Fréttablaðið - 28.12.2012, Side 62
28. desember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 34
gullaldarinnar
á Kringlukránni
28. og 29. desember
og á þrettándagleði Kringlu-
krárinnar 4. og 5. janúar
með Gunnari Þórðarsyni
úr Hljómum, Ásgeiri Óskarssyni Stuðmanni,
Jóni Ólafssyni úr Pelican og
Óttari Felix úr Pops.
Tónlist sjötta og sjöunda
áratugarins. Rætur rokksins.
Stanslaust stuð.
Gullkistan
i
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
HUMAR
Smár Humar. Tilvalinn í súpuna,
salatið, einnig góður til pönnusteikingar.
Lausfrystur 1 kg í poka.
Skelflettur humar
Humar án skeljar.
Fullhreinsaður, lausfrystur og flottur,
tilbúinn í hvað sem er.
Humarsoð
100% soð af
humarskeljum.
Flott uppskrift á boxinu.
Ferskar
Hollenskar
ostrur
Stærð 24-30 HUMAR
Millistærð af humri.
Hentar vel að steikja á pönnu,
setja í ofninn eða á grillið.
Stærð 18-24
HUMAR
Stór humar.
Sá stærsti, góður í hvað sem er. Grillið,
pönnuna, ofninn. 1. flokks humar.
Stærð 7-12
ÁRAMÓTAHUMAR
Þessi raketta kostaði
6.500 kr. hún gefur ánægju
í um það bil 20 sek.
Ef þið kaupið flugelda endilega
styrkið Björgunarsveitirnar
eða íþróttafélögin
VERÐSAMANBURÐUR!
1 kg af úrvals Humarhölum
kostar 3.900 kr.kg.
Gefur ánægju fyrir 5-6 manneskjur
í c.a. 30-60 mínútur.
1 kg. dugir fyrir 2-3 manneskjur
í aðalrétt eða 5-6 í forrétt.
OPIÐ
Föstudag 7-18.30
Laugardag 10-18
Sunnudag 12-17
Gamlársdag 7-13
„Það er ekki á hverjum degi sem
forfeðurnir verða fimmtugir,“
segir Bjarni Sigurðsson, gítar-
leikari hljómsveitarinnar Stóns.
Bandið hefur undanfarin þrjú
ár spilað lög hetjanna í Rollings
Stones.
Í ár eru fimmtíu ár frá stofnun
Rollings Stones og í tilefni þess
heldur Stóns sérstaka afmælistón-
leika á Gauki á Stöng annað kvöld
klukkan ellefu. „Þetta verður
nærri þriggja tíma prógramm og
við spilum svona tæplega þrjátíu
lög. Ég held að engin sveit hafi
gefið út fleiri smáskífur og slag-
ara en Stones svo það er úr nógu
að velja,“ segir Bjarni.
Upphaf hljómsveitarinnar má
rekja til tónleikaferðar hljóm-
sveitarinnar Mínus. „Ég var með
Rolling Stones í „headphones“
í tónleikarútunni og Bjössi var
Saumaklúbbur sem spilar Stones
Stóns fagnar fi mmtíu ára afmæli Rolling Stones með þriggja tíma tónleikum.
Mick Jagger (Björn Stefánsson)
Keith Richards (Bjarni Sigurðsson)
Bill Wyman (Karl D. Lúðvíksson)
Nicky Hopkins/Ian Stewart (Birgir
Ísleifur Gunnarsson)
Charlie Watts (Frosti Runólfsson)
Rocky Dijon (Krummi)
Hljómsveitin Stóns
„Það er ofboðslega gaman að fá
svona tækifæri og lítast svona vel
á verkefnin sem um ræðir eins og
raunin er með þessi verkefni,“ segir
leikarinn Ólafur Darri Ólafsson.
Ólafur Darri fór með aðalhlut-
verk í mynd Baltasars Kormáks,
Djúpinu, nú fyrr á árinu og hefur
í kjölfarið verið uppgötvaður í
Hollywood. Nú liggja á borðinu hjá
honum tilboð í tvö stór verkefni
þar ytra. Annars vegar er hlut-
verk í bíómyndinni A Walk Among
the Tombstones, sem er leikstýrt
af Scott Frank og skartar Liam
Neeson í aðalhlutverki, og hins
vegar í nýjum sjónvarpsþáttum,
True Detectives, þar sem Woody
Harrelson og Matthew McConaug-
hey eru í broddi fylkingar.
„Þetta er auðvitað alveg frábært
lið. Mér finnst Neeson algjörlega
æðislegur og hefur fundist það
lengi. Ingvar [Sigurðsson] vann
með honum í K19 og sagði að þetta
væri frábær maður. Ég er búinn
að fylgjast með Woody Harrel-
son alveg síðan í Staupasteini og
finnst hann frábær leikari og svo
finnst mér McConaughey líka mjög
skemmtilegur,“ segir Ólafur Darri.
