Fréttablaðið - 18.10.2012, Qupperneq 50
18. október 2012 FIMMTUDAGUR38
BAKÞANKAR
Friðriku
Benónýs
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. óregla, 6. stefna, 8. sægur, 9. frost-
skemmd, 11. hljóta, 12. langt op, 14.
fet, 16. strit, 17. fjallaskarð, 18. tálkn-
blað, 20. nafnorð, 21. dugnaður.
LÓÐRÉTT
1. grjótfylling, 3. kringum, 4. örvandi
efni, 5. bar, 7. fjarskiptatæki, 10. yfir-
breiðsla, 13. sarg, 15. feiti, 16. ái, 19.
ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sukk, 6. út, 8. mor, 9. kal,
11. fá, 12. klauf, 14. skref, 16. at, 17.
gil, 18. fön, 20. no, 21. iðni.
LÓÐRÉTT: 1. púkk, 3. um, 4. koffein,
5. krá, 7. talstöð, 10. lak, 13. urg, 15.
flot, 16. afi, 19. nn
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Komdu sæll!
Ég kem með
góðar fréttir
frá Kónga-
völlum!
Vá! FC
Flottir?
Mikið rétt! Í dag vill ég gefa
þér tækifæri á að verða
meðlimur í stuðnings-
mannafélaginu og taka þátt
í ferðalagi okkar,
frá ráðstefnu til
úrvalsdeildar!
Jáhá!
Eftir sterkan
útisigur okkar
gegn Thórsurum
er það engin
spurning lengur!
Við erum á
leiðinni upp!
Fyrirgefðu
vinur! En
ég hef
þegar séð
ljósið!
FC Flottir?! Og ég
sem hélt að mor-
mónar og sölumenn
hefðu það slæmt
þegar þeir ganga á
milli húsa!
Já... nema
þetta sem
hann er að
tala um gæti
hugsanlega
ræst!
Segðu mér eitt,
Palli. Já.
Þegar þú ert í
þann mund að
gera eitthvað
óvenjulegt...
Eins og til
dæmis að
láta Pierce
klippa hárið
á þér...
...HUGSARÐU
ÞÁ UM AFLEIÐ-
INGARNAR???
Hvað er
það?
Gætið
ykkar á
hundinum
SNATI
Ég fékk markaðs-
fyrirtæki til að
bæta ímynd mína.
Fátt er
svo með
öllu illt...
Erótíska bókabylgjan sem 50 gráir skuggar hrundu af stað er sögð munu
hafa áhrif á bókmenntir eftir og fyrir
konur næstu árin. Sölutölur eru svimandi
háar og forleggjarar jafnt sem höfundar
dansa um með dollaramerki í augum við
tilhugsunina um allt það fjármagn sem
klámsveltar konur munu færa þeim. Setja
upp kryppu ef minnst er á klám í þessu
samhengi og veifa orðinu erótík – sem
enginn skilur, rétti kvenna til að tjá sig út
frá kynferði sínu og ég veit ekki hverju og
hverju.
JAFNVEL hörðustu femínistar hafa
látið hafa sig út í það að verja þessa
þróun á þeim forsendum að konur
eigi rétt á að skrifa og lesa klám
„á sínum forsendum“. Engu virð-
ist skipta í þeirri umræðu að þær
„erótísku“ senur sem lesa má í
50 gráum skuggum eiga sér allar
beinar fyrirmyndir í klámiðnaðin-
um og sömu sögu má segja um hinar
„alíslensku“ Fantasíur sem safnað
var nafnlaust og gefnar út sem
vitnisburður um kynlegan hug-
arheim kvenna.
Á sama tíma kemur fram hver
vitnisburðurinn á fætur öðrum
um þær skaðlegu afleiðingar
sem klámneysla hefur á við-
horf og hegðun þeirra sem þess neyta.
Allar hugmyndir um kynlíf skrum-
skælast og allt niður í sex ára börn beita
hvert annað kynbundnu og kynferðis-
legu ofbeldi vegna áhorfs á klám, sam-
kvæmt nýjustu upplýsingum. Konur eru
þar eingöngu kynferðisleg viðföng eins og
speglast í þeirri áráttu að birta kynferðis-
legar myndir af bæði nafngreindum og
ónafngreindum konum í fjölmiðlum og á
vefsíðum, samanber frábæra grein Kira
Cochrane, Creepshots and revenge porn:
how paparazzi culture affects women, sem
birtist í breska blaðinu Guardian nýlega.
Sá sem heldur því fram að klámmenn-
ingin hafi ekki áhrif á líf okkar allra eftir
lestur þeirrar greinar þyrfti að fá sér ný
gleraugu.
HVERS vegna gangast konur inn á þessa
undarlegu röksemdafærslu um að klám
fyrir konur sé undir einhverjum allt
öðrum formerkjum en annað klám? Spyr
sú sem ekki veit. Aldalöng kynferðiskúgun
er ekki nógu sterk rök fyrir því að gangast
inn á kvensýn klámiðnaðarins og þykjast
vera að gera hana að sinni. Og hverjar eru
hinar sértæku forsendur kvenna þegar
kemur að klámi? Er ekki klám bara klám
og kominn tími til að hætta að fegra það
með frösum eins og „frelsi til tjáningar“,
„endurspeglun á eðli mannskepnunnar“ og
„erótík“?
Klám er klám er klám
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Tryggðu þér miða!
Miðasala í
fullum gangi!
Sýnt í Borgarleikhúsinu
í október, nóvember og desember.
Sýningar í Hofi á Akureyri í nóvember.