Fréttablaðið - 28.12.2012, Qupperneq 20
| 2 28. desember 2012 | miðvikudagur
Í kjöri dómnefndar á viðskipta-
manni ársins fékk Kári Stefáns-
son, forstjóri Íslenskrar erfða-
greiningar, næstflest atkvæði.
Í rökstuðningi með atkvæðum
Kára var vísað til kaupa banda-
ríska lyfjafyrirtækisins Amgen
á Íslenskri erfðagreiningu sem
tilkynnt var um fyrr í þessum
mánuði. Voru kaupin raunar
einnig valin viðskipti ársins og
er nánari umfjöllun um þau að
finna í grein um viðskipti ársins
2012 í blaðinu. Um Kára sögðu
hins vegar viðmælendur Frétta-
blaðsins meðal annars: „Náði að
selja fyrirtæki sem hefur aldrei
grætt krónu, farið í bandarískt
gjaldþrot og er ábyrgt fyrir ein-
hverjum þeim mesta viðskipta-
farsa sem átt hefur sér stað á Ís-
landi með tilheyrandi viðskiptum
á gráum markaði, ríkisábyrgð og
ætluðum gagnagrunni.“
Í þriðja sæti í kjörinu var
Janne Sigurðsson, forstjóri
Alcoa Fjarðaáls. Hún tók við
forstjóra starfinu í upphafi
síðasta árs þegar Tómas Már
Sigurðsson, forveri hennar, var
ráðinn forstjóri Alcoa í Evrópu.
Janne stýrir stærsta álverinu
hér á landi og þar með einu al-
stærsta fyrirtæki landsins.
Hlaut hún nýverið hin svo-
kölluðu Stevie-gullverðlaun
sem veitt eru forstjóra ársins
í hópi kvenna í atvinnurekstri
í Evrópu, Mið-Austurlöndum
og Afríku. Voru Janne veitt
verðlaunin fyrir þátttöku sína
í uppbyggingu og rekstri ál-
vers Alcoa við Reyðarfjörð,
en hún var upphaflega ráðin
til álversins árið 2006. Kom
meðal annars fram í rökstuðn-
ingi dómnefndar að hún hefði
náð miklum árangri í að auka
starfsánægju í fyrirtækinu en
samkvæmt könnunum hefur
hún aukist um tæplega þriðj-
ung á tveimur árum.
Kári Stefánsson og Janne Sigurðsson
KÁRI STEFÁNSSON JANNE SIGURÐSSON
OF MONSTERS AND MEN
„Ótrúlegt klifur upp á alþjóðlegan
stjörnuhimin. Frábær landkynning“
og „Stefgjöld, tónleikahald og best
á Amazon“.
LIV BERGÞÓRSDÓTTIR,
FRAMKVÆMDASTJÓRI NOVA
„Handhafi markaðsverðlauna
ÍMARK og fyrirtækið sýndi góða
afkomu á árinu.“
HILMAR VEIGAR PÉTURSSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI CCP
„Náðu 450.000 þúsund
áskrifendum í kjölfar útgáfunnar á
EVE Online Retribution.“
GEORG LÚÐVÍKSSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI MENIGA
„Fyrir skjótan og góðan árangur
lausna fyrirtækisins meðal
evrópskra bankastofnana“ og
„Fyrirtækið er orðið leiðandi í
Evrópu á sínu sviði“.
ÞÓRÐUR MAGNÚSSON,
STJÓRNARFORMAÐUR EYRIS
„Hefur stutt dyggilega við bakið á
sprotaumhverfinu á Íslandi.“
RANNVEIG RIST, FORSTJÓRI
ALCAN „Stýrir fleyinu gegnum
kreppu og mótbyr.“
BALTASAR KORMÁKUR
LEIKSTJÓRI „Frábær
árangur í frumraun sinni á
Bandaríkjamarkaði, sem hefur leitt
til fleiri verkefna á þeim vettvangi.“
SKÚLI MOGENSEN FJÁRFESTIR
„Títan, félag Skúla, hefur verið
virkt í mörgum fjárfestingum.