Bæði verkefnin eru í upptökum
á svipuðum tíma og því ekki útséð
um hvort hann nái að taka þau
bæði að sér þó hann segi það vera
drauminn. „Sem betur fer þarf ég
ekki að hafa áhyggjur af því heldur
liggja umboðsmennirnir mínir í því
þessa dagana að láta þetta ganga
upp. Það ætti allt að skýrast á næstu
dögum,“ segir hann.
Bæði hlutverkin sem eru í boði
eru af þokkalegri stærðargráðu en
Ólafur má þó lítið um þau segja.
„Þetta er allt svo mikið leyndó. Ég
kæmi líklega fram í tveimur eða
þremur þáttum af True Detectives
en þeir verða átta talsins og hver
klukkutíma langur. Í myndinni er
um að ræða gott aukahlutverk sem
ég væri verulega spenntur fyrir í
íslenskri bíómynd svo ég er mylj-
andi glaður með það,“ segir hann
og hlær.
Hann heldur að öllum líkindum
utan í mars en er þó ekki farinn
fyrir fullt og allt. „Ég ætla að forð-
ast það í lengstu lög að flytja út.
Mig langar að búa hérna heima, hér
er fjölskyldan mín og hér er minn
heimur,“ segir hann og lofar að snúa
aftur á íslenskt leiksvið fyrr eða
síðar. tinnaros@frettabladid.is
Með tvö Hollywood-
tilboð á borðinu
Ólafi Darra hefur verið boðið hlutverk í bíómynd með Liam Neeson og sjón-
varpsþáttum með Woody Harrelson og Matthew McConaughey.
MYLJANDI GLAÐUR Ólafur Darri segist vera myljandi glaður með hlutverkið í
kvikmyndinni A Walk Among the Tombstones, enda hefði honum þótt þetta gott
hlutverk í íslenskri mynd, hvað þá Hollywood-mynd. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Nú læt ég sönginn bíða meðan ég fer í leik-
inn á fullum krafti,“ segir Garðar Thór Cor-
tes. Hann mun fara með eitt aðalhlutverka í
sjónvarpsþætti sem fer í tökur næsta sumar.
Síðast lék Garðar í sjónvarpsþáttunum
Nonna og Manna. „Já, en þeir voru teknir upp
´87. Ég er því að dusta rykið af þeirri hlið,“
segir hann. „Ég er þó alltaf að leika í óperum
og söngleikjum en það er aðeins annað. Þetta
er mikið áhugamál hjá mér og ég fór út í óper-
una því þar blandast leikur og söngur,“ segir
hann.
Á móti honum leika Anna Svava Knúts-
dóttir og Tinna Lind Gunnarsdóttir sem eru
meðal handritshöfunda ásamt Garðari og
Arnóri Pálma Arnarssyni. „Við erum að fara
að ferðast um Danmörku í húsbíl. Ég ætla
að meika það í uppistandi á dönsku og tek
Garðar með,“ segir Anna Svava glöð. „Við
erum alveg að pissa í okkur úr hlátri við
skrifin. Okkur finnst þetta mesta snilld sem
gerð hefur verið.“
Hópurinn hefur þegar skoðað tökustaði í
Danmörku. Hann bætir við að þættirnir séu
grínþættir. „Þetta verður fyndið enda erum
við bæði mjög fyndin en þetta verður samt
með alvarlegum undirtóni,“ segir Garðar
sem mun halda fyrstu einsöngstónleika sína í
langan tíma í Grafarvogskirkju kl. 20 kvöldið
30. desember. - hþt
Dustar rykið af leikhliðinni
Garðar Thór Cortes fer með aðalhlutverk í nýjum sjónvarpsþætti sem fer í tökur í sumar í Danmörku.
GRÍN Garðar Thór og Anna Svava munu ferðast um
Danmörku í húsbíl í sjónvarpsþætti sem fer í tökur
næsta sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
dansandi og þá sá ég bara allt í
einu Mick Jagger birtast. Á svip-
uðum tíma fann ég alveg eins
gítar og Keith Richards átti og
þetta vatt upp á sig,“ segir Bjarni.
„Þetta er svona saumaklúbburinn
okkar. Við erum allir forfallnir
Rolling Stones-aðdáendur. Í stað
þess að hittast og spila póker spil-
um við Stóns.“ - hþt
Sýningar á Mýs og menn hætta fyrr
Ólafur Darri fer með annað aðalhlutverkið, hlutverk Lenny, í leikritinu
Mýs og menn sem verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu á morgun. Hann
þarf að halda út til að takast á við Hollywood-hlutverkin í mars, áður en
sýningartímabili leikritsins átti að ljúka. „Við samgleðjumst
okkar manni auðvitað innilega og gerum allt til að liðka til
fyrir honum eins og öðrum listamönnum okkar til að hann
geti tekist á við þetta spennandi verkefni. Ólafur Darri er
í flokki bestu leikara landsins og því kemur mér alls ekki
á óvart að erlendir leikstjórar falist eftir honum,“ segir
Magnús Geir Þórðarson, leikstjóri Borgarleikhússins.
Innan veggja leikhússins hefur því verið tekin
sú ákvörðun að stytta sýningartímabilið og lýkur
sýningum á verkinu þann 1. mars. