Fréttablaðið - 18.10.2012, Side 70

Fréttablaðið - 18.10.2012, Side 70
18. október 2012 FIMMTUDAGUR58 „Þetta er liður í vetrarherferð Inspired by Iceland, Ísland allt árið. Þar vinnum við með ákveðin þemu og tónlist er eitt þeirra. Við viljum ýta undir vitneskju fólks á íslenskri tónlist og teljum þetta góða leið til þess,“ segir Guðrún Birna Jörgensen, verkefnastjóri Inspired by Iceland hjá Íslands- stofu, um viðburðinn The smallest Iceland Airwaves off-venue. Það sem áður var The Little House of Food verður nú minnsti utan- dagskrártónleikastaður Iceland Airwaves. Húsið verður staðsett á Ingólfs- torgi á meðan á hátíðinni stendur og rúmar um tvo tónleikagesti í senn. Á meðal þeirra hljómsveita sem troða upp í húsinu eru Til- bury, Hjálmar, Retro Stefson, Valdimar og Ásgeir Trausti. Að sögn Guðrúnar Birnu hafa tón- listarmennirnir þegar skoðað aðstæður og munu stilla sér upp í samræmi við pláss. „Ég efa að allir meðlimir Retro Stefson kom- ist fyrir inni í húsinu, en tónlist- arfólkið mun stilla sér upp miðað við plássið og svo taka nokkur lög. Flestir tóku mjög vel í þetta og fleiri vildu vera með en kom- ust að. Það er frábært að sjá hvað íslenskir tónlistarmenn eru viljugir að taka þátt í að kynna íslenska tónlist með okkur.“ Þátttaka tónleikagesta er á tvo vegu segir Guðrún Birna; annars vegar er erlendum blaðamönn- um boðið á einkatónleika og hins vegar geta erlendir ferðamenn tekið þátt í leik á samfélagsmiðl- inum Facebook og unnið pláss á tónleikum. - sm BESTI BITINN Í BÆNUM Ég efa að allir með- limir Retro Stefson komist fyrir inni í húsinu. GUÐRÚN BIRNA JÖRGENSEN VERKEFNASTJÓRI INSPIRED BY ICELAND HJÁ ÍSLANDSSTOFU „Grillmarkaðurinn er einn sá besti sem ég hef farið á núna nýlega. Höfnin er líka góður staður og ekki of dýr.“ David Robertson, annar eigandi Kría Cycles. -10.000 -55.000-15.000 Suðurlandsbraut 48 • 108 Reykjavík • Sími: 585 0100 • Fax: 585 0109 huseign@huseign.is • www.huseign.is • Opið mán.-fim. 10-18 • fös. 10-17 Baldvin Ómar Magnússon - Löggiltur fasteignasali OPIÐ HÚS – Súluhólar 2 HÚSEIGN KYNNIR, Opið hús fimmtudag 18. okt 2012 kl. 17.30-18.00 að Súluhólum 2, Reykjavík. 4RA HERBERGJA 89,4 FERMETRA ÍBÚÐ AUK 21,9 FM BÍLSKÚRS, Lýsing: 3 góð svefnherbergi, rúmgóð stofa og borðstofa. Allar nánari upplýsingar veitir Baldvin Ómar í síma 898-1177 eða á skrifstofu Húseignar í síma 585-0100. OPIÐ HÚS Bandaríski leikarinn og söngvar- inn David Hasselhoff heldur tón- leika á Íslandi þann 24. febrúar næstkomandi. „Ég hef fengið þær upplýs- ingar að hann sé mjög spenntur fyrir því að koma hingað og ætli að taka sér nokkra daga í kring- um tónleikana til að kynna sér land og þjóð,“ segir Unnar Helgi Daníelsson Beck hjá fyrirtækinu Reykjavík Rocks sem stendur að komu Hasselhoff til landsins. Unnar Helgi segir það ekki hafa verið erfitt að sannfæra Hasselhoff um að spila fyrir land- ann. „Hann lofar skemmtilegum tónleikum og ég er alveg viss um að þetta verður ógleymanlegt fyrir tónleikagesti. Undanfarið hef ég verið að fletta honum upp á Youtube og það er ekkert annað en snilld.“ Ekki hefur verið gengið endan- lega frá tónleikastað fyrir Has- selhoff en Vodafone-höllin og Höllin koma helst til greina. David Hasselhoff fagnaði sex- tugsafmælinu sínu í sumar en hann er hvað frægastur fyrir hlutverk sitt sem Mitch Buc- hannon í sjónvarpsþáttunum Baywatch. Þættirnir um strand- verðina í Los Angeles ættu að vera Íslendingum vel kunnir, en þeir nutu sérstaklega mikilla vin- sælda á tíunda áratugnum. Undanfarin ár hefur Hassel- hoff vakið athygli sem dómari í raunveruleikaþættinum Amer- ica‘s Got Talent og Britain‘s Got Talent. Á tónleikum syngur Hasselhoff eigið efni í bland við lög annarra. Hann kemur fram ásamt hópi dansara, en Unnar Helgi segir söngvarann opinn fyrir að skoða hvort hann geti fengið íslenska dansara til liðs við sig. „Umboðs- maðurinn segir að Hasselhoff vilji skoða hvort það komi til greina að nota dansara héðan, en það mál er í skoðun,“ segir Unnar Helgi, sem nú þegar er byrjaður að líta í kringum sig eftir tónlist- armanni til að hita upp fyrir Has- selhoff. alfrun@frettabladid.is UNNAR HELGI DANÍELSSON BECK: HANN LOFAR MIKLU STUÐI HASSELHOFF TIL LANDSINS Rúmar tvo tónleikagesti í senn „Ég hef æft japanskar skylmingar í átján ár og keppti meðal annars í greininni á heimsmeistaramóti í Japan árið 1996,“ segir fjölmiðla- maðurinn Sölvi Tryggvason, sem er að fara af stað með námskeið í kendó, japönskum skylmingum. Sölvi kynntist japanskri bar- dagalist í gegnum föður sinn, Tryggva Sigurðsson, þegar hann var lítill strákur. Sölvi segir jap- anskar skylmingar sérstaka grein sem byggi á ríkri hefð í Japan. „Þetta er bardagalist sem gerir meira út á snerpu og þolinmæði en líkamlegan styrk. Í Japan er þetta ákveðinn lífsstíll sem menn aðhyllast og snýst um mikinn aga og einbeitni,“ segir Sölvi, en bar- ist er með trésverðum og bamb- usspjótum. „Það er mesta furða hversu lítið er um meiðsl í þessu sporti. Maður fær í mesta lagi nokkra góða marbletti sem herða mann bara.“ Sölvi hefur ekki stundað íþrótt- ina í fjögur ár og hlakkar því mikið til að klæðast búningnum á nýjan leik. Búningurinn sam- anstendur af eins konar brynju, buxnapilsi og hjálmi. Sölvi hefur áður haldið nám- skeið í kendó og hvetur konur jafnt sem karla til að skrá sig. Takmark- að pláss er í boði á námskeiðinu, sem haldið verður í Combat Gym. „Það eru allir velkomnir, en þeir sem eru að leita að slagsmálum munu sennilega ekki finna það sem þeir eru að leita að.“ Hægt er að skrá sig á solvi@skjarinn.is eða combat@combat.is. - áp Snýst um snerpu og þolinmæði Í FULLUM SKRÚÐA Sölvi Tryggvason er að fara af stað með námskeið í kendó, japönskum skylmingum, á næstu dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LOFAR GÓÐU STUÐI Þýskættaði leikarinn og söngvarinn David Hasselhoff ætlar að skemmta landanum í febrúar. Hann lofar miklu stuði og er opinn fyrir að skoða hvort hann geti fengið íslenska dansara til að kom fram með sér á tónleikunum. NORDICPHOTOS/GETTY „Upphaflega hugmyndin var að fá David Hasselhoff til að spila í afmælinu mínu í janúar,“ segir Unnar Helgi Daníelsson Beck, eigandi fyrirtækisins Reykjavík Rocks. Hann útskýrir að hann hafi fundið fyrir áhuga fyrir komu kappans og ákvað því að skipta yfir í stóra tónleika. „Hann trekkir að breiðan aldurshóp tónleikagesta og ég held að enginn verði svikinn af að sjá Hasselhoff á sviði.“ Reykjavík Rocks sérhæfir sig í að lóðsa útlendinga um skemmtanalíf landsins. Mikið hefur verið að gera hjá Unnari Helga undanfarið, þar sem hann hefur til dæmis verið að sjá um viðskiptavini CCP. „Ég stofnaði fyrirtækið fyrir fimmtán mánuðum síðan og það hefur gengið mjög vel. Þetta snýst um persónulega þjónustu við útlendinga sem vilja skemmta sér á besta mögulega máta hér í Reykjavík,“ segir Unnar Helgi sem ætlar sér stóra hluti í framtíðinni. „Við stefnum á að opna útibú í London og New York á næstunni. Ég ætla mér að búa til þekkt vörumerki úr fyrirtækinu.“ Hægt er að lesa meira um þjónustu Reykjavík Rocks og lesa umsagnir viðskiptavina á Facebook-síðu fyrirtækisins. LANGAÐI AÐ FÁ HASSELHOFF Í AFMÆLIÐ MINNSTI TÓNLEIKASTAÐURINN Íslandsstofa og Inspired by Iceland bjóða upp á minnsta utandagskrár- tónleikastað Iceland Airwaves. Guðrún Birna Jörgensen sér um framkvæmd verkefnisins.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.