Fréttablaðið - 18.10.2012, Page 10
18. október 2012 FIMMTUDAGUR10
20
11
2010
JÁKVÆÐ MERKI
ÚR ATVINNULÍFINU
Það eru jákvæð teikn á lofti í íslensku
atvinnulífi. Fjölmörg fyrirtæki eru að
ná eftirtektarverðum árangri þrátt fyrir
krefjandi aðstæður.
Arion banki fagnar þessum góða árangri.
Kynntu þér málið á arionbanki.is
60 NÝIR
SÉRFRÆÐINGAR
MANNVIT
Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði persónukjör í kosningum til Alþingis heimilað í meira mæli en nú er?
Haukur Arnþórsson
stjórnsýslufræðingur
Katrín Oddsdóttir
lögfræðingur og fulltrúi í stjórnlagaráði
Á laugardaginn fáum við einstakt tækifæri. Við getum tekið þátt í að móta söguna með því að setja Íslandi nýjan og
betri samfélagssáttmála. Ég mun nýta kosningarétt minn og
ætla að segja já við því að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar
til grundvallar nýrri stjórnarskrá. Ekki bara vegna þess að þær
eru betri en núverandi stjórnarskrá heldur vegna þess að ég
trúi því að þær muni stórbæta íslenskt samfélag með því að
auka gegnsæi, valddreifingu og ábyrgð.
Ég ætla jafnframt að segja já við spurningu nr. 4 sem
fjallar um það hvort heimila eigi persónukjör í stjórnarskrá í auknum mæli en nú er.
Með persónukjöri er átt við að kjósandi geti kosið einstaka frambjóðendur, einn eða
fleiri, af lista á kjörseðli í stað þess að kjósa einungis á milli lista stjórnmálaflokka eins
og tíðkast hefur í alþingiskosningum á Íslandi. Þess ber að geta engin ákvæði eru um
persónukjör í núgildandi stjórnarskrá.
Ég tel að með því að setja inn heimild til slíkrar kosningaaðferðar verði skapað
mikilvægt mótvægi við flokkakerfið sem, þrátt fyrir ýmsa kosti, hefur reynst okkur
Íslendingum dýrkeypt.
Sr. Örn Bárður Jónsson
sóknarprestur í Neskirkju
Fólk sem segir nei við þessari spurningu getur gert það á margs konar forsendum. Ég nefni hér nokkrar.
Sumir vilja að mínu áliti vinna gegn þjóðkirkjunni með öllum
ráðum og vilja helst koma í veg fyrir allt trúarstarf á hennar
vegum. Nokkrir herskáir einstaklingar hafa farið mikinn á liðnum
misserum og ráðist harkalega gegn kirkju og kristni og feta þar
í fótspor erlendra „trúarleiðtoga“ sinna eins og t.a.m. Richard
Dawkins og Christopher Hitchens sem báðir hafa tekið stórt
upp í sig og flutt mál og röksemdir sem fræðimenn hafa hrakið
með góðum rökum. Nefni ég í því sambandi heimspekinginn Alvin Plantinga. Áróður
af þessu tagi hefur snúið sumu fólki frá kirkju og kristni en eflt aðra til enn frekari dáða
fyrir hönd kirkju og kristni.
Þá eru það þau sem telja að kirkjan sé á spena ríkisins og taka engum rökum eins
og þeim að eignir kirkjunnar standi undir rekstri hennar og sóknargjöldin séu meðlima-
gjöld sem ríkið innheimtir fyrir öll trúfélög, kristin og ekki kristin.
Svo eru það aðrir sem á forsendum jafnræðis milli trúfélaga vilja ekki að neitt trúfélag
sé nefnt í nýrri stjórnarskrá.
Og loks eru það þau sem telja að þjóðkirkjunni sé fyrir bestu að vera frjáls og óháð
að svo miklu leyti sem það er hægt fyrir stofnun með meirihluta þjóðarinnar innan-
borðs og þjónustu um land allt. Núverandi stjórnarskrárákvæði um vernd og stuðning
ríkis við þjóðkirkjuna hefur litla þýðingu eins og dæmin sanna og birst hefur í því að
ríkið skilar ekki nema hluta sóknargjalda sem það innheimtir fyrir öll trúfélög. Það þykir
ekki gott og allra síst í ljósi boðorðanna 10 að innheimtuaðili taki sér „kött“.
Ég er talsmaður frjálsrar og öflugrar þjóðkirkju og stend því með samþykkt stjórn-
lagaráðs. Ég óttast að stjórnarskrárgrein um þjóðkirkjuna verði henni dýrkeypt þegar til
lengdar lætur. Ríki og kirkja hafa gert með sér samning um fjármál og hann hlýtur að
gilda áfram. Báðir aðilar geta komið sér saman um að segja samningnum upp en ég er
ekki viss um að ríkið vilji það eða að það borgi sig fyrir ríkið. Ég bendi á að í Finnlandi
eru tvær þjóðkirkjur, sú lúterska með meirihluta þjóðar innanborðs og svo rétttrúnaðar-
kirkjan með 1,1% íbúa sem meðlimi. Hvorug þeirra er í finnsku stjórnarskránni. Hin
evangelíska lúterska þjóðkirkja á Íslandi mun lifa áfram hvort sem hennar verður getið í
stjórnarskrá eða ekki. Kirkjan þarf að vera öflug af og í sjálfri sér.
Sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir
vígslubiskup á Hólum
Já, ég vil að það verði ákvæði um þjóð-kirkju í stjórnarskránni vegna þess að
þjóðkirkja þjónar allri þjóðinni.
