Fréttablaðið - 18.10.2012, Blaðsíða 18
18. október 2012 FIMMTUDAGUR18
Umsjón: nánar á visir.is
Alls áttu fjármálafyrirtæki hlut
í 95 félögum þann 1. september
síðastliðinn. Í byrjun nóvember í
fyrra áttu þau hlut í 132 félögum.
Þeim hefur því fækkað um 37
á tæpu ári. Þetta kemur fram í
grein eftir tvo sérfræðinga Fjár-
málaeftirlitsins (FME) í grein um
málið sem birtist í nýjasta hefti
Fjármála sem komu út í síðustu
viku. Samkeppniseftirlitið hefur
sett söluskilyrði á rúmlega þrjá-
tíu félög sem hafa verið yfirtekin
með þessum hætti. Af þeim eru
einungis fimm óseld.
Samkvæmt lögum mega bankar
einungis eiga fyrirtæki í óskyldri
starfsemi í tólf mánuði án þess að
leita eftir undanþágu vegna þess
eignarhalds hjá FME. Alls upp-
fylla tólf þeirra 95 félaga sem nú
eru í eigu banka það skilyrði en
83, eða 87 prósent, hafa fengið
veittan frest. FME vill ekki veita
upplýsingar um hversu lang-
ir frestirnir séu þar sem „slík-
ar upplýsingar eru mögulega til
þess fallnar að skaða þann mark-
að sem fyrirtækin starfa á“. FME
vill heldur ekki veita upplýsingar
um hvaða félög hafa ekki fengið
framlengdan frest eða hvaða
ástæður liggja þar að baki.
Eftirlitið upplýsir þó að það
hafi í 52 tilvikum ekki gefið auk-
inn frest til eignarhalds heldur
einungis aukinn frest til að ljúka
sölu og að auki hefur það gert
kröfu um slit á 22 félögum.
FME hefur ekki beitt viðurlög-
um gegn neinum sem verið hefur
á skjön við lögin, en eftirlitinu
er heimilt að beita dagsektum
og/eða stjórnvaldssektum til að
knýja fram sölu.
Félögum í söluferli fjölgar
verulega á milli ára. Þau voru ein-
ungis fjórtán talsins í nóvember
í fyrra en eru nú 52. Flest þeirra
hafa þó verið í eigu fjármála-
fyrirtækis í meira en eitt ár. Þá
hefur náðst mikill árangur við að
klára endurskipulagningu félaga.
Í fyrra voru 27 félög í slíku ferli
en í byrjun síðasta mánaðar var
það einungis eitt.
Athygli vekur að félög sem eru í
40-100% eigu fjármálafyrirtækja
eru nánast jafn mörg nú og þau
voru í fyrrahaust. Þá voru þau
50 en eru nú 48. Samkvæmt upp-
lýsingum frá FME voru fimmtán
þessara félaga líka í eigu banka
fyrir ári, 35 félög fóru út af list-
anum og 33 ný komu inn á hann.
Samkeppniseftirlitið (SE)
getur sett yfirtöku fjármálafyr-
irtækja á félögum skilyrði til að
hraða endursölu og tryggja að
þau starfi sem sjálfstæðir keppi-
nautar á meðan á eignarhaldinu
stendur. Páll Gunnar Pálsson,
forstjóri SE, segir að eftirlitið
hafi sett rúmlega þrjátíu yfir-
tökum hjá bönkum og Framtaks-
sjóði Íslands (FSÍ) slík skilyrði.
„Af þeim félögum sem sett hefur
verið söluskilyrði eru einungis
fimm óseld. Flest þeirra eru þó í
söluferli.“ thordur@frettabladid.is
félaga sem nú
eru í eigu banka
uppfylla skilyrði
í lögum sem segir að bankar
megi einungis eiga fyrirtæki í
óskyldri starfsemi í tólf mán-
uði án þess að fá undanþágu
hjá Fjármálaeftirlitinu.
13%
Félög í eigu fjármálafyrirtækja
1. nóvember 2011 1. september 2011
10-20% 20-40% 40-100% Alls 10-20% 20-40% 40-100% Alls
Félög með umsókn í skoðun hjá FME 1 5 2 8
Félög í endurskipulagningarferli 8 3 16 27 1
Félög í söluferli 6 2 6 14 4 17 31 52
Félög í slitaferli 1 4 28 33 4 3 15 22
Samtals veittur fjöldi fresta 15 9 50 74 9 26 48 83
Félög innan tímamarka (12 mánuðir) 10 11 37 58 3 9 12
Samtals fjöldi félaga 25 20 87 132 9 29 57 95
15. – 19. 2. 2013
Þú getur hægt og bítandi gert miklar kröfur. Mikilvægasta sýning
neysluvara í heiminum uppfyllir væntingarnar þínar með einstöku
alþjóðlegu framboði sem kynnt verða af fl eiri en 4.500 sýningaraðilum.
Þú getur hlakkað til glæsilegs framboðs hugmynda, nýrra stefna og
frjósamra funda fyrir góðar horfur til velgengnis í viðskiptum
framtíðarinnar.
Upplýsingar og miðar á forsöluverði
www.ambiente.messefrankfurt.com
dimex@dimex.dk
Sími: +45 39 40 11 22
Frakkland
Ambiente 201
3
Sambandslan
d
Félögum í fangi banka fækkar
Félögum í óskyldri starfsemi sem fjármálafyrirtæki eiga hefur fækkað um 37 frá því í fyrra. Mun fleiri eru komin í söluferli og
félögum í endurskipulagningu hefur fækkað niður í eitt. FME hefur ekki beitt viðurlögum þegar félög eru lengur en ár í eigu banka.
GÓÐUR GANGUR FME hefur ekki beitt viðurlögum í þeim tilvikum sem félög hafa
verið í eigu fjármálafyrirtækja lengur en í tólf mánuði, sem er hámarkið samkvæmt
lögum. Þess í stað hafa þau fengið frest. Eftirlitinu er heimilt að beita sektum til að
knýja fram sölu. Unnur Gunnarsdóttir er forstjóri FME. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Íbúðalánasjóður (ÍLS) þarf tólf
til fjórtán milljarða króna úr
ríkissjóði til að ná lögbundnu
eiginfjárhlutfalli, sem er fimm
prósent. Sjóðurinn hefur ekki
uppfyllt hlutfallið síðan á árinu
2008. Það var 1,4 prósent um mitt
þetta ár þrátt fyrir að ríkissjóð-
ur hefði lagt ÍLS til 33 milljarða
króna í fyrra. Fjárþörf ÍLS óx
um tvo til fjóra milljarða króna
á fyrstu sex mánuðum ársins.
Bloomberg-fréttaveitan birti
frétt í gærmorgun þar sem haft
var eftir Oscar Heeskerk, sér-
fræðingi hjá matsfyrirtækinu
Moody´s, að hætta sé á því að ÍLS
lendi í greiðslufalli grípi stjórn-
völd ekki fljótt til ráðstafana
til að hindra slíkt. Útistandandi
skuldabréf sjóðsins nema 529
milljörðum króna að nafnverði.
Eigendur þeirra eru að mestu
leyti íslenskir lífeyrissjóðir.
Í tilkynningu sem sjóðurinn
sendi frá sér í gær kemur fram að
beðið sé ákvörðunar stjórnvalda
um eiginfjárframlag. Sú ákvörð-
un snýst um
„afskriftaþörf
vegna niður-
færslu lána og
hefur ekkert
með greiðslu-
getu sjóðsins
að gera“. Staða
hans sé hins
vegar sterk þar
sem sjóður-
inn hafi um 54
milljarða króna í lausu fé og hafi
ekki þurft að sækja sér fjármagn
á markað síðan í janúar 2012.
Því standi ÍLS ekki frammi fyrir
greiðslufalli með skuldbindingar
sínar. Ríkisábyrgð er auk þess á
öllum skuldbindingum sjóðsins.
Greining Íslandsbanka fjallaði
um stöðu ÍLS í Morgunkorni sínu
í gær. Þar segir að lán upp á 7,5
milljarða króna séu í vanskilum
hjá sjóðnum og að staða hans sé
erfið. Útlán hans hafa auk þess
dregist saman um nærri helming
það sem af er ári.
- þsj
Íbúðalánasjóður segist geta greitt skuldbindingar sínar:
Ríkið þarf að setja
12-14 milljarða í ÍLS
REYKJAVÍK Íbúðalánasjóður bíður nú ákvörðunar stjórnvalda um eiginfjárframlag.
Sigurður Erlingsson er forstjóri hans.
SIGURÐUR
ERLINGSSON
159,2 MILLJARÐAR KRÓNA voru heildareignir íslenskra tryggingafélaga í lok ágúst síðastliðins en þær hækkuðu um 1% í mánuðinum.