Sumar hafa verið býsna áræðnar
á meðan aðrir fjárfestar hafa verið
áhættufælnir. Fjárfestingar hans í
grónari félögum eins og Skýrr og
Securitas hafa aftur á móti ekki
farið hátt en skapað mótvægi við
áhættuna.“
AÐRIR NEFNDIRVIÐTAL/VIÐSKIPTAMAÐUR ÁRSINS
Magnús Þorlákur Lúðvíksson
magnusl@frettabladid.is
Dómnefnd Markaðarins valdi
Björgólf Jóhannsson, forstjóra
Icelandair Group, viðskiptamann
ársins 2012. Árið var enda við-
burðaríkt hjá félaginu. Það opn-
aði hótel við höfnina í Reykjavík
og stækkaði hótel sitt á Akureyri.
Hryggjarstykki félagsins, Ice-
landair, jók verulega sætafram-
boð og hefur flutt tvær milljónir
farþega á árinu sem er met. Þá
gekk félagið frá kaupum á tólf
flugvélum frá Boeing í nóvember.
„Fyrst og síðast lít ég á þetta
sem viðurkenningu fyrir starfs-
fólkið, öflugan hóp eigenda félags-
ins og svo þá samstilltu stjórn sem
starfar með mér,“ segir Björg-
ólfur um útnefninguna og heldur
áfram: „Þegar svona viðurkenn-
ing kemur þá finnur maður auð-
vitað líka fyrir smá stolti en ég
legg áherslu á að þó mitt nafn sé
tengt verðlaununum þá eru þetta
aðallega verðlaun starfsfólksins.“
Björgólfur segir að umsvif
félagsins á árinu séu til marks um
það að félagið sé í sóknarhug. „Við
höfum haft skýra vaxtarstefnu frá
hruni þegar við lentum í hremm-
ingum sem félagið var í raun ekki
nægilega vel búið undir. Snemma
árs 2009 var ákveðið að við mynd-
um framvegis leggja áherslu á
að vaxa með ferðamannastraumi
til og frá Íslandi en þar með var
horfið frá þeirri stefnu að vaxa
með yfirtöku á félögum. Þetta
hefur gengið eftir og við höfum
vaxið hratt síðan þótt ýmislegt
hafi gengið á innanlands. Og við
viljum áfram grípa þau tækifæri
sem við sjáum til vaxtar, hvort
sem þau er að finna í leiðakerfinu,
í hóteluppbyggingu eða vöruflutn-
ingum. En vitaskuld þurfum við
að stíga varlega til jarðar og vega
og meta þá kosti sem eru í boði.“
Björgólfur segir að á næstu
misserum standi til að styrkja
áfram leiðakerfi Icelandair.
Þannig hafi verið tilkynnt um þrjá
nýja áfangastaði, St. Pétursborg,
Anchorage og Zürich, sem flogið
verður til árið 2013 og þá verður
tíðni á aðra áfangastaði aukin.
Reksturinn gengið vel
Samhliða uppbyggingu hefur
rekstur Icelandair Group gengið
eins og í sögu síðustu misseri. Til
marks um það hefur hlutabréfa-
Björgólfur er viðskiptamaður ársins
Árið 2012 var viðburðaríkt hjá Icelandair Group sem keypti flugvélar, opnaði hótel og jók sætaframboð á meðan
reksturinn gekk vel. Björgólfur Jóhannsson forstjóri var valinn viðskiptamaður ársins af dómnefnd Markaðarins.
BJÖRGÓLFUR JÓHANNSSON Björgólfur tók við starfi forstjóra Icelandair Group í byrjun árs 2008 eftir langan feril í íslenskum sjávarútvegi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ELDGOSIÐ Í EYJAFJALLAJÖKLI EFTIRMINNILEGT
Björgólfur tók við starfi forstjóra Icelandair Group í byrjun árs 2008 eftir langan feril í sjávarútvegi. Hvernig var að taka
skyndilega við fyrirtæki í flugrekstri og ferðaþjónustu? „Ég hafði allt mitt líf verið í kringum sjávarútveg. Ég var alinn
upp af sjómönnum, lærði svo endurskoðun en starfaði fyrir sjávarútveginn í raun alveg þar til ég kom hingað. Þetta
voru því vissulega viðbrigði. Þegar öllu er á botninn hvolft er rekstur þó alltaf rekstur þótt flugrekstur sé að mörgu leyti
tæknilegur. Þú byrjar á því að finna mælikvarða og reynir síðan að ná árangri. Það gerir maður fyrst og síðast með
því að vera öruggur um að starfsemin sé skilvirk og starfsfólkið hæft og það á svo sannarlega við hér. Það var mikill