Þjóðkirkja hefur skyldur við alla þjóðina
án tillits til trúfélagsaðildar. Þjónar hennar
spyrja ekki um hverrar trúar fólk er þegar
kemur að þjónustunni.
Þess vegna þjónar kirkjan inni í innstu dölum og úti á ystu
nesjum.
Margir halda að ákvæðið um þjóðkirkjuna hafi eitthvað með
fjármál að gera eða framlög ríkisins til kirkjunnar. Það er á miklum
misskilningi byggt.
Á Íslandi er ekki ríkiskirkja. Það er annars vegar í gildi gagnkvæm-
ur samningur milli ríkis og kirkjunnar um ákveðnar arðgreiðslur af
kirkjujörðum sem ríkið tók yfir árið 1997. Hins vegar er samningur
milli ríkis og kirkju um að ríkið innheimti svokölluð sóknargjöld fyrir
kirkjuna sem ríkið skilar til sóknanna. Þess vegna er ekki um bein
fjárframlög frá ríkinu til kirkjunnar að ræða og því getum við ekki
talist ríkiskirkja.
En hér er þjóðkirkja og það hefur allt aðra merkingu. Ef við
höfum ekki lengur þjóðkirkju á Íslandi er ekki tryggt að kirkjan geti
þjónað öllum sem á kirkjunni þurfa að halda.
Við getum nefnt dæmi: Í skólum landsins eru svokölluð
áfallateymi. Í þessum teymum er í langflestum tilfellum fulltrúi
þjóðkirkjunnar, sem er sérmenntaður í áfallahjálp og sálgæslu. Í
slíkum tilfellum kemur þjóðkirkjan að áföllum með beinum hætti.
Um landið allt er þéttriðið net fagfólks á sviði sálgæslu og sorgar-
vinnu, sem er tilbúið til að koma hvert sem er og hvenær sem er til
hjálpar. Það er köllun íslensku þjóðkirkjunnar.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um drög að stjórnarskrá 3. og 4. spurning
Nei
Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi?
Já
Já Nei
Það er í hæsta máta lýðræðis-legt að almenningur hafi áhrif
á val fulltrúa sinna. En það má
framkvæma á margan hátt.
Slíkt val þarf fyrst og fremst
að styðja stjórnmálastarf.
Lýðræðislegt hlutverk stjórn-
málaflokka er stórt; þeir eiga að
leggja samfélaginu til stefnu,
gildi og viðmiðanir, leiða stjórnkerfið og skapa samfellu í
stjórnmálastarfi. Þeir þurfa að vera í nánu sambandi við
almenna flokksmenn, afla samþykkis þeirra og sameina
sjónarmið fólks sem deilir samfélagslegum grunngildum.
Ef álitið er að flokkarnir hér á landi sinni hlutverkum
sínum illa þyrfti væntanlega að gera flokksstarf öflugra
og eftirsóknarverðara. Þannig má rökstyðja að lýðræðið
batni ef stofnanir þeirra og flokksmenn velji fulltrúa sem
hafa staðið sig vel í flokksstarfinu fremur en að leitað sé til
þjóðþekktra einstaklinga frá öðrum vettvangi.
Þótt Danir hafi farið í þessa átt, en flokkarnir þar geta
valið hvort þeir raða frambjóðendum á lista eða láta
kjósendur um það, er gengið lengra hér, því persónukjör
verður ófrávíkjanleg regla. Tillaga stjórnlagaráðs hentar
best þar sem ekki er fjölflokkakerfi. Þar er ekki kosið milli
flokka, heldur frambjóðenda.
Persónukjör er algengt í engilsaxneskum ríkjum. Oftast í
litlum kjördæmum sem eiga eitt eða fá þingsæti. Við þær
aðstæður velja kjósendur milli persóna sem eru frá ólíkum
stjórnmálaflokkum og flokkarnir hafa valið fyrir þá. Þá leið
mætti fara hér á landi. Með því myndi vinnast þrennt: að
kjósendur veldu milli persóna, að stjórnmálaflokkarnir
veldu einstaklinga til framboðs og að fulltrúarnir yrðu
tengdari kjósendum sínum en þeir eru nú í stórum kjör-
dæmum. Það gæti unnið gegn lýðræðishættum netsins.
Kjósendur geta sagt hug
sinn til aukins vægis
persónukjörs í stjórnarskrá
á laugardag. Þá eru þeir
spurðir að því hvort ákvæði
um þjóðkirkju eigi að vera í
stjórnarskránni.
Ekki er kveðið á um þjóðkirkju í
drögum stjórnlagaráðs að nýrri
stjórnarskrá. Þar segir að í lögum
megi kveða á um kirkjuskipan
ríkisins og verði það gert skuli
leggja það mál í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Kjósendur fá hins vegar
færi á að segja af eða á um slíkt
atkvæði í kosningunum á laugar-
dag, þó reyndar sé ekkert skil-
greint hvernig slíkt ákvæði eigi
að vera.
Þá er einnig spurt að því hvort
auka eigi vægi persónukjörs til
Alþingis. Löggjafans bíður, verði
það samþykkt, að útfæra það
nánar. Í drögum stjórnlagaráðs
segir:
„Kjósandi velur með persónu-
kjöri frambjóðendur af listum í
sínu kjördæmi eða af landslist-
um, eða hvort tveggja. Honum er
og heimilt að merkja í stað þess
við einn kjördæmislista eða einn
landslista, og hefur hann þá valið
alla frambjóðendur listans jafnt.“
Persónukjör og þjóðkirkjuákvæði
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is