Fréttablaðið - 18.10.2012, Side 66
18. október 2012 FIMMTUDAGUR54
sport@frettabladid.is
KYLFINGURINN BIRGIR LEIFUR HAFÞÓRSSON er staddur í Bandaríkjunum þar sem
hann reynir að komast inn á PGA-mótaröðina. Birgir tekur þátt í úrtökumóti á fyrsta stigi en komast þarf
í gegnum þrjú slík til að komast á mótaröðina. Birgir Leifur er á parinu eftir fyrstu tvo hringina og þarf að
leika mun betur næstu daga til þess að komast áfram á næsta úrtökumóti.
N1-deild karla:
FH-HK 28-23
FH - Mörk (skot): Einar Rafn Eiðsson 7/3 (8/3),
Bjarki Jónsson 5 (7), Sigurður Ágústsson 5 (7),
Ólafur Gústafsson 5 (9), Magnús Óli Magnússon
3 (6), Andri Berg Haraldsson 2 (4), Ragnar
Jóhannsson 1 (6),
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 22/1 (45/4,
49%),
Hraðaupphlaup: 6 (Einar Rafn 2, Bjarki 2,
Sigurður, Ólafur Gúst.)
Fiskuð víti: 3 ( Sigurður 3)
Utan vallar: 10 mínútur.
HK - Mörk (skot): Atli Karl Bachmann 6 (10),
Eyþór Magnússon 5 (12), Bjarki Már Elísson 4/3
(6/4), Daníel Berg Grétarsson 3 (8), Ólafur Víðir
Ólafsson 2 (3), Garðar Svansson 2 (5), Vilhelm
Gauti Bergsveinsson 1 (3), Leó Snær Pétursson
(1), Daníel Örn Einarsson (2),
Varin skot: Arnór Freyr Stefánsson 14 (41/2, 34%),
Björn Ingi Friðþjófsson (1/1, 0%),
Hraðaupphlaup: 1 ( Daníel Berg )
Fiskuð víti: 4 (Atli, Bjarki Elís 2, Bjarki Gunnars. )
Utan vallar: 6 mínútur.
STAÐAN:
Haukar 4 3 1 0 108-92 7
Akureyri 4 3 1 0 105-90 7
HK 5 2 1 2 119-118 5
FH 5 2 1 2 125-125 5
ÍR 4 2 0 2 103-110 4
Fram 4 1 1 2 99-106 3
Valur 4 1 1 2 94-97 3
Afturelding 4 0 0 4 90-105 0
Domino‘s-deild kvenna:
Snæfell-Grindavík 86-55
Snæfell: Alda Leif Jónsdóttir 21/5 stoðsendingar,
Hildur Sigurðardóttir 18/13 fráköst/7 stoðsend-
ingar, Hildur Björg Kjartansdóttir 17/13 fráköst,
Berglind Gunnarsdóttir 14, Helga Hjördís Björg-
vinsdóttir 5/4 fráköst, Rebekka Rán Karlsdóttir 5,
Rósa Indriðadóttir 4/6 fráköst, Aníta Sæþórsdóttir
2, Silja Katrín Davíðsdóttir 0.
Grindavík: Petrúnella Skúladóttir 31/11 fráköst,
Harpa Rakel Hallgrímsdóttir 8/7 fráköst, Jeanne
Lois Figeroa Sicat 4, Berglind Anna Magnúsdóttir
4, Sandra Ýr Grétarsdóttir 3, Helga Rut Hallgríms-
dóttir 3/8 fráköst, Mary Jean Lerry F. Sicat 2, Ingi-
björg Yrsa Ellertsdóttir 0, Eyrún Ösp Ottósdóttir 0,
Jóhanna Rún Styrmisdóttir 0, Julia Lane Figueroa
Sicat 0, Alexandra Marý Hauksdóttir 0.
Njarðvík-Keflavík 53-86
Njarðvík: Lele Hardy 19/16 fráköst/8 stolnir,
Salbjörg Sævarsdóttir 10/11 fráköst, Guðlaug
Björt Júlíusdóttir 7, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir
7/5 fráköst, Emelía Ósk Grétarsdóttir 4, Eyrún Líf
Sigurðardóttir 2, Ína María Einarsdóttir 2, Aníta
Carter Kristmundsdóttir 2, Karolina Chudzik 0,
Marín Hrund Magnúsdóttir 0, Erna Hákonardóttir
0, Ásdís Vala Freysdóttir 0.
Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 21, Ingunn Embla
Kristínardóttir 15/7 fráköst, Sara Rún Hinriks-
dóttir 15/11 fráköst, Jessica Ann Jenkins 13/8
fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 12/8 fráköst,
Sandra Lind Þrastardóttir 2/6 fráköst, Telma Lind
Ásgeirsdóttir 2, Bryndís Guðmundsdóttir 2, Bríet
Sif Hinriksdóttir 2, Aníta Eva Viðarsdóttir 2, Katrín
Fríða Jóhannsdóttir 0, Soffía Rún Skúladóttir 0.
Valur-Haukar 70-68
Valur: Kristrún Sigurjónsdóttir 22/4 fráköst,
Unnur Lára Ásgeirsdóttir 15/9 fráköst, Alberta
Auguste 10/12 fráköst/7 stoðsendingar, Guðbjörg
Sverrisdóttir 8, Hallveig Jónsdóttir 8, Ragnheiður
Benónísdóttir 3, Signý Hermannsdóttir 2, Ragna
Margrét Brynjarsdóttir 2/4 fráköst, Sóllilja
Bjarnadóttir 0, María Björnsdóttir 0, Sara Diljá
Sigurðardóttir 0, Þórunn Bjarnadóttir 0/7 fráköst.
Haukar: Margrét Rósa Hálfdanardóttir 20/4
fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 14/7 fráköst/6
stoðsendingar, Dagbjört Samúelsdóttir 14/4
fráköst, Siarre Evans 12/22 fráköst, María Lind
Sigurðardóttir 6, Lovísa Björt Henningsdóttir 2/4
fráköst, Þóra Kristín Jónsdóttir 0, Sólrún Inga
Gísladóttir 0, Inga Sif Sigfúsdóttir 0, Auður Íris
Ólafsdóttir 0/4 fráköst, Sigrún Elva Reynisdóttir 0.
Fjölnir-KR 61-75
Fjölnir: Britney Jones 30, Bergdís Ragnarsdóttir
14/10 fráköst/4 varin skot, Fanney Lind Guð-
mundsdóttir 7/15 fráköst, Eva María Emilsdóttir
4, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 4/4 fráköst, Hrund
Jóhannsdóttir 2/8 fráköst, Sigrún Anna Ragnars-
dóttir 0, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 0, Erna
María Sveinsdóttir 0, Erla Sif Kristinsdóttir 0, Dag-
björt Helga Eiríksdóttir 0, Birna Eiríksdóttir 0.
KR: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 23/11 fráköst,
Patechia Hartman 20/5 stoðsendingar, Helga
Einarsdóttir 14/15 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteins-
dóttir 14/5 fráköst, Björg Guðrún Einarsdóttir
3/4 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 1, Kristbjörg
Pálsdóttir 0, Perla Jóhannsdóttir 0, Hrafnhildur Sif
Sævarsdóttir 0, Elín Þóra Helgadóttir 0.
STAÐAN:
Keflavík 4 4 0 328-216 8
Snæfell 4 4 0 297-221 8
Valur 4 3 1 264-230 6
Njarðvík 4 2 2 254-274 4
KR 4 2 2 236-258 4
Haukar 4 1 3 249-274 2
Fjölnir 4 0 4 236-304 0
Grindavík 4 0 4 218-305 0
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Heimir Guðjónsson,
þjálfari Íslandsmeistara FH,
segir að fyrirliði liðsins, Gunn-
leifur Gunnleifsson, hafi hafn-
að nýju samningstilboði frá
félaginu. Gunnleifur er á leið í
Breiðablik þar sem hann mun
skrifa undir þriggja ára samning.
„Auðvitað hefðum við viljað
hafa Gunnleif áfram. Við vorum
tilbúnir að bjóða honum góðan
eins árs samning en hann hafði
ekki áhuga á því,“ sagði Heimir
í samtali við Boltann á X-inu í
gær.
