Fréttablaðið - 24.11.2012, Síða 18
24. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 18
Að þessu sinni kom
neistinn sem kveikti í púður-
tunnunum frá Hamas-
samtökunum.“
Þessi neistandi ummæli Bjarna Benedikts-
sonar kveiktu í púðurtunnunni Merði
Árnasyni, sem tyft aði Bjarna fyrir að segja
að gæta þyrft i meðalhófs í árásum á Gasa.
„Ef maður kemur sér í
kastljósið þá verður maður
að sætta sig við það að
umfjöllunin er ekki alltaf
sólskin og sleikipinnar.“
Egill Einarsson var í umdeildu forsíðuviðtali
við Monitor. Þar ræddi hann meðal annars
um nauðgunarkæru á hendur sér.
ORÐ VIKUNNAR
17.11.2012 ➜ 23.11.2012
UMMÆLI VIKUNNAR
Erfitt er að skilja þrálátar
heimsendaspár stjórnar-
andstöðunnar um íslenskt
efnahagslíf. En það er
gömul saga og ný að reynt
sé að ala á öryggisleysi
kjósenda í pólitískum til-
gangi. Nú er býsnast yfir
slæmri stöðu þjóðarbús-
ins og látið eins og allt sé í
kalda koli. En hverjar eru
staðreyndirnar?
Hagvaxtarhorfur eru
hér betri en víðast hvar um þessar
mundir. Ný spá Seðlabankans gerir
ráð fyrir 2,5% hagvexti á þessu ári
og að hann verði 3,7% árið 2015.
Dregið hefur úr atvinnuleysi og
starfandi einstaklingum fjölgar á
vinnumarkaði.
Í fyrra jókst hlutur atvinnuvega-
fjárfestinga í landsframleiðslunni í
fyrsta sinn frá árinu 2006, eða um
25%. Engum þarf að koma á óvart
þótt tafir hafi orðið á erlendum
fjárfestingum hér á landi. Hvergi
í hinum vestræna heimi hafa ný
álver eða kísilmálmver verið gang-
sett síðan haustið 2008 eins og fram
kom í máli forstjóra Landsvirkjunar
í vikunni.
Um 10 milljarða króna innspýting
er fyrirhuguð á næsta ári í tengslum
við fjárfestingaráætlun ríkisstjórn-
arinnar en á næstu þremur árum
gerir áætlunin ráð fyrir 88 millj-
arða króna fjárfestingum alls.
Batnandi skuldastaða
Vanskil hjá stóru viðskiptabönkun-
um fara minnkandi og á síðasta ári
jukust eignir umfram skuldir um
17%. Skuldir fyrirtækja og heim-
ila eru nú um 280% af landsfram-
leiðslu en voru 510% þegar þær
náðu hámarki haustið 2008.
Ég hef nýverið átt fundi með
bankastjórum stóru bank-
anna um endurútreikning
ólöglegu gengislánanna.
Mér sýnist nú sem bank-
arnir hafi tekið vel við sér
og séu í þann mund að hefja
endurútreikning á a.m.k.
þriðja tug þúsunda lána og
hverfa frá málarekstri að
hluta. Þessu ber að fagna.
Á næsta ári renna um
23 milljarðar króna til
heimil anna í formi vaxta-
og barnabóta, enda er greiddur
niður hartnær helmingur af vaxta-
kostnaði láglaunafjölskyldna. Í
heildina eru íbúðaskuldir heimila
nú svipaðar og þær voru í upphafi
eignabólunnar 2004.
Bætt staða ríkissjóðs
Eitt helsta verkefni kjörtímabils-
ins hefur verið að stoppa í um 300
milljarða fjárlagagat sem rekja má
til hrunsins. Nú er svo komið að
rekstur ríkissjóðs verður nánast
sjálfbær á næsta ári ef fram heldur
sem horfir. Vegna þessa árangurs
fara skuldir hins opinbera nú lækk-
andi og eru þær nú svipaðar hér og í
ýmsum öðrum iðnríkjum og vel við-
ráðanlegar.
Jafnframt þessu hefur ríkis sjóður
og Seðlabanki Íslands í tvígang
greitt niður erlend lán fyrirfram í
því skyni að lækka vaxtakostnað af
gjaldeyrisforða þjóðarinnar.
Skuldatryggingaálag ríkissjóðs
var tæp 1.500 stig þegar verst lét
en er nú 178 stig og hefur ekki verið
lægra frá því fyrir hrun. Kannski er
ekki nema von að stjórnarandstæð-
ingar trúi ekki sínum eigin augum
um mat umheimsins á stöðu Íslands.
Kannski vilja þeir ekki trúa.
Inn í þessa umræðu hafa blandast
áhyggjur manna af fyrir huguðum
nauðasamningum gömlu bankanna
við erlenda kröfuhafa. Þetta mál er
vandasamt, en umræðan um það er
á villigötum og þar reynir stjórnar-
andstaðan að slá pólitískar keil-
ur og skapa ótta hjá almenningi.
Seðlabankinn ræður útgreiðslu-
ferli á eignum erlendra kröfuhafa
með lagaheimildum sem hann fékk
með mikilvægri lagasetningu 12.
mars síðastliðinn. Sjálfstæðismenn
studdu ekki þá lagasetningu. Hefði
þeirra vilji ráðið hefði verið ástæða
til að hafa áhyggjur. Seðlabankinn
mun ekki setja neinar reglur sem
ógnað geta lífskjörum hér á landi
eða markmiðum um fjármála-
stöðugleika. Seðlabankinn og stjórn-
völd ræða þetta mál reglulega og
hafa fullt vald á því.
Ég tel mjög mikilvægt að vinna
þetta mál í víðtækri sátt. Erlendir
kröfuhafar þurfa að fá skýr skila-
boð um að pólitísk staða á Íslandi
breyti engu um meðferð málsins
því einhugur ríki um að ganga eins
langt í vörn fyrir íslenska hagsmuni
og lög og þjóðréttarlegar skuld-
bindingar leyfa.
Við höfum ríka ástæðu til bjart-
sýni þótt margt geti tafið upp-
byggingu, t.d. langdregin kreppa
í mikilvægum viðskiptalöndum
okkar. Ástandið hér á landi er það
gott – eins og viðurkennt er – að böl-
móður er varla viðeigandi. Bjart-
sýni og eldmóður er það sem þjóðin
og atvinnulífið þarf á að halda, vilji
menn halda áfram á þeirri braut
uppbyggingar sem mörkuð hefur
verið.
Bölmóður án tilefnis
FJÁRMÁL
Jóhanna
Sigurðardóttir
forsætisráðherra
➜ Seðlabankinn mun ekki
setja neinar reglur sem
ógnað geta lífskjörum hér á
landi...
„Þetta finnst mér vera niðr-
andi tenging og afar óeðli-
legt að tengja umfjöllun um
íþróttir og sölubúðir ÁTVR.“
Þingkonunni Álfh eiði Ingadóttur fannst
ekki fyndið þegar Hraðfréttir gerðu grín að
áfengisvandamáli Tryggva Guðmundssonar.
Umboðsmenn