Fréttablaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 4
3. nóvember 2012 LAUGARDAGUR4
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
21°
12°
9°
8°
12°
15°
8°
8°
28°
9°
22°
10°
27°
4°
8°
20°
7°
Á MORGUN
5-13 m/s, hvassast A-til.
MÁNUDAGUR
Fremur stíf SV-átt,
hlýnandi.
0
0
0
2
1
4
3
4
1
1
-5
18
16
16
16
16
13
18
12
20
15
18
-4
-3
-1
0
0
2
6
6
8
5
VONT Í VEÐRI
FRAMAN AF DEGI
Veður gengur niður
smám saman eftir
hádegi, fyrst norð-
vestan til. Það má
þó gera ráð fyrir
slæmri færð og
hvassviðri fram á
kvöld. Á morgun
verður fremur hæg
vestanátt og léttir
víðast til.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
VEÐUR Varað var við byggingu
háhýsa við Höfðatorg á þeim tíma
sem skipulagstillögur svæðisins
lágu fyrir árið 2007. Ástæðan var
hætta á sterkum vindhviðum sem
gætu myndast við vissar veðurað-
stæður. Hrakspárnar gengu eftir
þegar gríðarlegir vindstrengir
mynduðust við Höfðatorg í ill-
viðrinu í gær. Fólk fauk í orðsins
fyllstu merkingu þegar það gekk
inn í vindstrengina við turninn.
Tveir voru fluttir á
slysadeild.
Magnús Jónsson, veð-
urfræðingur og fyrr-
verandi veðurstofu-
stjóri, var einn þeirra
sem gagnrýndu bygg-
ingu háhýsa við Höfða-
torg á sínum tíma. „Það
lá alltaf fyrir að þetta
væri algjört glapræði.
Þetta er gott dæmi um
hvernig á ekki að standa
að verki í tilliti til bygg-
ingar háhýsa og veðurs
á Íslandi,“ segir Magn-
ús.
Magnús segir að
þrátt fyrir háværa
gagnrýni úr ýmsum
áttum virðist ekkert
hafa verið á það hlustað þegar
ákveðið var að byggja við Höfða-
torg. „Háhýsi á þessum stað, svo
stutt frá sjó, er veðurfræðilegt
skaðræði. Það er eins og menn
hafi ekkert hugsað um veður
þegar ákveðið var að byggja
þetta hús.“
Magnús útskýrir að svo hátt
hús sem turninn við Höfðatorg
er taki á sig mun sterkari vind en
er við jörð og beini honum niður
á við. „Þessum vindi slær niður í
alls konar sveipum og sviptivind-
um. Þetta er dæmi um það allra
versta sem maður hefur séð í til-
liti til hönnunar og tillitsleysis til
veðurs.“
Fram kom í fjölmiðlum þegar
skipulag Höfðatorgs lá fyrir að
sérstaklega hefði verið haft í
huga hvaða áhrif byggingarnar
hefðu á veðurlag á svæðinu. Í því
augnamiði var líkan af hverfinu
sent til sérfræðistofnunar í Bret-
landi. Þar var líkanið sett í vind-
göng til að meta samhengi bygg-
inganna og veðurs.
Pálmar Kristmunds-
son hjá PK Arkitekt-
um, aða lhönnuður
Höfðatorgs, segir að
umrædd stofnun ann-
ist rannsóknir af þessu
tagi vegna bygginga
um allan heim. Þeirra
niðurstaða hafi verið
að byggingarnar við
Höfðatún væru innan
allra marka sem miðað
væri við fyrir fram-
kvæmdir við byggða-
kjarna eins og við
Höfðatorg.
„En ég veit ekki
hverjar aðstæðurnar
eru þarna núna [í gær]
og hvort veðurhæðin er
meiri en prófað var í lík-
aninu á sínum tíma,“ segir Pálm-
ar, sem þekkir umræðuna um
hættu á vindhviðum við Höfða-
torg vel og segir hana hafa verið
ástæðuna fyrir því að þetta var
kannað sérstaklega.
Ástandinu sem skapaðist við
Höfðatorgið í gær var lýst sem
skelfilegu.
„Þarna er fólk að slasa sig og
ástandið er bara alveg galið í
kringum þetta hús,“ sagði Pjetur
Sigurðsson ljósmyndari um
ástandið í viðtali við fréttavef
Vísis í gær. svavar@frettabladid.is
GENGIÐ 02.11.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
225,2689
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,24 126,84
203,27 204,25
162,54 163,44
21,785 21,913
22,126 22,256
18,886 18,996
1,5712 1,5804
193,56 194,72
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Misritað var nafn Birgittu Óskar
Pétursdóttur í Lífinu, fylgiblaði
Fréttablaðsins, í gær.
