Fréttablaðið - 24.11.2012, Page 96

Fréttablaðið - 24.11.2012, Page 96
24. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 64TÍMAMÓT „Ingó er vinamargur og góður strákur og allir sem hafa verið nálægt honum kunna vel við hann. Það er einkenni á góðum dreng,“ segir Steingrímur Sævarr Ólafsson, talsmaður hópsins sem heldur uppboð annað kvöld, sunnu- dag, í gyllta sal Hótel Borgar. Margir af helstu ljósmyndurum landsins gefa myndir á uppboðið, þeirra á meðal RAX, Ragnar Th., Spessi, Páll Stefáns og Ari Magg. Ágóðinn af uppboðinu rennur til Ingólfs Júlíussonar, ljós- myndara og margmiðlunar hönnuðar, sem greindist með bráðahvítblæði í október og hefur verið á sjúkrahúsi síðan. Fram undan hjá honum er ferð til Svíþjóðar í mergskipti. Mörg fyrir- tæki leggja fram þjónustu honum til stuðnings og allir sem að uppboðinu koma gefa vinnu sína. „Þegar fólk sem alltaf er tilbúið að rétta öðrum hjálparhönd lendir sjálft í vanda þá á það skilið að aðrir leggi sig fram og hjálpi því. Það er það sem er í gangi núna,“ segir Steingrímur Sæv- arr og áréttar að myndast hafi gríðar- legur samhugur og samstaða meðal vina Ingós. „Við viljum hjálpa Ingó og vonum að aðrir séu sama sinnis og leggi málefninu lið.“ Steingrímur Sævarr tekur fram að myndirnar sem ljósmyndararnir hafi valið sómi sér á hvaða vegg sem er. „Þetta eru myndir sem sérhver getur verið stoltur af að stilla upp,“ full- yrðir hann. „Menn eru ekkert að kasta fram bara einhverjum myndum heldur leggja til perlur fyrir perluna sem Ingó er.“ Á uppboðinu eru ekki bara ljós myndir. Þar er líka einstakur gripur, plast- myndavél sem á annan tug þekktustu ljósmyndara landsins hafa tekið myndir á, á síðustu vikum. Hver og einn tók eina mynd og skráði nafn sitt á vélina. „Sá sem býður í vélina sér ekki myndirnar því þær eru á filmu í vélinni, en hann fær athyglisverðar myndir frá athyglis- verðum ljósmyndurum – hann fær leyndardóm. Svo er Tolli búinn að gefa stórt og flott málverk eftir sig þannig að þarna eru margir dýrgripir.“ Steingrímur Sævarr efast ekki um áhuga og velvild almennings í garð þessa viðburðar. „Þarna er drengur sem aldrei hefur aumt mátt sjá án þess að hjálpa. Nú er hann hjálpar þurfi, þannig að málstaðurinn er göfugur.“ gun@frettabladid.is Leggja til perlur fyrir perluna sem Ingó er Veglegt ljósmyndauppboð verður á Hótel Borg á morgun klukkan 19 til stuðnings Ingólfi Júlíussyni ljósmyndara sem er á sjúkrahúsi vegna bráðahvítblæðis. TALSMAÐUR HÓPSINS „Við viljum hjálpa Ingó og vonum að aðrir séu sama sinnis og leggi málefninu lið,“ segir Steingrímur Sævarr. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ingólfur Júlíusson er 42 ára fjölskyldufaðir sem tók sín fyrstu skref í Syðra-Garðshorni í Svarfaðardal og hefur víða komið við á sínum ferli. Hann var lestrar- hestur á unglingsárum, átti hesta og mótorhjól og spilaði í pönkhljóm- sveitum, meðal annars Q4U. Ingólfur, sem oftast er kallaður Ingó, hefur starfað við flesta fjöl- miðla á Íslandi, fyrst á blöðum og tímaritum, síðan sjónvarpi og hefur unnið sjálfstætt frá árinu 2008. Hann hefur verið ljósmyndari Reuters- fréttastofunnar á Íslandi sem valdi eina mynda hans sem fréttamynd ársins 2010. Ingó hefur fengist við myndbandagerð, tónlist, útskurð, fjallamennsku og síðustu ár hefur hann verið virkur í víkingafélag- inu Einherjum. Ingó er kvæntur Monicu Haug, þau eiga tvær dætur, Hrafnhildi 11 ára og Söru 9 ára. Nokkur orð um IngóMERKISATBURÐIR 1582 William Shakespeare giftist Anne Hathaway í Stratford- upon-Avon. 1670 Loðvík 14. gefur út framkvæmdaleyfi fyrir byggingu öryrkjaheimilisins Les Invalides í París. 