Fréttablaðið - 19.09.2012, Qupperneq 38
19. september 2012 MIÐVIKUDAGUR22 22
menning@frettabladid.is
Ungir og efnilegir karlmenn sem
bregða sér í ótal hlutverk ríða á
vaðið hjá Þjóðleikhúsinu nú á leik-
árinu nýja. Í Kúlunni baular hún
Búkolla, fuglar fljúga og hárið úr
halanum verður að fjalli, skessu,
eldi og fljóti hjá þeim Hilmi Jens-
syni og Baldri Ragnarssyni undir
styrkri stjórn Stefáns Halls Stef-
ánssonar í stórgóðri sýningu ætl-
aðri leikskólabörnum.
Á stóra sviðinu brenna innri
eldar og aðrar kýr eru held-
ur betur með í heimsmyndinni
og leiknum í þorpi á Írlandi þar
sem Hollywood-leikhópur hefur
komið sér fyrir í leikritinu „Með
fulla vasa af grjóti“. Þar bregða
þeir Stefán Karl Stefánsson og
Hilmir Snær Guðnason sér í ein
fimmtán hlutverk. Leikritið var
upphaflega skrifað fyrir írska
leikhópinn Double Joint og frum-
sýnt árið 1996. Síðan hefur það
farið sigurför um heiminn og
var sýnt hér með sömu leikurum
fyrir tíu árum. Leikstjórinn Ian
McElhinney (eiginmaður höfund-
ar) leikstýrði einnig verkinu hér í
aldarbyrjun.
Þeir Stefán Karl og Hilmir Snær
gæða persónurnar slíku lífi að
áhorfendur njóta hverrar setning-
ar, glennu og grettu til fullnustu.
Stefán Karl fór með runu af hlut-
verkum sem voru allt frá fram-
burðarkennara að ungum, mjög
vandræðalegum pilti, sem átti
sér draum um að komast í kvik-
myndirnar en hrokafull fram-
koma aðkomumanna varð til þess
að hann bugaðist og fyllti vasa sína
af grjóti á leiðinni út í koldimmt
vatnið.
Verkið fjallar í raun um þann
árekstur sem verður þá er yfir-
borðslegir kvikmyndaleikarar
koma sér fyrir í fallegu landslagi
sem tilheyrir venjulegu fólki, svo
venjulegu fólki að það þarf að beita
brögðum og brellum til þess að
skynja og skilja hvernig það talar
og hugsar. Áreksturinn milli hrok-
ans og einlægninnar, áreksturinn
milli þeirra er peningana hafa og
hinna sem þurfa á aurum að halda,
áreksturinn milli rótleysis og róta
er kjarni verksins. Spriklandi fimi
leikaranna hvort heldur var í hlut-
verki kvenna eða karla var ein-
stök.
Írarnir tveir, Jake Quinn sem
Stefán Karl leikur og Charlie
Conlon sem Hilmir Snær blæs lífi
í, segja söguna og eiga það sam-
merkt að vilja komast burt úr
fátæktinni en eru að öðru leyti
mjög ólíkar persónur. Quinn er
óheflaður og fastur fyrir en Con-
lon er málamiðlunarmaður. Skipt-
ingar milli atriða og persóna voru
undraverðar. Hilmir Snær kann
svo sannarlega listina að smjúga
inn undir skinnið og skankana
á skringipersónum. Það sann-
aðist best í hlutverki lífvarðar-
ins, þar sem honum tókst hrein-
lega að skrumskæla skrokk sinn
svo að sumir héldu að hann hefði
troðið inn á sig kodda, en það var
kroppurinn sjálfur sem kreisti upp
aftur endann þannig að það var
engu líkara en að hann væri kom-
inn með rassinn upp á milli herða-
blaðanna. Hlutverk Stefáns Karls
með sínum heimsfrægu geifl-
um eru öll eftirminnileg, einkum
gamli maðurinn Mickey, sem ein-
hvern veginn getur ekkert verið
nema írskur og óviðjafnanlegur
var hinn spjátrungslegi aðstoðar-
leikstjóri. Írski dansinn ætlaði svo
allt að trylla. Elísabet Brekkan
Niðurstaða: Mjög vel unnin sýning
með leikmynd sem lyftir frásögninni,
bæði til Írlands og inn í kvikmynd.
