Fréttablaðið - 24.11.2012, Síða 108
24. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 76
BÆKUR
★★ ★★★
Suðurglugginn
Gyrðir Elíasson
Yndisleg bók,
klæðskerasniðin að
smekk þeirra sem
hafa smekk fyrir
verkum Gyrðis Elías-
sonar. Nú mega
jólin sko koma fyrir
mér. - þhs
★★ ★★★
Reisubók Ólafíu Arndísar
Kristjana Friðbjörnsdóttir
Skemmtileg ferðasaga 13 ára stúlku um
Austfirði og Svíþjóð. Hressilega skrifuð,
fyndin á köflum og fallega myndskreytt.
Auðveld yfirlestrar, með stóru og skýru
letri fyrir aldurshópinn 7-12 ára. - bhó
★★ ★★★
Landvættir
Ófeigur Sigurðsson
Hressileg og afburða vel stíluð skáld-
saga en hefði að ósekju mátt vera mun
styttri og hnitmiðaðri. - fb
★★ ★★★
Brot af staðreynd
Jónas Þorbjarnarson
Húmorískar æviminningar Jónasar Þor-
bjarnarsonar vekja til umhugsunar um
lífshvötina og dauðann. Margt bæði vel
unnið og skemmtilegt. - þhs
★★ ★★★
Hin eilífa þrá
Guðbergur Bergsson
Skáldsaga sem stendur bestu verkum
höfundarins mjög langt að baki. - jyj
DÓMAR 17.11.2012 ➜ 23.11.2012
TÓNLIST
★★ ★★★
Berlínarfílharmónían
Sir Simon Rattle stjórnar í Hörpu
Ótrúleg fágun, fullkomin tækni, stór-
kostleg túlkun. - js
★★ ★★★
Stafnbúi
Steindór Andersen
& Hilmar Örn Hilmarsson
Tónlist Hilmars Arnar fellur sérstaklega
vel að rímnasöng Steindórs Andersen. - tj
★★ ★★★
Börn Loka
Skálmöld
Skálmöld snarar út rokkóperu númer
tvö. - tj
★★ ★★★
Heimþrá
Eliza Newman
Stjörnuryk, Hver vill ást? og fleiri popp-
smellir frá fyrrum Kolrössu. - tj
★★ ★★★
Hádegistónleikar í Salnum
Matthías Nardeau
og Elísabet Waage
Vandaðir tónleikar sem hefði mátt
kynna betur á heimasíðu Salarins, auk
þess sem sviðsframkoma hljóðfæra-
leikaranna hefði getað verið afslappaðri
og þægilegri. - js
MYNDLIST
★★ ★★★
Rek
Anna Hallin og Olga Bergman
Áhugaverðar og þarfar hugleiðingar,
settar fram í vönduðum listhlutum.
Með betri fókus hefði verið hægt að
koma meginskilaboðunum enn sterkar
á framfæri. - þb
BÆKUR ★★★★★
Boxarinn
Úlfar Þormóðsson
VERÖLD
Úlfar Þormóðsson hefur marga
fjöruna sopið í bókmenntaheim-
inum allt frá því fyrsta skáldsaga
hans kom út fyrir tæpum fimmtíu
árum. Skáldsögurnar eru orðnar
þó nokkrar og býsna fjölbreytt-
ar. Flestar skáldsagna Úlfars eru
sögulegar, byggðar á rannsókn og
túlkun heimilda, en hann hefur
líka skrifað bækur um samtíma-
atburði og ástand með aðferðum
blaðamennskunnar. Hann hefur
löngum verið áberandi sem pistla-
höfundur og blaðamaður, en er
kannski þegar allt kemur til alls
þekkastur fyrir það að vera eini
núlifandi Íslendingurinn sem
hefur verið dæmdur fyrir guð-
last (fyrir það ætti að sjálfsögðu
að vera löngu búið að reisa af
honum veglega styttu). En því geri
ég manninn sjálfan að umtalsefni
að nýjasta bók Úlfars, Boxarinn,
er á einhvern hátt sjálfsævisögu-
leg. Lýsir æsku hans og uppvexti
á óvenjulegan og býsna frumleg-
an hátt.
Í fyrra sendi Úlfar frá sér bók-
ina Farandskugga þar sem hann
fjallaði um lífshlaup móður sinnar
með svipaðri aðferð. Í Boxaranum
víkur sögunni að föðurnum. Frá-
sögnin er í annarri persónu, líkt
og langt bréf eða samtal við föð-
urinn. Þessi aðferð er vandmeð-
farin, það getur verið stutt í öfgar
beggja vegna, tilfinningasemi
eða dómhörku. Og það er kannski
fyrst og fremst það hversu glæsi-
lega Úlfar þræðir einstigið þar
á milli sem gerir þessa bók jafn
frábæra og raun ber vitni. Úlfari
tekst að vera einlægur og draga
upp sannfærandi og flókna mynd
af manninum án þess að misstíga
sig nokkurn tíma.
