Fréttablaðið - 18.10.2012, Blaðsíða 4
18. október 2012 FIMMTUDAGUR4
GENGIÐ 17.10.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
220,626
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,06 122,64
197,29 198,25
160,1 161
21,46 21,586
21,629 21,757
18,496 18,604
1,5498 1,5588
188,86 189,98
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
DANMÖRK Borgaryfirvöld í Kaup-
mannahöfn áætla að verja jafn-
gildi tæpra 50 milljóna íslenskra
króna í ár til þess að fjarlægja
reiðhjól sem hafa verið yfirgefin
víðs vegar um borgina.
Yfirgefin hjól eru sérstaklega
til vandræða við lestarstöðvar
þar sem talið er að sjötta hvert
hjól hafi verið skilið eftir.
Í frétt Berlingske segir tals-
maður borgarinnar að ætla megi
að um 40.000 hjól séu skilin eftir
í reiðileysi í borginni ár hvert.
Borgarstarfsmenn merkja þau
hjól sem grunur leikur á að séu
yfirgefin, og sækja þau síðar til
förgunar eða sölu á uppboði. - þj
Vandi í Kaupmannahöfn:
Tugmilljónir í
reiðhjólaförgun
HJÓLAFARGAN Stuðmenn sungu eitt
sinn um „gomm´af reiðhjólum“ í Kaup-
mannahöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
60 dagar á skilorði
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt
25 ára mann til 60 daga fangelsisvistar,
skilorðsbundið í tvö ár og til missis
ökuréttinda í 20 mánuði. Hann var
þrisvar gripinn við akstur undir áhrifum
fíkniefna og í nokkur skipti var gert upp-
tækt bæði amfetamín og marijúana hjá
honum, alls 99,96 grömm af marijúana
og 0,68 grömm af amfetamíni.
DÓMSMÁL
Ætlar þú að breyta
um lífsstíl?
Heilsulausnir henta
einstaklingum sem glíma
við offitu, hjartasjúkdóma
og/eða sykursýki.
Hefst 22. október.
Kynningarfundur
laugard., 20. október,
kl. 12:00
- Allir velkomnir -
ATH! Tveir heppnir fundargestir verða
dregnir út og fá 30% afslátt af námskeiðinu
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
25°
19°
18°
14°
18°
19°
14°
14°
26°
15°
27°
19°
29°
11°
21°
28°
11°Á MORGUN
Strekkingur með S-
strönd, annars hægari.
LAUGARDAGUR
Strekkingur með S-
strönd, annars hægari. 5
4
4
3
1
3 4
1
22
2
2
2
1
1
0
0
3
4
4
-6
6
4
4
4
4
5
3
5
6
5
8
15
VÍÐA BJART eða
bjart með köfl um
á landinu næstu
daga og úrkoma í
lágmarki. Nætur-
frost verður um
mest allt land og
einnig frost að deg-
inum til í innsveit-
um. Má því búast
við hálku á heiðum
og fjallvegum.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
ATVINNULÍF Samdráttartímanum
í íslensku atvinnulífi er líklegast
lokið þó að ekki sé útlit fyrir mik-
inn vöxt á næstunni. Níu af hverj-
um tíu fyrirtækjum og stofnunum
réðu til sín fólk á síðasta ári. Þetta
er meðal niðurstaðna rannsóknar
Arneyjar Einarsdóttur og Katrínar
Ólafsdóttur, lektora við viðskipta-
deild Háskólans í Reykjavík, sem
verða kynntar í dag.
Fram kemur að meirihluti fyrir-
tækja telur litlar eða engar líkur á
hópuppsögnum á næstunni, en ekki
heldur mun útlit fyrir stórtækar
ráðningar. Þá hefur frekar verið
gripið til launalækkana og lækkun-
ar starfshlutfalls í stað uppsagna.
Hafi komið til slíks hafa fyrirtæk-
in almennt boðið starfsfólki upp á
aðstoð í kjölfar uppsagnar. - þj
Ný mannauðsrannsókn:
Níu af tíu réðu
fólk í fyrra
KÖNNUN Flestir vilja sjá Árna Pál
Árnason leiða Samfylkinguna
þegar Jóhanna Sigurðardóttir
lætur af formennsku í vor. Þetta er
niðurstaða nýrr-
ar könnunar
Viðskiptablaðs-
ins á trausti til
þeirra sem til
greina koma í
embættið.
Um tutt-
ugu prósent
aðspurðra
nefndu Árna
Pál, en Katrín
Júlíusdóttir og Guðbjartur Hann-
esson mældust með stuðning um
fimmtán prósenta. Þegar aðeins er
horft til stuðningsfólks Samfylk-
ingarinnar kemur í ljós að 26 pró-
sent þeirra treysta Árni Páli best,
24 prósent Katrínu og 17 prósent
Guðbjarti. - sh
Best treyst í forystu flokksins:
Árni Páll nýtur
mests stuðnings
ÁRNI PÁLL
ÁRNASON
MENNTAMÁL Staða framhaldsskól-
anna í landinu er grafalvarleg og
mikið fjármagn þarf að koma til
svo mögulegt sé að reka þá á eðli-
legum grunni. Hagræðing kom til
innan skólanna nokkru fyrir hrun
en síðan harður niðurskurður und-
anfarin ár. Þetta hefur sett skólana
í þá stöðu að frekari niðurskurður
er gott sem útilokaður.
