Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.12.2012, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 28.12.2012, Qupperneq 6
28. desember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 FJARSKIPTI Á þeim tólf árum sem Jöfnunarsjóður alþjónustu hefur verið starfræktur hafa safnast í hann 75 milljónir króna í gjöld frá fjarskiptafyrirtækjum umfram arð sem sjóðurinn hefur úthlutað. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar. Öll fjarskiptafyrirtæki greiða í sjóðinn sem nemur 0,1 prósenti af veltu, en úr honum er veitt til að jafna kostnað vegna alþjónustu- kvaða. Með alþjónustu er átt við þjónustu sem skal standa lands- mönnum til boða óháð búsetu. Til dæmis felst í því almenn talsíma- þjónusta, gagnaflutningsþjónusta, aðgangur að símaskrá og fleira. Þau fyrirtæki sem veita alþjónustu í fjarskiptaþjónustu, Síminn, Já, Míla og Neyðarlínan, geta svo sótt um framlag úr sjóðnum til að standa straum af kostnaði við alþjónustu. Hingað til hafa fyrirtæki greitt tæpar 573 milljónir króna í sjóð- inn, og auk þess lagði ríkið honum til tíu milljónir. Úthlutanir hafa hins vegar numið tæpum 498 millj- ónum og safnast því fjármunir í sjóðinn. Póst- og fjarskiptastofnun segir það ekki hlutverk sjóðsins að mynda inneign með þessum hætti, en leggur þó ekki til að gjald í sjóð- inn verði lækkað, þar eð enn hafi ekki verið gert upp dómsmál milli sjóðsins og Símans og á meðan sé staða hans ekki að fullu skýr. - þj milljónir hafa safnast í Jöfnunar- sjóð alþjónustu síðustu 12 ár. 75 STJÓRNSÝSLA Stjórnvöld brjóta samkomulag sem gert var við undir ritun kjara samninga með því að lækka tryggingagjald aðeins um 0,1 pró sentu stig um áramótin að mati Samtaka at- vinnulífsins (SA). Með því að lækka gjaldið minna en efni standa til eru stjórnvöld að skattleggja íslensk fyrirtæki um sex milljarða króna aukalega á komandi ári, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. „Stjórnvöld ákváðu að þau þyrftu ekki að efna það sem um var talað og að þau gætu notað tryggingagjaldið til að standa undir auknum útgjöldum ríkis- ins,“ segir Vilhjálmur. Tryggingagjaldið rennur í Atvinnuleysistryggingasjóð, og var hækkað til að standa straum af kostnaði við aukið atvinnuleysi eftir hrunið. Vilhjálmur segir atvinnurekendur hafa haft skiln- ing á því að gjaldið hafi þurft að hækka, en það hafi verið gert með þeim formerkjum að það myndi lækka þegar aftur færi að draga úr atvinnuleysi. SA reiknuðu með 0,75 prósentu- stiga lækkun á trygginga gjaldinu um áramótin. Lækkunin átti að standa undir umsaminni 3,25 prósenta launahækkun í byrjun febrúar. Vilhjálmur segir alveg ljóst að launahækkun umfram getu launagreiðenda muni hækka verð- bólgu í landinu. Þá muni fyrir tækin hafa minna svigrúm til að ráða nýja starfsmenn. Tryggingagjald að meðtöldu markaðsgjaldi og gjaldi í Ábyrgðasjóð launa verður 7,69 pró- sent á næsta ári, en er 7,79 prósent á árinu sem nú er að líða. Ekki náðist í Katrínu Júlíusdóttur fjármálaráðherra við vinnslu frétt- arinnar. - bj SA segja stjórnvöld brjóta samkomulag með því að lækka tryggingagjald aðeins um 0,1 prósentustig: Taka sex milljarða úr vasa launagreiðenda 1. Í hvaða landi var lengsta háhraða- lest heims nýlega tekin í notkun? 2. Hver er fangelsismálastjóri? 