Sú mannlýsing sem dregin er
upp í Boxaranum er af breysk-
um manni, manni sem fer á bak
við fjölskyldu sína og svíkur bæði
eigin konu sína og ástkonur á
margvís lega vegu. Fjölskyldu sagan
sem þessi bók og Farandskuggar,
bókin um móðurina, teikna upp er
vissulega nöturleg, óhamingjusamt
hjónaband, drykkja, framhjáhald
og afleiðingarnar sem oft koma í
ljós löngu síðar, yfirgefin börn sem
kynnast hálfsystkinum sínum á
fullorðinsárum, allt myndar þetta
átakanlega sögu en þó eru fáar
íslenskar fjölskyldur sem ekki
myndu þekkja einhverja drætti
hennar í sinni eigin.
Sjálfsævisögulegar skáldsögur
eru áberandi í bókmenntum sam-
tímans, bæði hér á landi og erlend-
is. Sögur Úlfars eru sjálfstætt og
frumlegt framlag til þeirrar bók-
menntahreyfingar. Þegar líður á
bókina og sögumaður fullorðnast
verður lýsingin mildari og örlar á
sátt við föðurinn þótt sársaukinn
skíni líka í gegn. Í seinni hlutan-
um verður sögumaður sjálfur líka
meira áberandi, hann ber sjálfan
sig saman við föðurinn, finnur lík-
indi en lýsir því líka hvernig hann
velur aðrar leiðir í lífinu.
Einlægni er vandmeðfar-
in í skáldskap og það eru mikl-
ar og sárar tilfinningar líka.
Við lestur Boxarans komu mér
oftar en einu sinni í hug orð Sig-
fúsar Daða sonar: „Bein túlkun
sannrar reynslu, það er nútíma-
skáldskapur, það er þetta lítt
tempraða óp.“ Af einhverjum
ástæðum finnast mér þau lýsa
þessari bók Úlfars fullkomlega.
Jón Yngvi Jóhannsson
NIÐURSTAÐA: Glæsileg úrvinnsla
á vandmeðförnu efni.
Bréf til föðurins
Smásagnasafn
eftir Raymond
Carver, sem ég
fékk að láni á
Borgarbóka-
safninu í mars
árið 2000 (ég
man þetta svona
nákvæmlega
vegna þess að
Eyja dóttir mín
fæddist þann
28.) setti mikið
mark á mig. Þetta er stórt og
flott safnrit, Where I‘m Calling
from, sem ég hef svo eiginlega
verið á höttunum eftir síðan, því
ekki kunni ég við að stela bókinni
af safninu. Fann það loksins í eft-
irlætisbókabúðinni minni í Lond-
on, John Sandoe, síðasta vor.
Safnið tók Carver saman sjálf-
ur og skrifaði formála. Sögurnar
eru frá öllum höfundarferli hans.
Þær eru algerlega stórkostlegar
margar en What‘s in Alaska? er í
sérstöku uppáhaldi. Þetta er saga
sem ég hugsa oft um, ef mikið
liggur við. Þá velti ég þessari
spurningu fyrir mér.
Stundum er ákveðin hætta á
því að „taka of stóran skammt“
af höfundi – ég á það til ef ég
hrífst af höfundi að rífa kannski
í mig margar bækur í röð – og fá
svo kannski bara yfir mig nóg.
En þetta safn er einhvern veginn
fullkomið: Það bara vinnur mann
á sitt band með miklum þunga. Og
maður verður ekki samur á eftir!
Smásagnasafn
Raymond Carver
BÓKIN SEM
BREYTTI LÍFI MÍNU
Guðrún Vilmundardóttir
útgáfustjóri
Reykjavíkurborg ı 411 1111 ı www.reykjavik.is/fer
Re
yk
ja
ví
ku
rb
or
g
2
3.
n
óv
em
b
er
2
01
2
/
JH
J
Í Kafteinn Ofurbrók
og tiktúrurnar í
Tappa Teygjubrók
eiga Georg og
Haraldur í höggi
við alls konar
illþýði og helstu
hrekkjusvín bæjarins.
Þetta kallar á tíma-
flakk, hugvitssemi
– og heilmikla
raksápu!
BESTU BROTIN
ÚR ÞÁTTUM
BYLGJUNNAR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag