Fréttablaðið - 03.11.2012, Síða 102

Fréttablaðið - 03.11.2012, Síða 102
3. nóvember 2012 LAUGARDAGUR78 PERSÓNAN Trommuleikarinn Orri Páll Dýrason og eiginkona hans Lukka Sigurðardóttir voru við það að eignast sitt annað barn saman þegar Fréttablaðið fór í prentun í gær. Lukka var sett á síðasta mánudag en seinnipartinn í gær var barnið ekki enn komið í heiminn. Þrátt fyrir þessa óvissu ætlar Orri Páll að spila á tónleik- unum annað kvöld. Eina spurningin er hvort hann verður orðinn nýbak- aður faðir eða ekki. SIGUR RÓSAR-BARN AÐ KOMA Í HEIMINN Sigur Rós spilar á sínum fyrstu tón- leikum á Íslandi í fjögur ár annað kvöld. Þeir verða haldnir í Nýju Laugardalshöllinni fyrir framan um sjö þúsund manns og eru hluti af Iceland Airwaves-hátíðinni. Þetta verða jafnframt fyrstu tón- leikar Sigur Rósar á hátíðinni í ellefu ár, eða síðan þeir spiluðu í Listasafni Reykjavíkur 2001. Tónleikarnir leggjast að vonum vel í bassaleikarann Georg Hólm en hljómsveitin leggur mikið upp úr því að öll umgjörð og annað slíkt verði hundrað prósent í Höllinni. „Við erum orðnir mjög stressaðir. Það er alltaf öðruvísi að spila hér heima fyrir framan fólk sem við þekkjum. Við viljum að allt gangi upp,“ segir Georg. Skrítið án Kjartans Sigur Rós hefur verið á tónleika- ferðalagi vítt og breitt um heim- inn til að kynna sína nýjustu plötu, Valtara. Aðspurður hvaða staður hafi verið eftirminnileg- astur á bassaleikarinn erfitt með að nefna einhvern einn, enda lík- ast til heimsótt þá alla mörgum sinnum áður, en nefnir þó San Francisco. Hann segir að erlend- ir tónleikagestir hafi tekið vel í nýju lögin. „Tónleikaferðin hefur gengið mjög vel. Við höfum ekk- ert endilega verið að taka öll lögin af nýju plötunni því það er erfitt að spila sum þeirra á tónleikum. Við höfum meira verið að blanda þeim saman við gömlu lögin og það hefur gengið vel.“ Hljómborðsleikarinn Kjartan Sveinsson hefur verið fjarri góðu gamni í tónleikaferðinni og verður hann ekki með í Höllinni. Georg viðurkennir að það hafi verið skrítið að vera án hans og þeir hafi saknað hans til að byrja með. „Orri [Páll Dýrason trommari] talaði um að það hefði þurft tvo til að koma í staðinn fyrir hann því hann er vanur að spila á svo mörg hljóðfæri á tónleikunum. Þetta var skrítið í fyrstu en svo vandist þetta og er búið að vera fínt.“ Hreifst af Labeouf-myndbandi Sigur Rós bryddaði upp á þeirri nýjung í vor að leyfa hinum ýmsu leikstjórum að gera myndbönd við lögin af Valtara án þess að hljóm- sveitin sjálfi kæmi nokkuð að verk- efninu. Eftirminnilegt er mynd- bandið við Fjögur píanó þar sem Hollywood-leikarinn Shia Labeouf var allsnakinn. Georg Hólm var einmitt sérstaklega ánægður með það myndband og horfði á það þrisvar sinnum í röð þegar hann fékk það fyrst sent til sín. „Það er skrítið að láta þetta verkefni algjörlega í hendurnar á einhverj- um öðrum en þetta kom mjög vel út og það er óskandi að fleiri myndu prófa svona lagað í framtíðinni.“ Stefnubreyting hjá Sigur Rós Hljómsveitin hefur eitthvað verið í hljóðveri að undanförnu og Georg býst við því að glænýtt lag verði frumflutt í Höllinni. Aðspurður hvernig nýja efnið hljómi segir hann að um algjöra stefnubreyt- ingu sé að ræða en vill ekkert gefa upp um hvort Sigur Rós sé að breyt- ast í polkasveit eður ei. „Við erum í þannig stuði núna að við viljum halda áfram að taka upp og gera eitthvað skemmtilegt.“ Eftir tónleikana í Höllinni ferðast Sigur Rós til Ástralíu, Taív- an, Singapúr og Malasíu. Á næsta ári fer sveitin í Evróputúr og nú þegar er uppselt á þrenna tónleika í Brixton Academy í London. Um fimm þúsund gestir komast fyrir á þessum þekkta tónleikastað. Enn eru einhverjir miðar eftir á tón- leikana á sunnudaginn og fást þeir á síðunni Midi.is. freyr@frettabladid.is Stressaðir að spila loksins fyrir íslenska tónleikagesti SIGUR RÓS Hljómsveitin Sigur Rós á tónleikum á Berlín Festival fyrr á árinu. Fyrstu tónleikarnir á Íslandi í fjögur ár verða annað kvöld. „Þeir komu um tvöleytið í nótt, brutu gler í hurðinni, sem átti að vera óbrjótanlegt, hoppuðu inn og hlupu beint að dýrustu flík- unum í versluninni. Á myndbandsupptök- um sjást þeir svo troða úlpunum í gegnum gatið á hurðinni og einhverjar hafa greini- lega skemmst í leiðinni því það fannst loð af krögunum í gatinu,“ segir Dagný Guð- mundsdóttir framkvæmdastjóri Cintamani. Þrjátíu úlpum var stolið úr verslun Cinta- mani við Austurhraun í Garðabæ aðfaranótt föstudags. Að sögn Dagnýjar var auðsætt að þjóf- arnir höfðu skipulagt ránið vel því þeir voru ekki nema tvær mínútur að athafna sig. „Þeir vissu upp á hár hvað þeir voru að gera og voru vel græjaðir. Á upptökunum sjást þeir hlaupa beint að dýrustu flíkunum og þeir vissu líka á hvaða rekka dýrustu úlp- urnar í karladeildinni var að finna,“ segir Dagný. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem brotist er inn í verslun fyrirtækisins í Garðabæ og segist Dagný ekki bjartsýn á að vörurnar eða þjófarnir finnist. „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem brotist er inn í verslunina og þess vegna höfðum við keypt dýrustu þjófavarnagræjurnar; dýr- asta glerið, upptökutækin og ljósin. Það eina sem við gætum mögulega bætt við væru fangelsisrimlar fyrir gluggana,“ segir hún að lokum. - sm Þaulvanir þjófar stálu úlpum INNBROT Brotist var inn í verslun Cintamani í Garðabæ. Dagný Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri segir þjófana hafa verið vel skipulagða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Atli Viðar Þorsteinsson Aldur: 29 ára. Starf: Fram- leiðandi og plötusnúður. Fjölskylda: Í sambúð og barnlaus. Foreldrar: Þorsteinn Antonsson rithöfundur og María Anna Þorsteinsdóttir kennari. Búseta: 101. Stjörnumerki: Meyja. Myndband Atla Viðars og Helga Jóhanns- sonar við lagið What Are You Waiting for með Diktu keppir í tónlistarmyndbanda- keppninni Protoclip. Graníthúsið Hafnarfirði www.granithusid.is Sími: 5445100 Helluhrauni 12 Hafnarfirði Útsala Útsala á granítflísum og völdum granít borðplötum Frábært verð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.