„Hefðin hjá FH hefur verið sú
að þegar leikmenn ná ákveðnum
aldri fá þeir ekki langtímasamn-
inga. Þeir fá bara eitt ár og ef
þeir standa sig fá þeir nýjan eins
árs samning.“
Heimir segir að Róbert Örn
Óskarsson fái nú tækifæri sem
aðalmarkvörður FH en að félagið
muni einnig líta í kringum sig
eftir nýjum markverði. Þegar er
byrjað að orða Ingvar Þór Kale,
markvörð Blika, við FH en hann
á ekki mikla framtíð fyrir sér hjá
Kópavogsliðinu þar sem Gunn-
leifur er á leið þangað.
Óskar Pétursson, markvörður
Grindavíkur, hefur einnig verið
orðaður við FH en hann mun lík-
lega ekki leika með Grindavík í
1. deildinni næsta sumar. Óskar
hefur reyndar einnig verið orð-
aður við ÍBV.
Ekki náðist í Gunnleif í gær
en væntanleg vistaskipti hans
í Breiðablik vekja óneitanlega
athygli enda er Gunnleifur alinn
upp hjá HK og er þekktur sem
einn af harðari HK-ingum lands-
ins. - esá
Heimir um Gunnleifsmálið:
FH bauð eins
árs samning
GUNNLEIFUR Fyrirliði FH er að fara í
Breiðablik. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI FH skellti HK 28-23 í
fimmtu umferð N1 deildar karla
í gær. HK var tveimur mörkum
yfir í hálfleik, 14-12, en FH sýndi
sparihliðarnar í seinni hálfleik og
vann sannfærandi sigur.
„Við erum algjörlega með stjórn
á þessum leik í fyrri hálfleik og
gerum það sem okkur langar til.
Sóknarlega erum við að opna þá
og fá mikið af færum og gera fullt
af góðum hlutum. Samt sem áður
erum við að gera hluti sem við
erum ekki vanir að gera og töpum
boltanum í staðinn fyrir að koma
okkur í þægilega stöðu fyrir hálf-
leik,“ sagði Kristinn Guðmunds-
son, þjálfari HK, í leikslok.
Frábær markvarsla Daníels
Freys Andréssonar í marki FH
kom í veg fyrir að HK væri með
þægilega forystu í hálfleik en
hann hélt í raun FH inni í leiknum.
„Við vorum á hælunum í fyrri
hálfleik og vorum andlausir þó
það sé góð stemning í liðinu. Þessir
tveir tapleikir þar sem við töpum á
síðustu tíu mínútunum hafa greini-
lega legið djúpt á mönnum. Menn
svöruðu heldur betur í seinni hálf-
leik og sýndu frábæran karakter.
Þeir sýndu það sem ég býst við af
þessu liði í hverjum leik,“ sagði
Einar Andri Einarsson, þjálfari
FH.
Allt annað var að sjá til FH í
seinni hálfleik. Vörnin sem var
eins og gatasigti í fyrri hálfleik
var sem múr og HK fékk varla
opið færi. Á sama tíma náði FH
mörgum góðum sóknum og hröð-
um upphlaupum og lagði það
grunninn að þessum örugga sigri.
„Við fórum að spila vörn í seinni
hálfleik. Þeir réðust utanvert á 6-0
vörnina og komust þar í gegn hvað
eftir annað. Sóknarlega vorum við
hræddir og menn að passa sig að
gera ekki mistök sem boðar ekki
gott. Svo mættu menn til leiks í
seinni hálfleik,“ sagði Einar Andri
sem lét þá staðreynd að FH hafði
sogast niður í botnbaráttu með
tveimur töpum í röð ekkert trufla
sig.
„Við horfum ekkert á töfluna,
þetta snýst um spilamennsku og
þegar FH spilar á getu þá eigum
við að taka töluvert af stigum. Það
þýðir ekkert að horfa bara á töfl-
una og spá ekkert í hvernig liðið
er að spila, þetta snýst um hvað
við gerum á vellinum,“ sagði Einar
Andri.
FH er þar með komið með fimm
stig, líkt og HK sem hefur aðeins
fengið eitt stig úr þremur síð-
ustu leikjum sínum en liðið lék án
Tandra Konráðssonar og Vladimir
Djuric auk þess sem Ólafur Víðir
Ólafsson gat aðeins leikið fyrstu
mínútur leiksins.
„Það hefur ekki verið of mikið
að vera án þessara leikmanna. Við
getum ekkert beðið eftir að þeir
komi og reddi málum, lið byggjast
ekki upp á einstaklingum þó það sé
gott fyrir breidd. Við höfum hald-
ið út án þessara leikmanna en það
klikkar í dag,“ sagði Kristinn.
Breiddin var góð hjá FH, marka-
skor dreifðist vel á leikmenn liðs-
ins auk þess sem Daníel varði vel.
Hjá HK lék Atli Karl Bachmann
vel en miklu munaði um að HK
náði aldrei að koma Bjarka Má
Elíssyni inn í leikinn. - gmi
FH að vakna til lífsins
Vörn FH skellti í lás í seinni hálfleik eftir dapran fyrri hálfleik og FH-ingar tóku
öll stigin gegn meisturum HK. Hálfleikirnir hjá FH voru eins og svart og hvítt.
Í HELJARGREIPUM FH-ingurinn Einar Rafn Eiðsson hélt hinum öfluga leikmanni HK, Bjarka Má Elíssyni, vel niðri í leiknum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI Snæfells- og Kefla-
víkurkonur sitja áfram ósigraðar
á toppi Domino‘s-deildar kvenna
eftir leiki fjórðu umferðarinnar í
gær og Valskonur unnu sinn þriðja
leik í röð eftir mikla dramatík í
Vodfonehöllinni. KR náði einnig
að enda taphrinu sína með sigri í
Grafarvogi.
Valskonur unnu tveggja stiga
sigur á Haukum, 70-68, í sveiflu-
kenndum leik í Vodafonehöllinni
þar sem bæði lið náðu tíu stiga
forskoti í fyrri hálfleiknum. Unnur
Lára Ásgeirsdóttir skoraði sigur-
körfuna 5,7 sekúndum fyrir leiks-
lok og Valsliðið náði að stoppa
Haukana í lokin. „Það var mjög
góð tilfinning að skora sigurkörf-
una. Það er alltaf gott að vinna
leikina og það er sérstaklega sætt
þegar þetta er svona tæpt,“ sagði
Unnur Lára.
„Það vantaði bara herslumuninn.
Ég get samt ekkert sett út á okkar
leik því við vorum bara óheppnar
að klára þetta ekki. Við spiluðum
ótrúlega vel og sýndum það að við
getum gert ýmislegt. Við ætlum
að vera inn í þessari deild í vetur.
Við ætlum ekkert að vera neitt
aukalið,“ sagði Gunnhildur Gunn-
arsdóttir sem var besti leikmaður
Hauka ásamt Margréti Rósu Hálf-
danardóttur.
Þetta var ekki leikur bandarísku
stelpnanna í liðunum sem hittu illa
og það voru því íslensku stelpurn-
ar sem voru í aðalhlutverki í sókn-
arleiknum. Kristrún Sigurjóns-
dóttir lék vel fyrir Valsliðið. „Þetta
var mjög skrítinn leikur og við
vorum bara kannski heppnar að
vinna. Við fengum tækifæri til að
auka muninn og við vorum klaufar
að missa þetta niður í spennuleik.
Við erum ánægðar með að við
erum að vinna leikina, þetta er
allavega betri byrjun en í fyrra og
það er plús,“ sagði Kristrún.
Snæfellskonur unnu sinn annan
leik í röð án hinnar bandarísku
Kieraah Marlow en eru áfram
ósigraðar á toppnum eftir 31 stigs
sigur á Grindavík, 86-55, í Kana-
lausum leik í Hólminum. Reynslu-
boltarnir Hildur Sigurðardóttir
og Alda Leif Jónsdóttir fóru fyrir
Snæfellsliðinu.
Keflavík hélt sigurgöngu sinni
áfram með 33 stiga sigri á Íslands-
meisturum Njarðvíkur í Ljóna-
gryfjunni, 86-53. Fimm leikmenn
liðsins skoruðu á bilinu 12 til 21
stig og breiddin í liðinu er mikil.
Fjölnir er enn án sigurs eins og
Grindavík eftir að KR-konur sóttu
tvö stig í Grafarvoginn en KR var
búið að tapa stórt í tveimur leikj-
um í röð. - óój
Snæfell og Keflavík enn ósigruð og Valskonur komust á sigurbraut í Domino‘s-deild kvenna:
Mjög góð tilfinning að skora sigurkörfuna
GRIMMAR Bleikar Valsstelpur gáfu Haukunum ekkert eftir og börðumst um hvern
einasta bolta í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM