Fréttablaðið - 24.11.2012, Page 24
Gísli Pálmi er einn heitasti ungi
rappari landsins, ef ekki sá allrahei-
tasti. Hann spilaði á Þýska barnum
á Airwaves-hátíðinni þar sem hann
reif upp stemninguna að mati gagn-
rýnanda Fréttablaðsins. „Það var allt
vitlaust,“ sagði í dóminum. „Það sem
gerir Gísla Pálma svona vinsælan er
sennilega fyrst og fremst hvað hann
er orkumikill og skemmtilegur. Það
er mikill húmor í sviðstöktunum hjá
honum og textunum, sem fjalla oft um
hann sjálfan.“
Aðspurður segist Gísli Pálmi vera
mjög ánægður með tónleikana og þá
stemningu sem myndaðist. „Þetta var
klikkað, geðveikt. Sérstaklega miðað
við hvað það voru margir útlendingar
þarna og fólk sem hafði aldrei heyrt
þetta áður. Það myndaðist þvílík
stemning þarna.“
Meðal áheyrenda var Björk Guð-
mundsdóttir og fleiri kunnir einstak-
lingar. Það stressaði hann ekkert upp.
„Ég frétti að það hefði verið mikið af
fólki þarna og ég sá nokkra þegar ég
labbaði inn. Þetta er bara heiður og
gaman að því.“
Margir útsendarar frá erlendum
plötufyrirtækjum mæta á Airwaves-
hátíðina og segist Gísli hafa rætt við
einn eða tvo en óvíst er hvort eitthvað
komi út úr því. En hvernig er það, ertu
heitasti rapparinn á landinu? „Ég veit
það ekki, það er erfitt að segja frá því
sjálfur en ég er með´etta.“
Töluvert er um að aðrir rapparar og
tónlistarmenn hringi í Gísla Pálma og
óski eftir samstarfi. „Það kemur mjög
mikið fyrir að fólk úr öllum stéttum og
stefnum reyni að koma í samstarf. Ég
er opinn fyrir öllu en það væri meira
komið af svoleiðis ef ég væri mjög
„líbó“ á það. Ég er svolítið „pikkí“ og
mér finnst fínt að gera þetta sjálfur.“
Gísli Pálmi er sonur athafnamanns-
ins Sigurðar Gísla Pálmasonar, en
hefur að eigin sögn ávallt unnið fyrir
sínu og ekki notið fjárhagslega góðs
af fjölskyldutengslum sínum. Hann
hefur verið duglegur við að búa til
myndbönd við lögin sín og setja á You-
tube. Þar öðlaðist hann fyrst vinsældir
með laginu Set mig í gang og því hlýt-
ur myndbandagerðin að skipta hann
töluverðu máli. „Ég leikstýri öllu en
frændi minn og vinur, Árni Geir, sér
um alla tæknina,“ segir hann. „Það er
alltaf gaman að skoða tónlist ef það er
myndband undir. Lagið verður ekkert
endilega betra en það er einhver fíl-
ingur við þetta.“
Áttu einhverja áhrifavalda í tónlist-
inni? „Það eru engin sérstök nöfn en
ég hlusta mjög mikið á alls konar tón-
list. Að mestu leyti hip hop, dubstep og
smá elektróník.“
Gísli Pálmi er duglegur við að fara
úr að ofan á tónleikum, sem er kannski
ekki skrítið enda vel „köttaður“ og
með nóg af húðflúrum á líkamanum.
„Ég er oftast rifinn úr að ofan eða þá
grátbeðinn um það. Þetta er bara ein-
hver fílingur. Þau vilja sjá kallinn.
Ætli þetta komi ekki mikið frá Set mig
í gang [myndbandinu].“
Aðspurður segir hann fyrstu plötuna
ekki vera á leiðinni í bráð. „Það er ein-
hver tími í það. Það verður alla vega
ekki fyrir þessi jól,“ segir rapparinn,
sem hefur aldrei skrifað undir plötu-
samning. „Ég er bara á samningi hjá
sjálfum mér og hjá lögreglunni líka.“
OFTAST
RIFINN ÚR
AÐ OFAN
Gísli Pálmi er einn heitasti rapparinn á Íslandi.
