Fréttablaðið - 24.11.2012, Qupperneq 118
24. nóvember 2012 LAUGARDAGUR86
FÓTBOLTI Rafael Benitez, fyrrverandi
stjóri Liverpool, er kominn aftur í
enska boltann en hann var á fimmtu-
dagskvöldið ráðinn knattspyrnu-
stjóri Chelsea. Hans hlutverk verður
að rétta af bláu skútuna hans Roman
Abramovich en Chelsea hefur ekki
unnið leik í ensku úrvalsdeildinni
síðan 20. október og er við það að falla
úr leik í Meistaradeild Evrópu.
Hinn moldríki Abramovich er ekki
þekktur fyrir að sýna knattspyrnu-
stjórum sínum þolinmæði en Benitez
mun þó starfa undir þeim formerkjum
að ráðningin sé aðeins tímabundin.
Samningurinn sem hann undir ritaði
gildir aðeins til loka tímabilsins.
Benitez var staddur á ráðstefnu
í Abu Dhabi þegar að Roberto Di
Matteo var rekinn að næturlagi –
nokkrum klukkutímum eftir að Chel-
sea tapaði fyrir Juventus á þriðju-
dagskvöldið. Næstu nótt flaug Benitez
til Englands og sat strax á fimmtu-
dagskvöldið fyrir svörum blaða-
manna sem nýr stjóri Chelsea.
Verkefni hans verður ærið. Fregn-
ir hafa borist af því að stuðnings-
menn Chelsea séu allt annað en sátt-
ir við þennan ráðahag og því þarf
Benitez að byrja vel. Fyrsti leikur-
inn er ekki af auðveldara taginu en
hann fær á morgun Englandsmeist-
ara Manchester City í heimsókn. City
er þar að auki á toppi deildarinnar
og eina taplausa liðið í öllum fjórum
atvinnumannadeildum Englands.
„Stuðningsmennirnir vilja stjóra
sem getur unnið titla. Og við eigum
það sameiginlegt að öll viljum við
vinna hvern einasta leik,“ sagði hinn
52 ára gamli Benitez, óhræddur við
verkefnin sem er fram undan. Nú
þegar er Chelsea fjórum stigum á
eftir City og má liðið helst ekki við
því að bilið aukist enn frekar.
Því er ekki að neita að Benitez hefur
náð árangri. Hann varð spænskur
meistari tvisvar, enskur bikar meistari
og vann þar að auki bæði Meistara-
deild Evrópu og UEFA-bikarinn sál-
uga. Flestir komu á árunum 2000
til 2005 og því kannski margir sem
spyrja hvort hann hafi enn það sem
til þurfi. Hann fær tækifæri nú til að
sýna það og sanna. eirikur@frettabladid.is
Byrjað á meistaraslag
Evrópumeistarar Chelsea taka á móti Englandsmeisturum Manchester City í
toppslag ensku úrvalsdeildarinnar á morgun. Augu fl estra munu beinast að
Rafael Benitez, sem var á fi mmtudaginn ráðinn stjóri fyrrnefnda liðsins.
LAUGARDAGUR
12.45 Sunderl. - West Brom
Sport 2 & HD
15.00 Man. United - QPR
Sport 2 & HD
Everton - Norwich
Sport 3
Stoke - Fulham
Sport 4
Wigan - Reading
Sport 5
17.30 Aston Villa - Arsenal
Sport 2 & HD
SUNNUDAGUR
13.30 Swansea - Liverpool
Sport 2 & HD
15.00 South. - Newcastle
Sport 4
16.00 Chelsea - Man. City
Sport 2 & HD
Tottenh. - West Ham
Sport 3
➜ Leikir
helgarinnar
Fjórir þjálfarar hafa tekið við Chelsea á miðju tímabili. Þar af var einn þeirra við
völd í aðeins einn leik. Chelsea hefur unnið sinn fyrsta leik í síðustu þrjú skipti
sem nýr maður hefur tekið við á miðju tímabili.
KOMINN Í BLÁTT Rafael Benitez er tekinn við stjórn Evrópumeistara Chelsea. Það er staðreynd. NORDICPHOTOS/GETTY
Fyrsti leikur Roberto Di Matteo
1-0 sigur á Stoke City (10. mars 2012)
Stig í fyrstu 5 deildarleikjum: 10 stig
Fyrsti leikur Guus Hiddink
1-0 sigur á Aston Villa (21. febrúar 2009)
Stig í fyrstu 5 deildarleikjum: 12 stig
Eini leikur Ray Wilkins
3-1 sigur á Watford í enska bikarnum (14. febrúar 2009)
Guus Hiddink tók síðan við liðinu.
Fyrsti leikur Avram Grant
0-2 tap fyrir Manchester United (23. september 2007)
Stig í fyrstu 5 deildarleikjum: 10 stig
Áhrif breytinga á lið Chelsea
Margbrotinn og
breyskur faðir,
misindismenn,
sérstæðar konur
og launbörn.
„Það er ekkert
annað hægt
en að hrósa
þessari bók.“
Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni
„Mjög skemmtileg
aflestrar, vel skrifuð.“
Sigurður G. Valgeirsson,
Kiljunni
„Harla gott ...
Merkilegt verk
og upplýsandi umíslenska menningu.“
ÁRMANN JAKOBSSON,PRÓFESSOR Í ÍSLENSKU
„Boxarinn e
r sú
sem hefur h
eillað
mig hvað m
est."
ÞÓRDÍS G
ÍSLADÓTT
IR,
DRUSLUB
ÆKUR OG
DOÐRANT
AR
1. prentun
uppseld
2. prentun
væntanleg
D
YN
A
M
O
R
EY
KJ
A
V
ÍK
FÓTBOLTI Allar líkur eru á því að
Jón Daði Böðvarsson, efnilegasti
leikmaður Pepsi-deildar karla í
sumar, sé á leið til norska úrvals-
deildarfélagsins Viking í Staf-
angri. Jón Daði leikur með Selfossi
en félagið samþykkti í gær tilboð
Viking í kappann.
Jón Daði á sjálfur eftir að semja
um kaup og kjör og býst við því
að viðræður hefjist eftir helgi.
Hann æfði með liðinu til reynslu
fyrr í haust og leist vel á. „Aðstæð-
ur voru mjög flottar og þetta er
klúbbur með mikinn metnað, sem
ég er ánægður með. Þeir eru virki-
lega áhugasamir um að fá mig og
er alltaf gott að vita af slíku,“
sagði Jón Daði við Fréttablaðið í
gær.
Jón Daði var fyrr í haust einn-
ig á reynslu hjá Silkeborg í Dan-
mörku og Djurgården í Svíþjóð.
- esá
Flott félag með mikinn metnað
Selfoss hefur samþykkt tilboð norska liðsins Viking í Jón Daða Böðvarsson.
JÓN DAÐI Er líklega á leið í norska
boltann. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SPORT .