Hroki, dans og draumar
Leikhús ★★★★ ★
Með fulla vasa af grjóti
Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið
Höfundur: Marie Jones. Guðni
Kolbeinsson þýddi. Leikarar:
Stefán Karl Stefánsson og Hilmir
Snær Guðnason. Leikstjóri: Ian
McElhinney.
Í GRJÓTAÞORPINU Leikararnir tveir fara á kostum að mati gagnrýnanda; Hilmir Snær smýgur undir skinnið á persónunum sem
hann leikur og Stefán Karl er eftirminnilegur með öllum sínum geiflum.
Sigurganga skáldsögunnar Svar
við bréfi Helgu eftir Bergsvein
Birgisson heldur áfram en dönsk
þýðing bókarinnar hefur hlotið
lofsamlega umfjöllun gagnrýn-
enda þar í landi að undanförnu.
Bókin er nýkomin út í Dan-
mörku hjá forlaginu C&K í þýð-
ingu Kim Lembek. Bergsveinn
var í Danmörku í síðustu viku til
þess að fylgja bókinni úr hlaði
og var meðal annars í stóru við-
tali í síðasta helgarblaði Poli-
tiken. Gagnrýnandi sama blaðs
gefur bókinni fimm stjörnur af
fimm mögulegum en Jyllands
Posten gefur henni sex stjörnur
af sex.
Danir lofa svarbréf
SÖNGPERLUR Í SALNUM Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona flytur perlur íslenskra sönglaga í Salnum,
Kópavogi, klukkan 17.30 í dag. Henni til halds og trausts verður píanóleikarinn Jónas Ingimundarson. Tónleikarnir
eru hluti af síðdegissöngtónleikaröðinni Íslenskt? Já takk! Aðgangseyrir á staka tónleika er 1.500 krónur.
SEPTEMBERTILBOÐ
24 stk. í pakka Verð áður 7.177 kr.
5.383 KR.
TILBOÐSVERÐ
VNR. 4000123 & 4000124
COMPACT
SALERNISPAPPÍR
KJARNALAUS SALERNISPAPPÍR
Í „COMPACT“ SKAMMTARA, HVÍTUR,
TVEGGJA LAGA, 800 BLÖÐ Á RÚLLU
Stórhöfða 42, Reykjavík
Austursíðu 2, Akureyri
587 7788
papco.is
Góð þjónusta fyrir fyrirtæki og stofnanir
Götumarkaðurinn á
Garðatorgi í Garðabæ
Byrjum vetrarstarfið á flóamörkuðum/kompudögum
laugardagana 22. og 29. sept nk.
Skráning fer fram í blómabúðinni Sóleyjarkoti á Garðatorgi 3, alla virka daga frá
kl 12-17 í síma 8621820 og 8663171 eða á gardatorg.gotumarkadur@gmail.com.
Handverksmarkaðirnir fara af stað í október, nánar auglýst síðar.
Götumarkaðurinn Garðatorgi
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 10-18 OG L AUGARDAGA FRÁ 11-15
Í eldhúsinu viljum við að okkur líði alltaf sem best.
Þá tekst okkur líka betur upp við matargerðina og það hefur auðvitað áhrif á vellíðan fjölskyldunnar og heilsu.
HTH innréttingarnar eru meðal mest seldu og vinsælustu eldhúsinnréttingum á Norðurlöndum og ekki af ástæðulausu.
Frábær hönnun og nákvæm framleiðsla skilar mjög vönduðum innréttingum og það nærir gleðina alla daga.
Komdu, kynntu þér málið ... og taktu risagóða ákvörðun!
LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2819 & 530 2821 · www.hth-kitchen.com
Val á innréttingu í eldhúsið er risastór ákvörðun.
Fallegt úrval fyrir öll heimili!