3. Markamet hvers sló Alfreð Finn- bogason fyrir skömmu? SVÖR: www.sinfonia.is » Sími: 528 5050 Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur áheyrnarprufur fyrir einsöngvara laugardaginn 23. febrúar 2013. Valið verður í áheyrnarprufur út frá hljóðritum þátttakenda og er áhugasömum bent á að senda inn upptökur með söng sínum fyrir mánudaginn 28. janúar 2013 til: Sinfóníuhljómsveitar Íslands Hörpu, Austurbakka 2 101 Reykjavík Merkt: Einsöngur Nánari upplýsingar: Arna Kristín Einarsdóttir tónleikastjóri 545 2506 / arna@sinfonia.is. LÆKNASTOFA Hef hætt störfum á Læknastöð Vesturbæjar Aðrir læknar stöðvarinnar munu sinna mínum skjólstæðingum Starfa áfram á Barnaspítala Hringsins Herbert Eiríksson læknir Sérfræðingur í barnalækningum, hjartasjúkdómum barna og nýburalækningum 7,69% tryggingagjald er greitt af heildarlaunum allra launa- manna. STJÓRNMÁL Um áramótin tekur gildi lagabreyting hjá Samfylk- ingarfélaginu í Reykjavík (SFFR) um að aðeins þeir sem greitt hafa félagsgjald verði fullgildir félagar. Þeir sem ekki greiða félagsgjöldin fyrir áramót fá því ekki að kjósa um formann Samfylkingarinnar í janúar. „Okkur finnst að það eigi að vera fólk sem er sannarlega Sam- fylkingarfólk sem hefur áhrif á hverjir eru fulltrúar okkar á þingi og í sveitarstjórnum, að ég tali nú ekki um hver er formaður flokks- ins,“ segir Anna María Jónsdóttir, formaður Samfylkingarfélagsins. Lagabreyting þess efnis var samþykkt á aðalfundi félagsins fyrir tveimur árum, en SFFR er eina Samfylkingarfélagið sem hefur þennan háttinn á. Kjartan Valgarðsson var for- maður félagsins þegar breytingin var samþykkt. „Það var og er skoðun meirihluta þeirra sem eru í Samfylkingarfélaginu í Reykjavík að það eigi að fara saman réttindi og skyldur að þessu leyti, eins og í öðrum frjálsum félagasam tökum á Íslandi.“ Anna María tekur undir þetta. „Við erum að setja fordæmi með því að gera greinarmun á stuðn- ingsmönnum og fullgildum fé- lögum. Flestum finnst það sjálf- sagt að skyldur fylgi réttindum og það kostar að halda úti stóru félagi.“ Hún segir að félögum hafi verið ljóst lengi að breytingin væri væntanleg. Alltaf hafi staðið til að gefa nýju lögunum aðlögunartíma og taka þau í gildi um áramótin. Þess vegna hafi reglurnar ekki gilt í prófkjöri flokksins í nóvember og Aðeins raunverulegt flokksfólk fái að kjósa Formaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík segir að aðeins fólk sem sannarlega er í flokknum eigi að fá að kjósa formann. Þeir sem greiða ekki félagsgjald fá ekki að kjósa í formannskjöri. Var samþykkt fyrir tveimur árum en tekur gildi nú. FLOKKSFORYSTAN Ekkert Samfylkingarfélag gerði kröfu um að félagar hefðu greitt félagsgjöld til að fá að kjósa formann árið 2009. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Margrét S. Björnsdóttir, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, segir fyrirkomulagið einsdæmi; ekkert annað félag viðhafi sömu reglur. „Ég er mjög ósammála þessari ákvörðun stjórnar félagsins og vona að hún endurskoði hana.“ Hún segir að félagar í SFFR geti gengið í önnur Samfylkingarfélög í Reykjavík þar sem félagsgjöldin eru valkvæð. Margrét segir ákvörðunina ekki í samræmi við þær hefðir sem gildi í flokknum, þó félaginu sé í sjálfs- vald sett að hafa fyrirkomulagið á þennan máta. „Ég mundi gjarnan vilja beita mér fyrir því sem formaður framkvæmdastjórnar að við fyndum einhverja lausn á þessu sem allir væru sáttir við.“ Ekki í samræmi við hefðir MARGRÉT S. BJÖRNSDÓTTIR ef formannskjörið hefði farið fram fyrir áramót hefðu reglurnar ekki verið komnar í gildi. Anna segir aðeins þrjár kvart- anir hafa borist vegna málsins og sex sagt sig úr félaginu, sem sé eðlilegt. Þá segir hún ákvörðunina ekki snúast um gjald til flokksins vegna landsfundarfulltrúa; greitt verði samkvæmt félagaskránni 1. janúar 2012. kolbeinn@frettabladid.is 1. Í Kína 2. Páll Winkel 3. Péturs Péturssonar Úthlutanir vegna alþjónustu mun minni en framlög fjarskiptafyrirtækjanna: Sjóður safnar milljónatugum Í SÍMANUM Jöfnunarsjóður sem jafnar meðal annars kostnað við að veita talsímaþjónustu um land allt, er rekinn með ágóða og hafa safnast í hann tugir milljóna á tólf árum. QI Stephen Fry fer á kostum í skemmtilegum þáttum BBC ENTERTAINMENT ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS VEISTU SVARIÐ?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.