Fréttablaðið - 18.10.2012, Side 58

Fréttablaðið - 18.10.2012, Side 58
18. október 2012 FIMMTUDAGUR46 46tónlist TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Í SPILARANUM tonlist@frettabladid.is Þó að Iceland Airwaves-hátíðin snúist fyrst og fremst um unga og upp- rennandi tónlistarmenn þá koma alltaf einhverjir eldri listamenn líka. í fyrra kom Sinéad O‘Connor og í ár er það bandaríska hljómsveitin Swans. Swans var stofnuð í New York árið 1982 af Michael Gira sem alltaf hefur verið aðalforsprakki hennar. Hún var upphaflega hluti af No Wave-senu borgarinnar. Swans starfaði í fyrstu atrennu til ársins 1997. Mannabreytingar voru tals- verðar. Tónlistin var nokkuð fjöl- breytt, en þekktust er sveitin samt fyrir gríðarlega kraftmikla og aðgangsharða tónlist, háværa, en blæbrigðaríka. Á þessu 15 ára skeiði gaf Swans út 10 plötur. Einna hæst reis hún á plötunum Holy Money (1986) og Children of God (1987), en í nóvember ‘87 kom hún einmitt til Reykjavíkur og spilaði ásamt Syk- urmolunum og S/H Draum í MH. Þeir tónleikar þóttu magnaðir, en ég sá þá reyndar ekki. Var ekki á landinu. Fyrir tveimur árum endurreisti Gira sveitina og síðan er hún búin að senda frá sér tvær plötur. Sú nýrri kom út í vor og er tvöföld, The Seer. Hún hefur fengið mjög góða dóma, enda geysilega sterk plata sem nær hámarki í hálftíma- löngu titillaginu. Samkvæmt fínu viðtali sem Rebecca Louder tók við Gira fyrir Grapevine þá spila Swans yfirleitt í tvo tíma og taka þá svona sex lög. Gira segist gera ráð fyrir að spila þrjú lög á klukkutím- anum sem hljómsveitin fær úthlutað á Airwaves. Aðdáendur geta samt látið sig dreyma um lengri tónleika þar sem Swans eru síðastir á svið í Norðurljósasalnum í Hörpu á fimmtudagskvöldinu. Aftur Swans í Reykjavík RETRO STEFSON með Retro Stefson er plata vikunnar ★★★★ „Sjömenningarnir í Retro Stefson með flott framhald síð- ustu plötu.“ - TJ Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds- son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Skýringar: TÓNLISTINN Vikuna 27. september - 3. október 2012 LAGALISTINN Vikuna 27. september - 3. október 2012 Sæti Flytjandi Lag 1 Retro Stefson ..............................................................Glow 2 Mumford & Sons ............................................. I Will Wait 3 Valdimar ......................................................................... Sýn 4 Muse .....................................................................Madness 5 Ásgeir Trausti ................................................. Leyndarmál 6 Ragnar Bjarnason / Jón Jónsson ...................... Froðan 7 Magni ..................................................................Augnablik 8 Pink ........................................................................Blow Me 9 Ásgeir Trausti .....................................Dýrð í dauðaþögn 10 Maroon 5 ............................................... One More Night Sæti Flytjandi Plata 1 Ásgeir Trausti .....................................Dýrð í dauðaþögn 2 Retro Stefson ..............................................Retro Stefson 3 Of Monsters and Men ............My Head Is an Animal 4 Stuðmenn ......................................................... Astralterta 5 Úr kvikmynd ................................................Ávaxtakarfan 6 Mannakorn ......................................... Í blómabrekkunni 7 Muse ............................................................. The 2nd Law 8 Úr leikritum ...... Thorbj. Egner: Gömlu góðu leikritin 9 Moses Hightower ................................ Önnur Mósebók 10 Úr leikriti ............................................ Dýrin í Hálsaskógi Cody Chesnutt - Landing on a Hundred Kontinuum - Earth Blood Magic Epic Rain - Elegy Bat For Lashes hefur gefið út sína þriðju plötu, The Haunted Man. Gagnrýnend- ur eru sammála um að þar sé á ferðinni gæðagripur. Þriðja plata Bat For Lashes, The Haunted Man, er nýkomin út. Þrjú ár eru liðin síðan Two Suns leit dagsins ljós og hafa aðdáend- ur víða um heim beðið spenntir eftir næsta útspili. Hljómsveitin er hugarfóstur Natöshu Khan sem verður 33 ára í næstu viku. Faðir hennar er pak- istanskur en móðirin ensk. Fyrstu stóru tónleikar Bat For Lashes í London voru árið 2005 þegar hún hitaði upp fyrir CocoRosie á tónleikastaðnum Scala. Ári síðar steig hún á svið sem aðalnúmerið á Scala og á meðal gesta í saln- um voru Björk, Nellee Hooper og Brett Anderson úr Suede. Í hópi annarra aðdáenda hennar eru Devendra Banhart, Jarvis Coc- ker, M.I.A. og Thom Yorke. Árið 2006 kom út fyrsta plata Bat For Lashes, Fur and Gold, þar sem seiðandi og myrk popp- tónlistin hitti í mark. Gagnrýn- endur hrifust með og hlaut platan tilnefningu til hinna virtu Merc- ury-verðlauna. Bjartara var yfir næstu útgáfu, Two Suns, sem kom út þremur árum síðar og náði hún fimmta sæti á breska breiðskífu- listanum. Þar voru rafpælingarn- ar orðnar meira áberandi en áður. Sú var einnig tilnefnd til Merc- ury-verðlaunanna og greinilegt að þarna var komin tónlistarkona í fremstu röð. Eitt lag af plötunni, Daniel, tryggði Nathöshu Ivor Novello-verðlaunin í Bretlandi sem eru einnig mikils metin. Aðrar hljómsveitir og tónlistar- menn fóru að gefa Bat For Lashes gaum og Khan fór í tónleikaferð með Coldplay árið 2010. Hún samdi lag með Beck fyrir Twi- light-myndina Eclipse og söng lagið Strangelove eftir Depeche Mode í herferð á vegum tískuris- ans Gucci. The Haunted Man þykir vel heppnuð og fær Khan hrós fyrir að fylgja Two Suns vel á eftir með vandaðri plötu og sanna í leiðinni að Bat For Lashes er komin til að vera. Hún fær fjórar stjörnur í Q, Mojo og The Guardian, þrjár í The Independent og The Obser- ver í Bretlandi, 8 af 10 hjá NME og 7 af 10 hjá Uncut. freyr@frettabladid.is Berstrípuð og tilgerðarlaus KOMIN TIL AÐ VERA Bat For Lashes, hugarfóstur Natöshu Khan, hefur gefið út sína þriðju plötu. NORDICPHOTOS/GETTY ÖGRANDI OG ÓVENJULEGT PLÖTUUMSLAG Umslag nýju plötunnar er bæði ögrandi og óvenjulegt. Þar situr Khan fyrir allsnakin með nakinn karlmann vafinn utan um sig. „Mig langaði að strípa mig algjörlega niður og heiðra konur eins og Patti Smith sem eru lausar við alla tilgerð og eru heiðarlegar,“ sagði hún í viðtali við NME.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.