Fréttablaðið - 22.12.2012, Side 118
22. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 94
Halla Bára Gestsdóttir
Gunnar Sverrisson
www.homeanddelicious.com
1. Rauðbeðusalat með timían og
geitaosti
Rauðrófa, skorin í teninga
Smjörklípa
Salt og pipar
Hunang, agave-síróp eða hlynsíróp
Balsamikedik
Ferskt timían, um 4 greinar
Geitaostur
Gróft rúgbrauð
Bræðið smjör á pönnu og steikið rauðbeðu-
teningana á vægum hita þar til þeir eru
mjúkir í gegn. Dreypið örlítilli sætu yfir í
formi síróps eða hunangs. Saltið aðeins og
piprið. Dreypið balsamikediki yfir og látið
karamellíserast. Rífið blöðin af timían-
greinunum og hrærið saman við blönduna.
Smyrjið brauðsneiðar með góðu lagi af
geitaosti. Setjið rauðbeðusalat yfir, nokkra
balsamikediksdropa og timían til skrauts.
Berið fram.
*Hægt er að nota ýmislegt brauð í snitt-
urnar. Gróft kornbrauð, rúgbrauð eða grilla
bagettusneiðar og dreypa olíu yfir.
2. Kartöflukökur með reyktum laxi og
piparrótarsósu
Kartöflukökur:
2 stórar kartöflur, rifnar gróft niður
2 msk. brætt smjör
2 msk. hveiti
Sósa:
Reyktur lax eða silungur, skorinn í þunnar
sneiðar
3 msk. sýrður rjómi
Örlítið af rifinni piparrót*
Skvetta af hvítvínsediki
Salt og svartur pipar
Klettasalat eða annað gott salat
1 msk. ólífuolía
1 msk. sítrónusafi
Salt og pipar
Blandið saman rifnum kartöflum, smjöri
og hveiti. Búið til kökur úr deiginu, stærðin
verður að fara eftir því hvort nota á réttinn
sem smárétt eða forrétt. Sáldrið örlitlu af
hveiti yfir kökurnar áður þær eru steiktar í
olíu á pönnu þar til gullnar og mjúkar í gegn.
Hrærið saman sýrðan rjóma, piparrót, hvít-
vínsedik, salt og pipar í sósuna. Ekki spara
piparrótina, gott að hún taki smá í.
Hrærið saman ólífuolíu, sítrónusafa,
smakkið til með salti og pipar og blandið
saman við salatið.**
Leggið kartöflukökurnar á disk, salat yfir, þá
lax og sósu. Skreytið með smátt skornum
tómatbáti, graslauk, smá basilíkublaði eða
einhverju öðru fallegu. Berið fram.
*Ef ekki fæst piparrót má nota pipar-
rótarmauk en einnig gengur að setja smátt
saxaðan vorlauk eða graslauk út í sýrða
rjómann.
**Magn olíu og sítrónusafa verður algjörlega
að fara eftir því hversu mikið salat er notað.
Það þarf mjög lítið á salatið.
3. Míní-skonsa með ostasalati og
perum
Skonsa:
125 g hveiti
2 egg
1 1/3 dl mjólk
2 msk. fersk steinselja, söxuð
2 tsk. fersk salvía, timían eða basilíka, saxað
Salat:
75 g rjómaostur
1 tsk. hlynsíróp, agave-síróp eða gott hunang
50 g Kastali eða annar svipaður ostur, skorinn í
litla teninga
50 g Búri, Havarti, Piparostur, Gráðaostur eða
annar í uppáhaldi, skorinn í litla teninga*
30 g valhnetur eða pekanhnetur, ristaðar og
saxaðar
1 pera, helmingurinn skorinn í litla teninga,
hinn í þykkar sneiðar sem aftur eru skornar
þvert**
Beikonsneiðar, skornar í 4 cm lengjur
Hrærið saman mjólk og eggjum, blandið
hveiti saman við og þá kryddjurtum.
Hnoðið þar til mjúkt en ekki of mikið svo
deigið verði ekki stíft. Hitið olíu á pönnu
eða spreyið pönnuna með olíuspreyi. Takið
örlítið af deigi og veltið milli fingra ykkar
þannig að úr myndist lítil og flöt kúla. Setjið
á meðalheita pönnuna og fletjið meira út
svo kakan verði um 5 mm á þykkt. Steikið
á báðum hliðum þar til kakan er gullin og
bökuð í gegn. Hér getið þið leikið ykkur með
stærð kökunnar eftir því hvort um smárétt
eða stærri rétt er að ræða.
Steikið beikon á þurri pönnu þar til stökkt.
Hrærið varlega saman rjómaost og sýróp.
Blandið ostateningum, hnetum og peru-
bitum saman við.
Setjið skonsu á disk, hráskinkulengju og
ostasalat yfir. Skreytið með perubitum og
einhverju grænu, t.d. smá steinselju. Berið
fram.
*Það má nota hvaða ost sem er í þetta salat,
eina tegund, margar, afganga úr ísskápnum.
**Þótt hér sé notuð pera er einnig gott að
nota lítil og steinlaus vínber.
Í SMÁU
FORMI
UM JÓLIN
Smáréttir og snittur eru réttir sem
alltaf er gott að fá uppskrift ir að.
Þeir njóta vinsælda í stærri sem
minni boðum, bæði sem munnbitar
með fordrykk og litlir réttir í stand-
andi boð. Hér eru þrjár snittur þar
sem hráefnið hæfi r árstímanum
og þær standa einnig fyllilega fyrir
sínu sem góður forréttur. Fallegir
og jólalegir réttir sem ekki taka of
mikinn tíma en skreyta sannarlega
veisluborðið með útliti sínu. Bestu
jólakveðjur frá Home and Delicious.
➜ þrjár snittur þar
sem hráefnið hæfi r árs-
tímanum og þær standa
einnig fyllilega fyrir sínu
sem góður forréttur.