Fréttablaðið - 03.11.2012, Blaðsíða 96
3. nóvember 2012 LAUGARDAGUR72
sport@frettabladid.is
Titilbaráttan í Formúlu 1
LDB MALMÖ getur í dag orðið sænskur meistari í knattspyrnu en þá fer fram lokaumferðin í úrvalsdeild
kvenna. Þóra Björg Helgadóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir leika með Malmö sem getur í dag unnið meistaratitilinn
þriðja árið í röð. Liðið mætir Tyresö, sem er þremur stigum á eftir í öðru sæti, og dugir jafntefli til að tryggja titilinn.
HANDBOLTI Aron Pálmarsson fór á
kostum í sigrinum á Hvít-Rússum
á miðvikudagskvöldið og þessi 22
ára strákur er fyrir löngu búinn að
tryggja sér sæti meðal lykilmanna
íslenska handboltalandsliðsins. Það
er því athyglisvert að skoða hvað
þrír markahæstu leikmenn hand-
boltalandsliðsins frá upphafi og
þjálfari hans hjá Kiel, Alfreð Gísla-
son, voru búnir að afreka á sama
aldri.
Á fjórða ári í atvinnumennsku
Aron er nýbyrjaður á sínu fjórða
tímabili í atvinnumennsku með
einu allra besta liði í heimi, Kiel
frá Þýskalandi. Ólafur Stefánsson,
Kristján Arason, Alfreð Gíslason
og Guðjón Valur Sigurðsson fóru
allir mun seinna í atvinnumennsku
en það verður þó að taka inn í að
aðstæður í dag eru allt aðrar en þær
voru á þeim tíma.
Aron er þegar búinn að skora 101
mark á þessu ári, mun meira en
hinir gerðu á sama aldri, og þá er
hann einnig búinn að slá þeim við
með því að vinna sjö stóra titla með
Kiel, taka þátt í fjórum stórmótum
og vera valinn í úrvalslið á stórmóti.
Það tók hina mörg ár í viðbót að fá
slíkt á afrekaskrána hjá sér.
Hvað gerðu hinir fjórir?
Kristján Arason varð 22 ára í júlí
1983 en vorið eftir vann hann sinn
fyrsta stóra titil þegar FH-ingar
urðu Íslandsmeistarar. Kristján fór
út í atvinnumennsku tveimur árum
síðar þegar hann samdi við þýska
liðið Hameln.
Kristján var á þessum tíma orð-
inn algjör lykilmaður í íslenska
landsliðinu, en eftir 22. aldurs árið
var hann kominn með 225 mörk í 49
landsleikjum, eða 4,6 mörk í leik.
Kristján fór hins vegar ekki á sitt
fyrsta stórmót fyrr en ári síðar,
þegar íslenska landsliðið náði sjötta
sæti á Ólympíuleikunum í Los Ange-
les. Íslenska landsliðið spilaði ekki á
stórmóti fyrstu fjögur ár Kristjáns
í landsliðinu.
Alfreð Gíslason varð 22 ára í
september 1981, en þá var hann að
spila með KR í íslensku deildinni.
Alfreð gerðist fyrst atvinnumaður
tveimur árum síðar, þegar hann
samdi við þýska liðið Tusem Essen,
og ári síðan tók hann þátt í fyrsta
stórmótinu með íslenska landsliðinu
þegar það fór á Ólympíuleikana í
Los Angeles.
Ólafur Stefánsson varð 22 ára
í júlí 1995, þá sem leikmaður
Vals. Hann átti eftir að spila eitt
tímabil í viðbót með Val áður en
hann varð atvinnumaður hjá þýska
b-deildarfélaginu Wuppertal.
Ólafur var þarna búinn að vinna
5 af 6 stórum titlum sínum með Val.
Ólafur tók einnig þátt í sínu fyrsta
stórmóti 22 ára gamall þegar hann
var með á HM á Íslandi.
Guðjón Valur Sigurðsson varð 22
ára í ágúst 2001 þegar hann var að
hefja atvinnumannaferil sinn hjá
TUSEM Essen. Hann var þarna
búinn að spila á tveimur stórmótum
með íslenska landsliðinu og var
búinn að vinna sér fast sæti í stöðu
vinstri hornamanns.
Hér fyrir ofan má sjá samanburð
á afrekum Arons og fyrrnefndra
goðsagna þegar þeir voru allir 22
ára gamlir. ooj@frettabladid.is
Skrefi á undan þeim bestu
Hvað voru Ólafur Stefánsson, Kristján Arason, Alfreð Gíslason og Guðjón Valur
Sigurðsson búnir að gera á sama aldri og Aron Pálmarsson? Fréttablaðið ber
Aron saman við fjórar af fræknustu hetjum handboltalandsliðsins frá upphafi.
Alfreð Gíslason
KR 1981
FÆDDUR 7. SEPTEMBER
1959
17 MÖRK 22. ALDURSÁRIÐ Í
LANDSLIÐINU
ENGINN STÓR TITILL
EKKERT STÓRMÓT
EKKI FARINN Í
ATVINNUM FÓR 1983
Kristján Arason
FH 1983
FÆDDUR 23. JÚLÍ 1961
75 MÖRK 22. ALDURSÁRIÐ Í
LANDSLIÐINU
ENGINN STÓR TITILL
EKKERT STÓRMÓT
EKKI FARINN Í ATVINNU-
MENNSKU FÓR 1985
Ólafur Stefánsson
Valur 1995
FÆDDUR 3. JÚLÍ 1973
73 MÖRK 22. ALDURSÁRIÐ Í
LANDSLIÐINU
FIMM STÓRIR TITLAR ALLIR
MEÐ VAL
EITT STÓRMÓT HM 1995
EKKI FARINN Í ATVINNU-
MENNSKU FÓR 1996
Guðjón Valur Sig-
urðsson Essen 2001
FÆDDUR 8. ÁGÚST 1979
73 MÖRK 22. ALDURSÁRIÐ Í
LANDSLIÐINU
ENGINN STÓR TITILL
TVÖ STÓRMÓT EM 2000 OG
HM 2001
FYRSTA ÁR Í ATVINNU-
MENNSKU FÓR 2001
Aron Pálmarsson Kiel 2012
Hvað voru þeir að gera þegar þeir voru 22 ára gamlir?
FÆDDUR 19. JÚLÍ 1990
101 MARK 22. ALDURSÁRIÐ Í LANDSLIÐINU
SJÖ STÓRIR TITLAR ALLIR MEÐ KIEL
FJÖGUR STÓRMÓT EM 2010, HM 2011, EM 2012 OG ÓL 2012
ÞRJÚ ÁR Í ATVINNUMENNSKU FÓR 2009
FORMÚLA 1 Kappaksturinn í Abu
Dhabi um helgina er mjög mikil-
vægur fyrir framvindu heimsmeist-
aratitilbaráttunnar í ár. Sebastian
Vettel, ökuþór Red Bull-liðsins,
hefur þrettán stiga forskot á Fern-
ando Alonso, ökuþór Ferrari-liðsins,
þegar þrjú mót eru eftir af tíma-
bilinu.
Alonso hefur ekki tekist að
skáka Vettel í brautinni í síðustu
mótum. Vilji Alonso eiga mögu-
leika á heimsmeistaratitlinum er
það honum nauðsynlegt að hámarka
árangur sinn gagnvart Vettel um
helgina. Takist Vettel að vinna
kappaksturinn eykur hann forystu
sína í 20 stig sem gerir honum síð-
ustu mótin mun auðveldari. Eftir
mótið í Abu Dhabi verður keppt í
Bandaríkjunum og svo í Brasilíu.
Það eru að hámarki 75 stig eftir í
boði fyrir sigur í öllum þremur mót-
unum. Átján stig fást fyrir annað
sæti og 15 stig fyrir þriðja sæti.
Vettel er hins vegar ekki í rónni
og segist enn vera berskjaldaður
í titilbaráttunni. „Það þarf ekki
mikið að fara úrskeiðis til þess að
missa af stigunum sem maður er að
vonast eftir,“ sagði Vettel.
- bþh
Alonso þarf að vinna Vettel í Abu Dhabi:
Mótið í Abu Dhabi
lykillinn að titlinum
Alonso Vettel
227 Stig 240
3 Sigrar 5
10 Verðlaunasæti 8
2 Ráspólar 5
0 Hröðustu hringir 4
2 Meistaratitlar 2
13
Stigastaðan í meistaramótinu þegar þrjú mót eru eftir
Heimsmeistarakeppni ökumanna
1. Sebastian Vettel 240
2. Fernando Alonso 227
3. Kimi Räikkönen 173
4. Mark Webber 167
5. Lewis Hamilton 165
Heimsmeistarakeppni bílasmiða
1. Red Bull 407
2. Ferrari 316
3. McLaren 306
Búnir að stinga af
Þeir Sebastian
Vettel og Fernando
Alonso hafa stungið
keppinauta sína af í
heimsmeistarabar-
áttunni. Red Bull
er sömuleiðis langt
á undan Ferrari í
titilslag bílasmiða.
STIG SKILJA ÞÁ AÐ