styrkur að koma til félagsins blautur á bak við eyrun og finna strax að starfsemin var öflug og starfsfólkinu treystandi.“
Í janúar verða fimm ár liðin frá því að Björgólfur hóf störf hjá Icelandair Group. Hann segir að þessi tími hafi liðið
mjög hratt. „Það er ýmislegt sem stendur upp úr. Til að mynda var ástandið hér auðvitað hroðalegt fyrst eftir hrun
þegar við vorum í raun að róa lífróður. Það er mér eftirminnilegt hvað okkur tókst að halda starfseminni öflugri þrátt
fyrir það. Við skipuðum hóp sem vann að fjármögnunarmálum félagsins á meðan aðrir einbeittu sér einfaldlega að
rekstrinum með góðum árangri því strax árið 2009 áttum við þokkalegt ár og svo var 2010 mjög gott,“ segir Björgólfur
og bætir við: „Síðan stendur að ákveðnu leyti upp úr þessi ógn sem steðjaði að okkur meðan á eldgosinu í Eyjafjalla-
jökli stóð. Það að upplifa annars vegar umkomuleysið þegar náttúran fer af stað og hins vegar kraftinn hér innanhúss
var magnað. Við litum svo á að það að sitja og bíða væri ekki valkostur og leituðum því allra leiða til að láta rekstur-
inn ganga. Og við vorum með farþega fljúgandi yfir hafið allan þennan tíma á meðan önnur flugfélög sátu kyrr.“
verð félagsins hækkað um ríf-
lega 60% á þessu ári og hagnaður
aukist um upp undir 40% á fyrstu
þremur ársfjórðungum ársins.
Björgólfur segir reksturinn
hafa gengið þokkalega þótt það sé
alltaf svo í samstæðu sem þess-
ari að ekki gangi allt upp í einu.
„Þegar vel gengur þurfa menn líka
oft að staldra við. Þá getur mynd-
ast fita og því legg ég áherslu á
að leiða sé sífellt leitað til að efla
félagið og lækka kostnað. Það er
ákveðinn lykill að árangri því við
vitum að ytri aðstæður; olíuverð
eða einhvers konar hremmingar,
geta alltaf komið illa við okkur.“
Icelandair gerði nýverið samn-
ing um kaup á tólf nýjum flug-
vélum. Björgólfur segir kaupin
hafa mikla þýðingu fyrir félagið
og til standi að nota vélarnar
til að efla leiðakerfið. „ Þessar
vélar á að taka í notkun árið
2018. Það eru að vísu nokkur
ár í það en þarna er þó komin
ákveðin stefnumörkun fyrir fé-
lagið. Nýju vélarnar eru smærri
og spar neytnari en þær sem við
höfum nú. Við munum því getað
aukið tíðni og flogið á nýja staði
þar sem eldri vélarnar henta ekki.
Þessar vélar eru því viss lykill að
áframhaldandi vexti.“
Ferðaþjónustustefnu skortir
Vöxtur Icelandair Group undan-
farið hefur að mestu beinst að
uppbyggingu á ferðaþjónustu hér
á landi. Björgólfur segir stærstu
sóknarfæri næstu ára felast í að
fjölga ferðamönnum að vetri til.
„Ég held að það skorti tölu-
vert upp á stefnumótun fyrir ís-
lenska ferðaþjónustu. Stundum
er sagt að við viljum ná milljón
ferða mönnum árið 2020 og að við
þurfum að ná meiri verðmætum
út úr hverjum og einum. Gott og
vel, en það þarf að fara varlega.
Við þurfum til dæmis að tryggja
að ferðamannastaðirnir ráði við
aukinn fjölda. Þá er mjög flókið
að markaðssetja Ísland gagnvart
hærra borgandi ferða mönnum.
Því tel ég til dæmis að við þurfum
í meiri mæli að sjá til að þeir borgi
sem njóta. Það þarf að nálgast
ferðaþjónustuna með sjálfbærri
hugsun þannig að náttúran verði
fær um að taka á móti gestum
eftir hundrað ár og það verður
hún ekki ef við göngum sífellt
á landið. Með því að selja ferða-
mönnum aðgang að náttúruperl-
unum, sem er að mínu viti mjög
gerlegt, fæst fjármagn til upp-
byggingar og þar með geta stað-
irnir betur þolað áganginn.“
2. OG 3. SÆTI
Póstdreifing | Suðurhraun 1 | 210 Garðabær | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is
365 miðlar treysta okkur fyrir
öruggri dreifingu á Fréttablaðinu
Við flytjum þér góðar fréttir