1848 Sérstök stjórnardeild um málefni Íslands stofnuð í fyrsta sinn innan Kansellísins í Danmörku. 1859 Uppruni tegundanna eftir Charles Darwin kemur út. 1951 Þátturinn Óskalög sjúklinga í umsjá Björns R. Einarssonar hefur göngu sína í Ríkisútvarpinu. 1963 Meintur morðingi Kennedys, Lee Harvey Oswald, er skot- inn af Jack Ruby í Dallas í Texas. 1965 Rjúpnaveiðimaður finnst eftir 70 klukkustunda útivist og langa leit í vonskuveðri. Flestir höfðu talið hann af. 1972 Suðurlandsvegur frá Reykjavík til Selfoss er formlega tek- inn í notkun eftir endurgerð sem tók sex ár. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn Elsku móðir mín, tengdamóðir og amma, ÞURÍÐUR GUNNARSDÓTTIR (ÞURA) Kópavogsbraut 65, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 17. nóvember sl. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 28. nóvember kl. 13.00. Guðrún Sólveig Sigurgrímsdóttir Páll Ágúst Jónsson Þuríður Erla Helgadóttir Árni Þórður Randversson Sigurjón Páll Helgason Lilja Lind Helgadóttir Jón Hólm Pálsson Veigar Jóhann Pálsson Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, DAVÍÐS GUÐLAUGSSONAR fyrrv. skipstjóra, Hagaflöt 9, Akranesi. Guðm. Rúnar Davíðsson Margrét Sigurðardóttir Sigurður Grétar Davíðsson Hólmfríður D. Guðmundsdóttir Harpa Hrönn Davíðsdóttir Búi Gíslason barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdasonar, bróður, mágs og frænda, ARINBJÖRNS AXELS GEORGSSONAR Heiðarbraut 41, Akranesi. Það er okkur dýrmætt að finna fyrir stuðningi ykkar á erfiðum tíma. Kærleikskveðjur. Elísabet Harles Ingibjörg Lilja Arinbjörnsdóttir Hlynur Steinn Arinbjörnsson Ingibjörg Hafsteinsdóttir Hákon H. Pálsson Vilborg Guðríður Georgsdóttir Ingibjörn Sigurjónsson Halldór Sigfús Georgsson Sigríður Bragadóttir Haukur Georgsson Regína Geirsdóttir Hjálmar Georgsson Sigrún Hjördís Haraldsdóttir Fjóla Georgsdóttir Ómar Þröstur Björgólfsson Guðni Jóhannes Georgsson Jóhanna María Sigurgeirsdóttir Svandís Georgsdóttir Sigurvin Jón Kristjánsson og systkinabörn. Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, SIGRÚN HALLDÓRSDÓTTIR Vesturströnd 15, Seltjarnarnesi, andaðist þann 18. nóvember á Landspítalanum í Reykjavík. Útförin fer fram frá Grensáskirkju mánudaginn 26. nóvember kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarkort Krabbameinsfélags Íslands. Gísli Gíslason Ásta Gísladóttir Halldór Hrafn Gíslason Jóhanna Ýr Jónsdóttir Heba Sigríður, Gísli Hrafn og Sigrún Ýr Halldórsbörn Bróðir okkar, ÓSKAR LOFTSSON lést á heimili sínu Bríetartúni 30 (Skúlagötu 74) föstudaginn 9. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til heimilisfólksins Skúlagötu 74 og til félaga hans í Vin. María Loftsdóttir Jón Kristinn Valdimarsson Guðmundur Loftsson Sigríður Jónasdóttir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.