Fréttablaðið - 18.10.2012, Page 12

Fréttablaðið - 18.10.2012, Page 12
18. október 2012 FIMMTUDAGUR12 Opnaðu upp á gátt – fyrir viðskiptin Lykill er hluti af MP banka Ármúli 13a Sími 540 1700 Lykill.is Lykill býður fyrirtækjum örugga fjármögnun atvinnutækja Það er lykilatriði að tala við réttan aðila þegar kemur að fjármögnun atvinnutækja. Starfsfólk okkar býr yfir yfirgripsmikilli reynslu og veitir skjóta og góða þjónustu ásamt ítarlegum upplýsingum um bestu valkosti í fjármögnun hverju sinni. Lykill – opnar á möguleika. B ran den bu rg B ran de B ran de an dedn bu rg n bu r n bu rg Umfangsmiklar breytingar hafa orðið á íslensku stjórn- kerfi í kjölfar hrunsins. Rík- isstjórnin setti sér þá stefnu í stjórnarsáttmála að fækka ráðuneytum og stækka þau og sérstök úttekt var gerð á fyrir- komulaginu. Aukið vald forsæt- isráðherra er gagnrýnt. Rannsóknarnefnd Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að ýmsir þætt- ir í íslenskri stjórnsýslu væru veikir. Nokkur óvissa ríkti um hvað séu eðli- legir starfshættir í ríkisstjórn og verk- stjórnarvald forsætisráðherra væri lítt skilgreint. Fundið var að því að í lögum væri ekki að finna á einum stað afmörk- un á inntaki valdheimilda og skyldna sem felast í yfirstjórn ráðherra. „Síð- ustu áratugi hefur það færst í vöxt að stefnumótun ríkisstjórnar sé aðallega í höndum þeirra ráðherra sem eru for- menn eða oddvitar þeirra flokka sem styðja ríkisstjórnina á Alþingi.“ Þá var einnig komið inn á ráðherra- nefndir og samstarf einstakra ráð- herra sín á milli. Breytingar boðaðar Ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns fram- boðs kynnti stjórnarsáttmála sinn 10. maí 2009. Þar var kveðið á um umtals- verðar stjórnkerfisumbætur sem ættu að gera þjónustu hins opinbera eins góða og kostur er. Boðað var að ráðuneytum yrði fækkað úr tólf í níu, komið yrði á fót atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Þá mundi öll eignaumsýsla ríkisins færast til fjármálaráðuneytisins og í nýju ráðuneyti mannréttinda og dóms- mála yrði lögð áhersla á lýð- og mann- réttindi auk þess sem öll umsýsla kosn- inga yrði þar. „Heilbrigðisráðuneyti og félags- og tryggingamálaráðuneyti verða óbreytt að öðru leyti en því að stefnt er að því að auka samvinnu milli ráðuneytanna um verkefni sem heyra undir bæði ráðuneyti.“ Þau ráðuneyti sameinuð- ust síðar í velferðarráðuneyti. Tillögur nefndar Forsætisráðuneytið skipaði nefnd, undir forystu Gunnars Helga Krist- inssonar, sem lagði fram ítarlegar til- lögur að breytingum. Lagt var til að faglegur grundvöllur stjórnsýslunnar yrði efldur með stærri ráðuneytum og stofnunum. Þá þyrfti að bæta vinnu- brögð pólitískrar forystu og skerpa á forystuhlutverki forsætisráðherra. Huga þyrfti að samhæfingu og reglufestu í stjórnsýslunni, meðal ann- ars með því að skýra skyldur varðandi skráningu upplýsinga. Í fjórða lagi var lagt til að hlutverk eftirlitsaðila með fjármálamarkaði yrðu skýrð og loks að efla þyrfti aðhald Alþingis gagnvart framkvæmdarvald- inu. Meira vald forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir mælti fyrir breytingum á lögum um stjórnarráð- ið 11. apríl 2011 og það varð að lögum 17. september sama ár. Nokkuð var deilt um lögin og gagnrýndu ýmsir, til að mynda Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna, að með þeim væri vald forsætisráðherra aukið til muna. Þá tafðist