Fréttablaðið - 24.11.2012, Page 79
KYNNING − AUGLÝSING Kirkjur24. NÓVEMBER 2012 LAUGARDAGUR 3
Sunnudagur 16. desember, 3. sunnudagur í aðventu
Messa og barnaguðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Tómas Sveinsson. Organisti Kári Allansson.
Aðventusöngvar við kertaljós kl. 20.00.
Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir flytur hugvekju.
Kirkjukór Háteigskirkju syngur notalega aðventutónlist.
Organisti Kári Allansson.
Miðvikudagur 19. desember kl. 20
Jólatónleikar Kammerkórs Háteigskirkju.
Kórinn flytur uppáhaldsjólalög okkar allra.
Organisti og kórstjóri er Kári Allansson.
Aðfangadagur 24. desember
Aftansöngur kl. 18.00.
Prestur sr. Tómas Sveinsson. Organisti Kári Allansson.
Kammerkór Háteigskirkju syngur. Himneskur kórsöngur frá kl. 17.40.
Miðnæturmessa kl. 23.30.
Prestur sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Organisti Kári Allansson.
Kirkjukór Háteigskirkju syngur innileg jólakórverk.
Jóladagur 25. desember
Hátíðarmessa kl. 14.00.
Prestur sr. Tómas Sveinsson. Organisti Kári Allansson.
Félagar úr Kammerkór Háteigskirkju syngja.
2. jóladagur 26. desember
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.00.
Prestur sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Organisti Kári Allansson.
Samveran er tileinkuð allri fjölskyldunni – ungum sem eldri.
Gamlársdagur 31. desember
Aftansöngur kl. 18.00.
Prestur sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Organisti Kári Allansson.
Félagar úr Kammerkór Háteigskirkju flytja meðal annars Hátíðarsöngva
sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Nýársdagur 1. janúar 2012
Hátíðarmessa kl. 14.00.
Prestur sr. Tómas Sveinsson. Organisti Kári Allansson.
Kirkjukór Háteigskirkju flytur meðal annars Hátíðarsöngva sr. Bjarna Þor-
steinssonar.
Sunnudagur 6. janúar, þrettándinn
Messa og barnaguðsþjónusta kl. 11.00.
Prestur sr. Tómas Sveinsson. Organisti Kári Allansson.
Dagskrá aðventu, jóla og
áramóta í Háteigskirkju
Arnar Ragnarsson, æskulýðsleið-
togi og nemi í íþróttafræði, sér um
barna- og unglingastarf Háteigs-
kirkju ásamt Sólveigu Ástu Sig-
urðardóttir, æskulýðsleiðtoga og
nema í bókmenntafræði. „ Starfið
hjá okkur er í stöðugri sókn og
miklum blóma. Fjöldi þeirra sem
mætir hefur aukist í öllum aldurs-
flokkum enda er mjög gaman hjá
okkur og við reynum að mæta
þörfum og áhugasviði f lestra,“
segir Arnar.
Arnar tók þátt í kirkjustarfi
sem barn og hefur áhuga á að
gefa ungum krökkum tækifæri til
að upplifa eitthvað skemmtilegt
eins og hann gerði sjálfur í því
starfi. „Starfið hjá okkur er mjög
fjölbreytt og við reynum að gera
krökkunum kleift að upplifa eitt-
hvað sem þau gera ekki annars
staðar. Við leggjum mikla áherslu
á það að boða börnum sem til
okkar koma trúna á Jesú Krist.
Við sköpum umhverfi þar sem
þau læra góð gildi sem koma fram
í Biblíunni. Leikir eru líka frá-
bær leið til að læra og við fléttum
saman leiki og trú.“
Barna- og unglingastarfið í Há-
teigskirkju er hópaskipt. Sunnu-
dagaskólinn er á sunnudags-
morgnum klukkan 11. Starf fyrir
tíu til tólf ára er á þriðjudögum,
fyrst stelpur klukkan 16 og svo
strákar klukkan 17.30. Á þriðju-
dagskvöldum hittast unglingar í
8. til 10. bekk og eru áttundubekk-
ingarnir sér en 9. og 10. bekkur
saman. „Það hefur gefist vel að
skipta þessu niður, þannig náum
við til sem flestra og krakkarnir fá
frekar að gera það sem þau hafa
áhuga á enda hafa þessir hópar
áhuga á ólíkum hlutum. Mark-
miðið með hópaskiptingunni er
að þá getum við betur haft dag-
skrána einstaklingsmiðaða og
náð þannig betur til þess aldurs-
hóps sem verið er að vinna með
hverju sinni. Oft förum við eitt-
hvað út fyrir kirkjuna öll saman
og höfum við til dæmis farið í
sund og bíó. Einnig er alltaf farið
í lengri ferðir þar sem er gist yfir
nótt. Unglingarnir fara einu sinni
á önn og yngri börnin fara á vorin.