LEIÐRÉTT
NÝ
KILJA
Háhýsið var sagt glapræði
Svo sterkir vindstrengir mynduðust við Höfðatorgsturninn í illviðrinu í gær að fólk tókst á loft og slasaðist.
Varað var við hættunni áður en framkvæmdir hófust. Ekkert hlustað á varnaðarorð, segir veðurfræðingur.
Í forsíðufrétt á fimmtudag var greint
frá því að ættleiðingar einhleypra
hefðu hafist á nýjan leik eftir hlé frá
árinu 2007. Þrátt fyrir að ekki hafi
verið tekið við umsóknum frá ein-
hleypum frá árinu 2007 voru nokkur
börn ættleidd eftir þann tíma þar
sem umsóknirnar höfðu borist áður
en lokað var fyrir þær.
ÁRÉTTING
Vindhraði getur margfaldast við háhýsi
Við Höfðatún í Reykjavík um hádegi í gær
„Byggingar sem eru hærri en nærliggjandi byggingar beina vindi í átt að
jörðinni og styrkja þannig vindstrauminn sem er nær yfirborði jarðar. Því
stærri sem byggingin er því meiri verður þrýstingsmunurinn á milli þeirra
hliða byggingarinnar sem eru í skjóli og þeirrar hliðar sem vísar í átt að
vindinum. Þessar aðstæður geta líka skapað mismunandi vindhraða við
bygginguna, jafnvel tvöfaldað hann.“
Heimild: Hrafnhildur A. Jónsdóttir – Land hinna löngu skugga.
BYGGÐAMÁL Efnt hefur verið til
átaks til að treysta byggð með
atvinnuuppbyggingu á Raufar-
höfn. Í því taka þátt íbúarnir,
sveitarfélagið Norðurþing,
Byggðastofnun, Háskólinn á Akur-
eyri og Atvinnuþróunarfélag
Þingeyinga.
„Með samstilltu átaki ríkis,
sveitarfélagsins, íbúanna sjálfra
og þeirra sem að málinu koma
mun það markmið nást. Á síldar-
árunum urðu til gríðarlega miklar
tekjur á Raufarhöfn sem runnu
í sameiginlega sjóði Íslendinga.
Sýnum Raufarhöfn þann sóma að
efla atvinnu og treysta byggð,“
segir í bókun bæjarstjórnar Norð-
urþings. - gar
Snúist til varnar í Þistilfirði:
Raufarhöfn sé
sýndur sómi
RAUFARHÖFN Íbúunum hefur fækkað
ört.
PRÓFKJÖR Björn Valur Gíslason, þing-
flokksformaður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, ætlar að bjóða sig fram
í fyrsta til annað sæti á lista flokksins í
Reykjavík. Hann vill því leiða lista í öðru
hvoru kjördæminu.
Björn Valur hefur verið þingmaður
Norðausturkjördæmis síðan árið 2009, en
hann skipaði þriðja sæti lista flokksins við
síðustu kosningar. Steingrímur J. Sigfús-
son, atvinnuvegaráðherra og formaður
VG, mun bjóða sig þar fram í fyrsta sætið
í komandi þingkosningum, líkt og áður,
en Þuríður Backman, sem skipaði annað
sætið, mun draga sig í hlé.
Framboðsfrestur í Reykjavík rennur
út á hádegi í dag en forvalið, sem er sam-
eiginlegt fyrir Norður- og Suðurkjördæmi,
fer fram 24. nóvember. Þar er valið í þrjú
efstu sæti á hvorum lista fyrir sig.
Katrín Jakobsdóttir, varaformaður VG
og mennta- og menningarmálaráðherra,
og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráð-
herra skipuðu fyrstu sætin hvor í sínu
Reykjavíkurkjördæminu við síðustu kosn-
ingar og hafa báðar gefið kost á sér í þau
sæti á ný.
Þá gefa þingmennirnir Árni Þór Sig-
urðsson og Álfheiður Ingadóttir kost á sér
í sömu sæti og síðast, en þau sátu í öðrum
sætum listanna. Flokkurinn á tvo þing-
menn í hvoru kjördæmi. - kóp / sv
Þetta er gott
dæmi um
hvernig á ekki
að standa að
verki í tilliti
til byggingar
háhýsa og
veðurs á Ís-
landi.
MAGNÚS JÓNSSON
VEÐURFRÆÐINGUR
Þingflokksformaður VG yfirgefur Norðausturkjördæmi og færir sig suður:
Björn fer fram gegn tveimur ráðherrum
BJÖRN VALUR
GÍSLASON
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR