Fréttablaðið - 18.10.2012, Blaðsíða 32
FÓLK|TÍSKA
NÝ
ÚLPUSENDING
DÚNÚLPUR
MEÐ EKTA SKINNI
Skoðið sýnishornin á
laxdal.is/yfirhafnir
Vertu vinur á
VETRARDAGAR
15% afsláttur af öllum Basler vörum
Úrval af peysum, buxum, drögtum,
kjólum og yfirhöfnum.
Skipholti 29b • S. 551 0770
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
TÍSKUBLOGGARINN | ELÍSABET GUNNARSDÓTTIR
TÓK ÁSTFÓSTRI VIÐ
SÆNSKAR VERSLANIR
Í NÁMI OG STARFI
Elísabet Gunnarsdóttir
býr í Frakklandi ásamt
fjölskyldu sinni og held-
ur úti vinsælu bloggi.
Hvað ert þú að starfa um þessar
mundir og hvar? Ég er starfandi í
nokkrum hlutverkum í nýju frönsku
landi. Handboltafrú, mamma og blogg-
ari ásamt því að vera annar eigenda
nýju bloggveraldarinnar Trendnet.is.
Einnig er ég viðskiptafræðinemi í fjar-
námi. Það er því nóg að gera og hver
dagur er mjög vel skipulagður.
Hefur þú alltaf haft áhuga á tísku? Ég
hef haft þann áhuga mjög lengi en vit-
ið kom ekki fyrr en ég byrjaði að vinna
í Centrum (heitinni), þá 16 ára gömul.
Þar jókst og myndaðist áhuginn enn
frekar og síðan hefur tíska verið mitt
helsta áhugamál og er stór hluti af
mínu lífi í dag.
Hvað leggur þú áherslu á þegar þú
bloggar? Það tekur tíma að þróa
sig sem bloggari. Þegar ég blogga
reyni ég eftir fremsta megni að vera
100% ég sjálf og vona að það skili
sér til lesandans. Áður en ég byrjaði
að blogga á Trendnetinu þá blogg-
aði ég á sjálfstæðri heimasíðu í þrjú
ár. Ég hef tekið þá ákvörðun að vera
hæfilega persónuleg að mínu mati.
Deili tískufréttum, dresspóstum
og mínu daglega lífi. Það eru mínir
áherslupunktar sem ég sé að eru að
virka fyrir mig og vonandi fyrir þá
sem lesa bloggið.
Hvaða hönnuðir eru í uppáhaldi?
Það er misjafnt eftir tímabilum
og finnst mér alltaf jafn erfitt að
svara þessu. Um þessar mund-
ir eru Acne, Wang, Kenzo og
Balmain dálítið góð blanda að
mínu mati.
Er einhver flík sem þú stenst
ekki? Ég stenst ekki fallegar
og vel vandaðar flíkur yfir
höfuð. Einhverra hluta vegna
kaupi ég mest af yfirhöfnum
en þó er það alveg óviljandi.
Í augnablikinu langar mig
rosalega mikið
í flotta húfu og góða
leðurhanska, reyndar
langar mig líka í al-
mennilegt haustveð-
ur til Frakklands svo að ég geti notað
þess konar flíkur.
Einhver skemmtileg tískuupplifun? Ég
fæ svo mikinn innblástur af allavega
fólki. Mín síðasta skemmtilega tísku-
upplifun var að ganga um götur Parísar
þegar tískuvikan stóð sem hæst. Þar
sér maður allar gerðir af fólki sem
er jafn mismunandi og það er margt.
Dásamleg upplifun sama hversu oft
maður upplifir hana.
Áttu þér uppáhaldsverslanir? Ég bjó
í þrjú ár í Svíþjóð og tók þar ástfóstri
við sænskar verslanir. Sú sem fylgdi
mér til Frakklands, sem betur fer, er
verslunin COS sem er eitt af börnum
H&M-risans. Hún er nokkuð fullkom-
in að mínu mati, vandaðar flíkur, basic
snið og gott verð.
Eyðir þú miklu í fatakaup? Ég er og
hef alltaf verið mjög skynsöm þegar
ég versla mér föt. Kaupi ekkert nema
ég eigi fyrir því og hef til dæmis aldrei
borgað með vísakorti eða yfirdrætti.
Ég elska að kaupa mér á mörkuðum
eða í fallegum second hand-verslun-
um en leyfi mér dýrari flíkur þegar ég
sé mikinn endingartíma í þeim.
Hvort verslar þú meira á Íslandi eða
í útlöndum? Þar sem ég bý fyrir utan
landsteinana þá fara flest mín kaup
fram þar. Netverslanir, hvort sem
þær eru erlendar eða íslenskar, eru
líka fastur liður í mínum nethring.
Hvað gerir þú í þínum frístundum?
Ég eyði öllum mínum frístundum
með litlu fjölskyldunni minni
hér í Frans. Við erum dugleg að
hjóla um nýju borgina og upp-
götva nýja staði og skoða mann-
lífið. Þegar ég á frí á Íslandi
nota ég það til hins ýtrasta
með vinum og fjölskyldu.
Besta frí sem ég veit er þegar
ég kemst í sumarbústað í
ferskri, íslenskri sveit.
Sem bloggari er ég aldrei
í fríi og leita stöðugt
eftir innblæstri.
■ elin@365.is
EIFFEL
TURNINN
„Mín síðasta tísku-
upplifun var að
ganga um götur
Parísar þegar
tískuvikan stóð
sem hæst.“
■ SKJÓLGOTT
Fallegir, stórir treflar verða
vinsælir í vetur. Þeir mega
vera hvort sem er einlitir eða
litríkir, jafnvel í mörgum litum.
Á myndinni er kasmír-trefill
frá Donnu Karan, mjúkur og
þægilegur. Höfuðföt; hattar,
húfur og eyrnaskjól, eru sömu-
leiðis vinsæl í vetur. Hægt er
að skoða vetrartísku Donnu á
dkny.com en margar
íslenskar konur eru
hrifnar af hönnun
hennar.
Aðrir hönnuðir
hafa einnig
sýnt ýmis
höfuðföt og
trefla og má
þar nefna
Vivienne
Westwood
sem er
mikið með
sixpensara
fyrir dömur
og Marc Ja-
cobs sem
býður stór
og mikil
höfuðföt.
HLÝTT Í
VETUR
ÞJÓÐ-
FÉLAGS-
UMRÆÐAN
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag