Fréttablaðið - 24.11.2012, Side 18

Fréttablaðið - 24.11.2012, Side 18
24. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 18 Að þessu sinni kom neistinn sem kveikti í púður- tunnunum frá Hamas- samtökunum.“ Þessi neistandi ummæli Bjarna Benedikts- sonar kveiktu í púðurtunnunni Merði Árnasyni, sem tyft aði Bjarna fyrir að segja að gæta þyrft i meðalhófs í árásum á Gasa. „Ef maður kemur sér í kastljósið þá verður maður að sætta sig við það að umfjöllunin er ekki alltaf sólskin og sleikipinnar.“ Egill Einarsson var í umdeildu forsíðuviðtali við Monitor. Þar ræddi hann meðal annars um nauðgunarkæru á hendur sér. ORÐ VIKUNNAR 17.11.2012 ➜ 23.11.2012 UMMÆLI VIKUNNAR Erfitt er að skilja þrálátar heimsendaspár stjórnar- andstöðunnar um íslenskt efnahagslíf. En það er gömul saga og ný að reynt sé að ala á öryggisleysi kjósenda í pólitískum til- gangi. Nú er býsnast yfir slæmri stöðu þjóðarbús- ins og látið eins og allt sé í kalda koli. En hverjar eru staðreyndirnar? Hagvaxtarhorfur eru hér betri en víðast hvar um þessar mundir. Ný spá Seðlabankans gerir ráð fyrir 2,5% hagvexti á þessu ári og að hann verði 3,7% árið 2015. Dregið hefur úr atvinnuleysi og starfandi einstaklingum fjölgar á vinnumarkaði. Í fyrra jókst hlutur atvinnuvega- fjárfestinga í landsframleiðslunni í fyrsta sinn frá árinu 2006, eða um 25%. Engum þarf að koma á óvart þótt tafir hafi orðið á erlendum fjárfestingum hér á landi. Hvergi í hinum vestræna heimi hafa ný álver eða kísilmálmver verið gang- sett síðan haustið 2008 eins og fram kom í máli forstjóra Landsvirkjunar í vikunni. Um 10 milljarða króna innspýting er fyrirhuguð á næsta ári í tengslum við fjárfestingaráætlun ríkisstjórn- arinnar en á næstu þremur árum gerir áætlunin ráð fyrir 88 millj- arða króna fjárfestingum alls. Batnandi skuldastaða Vanskil hjá stóru viðskiptabönkun- um fara minnkandi og á síðasta ári jukust eignir umfram skuldir um 17%. Skuldir fyrirtækja og heim- ila eru nú um 280% af landsfram- leiðslu en voru 510% þegar þær náðu hámarki haustið 2008. Ég hef nýverið átt fundi með bankastjórum stóru bank- anna um endurútreikning ólöglegu gengislánanna. Mér sýnist nú sem bank- arnir hafi tekið vel við sér og séu í þann mund að hefja endurútreikning á a.m.k. þriðja tug þúsunda lána og hverfa frá málarekstri að hluta. Þessu ber að fagna. Á næsta ári renna um 23 milljarðar króna til heimil anna í formi vaxta- og barnabóta, enda er greiddur niður hartnær helmingur af vaxta- kostnaði láglaunafjölskyldna. Í heildina eru íbúðaskuldir heimila nú svipaðar og þær voru í upphafi eignabólunnar 2004. Bætt staða ríkissjóðs Eitt helsta verkefni kjörtímabils- ins hefur verið að stoppa í um 300 milljarða fjárlagagat sem rekja má til hrunsins. Nú er svo komið að rekstur ríkissjóðs verður nánast sjálfbær á næsta ári ef fram heldur sem horfir. Vegna þessa árangurs fara skuldir hins opinbera nú lækk- andi og eru þær nú svipaðar hér og í ýmsum öðrum iðnríkjum og vel við- ráðanlegar. Jafnframt þessu hefur ríkis sjóður og Seðlabanki Íslands í tvígang greitt niður erlend lán fyrirfram í því skyni að lækka vaxtakostnað af gjaldeyrisforða þjóðarinnar. Skuldatryggingaálag ríkissjóðs var tæp 1.500 stig þegar verst lét en er nú 178 stig og hefur ekki verið lægra frá því fyrir hrun. Kannski er ekki nema von að stjórnarandstæð- ingar trúi ekki sínum eigin augum um mat umheimsins á stöðu Íslands. Kannski vilja þeir ekki trúa. Inn í þessa umræðu hafa blandast áhyggjur manna af fyrir huguðum nauðasamningum gömlu bankanna við erlenda kröfuhafa. Þetta mál er vandasamt, en umræðan um það er á villigötum og þar reynir stjórnar- andstaðan að slá pólitískar keil- ur og skapa ótta hjá almenningi. Seðlabankinn ræður útgreiðslu- ferli á eignum erlendra kröfuhafa með lagaheimildum sem hann fékk með mikilvægri lagasetningu 12. mars síðastliðinn. Sjálfstæðismenn studdu ekki þá lagasetningu. Hefði þeirra vilji ráðið hefði verið ástæða til að hafa áhyggjur. Seðlabankinn mun ekki setja neinar reglur sem ógnað geta lífskjörum hér á landi eða markmiðum um fjármála- stöðugleika. Seðlabankinn og stjórn- völd ræða þetta mál reglulega og hafa fullt vald á því. Ég tel mjög mikilvægt að vinna þetta mál í víðtækri sátt. Erlendir kröfuhafar þurfa að fá skýr skila- boð um að pólitísk staða á Íslandi breyti engu um meðferð málsins því einhugur ríki um að ganga eins langt í vörn fyrir íslenska hagsmuni og lög og þjóðréttarlegar skuld- bindingar leyfa. Við höfum ríka ástæðu til bjart- sýni þótt margt geti tafið upp- byggingu, t.d. langdregin kreppa í mikilvægum viðskiptalöndum okkar. Ástandið hér á landi er það gott – eins og viðurkennt er – að böl- móður er varla viðeigandi. Bjart- sýni og eldmóður er það sem þjóðin og atvinnulífið þarf á að halda, vilji menn halda áfram á þeirri braut uppbyggingar sem mörkuð hefur verið. Bölmóður án tilefnis FJÁRMÁL Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ➜ Seðlabankinn mun ekki setja neinar reglur sem ógnað geta lífskjörum hér á landi... „Þetta finnst mér vera niðr- andi tenging og afar óeðli- legt að tengja umfjöllun um íþróttir og sölubúðir ÁTVR.“ Þingkonunni Álfh eiði Ingadóttur fannst ekki fyndið þegar Hraðfréttir gerðu grín að áfengisvandamáli Tryggva Guðmundssonar. Umboðsmenn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.