Fréttablaðið - 18.10.2012, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 18. október 2012 27
trúfélög þótt „kenning“ þeirra sé
veraldleg.
Þjóðkirkjulög
Rök standa einnig til að um hina
stóru meirihlutakirkju — þjóðkirkj-
una — gildi sérstök lög vegna yfir-
burðastærðar hennar, þeirra fjöl-
þættu hlutverka sem hún gegnir
umfram önnur trúfélög og vegna
þeirra miklu fjármuna sem hún
veltir. Þessi stóra kirkja verður að
standast sömu kröfur og smærri
trú- og lífsskoðunarfélög. Auk þess
hlýtur samfélagið að gera ríkari
kröfur til hennar en smærri trú-
félaga: Ætlast til að hún þjóni fólki
um land allt, sé öllum opin, ástundi
vandaða stjórnsýslu, starfi í anda
lýðræðis og jafnréttis og fari vel
með eignir sínar sem komnar eru
frá þjóðinni þó vissulega sé þar um
framlag löngu genginna kynslóða
að ræða þar sem eru hinar fornu
kirkjueignir.
Þjóðkirkjuákvæði verndar þjóðina
Vissulega er mögulegt að kveða
á um stöðu trú- og lífsskoðunar-
félaga þar á meðal þjóðkirkjunnar í
almennum lögum án þess að þeirra
sé getið í stjórnarskrá. Þjóðkirkju-
ákvæði eða ígildi þess sem nær til
allra trú- og lífsskoðunarfélaga er
á hinn bóginn mikilvæg yfirlýsing
um að slík lög skuli sett og þannig
reiknað með trúarbrögðum í hinu
opinbera rými en aðkomu þeirra
að því settar skýrar leikreglur.
Hlutverk slíks ákvæðis og löggjaf-
ar sem reist væri á því er því ekki
einvörðungu að vernda trú- og lífs-
skoðunarfélög almennt og þjóð-
kirkjuna sérstaklega heldur einn-
ig að vernda þjóðina fyrir ýmsum
skuggahliðum trúarbragðanna sem
sagt gætu til sín í auknum mæli ef
trúmál heyrðu alfarið undir einka-
málarétt. — Þetta eru veigamestu
rökin fyrir þjóðkirkjuákvæði eða
ígildi þess.
Í tveimur greinum hér í Frétta-blaðinu (18. og 27. sept.) hef ég
mælt með að þjóðkirkjuákvæði
verði áfram í stjórnarskránni enn
um sinn a.m.k. Ég hef þó ekki mælt
með óbreyttu ákvæði heldur trú-
málagrein er hæfi nútímanum og
kvæði á um tengsl allra skráðra
trú- og lífsskoðunarfélaga við rík-
isvaldið. Þar væri þjóðkirkjunnar
getið sérstaklega. Margir benda á
að trúmál séu einkamál í vestræn-
um nútímasamfélögum og því eigi
ekki að kveða sérstaklega á um
kirkjur, trú- og lífsskoðunarfélög
í stjórnarskránni. Það er því eðli-
legt að spurt sé hvers vegna mælt
sé með þjóðkirkju- eða trúfélaga-
grein í stjórnarskrá.
Endurkoma trúarbragða
Á 20. öld dró úr áhrifum trúar-
bragða og trúfélaga á Vesturlönd-
um. Kirkjusókn minnkaði og trú-
ariðkun þvarr. Á síðari áratugum
hefur orðið breyting í þessu efni og
margir ræða um endurkomu trúar-
bragðanna. Ýmislegt bendir til að
starf trúfélaga muni fara í vöxt á
komandi árum og þau seilast til
aukinna samfélagsáhrifa. Trúar-
bragðaflóran mun einnig verða fjöl-
skrúðugri og trúfélögum þar með
fjölga.
Hingað til hefur þjóðkirkjan
mætt þessari þróun með víðsýni
þroskaðrar móður. Svo þarf þó
ekki að verða áfram. Stöðugt oftar
heyrist úr röðum þjóðkirkjunnar
að „sótt sé að henni“. Hin virðulega
meirihlutakirkja virðist skynja
vaxandi ógn og öryggisleysi. —
Kirkja sem telur sér ógnað skerp-
ir línurnar, leggur aukna áherslu
á sérstöðu sína, tekur að keppa við
önnur trúfélög og kemur í auknum
mæli fram á sama hátt og þau. Yfir-
bragð þjóðkirkjunnar kann því að
breytast.
Trú til góðs og ills
Trú og trúfélög hafa haft fjölmargt
gott í för með sér. Þau hafa hjálpað
ótalmörgum að túlka tilveru sína,
eygja tilgang í lífinu og öðlast lífs-
hamingju. Þau hafa miðlað jákvæð-
um samfélagsgildum og lagt grunn
að góðu mannlífi. Loks hafa þau
orðið kveikja að fjölmörgum lista-
verkum af ólíku tagi. Þannig mætti
lengi telja. Trú og trúfélög geta þó
líka alið á spennu og fordómum,
valdið styrjöldum og brotið niður
sjálfsmynd einstaklinga og traust
þeirra til annarra.
Af þessum sökum er brýnt að
reiknað sé með trúfélögum sem
gerendum í þjóðfélagi framtíðar-
innar. Þá er mikilvægt að hlúð sé
að jákvæðum hliðum þeirra og
þeim gert mögulegt að leggja sitt
af mörkum til að efla velferð í sam-
félaginu. Þar hafa þau af miklu að
miðla.
Vegna skuggahliða trúarbragð-
anna er líka mikilvægt að samfé-
lagið hafi innsýn í starf trúfélaga
og ríkisvaldið geti jafnvel átt
aðkomu að því a.m.k. sem öryggis-
loki ef illa fer.
Trúmál ekki bara einkamál
Af fyrrgreindum ástæðum virðast
veigamikil rök fyrir að jafnvel í
lýðræðislegum fjölhyggjusamfélög-
um sé ekki litið svo á að allt sem
að trúmálum lýtur sé einkamál.
Þrátt fyrir að ríkisvaldið eigi ekki
að hlutast til um trú okkar hvers og
eins er æskilegt að í gildi sé vönduð
löggjöf um starf trúfélaga og þau
heyri þannig undir opinberan rétt.
Því eru nú í gildi lög um skráð trú-
félög sem þjóna tvíþættu hlutverki:
Þau setja opinberar leikreglur um
störf trúfélaga en veita þeim jafn-
framt nokkra hlutdeild í þeirri fyr-
irgreiðslu sem hið opinbera veitir
þjóðkirkjunni þó í ríkari mæli. Í
framtíðinni þurfa þessi lög einnig
að ná að fullu til lífsskoðunarfélaga
sem gegna hliðstæðu hlutverki og
Hvers vegna þjóðkirkjuákvæði í stjórnarskrá?
Ný stjórnarskrá
Hjalti
Hugason
prófessor
Vegna skuggahliða trúarbragðanna er
líka mikilvægt að samfélagið hafi innsýn
í starf trúfélaga …