Kópavogi föstudaginn
21. september kl.13.00.
Jón Erlendsson
Ólafur Atli Jónsson Ruth Jensdóttir
Erlendur Jón Atlason
Ísak Þór Atlason Grace Carry
Anna Kristín Atladóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
JÓN ÓSKARSSON
fyrrverandi flugumferðarstjóri,
Kristnibraut 41, Reykjavík,
lést sunnudaginn 16. september á
líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Jarðarför auglýst síðar.
Sigdís Sigmundsdóttir
Anna Björg Jónsdóttir Sigurður Hinrik Teitsson
Hafliði Jónsson Agnes Stefánsdóttir
Sandra Mjöll Sigurðardóttir Ásta Guðrún Sigurðardóttir
Sigdís Lind Sigurðardóttir
Þorsteinn Már Hafliðason Andrea Sif Hafliðadóttir
Óskar Páll Hafliðason
Þjóðlaga-og rokkdúettinn Simon og Garfunkel tók upp
heila plötu á tónleikum sínum þann 19. september árið
1981 í Central Park í New York. Tónleikarnir voru ókeypis
en þar var dúettinn að sameinast á nýjan leik eftir hlé.
Yfir 500 þúsund manns mættu á tónleikana sem gera þá
sjöundu mest sóttu tónleika í heiminum. Í febrúar árið
eftir tónleikana kom platan út, sem heitir einfaldlega The
Concert in Central Park, en vinsældir tónleikanna voru
slíkar að dúettinn ákvað að fara í heimstúr í kjölfarið.
Platan var útsett af Paul Simon og Dave Grusin og fram-
leidd af Paul Simon, Art Garfunkel, Phil Ramone og Roy
Halee. Simon og Garfunkel tóku alls 21 lag á sviðinu, þar
á meðal sín vinsælustu lög: The Sound of Silence, Mrs.
Robinson og The Boxer.
Dúettinn er sérstaklega þekktur fyrir einstakan sam-
hljóm og á tíðum óstöðugt samband. Tímaritið The Roll-
ing Stones setti þá í 40. sæti yfir merkustu tónlistarmenn
allra tíma.
ÞETTA GERÐIST 19. SEPTEMBER 1981
Tóku upp plötu í Central Park
TÍÐAR ENDURKOMUR Simon og Garfunkel hafa oft komið saman
aftur eftir að dúettinn lagði upp laupana árið 1970 en tónleikarnir
þann 19. september 1981 voru þeirra eftirminnilegasta endurkoma.