Fréttablaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 80
KYNNING − AUGLÝSINGKirkjur LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 20124
Þorlákur Þórhallsson helgi settist á
biskupsstól í Skálholti árið 1178. Hann
var tekinn í dýrlinga tölu á Íslandi árið
1198 og honum eru tileinkaðir tveir
messudagar á ári, Þorláksmessa á
vetri þann 23. desember og á sumri
20. júlí.
Þorlákur helgi er verndari Krists-
kirkju í Reykjavík. Kaþólska kirkjan
á Íslandi kennir einnig við hann
heilags Þorlákssókn í Reyðarfirði,
sem var stofnuð 28. júlí 2007 og
nær yfir Austur-Skaftafellssýslu og
báðar Múlasýslur. Fyrir siðaskipti voru
meira en fimmtíu íslenskar kirkjur
helgaðar heilögum Þorláki. Hin elsta
þeirra mun hafa staðið á Stóra-Hofi á
Rangárvöllum.
Kauptúnið Þorlákshöfn í Árnes-
sýslu dregur einnig nafn sitt af Þorláki
helga. Sagt er að þar hafi áður verið
bærinn Elliðahöfn, og hafi bóndinn
eitt sinn lent í hremmingum á sjó
og þá heitið á Þorlák að breyta nafni
bæjarins ef skip hans næði landi. Þó
kann einnig að vera að bærinn hafi
fengið nafn af kirkjunni á þeim stað,
sem var helguð Þorláki en enn í dag
ber guðshús þjóðkirkjunnar í Þorláks-
höfn heiti biskupsins. Heimild: wikipedia.org
KIRKJUR HELGAÐAR HEILÖGUM ÞORLÁKI
EINSTÖK KIRKJA
Eitt af undrum lista- og bygging-
arsögunnar er kirkjan La Sagrada
Família í Barcelona á Spáni.
Smíði hennar hófst árið 1882 og
stendur enn yfir. Það var kata-
lónski arkitektinn Antoní Gaudí,
sem þekktur var fyrir gotneskan
stíl og nýstárlega hönnun, sem
á heiðurinn af þessari einstöku
hönnun. Í áætlunum Gaudís
er gert ráð fyrir átján turnum á
kirkjunni og hefur hver og einn
táknræna merkingu. Tólf af þeim
tákna lærisveina Jesú. Fjórir tákna
guðspjallamennina Matteus,
Lúkas, Jóhannes og Markús. Þá
táknar einn Jesú og annar Maríu,
móður Jesú. Þegar lokið verður
við kirkjuna mun hæsti turninn
vera 170 metrar og kirkjan því
vera hæsta kirkja í heimi. Áætluð
verklok eru 2026 til 2028.
ELSTA KIRKJAN
Elsta kirkja Íslandssögunnar
var reist nokkrum árum fyrir
kristnitöku árið 1000. Reyndar
er deilt um tímasetninguna því
ekki eru allir sammála um hvenær
fyrsta skeið kristni var hérlendis
og í hvaða merkingu orðið kirkja
skuli notað. Sé hugtakið kirkja
notað um byggingar sem einkum
eru notaðar til helgihalds óháð
stærð, gerð, eignarhaldi, vígslu og
kirkjuréttarlegri stöðu má fullyrða
að kirkjur hafi risið hér á landi
töluvert fyrir kristnitöku. Þó eru
ekki til margar heimildir eða forn-
leifar til að styðjast við.
Í Kristnisögu, frá 13. öld, segir
að Þorvarður Spak-Böðvarsson
hafi reist kirkju á bæ sínum í
Hjaltadal sextán árum fyrir kristni-
töku eða árið 984. Á árunum
1998-1999 var grafinn upp
kirkjugrunnur að Neðra-Ási sem
var líklega frá því um eða fyrir
1000. Uppgröftur þessi sannar
ekki frásögn Kristnisögu en
rennir stoðum undir að þegar um
aldamótin 1000 hafi kirkjur tekið
að rísa hér á landi. Í upphafi voru
allar kirkjur á Íslandi í einkaeigu
og því ákváðu yfirvöld ekki hvort
og hvar skyldi byggja kirkju.
Heimild: Vísindavefurinn
verð 2.990 verð 2.990
verð 4.290 verð 2.990 verð 4.590 verð 4.590
verð 2.990
verð 7.390 verð 6.290 verð 2.990
IÐA Lækjargata 2a 101 Reykjavík sími 511-5001 opið 9 - 22 alla daga
IÐA ZIMSEN Vesturgata 2a 101 Reykjavík sími 511-5004 opið 9 - 22 alla daga
Bækur, spil og falleg gjafavara
á góðu verði fyrir alla
Blekking og Svartir túlipanar
Höfundar kynna bækur sínar í dag kl. 15 í IÐU Lækjargötu