Þetta er mat Valgerðar Gunn-
arsdóttur, formanns Skólameist-
arafélags Íslands, sem segir að
stjórnendur skólanna hafi bent á
þetta lengi og menntamálayfir-
völdum sé þetta fullljóst. „Það
er ekki af neinu að taka lengur, í
raun og veru,“ segir Valgerður sem
treystir sér ekki til að nefna upp-
hæðir í þessu samhengi. Myndin
sé flókin. Launaliðurinn sé hins
vegar stærstur og þá húsaleiga
sem greidd er til ríkisins. „Allur
annar kostnaður er keyrður svo
hart víða í skólunum að lengra
verður ekki gengið. En það þarf að
gefa vel í,“ segir Valgerður.
Valgerður kannast ekki við að
skólameistarar séu almennt séð að
íhuga að draga úr nemendafjölda.
Hins vegar er það skoðun Krist-
jáns Ásmundssonar, skólameistara
Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum,
að fáist ekki aukið fjármagn inn
í skólann þurfi stórfelldan niður-
skurð nemenda og starfsfólks, eins
og Fréttablaðið sagði frá í gær.
Hjalti Jón Sveinsson, skólameist-
ari Verkmenntaskólans á Akur-
eyri, segir að hann hafi ekki hugs-
að dæmið á sama hátt og Kristján
en hafi fullan skilning á afstöðu
Staðan grafalvarleg
segja skólameistarar
Fjöldi skólameistara lýsti áhyggjum af stöðu framhaldsskólanna á fundi með
menntamálaráðuneytinu á mánudag. Minnt er á að hagræðing innan skólanna
hófst löngu fyrir hrun. Fjöldi skóla verður rekinn með tapi að óbreyttu.
hans. „Maður þorir ekki að hugsa
þá hugsun til enda. En við rekum
ekki skólann með þennan fjölda
nemenda fyrir það fjármagn sem
okkur er ætlað til reksturs. Það
er einfalt reikningsdæmi að það
er ekki hægt. Við erum að ráða
ráðum okkar hvernig við eigum
að mæta nýju fjárlagafrumvarpi
og reka hallalausan skóla,“ segir
Kristján. Hann segir að í VMA
hafi hagræðing staðið yfir í sex
til sjö ár. „Það er eiginlega ekkert
eftir. Ég held líka að þessi staða sé
sú sama yfir línuna.“
svavar@frettabladid.is
Skólameistarar sammála um vandann
Á mánudag hélt Félag skólameistara reglubundinn fund en þar mættu full-
trúar frá menntamálaráðuneytinu. Þar var farið yfir fjárlögin og samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins var það einróma álit allra skólameistaranna sem
sátu fundinn að skólarnir nái vart endum saman og niðurskurður sé vart
framkvæmanlegur lengur. Margir skólar verði reknir með tapi og áhyggjur
skólamanna verulegur. Kerfið sé komið að þolmörkum, voru skilaboð
hópsins og frekari fjárveitingar lífsnauðsynlegar.
GANGA MENNTAVEGINN Allir skólastjórnendur sem við er rætt hafa sömu sögu
að segja: Hingað og ekki lengra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
UTANRÍKISMÁL Össur Skarphéðinsson utan-
ríkisráðherra segir að dómur í Icesave-mál-
inu gæti fallið fyrir jól, hugsanlega í byrjun
desember. Hann fundaði með Tim Ward,
aðalmálflutningsmanni Íslands, í gær. Össur
segir að í undirbúningi séu viðbrögð við mis-
munandi útkomum dómsins og brugðið geti til
beggja átta.
„Ég tel þó að málflutningurinn í sumar hafi
sýnt að við höfum ansi þétt rök varðandi það
hvort ríkið beri ábyrgð á greiðslum innstæðu-
tryggingarsjóðsins, og raunar á hið sama við
varðandi þann þátt sem snýr að meintri mis-
munun Íslendinga gagnvart innstæðueigend-
um í Hollandi og Bretlandi. Málflutnings-
teymið okkar hefur staðið sig ákaflega vel og
svo mun niðurstaðan koma í ljós. Við búum
okkur undir hvað sem er.“
Össur undrast að mótaðilar hafi viljað láta
reyna á ábyrgð ríkisins á tryggingum sjóðsins,
en það gæti haft hrikalegar afleiðingar fyrir
bankakerfi í löndum þar sem það stendur illa, á
hvorn veginn sem dómurinn fellur.
„Ef við vinnum þá liggur fyrir að ríki ber
ekki ábyrgð á lágmarksgreiðslum til innstæðu-
eigenda, og það gæti haft ófyrirséðar afleiðing-
ar í löndum þar sem staða bankanna er erfið. Ef
við töpum þá gæti það sömuleiðis haft afleiðing-
ar fyrir áhættu ríkja þar sem bankakerfið er í
vanda, og haft bein áhrif á lánshæfismat þeirra.
Þetta mál gæti því komið eins og búmerang
aftan að mótaðilum Íslands.“ - kóp
Utanríkisráðherra fundaði með aðalmálflutningsmanni Íslendinga í Icesave-málinu í gær:
Búa sig undir ólíkar niðurstöður í Icesave
FUNDAÐ UM ICESAVE Össur segir ómetanlegt að njóta
ráðgjafar Tims Ward í undirbúningi vegna niðurstöðu
dómsins.