Við fórum með unglingana núna
í haust á Landsmót kirkjunnar á
Egilsstöðum þar sem var mikið
stuð og gaman. Við reynum að
skapa góðar stundir fyrir krakk-
ana þannig að þau fari með já-
kvæða mynd af kirkjunni út í
lífið,“ segir Arnar.
Öflugt barna- og unglingastarf
Í Háteigskirkju er öflugt tónlistar- og listalíf. Þar eru tveir kórar, kirkjukór og kammerkór. Einnig er fyrirhugað að stofna listafélag Háteigskirkju í byrjun
næsta árs en því er ætlað að halda utan um
allt listastarf sem fer fram í kirkjunni, bæði
tónleika og myndlistarsýningar í safnaðar-
heimili kirkjunnar.
„Kirkjukór Háteigskirkju er tiltölu-
lega nýr kór og í honum eru um tuttugu
manns,“ segir Kári Allansson, organisti og
kórstjóri Háteigskirkju. „Kirkjukórinn er í
örum vexti og syngur reglulega við messur.
Fram undan er til dæmis aðventukvöld
kirkjunnar þann 16. desember næstkom-
andi og mun kórinn flytja þar aðventu-
tónlist og biskup Íslands, sr. Agnes M. Sig-
urðardóttir, mun flytja hugvekju. Kórinn
er einnig að undirbúa stóra tónleika með
hljómsveit í vor í samstarfi við þrjá aðra
kóra.“
„Í Kammerkór Háteigskirkju eru fag-
lærðir söngvarar. Kammerkórinn verð-
ur með jólatónleika 19. desember sem
verða óskalagatónleikar. Fólk getur sent
óskalög á netfangið mitt, kari@hateigs-
kirkja.is og beðið um óskalag. Allir geta
komið á tónleikana og hlustað á sitt uppá-
haldsjólalag því við reynum að verða við
öllum óskum. Nú þegar eru komin óska-
lög úr ýmsum áttum, meðal annars „Last
Christmas“ með Wham!, „Santa Baby“ sem
bæði Madonna og Eartha Kitt hafa tekið og
svo „Heims um ból“,“ segir Kári.
Í upphafi nýs árs er stefnt að stofnun
listafélags Háteigskirkju. „Félagið verður
stofnað til að fá meiri þunga í rekstur
tónleikahaldsins og efla tónlistarlífið í
kirkjunni. Ég verð listrænn stjórnandi
þess og markmiðið er að halda tónleika
vikulega. Kirkjan er vel fallin til tónleika-
halds og ekki síst fyrir órafmagnaða tónlist
en eftirspurn hefur verið eftir því að halda
tónleika hér.“
Myndlistin fær sitt pláss í Háteigskirkju
en í tengigangi milli kirkju og safnaðar-
heimilis, sem er einfaldlega kallaður Gang-
urinn, hafa verið haldnar sýningar. Nú er
þar sýningin, Ó … María ó … meistari eftir
Evu Ísleifsdóttur.
Tónlistarlífið hefur verið í miklum blóma
í kirkjunni að undanförnu en þar hefur
hádegistónleikaröðin „Á ljúfum nótum í
Háteigskirkju“ verið haldin annan hvern
föstudag síðan í febrúar. „Tón leikarnir
hafa verið ágætlega sóttir enda fjöl breyttir
og skemmtilegir. Listrænn stjórnandi tón-
leikaraðarinnar er Lilja Eggerts dóttir og
höfum við verið með djass, klassík, ein-
söng og fleira. Næsta föstudag halda Auður
Gunnarsdóttir sópran og Snorri Wium
tenór ásamt Kammer hópnum Stillu tón-
leika þar sem verður fjölbreytt dagskrá.
Það er mikill slag kraftur í tónlistar lífinu í
Háteigskirkju, það er gaman að taka þátt í
því og að finna hvað allir eru jákvæðir enda
margt spennandi og skemmtilegt fram
undan,“ segir Kári.
Óskalagatónleikar, aðventu-
kvöld og fjölbreytt listalíf
Í Háteigskirkju er lögð mikil áhersla á listastarf. Reglulega eru haldnir tónleikar og myndlistarsýningar. Tveir kórar starfa í
kirkjunni og fyrirhugað er að stofna listafélag.
Þau Arnar Ragnarsson og Sólveig Ásta Sigurðardóttir eru æskulýðsleiðtogar í Háteigskirkju og annast barna- og unglingastarf
kirkjunnar. MYND/STEFÁN
Kári Allansson, organisti og kórstjóri, segir mikinn slagkraft vera í tónlistarlífinu í Háteigskirkju og gaman að
taka þátt í því. MYND/GVA