Hann þótti standa sig vel á hátíðinni Iceland Airwaves þar
sem hann reif sig að sjálfsögðu úr að ofan.
MEдETTA Gísli Pálmi segist eingöngu vera á samningi hjá sjálfum sér, og kannski lögreglunni líka.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Verslun fyrir jólin mun aukast sé miðað við
í fyrra samkvæmt spá Rannsóknarseturs
verslunarinnar. „Við byggjum þá spá á því
hvernig þróunin í verslun hefur verið á þessu
ári,“ segir Emil B. Karlsson, forstöðumaður
setursins. „Raunaukningin verður 2,5 pró-
sent og velta í smásölu um 78 milljarðar.“
Íslendingar kaupa meira af raftækjum en
undanfarin ár og segir Emil það líkast til
vegna þess að þar sé endurnýjunarþörf.
„Húsgagnaverslun hefur hins vegar ekki náð
sér á strik og enn er samdráttur í fataverslun
en þar hefur verið leitt getum að því að sam-
drátturinn skýrist af því að fólk kaupi mikið
föt í útlöndum en þetta hefur samt ekki verið
rannsakað,“ segir Emil.
Jólaverslun verður meiri í ár en í fyrra
Í dag er einn mánuður til jóla og ugglaust eru margir farnir að huga að jólaundirbúningi. Spáð er meiri eyðslu í ár en í fyrra.
Freyr Bjarnason
freyr@frettabladid.is
43.000
krónur
Er það sem talið er að
hver Íslendingur eyði
að meðaltali til
innkaupa sem rekja má
til árstímans.
Íslensk tónlist
Er jólagjöf ársins að mati álitsgjafa Rannsóknar-
seturs verslunarinnar sem undanfarin ár hafa
talið spjaldtölvu, lopapeysu, jákvæða upplifun og
íslenska hönnun sem jólagjafi r ársins.
Milljón
Eintök af nýútkomnum bókum
seljast í nóvember og desember
samkvæmt útreikningum Félags
íslenskra bókaútgefanda.
60.000
Jólatré munu seljast í ár og verða þar af tíu til
tólf þúsund íslensk samkvæmt frétta skýringu
sem birtist í Morgunblaðinu á dögunum.
500.000
lítrar eða rífl ega það munu seljast af jólabjór í
ár ef miðað er við sölutölur ÁTVR í fyrra og
þróunina undanfarin ár.
24. nóvember 2012 LAUGARDAGURHELGIN
Alma Jenný Guðmunds dóttir
eigandi ferðaþjónustu
Kvennaferð
„Ég fer vestur í Stykkishólm
– verð þar í félagsskap frá-
bærra kvenna– jólaföndur og
konukvöld á veitingastaðn-
um við höfnina, Pakkhúsinu.“
Erling Jóhannesson
leikari og hönnuður
Merkisafmæli
„Sonur minn á merkisafmæli
á sunnudaginn, verður tíu
ára, og helgin verður undir-
lögð af því að fagna þeim
tímamótum.“
Kjartan Henry Finnboga-
son fótboltamaður í KR
Á kosningaskrifstofu
„Ég verð allan laugardaginn
[í dag] á kosningaskrifstofu
Sigurðar Sigurðssonar sem er
að bjóða sig fram í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins.“
Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur
Æfingabúðir Barmahlíðarkórsins
„Þessi helgi lítur út fyrir að verða róleg í þeirri skæða-
drífu upplestra sem nú gengur yfir vegna bókarinnar
Stekk. Því hafði ég hugsað mér að fara á Eyrarbakka í
æfingabúðir litla kórsins sem ég er í, Barmahlíðarkórs-
ins.“