Fréttablaðið - 24.11.2012, Page 88
24. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 56
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Piparkökur eru eftirlætissmákökur
margra krakka og nú er sannarlega rétti
tíminn til þess að byrja að spreyta sig
á smákökubakstri. Mikilvægt er að hafa
í huga að fylgja ekki uppskrift pipar-
kökudrengsins í Hálsaskógi sem setti
kíló pipar í deigið! Krakkasíðan hefur
eftir áreiðanlegum heimildum að þessi
piparkökuuppskrift sé afbragð. Yngri
krakkar þurfa vitanlega að fá aðstoð
fullorðinna við baksturinn, og minna
verður á að deigið verður best ef það
er búið til daginn áður en bakað er.
Piparkökur fjölskyldunnar
Uppskriftin gefur um 100-120
piparkökur
500 g hveiti
280 g sykur
2 tsk. natrón
3 tsk. kanill
1 1/2 tsk. negull
1 1/2 tsk. engifer
1/2 tsk. pipar
180 g smjör
1 dl síróp
1 dl sterkt kaffi (nes-
café virkar vel)
Smjör mulið út í
þurrefni og sírópi
og kaffi bætt við. Hnoðað vel og
deigið geymt í ísskáp yfir nótt,
eða að minnsta kosti í nokkra
klukkutíma. Deigið breitt
fremur þunnt út og skorið út í
öllum hugsanlegum formum.
Bakað við um 170 gráður, á
blæstri eða 190 gráður ef ekki
blástur. Skreytið með glassúr
að vild. Bökunartími er um 8
mínútur.
ATLI HRAFN BERN-
BURG OG ÓLAFUR
ÁKI KJARTANSSON
7 ÁRA
Hvað eruð þið að gera? Atli:
Rétt áðan, fyrir nokkrum sek-
úndum, vorum við að lesa ein-
hverja bók um hvernig það er að
vera á Íslandi. Hún var mjög löng.
Svo fórum við í leiki.
Vitið þið hvað barnasáttmál-
inn er? Ólafur: Það er bara eitt-
hvað um réttindi barna. Að það
séu réttindi barna að leika sér og
svoleiðis.
Atli: Áðan áttum við að skrifa
niður hvað við vildum hafa í
Selinu. Það voru ótrúlega margir
sem vildu hafa hoppukastala í
Selinu en ég vildi frekar hafa
trampólín.
En hvað eru réttindi? Ólafur:
Til dæmis vatn. Atli: Til dæmis
matur. Mig langaði svo mikið að
hafa Angry Birds, en það er óþarfi
því það er tölvuleikur.
En samt eru réttindi barna að
leika sér? Atli: Já! Þess vegna
langaði mig svo mikið að hafa það
með.
Hvað er nauðsynlegt að eiga?
Ólafur: Heimili og fjölskyldu. Atli:
Trén!
En eru jól nauðsynleg?
Atli: Ne-ei... en þá er afmælis-
dagurinn hans Jesú.
Heilabrot
Sjónvarp, tölvur og
fj arstýrðir bílar óþarfi
Í Barnasáttmálaviku Selsins í Melaskóla ræddu börnin um réttindi barna,
nauðsynjar og óþarfa. Þau ræddu einnig hverju þau vildu breyta í Selinu, enda
réttindi barna að fá að segja hvað þeim fi nnst. Fréttablaðið leit í heimsókn.
ELÍN ALEXANDRA
SÓLVEIGARDÓTTIR
7 ÁRA
Hvað eruð þið að gera í miða-
leiknum? Við erum að finna
eitthvað sem er ekki nauðsynlegt
að nota í lífinu.
Getur þú sagt mér hvað
barnasáttmálinn er? Nei, ég veit
ekkert hvað það er.
Hvað eru réttindi? Það eru rétt-
indi að börn fái að segja það sem
þeim finnst.
Geturðu nefnt mér tvö rétt-
indi? Fjölskylda og matur.
Eru jólin réttindi? Já.
En eru jólin réttindi alls staðar
í heiminum? Nei, ekki þar sem
fólk trúir ekki á Jesús.
KRISTÍN
BJÖRNSDÓTTIR
7 ÁRA
Getur þú nefnt mér eitthvað
tvennt sem er nauðsynlegt?
Sími og vatn.
En hvað er óþarfi? Það er óþarfi
að hafa sjónvarp og eiga fjar-
stýrðan bíl.
Hvers vegna er þetta óþarfi?
Því þetta er bara eitthvað dót og
maður fær illt í augun af sjón-
varpinu.
Eru jólin réttindi? Já.
Hvers vegna? Af því þá á Jesús
afmæli.
HELENA RUT
HALLGRÍMSDÓTTIR
7 ÁRA
Geturðu sagt mér hvað þið
eruð að gera? í þessari viku
eigum við að hjálpast að, við
höfum til dæmis farið í miðaleik.
Hvernig er hann? Við skoðum
hvað við þurfum og hvað við
þurfum ekki.
Og hvað þurfum við? Við
þurfum vatn, mat og það er
mikilvægt að kunna að lesa. En
við þurfum ekki að fara alltaf í
tölvuna og ekki að eiga GSM-síma
og ekki heldur iPad.
En þurfa börn jól? Já.
Af hverju? Af því jól eru svo
merkileg. Það er alltaf þannig hjá
mér að við förum með bæn því
þá á Guð eða Jesús afmæli og þá
þurfum við að halda upp á það.
1. Hvað er það sem gengur og gengur en kemst ekki úr sporunum?
2. Hvað er það sem kemur 25 sinnum á 100 árum og þá aðeins einn
dag í einu?
3. Hver segir manni alltaf satt þegar maður spyr hann?
4. Í hvaða íþróttagrein verður sigurliðið alltaf að ganga aftur á bak?
SVÖR
1. Úrið 2. 29. febrúar 3. Spegillinn 4. Í reiptogi
Þegar piparkökur bakast
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
19
„Eldspýtnaþraut!“ hrópaði Lísaloppa. „Mér finnst þær
svo skemmtilegar.“ Kata leit óhýru auga á Róbert og sagði
með þjósti. „Jæja Róbert, ert þú ekki snillingur í eldspýtna-
þrautum eins og öllu öðru.“ Róbert snéri upp á sig og setti
upp snúð. „Ég leggst ekki svo lágt að reyna að leysa svona
barnalegar þrautir.“ Kata glotti. „Við Lísaloppa leysum hana
þá bara í huganum og þegar við erum búnar að því, mátt þú
segja okkur lausnina,“ sagði hún ísmeygilega. Ertu ekki
sammála Lísaloppa?“ „Jú, jú,“ sagði Lísaloppa annars hugar,
því hún var að lesa leiðbeiningarnar fyrir þrautina.
„Hér stendur,“ sagði Lísaloppa, „færðu til þrjár eldspýtur
þannig að fiskurinn fari að synda í hina áttina.“
Getur þú hjálpað þeim að leysa þessa þraut?