að afgreiða það úr nefnd þar sem Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri grænna, vildi skýrari ákvæði varðandi upptökur á ríkisstjórnarfund- um. Hljóðrit ríkisstjórnarfunda geym- ast á Þjóðskjalasafninu og verða gerð opinber eftir þrjátíu ár. Eftir breytinguna hefur forsætis- ráðherra meira vald til þess að breyta verkaskiptingu á milli ráðuneyta. Stærri og færri ráðuneyti STJÓRNIN KYNNT Kveðið var á um stjórnkerfisbreytingar í stjórnarsáttmála Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Rann- sóknarskýrsla Alþingis gagnrýndi veikar einingar í stjórnsýslunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Í kjölfar hrunsins var gagnrýni á framkvæmdarvaldið og skipulag þess áberandi m.a. í skýrslu Rann- sóknarnefndar Alþingis. Segja má – ef til vill nokkuð einfaldað – að gagn- rýni á stjórnsýsluna í aðdraganda hrunsins hafi aðallega verið þrenns konar. Í fyrsta lagi að stjórnsýslan væri sundurlaus og skorti samhæf- ingu og forystu. Í því efni var meðal annars staðnæmst við nokkuð óljóst hlutverk og ábyrgð forsætisráðherra auk þess sem upplýsingamiðlun og meðferð upplýsinga var ábótavant. Í öðru lagi var bent á að ráðuneytin væru mörg og fáliðuð sem leiddi til þess að þau voru faglega veikari en æskilegt er. Það hafði áhrif á fag- legan undirbúning ákvarðana og gat leitt til þess að þau væru yfirspiluð af sterkum hagsmunaaðilum. Loks var fundið að því að sveigjanleikinn í störfum stjórnarráðsins væri ekki nægur, meðal annars vegna þess að tilvist ráðuneyta var bundin í lög, sem gerði ríkisstjórn erfitt með að forgangsraða í samræmi við pólitíska stefnumörkun á hverjum tíma. Í stjórnarsáttmála Samfylkingar- innar og Vinstri grænna frá 10. maí 2009 var tekið á ýmsum af þessum atriðum, ekki síst með áformum um fækkun ráðuneyta og aukinni áherslu á samræmingu og samhæfingu, en jafnframt skyldi forysta og ábyrgð forsætisráðherra skýrð. Í fram- kvæmd hefur þetta leitt til fækkunar ráðuneyta í átta, ráðuneytin eru fá og flest sæmilega stór og átak hefur verið gert í því að auka á samhæf- ingu og skýra ábyrgð forystumanna í ríkisstjórn. Segja má þannig að ríkis- stjórnin hafi staðið við þau fyrirheit sem gefin voru í stjórnarsáttmála. Hvernig þessar breytingar munu reynast á hins vegar eftir að koma í ljós. Ljóst er að þrýstingur verður á fjölgun ráðuneyta og ráðherrastóla, meðal annars við stjórnarmyndan- ir. Það mun jafnframt taka nokk- urn tíma fyrir ráðuneytin að jafna sig á þeirri röskun sem breytingun- um fylgir og ekki víst að árangurinn komi í ljós fyrr en að nokkrum tíma liðnum. Hins vegar held ég að þessar breytingar séu að mörgu leyti í sam- ræmi við það sem flestir þeirra sem um málið hafa fjallað á undanförnum árum og áratugum hafa talið skyn- samlegt. Brugðist við gagnrýni rannsóknarskýrslu Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor við Háskóla Íslands skrifar FJÖGUR ÁR FRÁ EFNAHAGSHRUNI – SJÖTTA GREIN 8 RÁÐUNEYTI eru starfandi eftir breytingarnar. 12 RÁÐUNEYTI voru í ríkisstjórn Geirs H. Haarde sem fór frá í febrúar 2009. 3 BANKA- STJÓRAR voru við Seðla- bankann en í dag er hann 1. Jafn- framt virðist hið pólitíska vald búa við ófullnægjandi aðhald innan úr stjórnsýsl- unni og utan frá, hjá þingi, fjölmiðlum og mennta- og vísindastofn- unum. SKÝRSLA STARFS- HÓPS FORSÆTIS- RÁÐUNEYTISINSKolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.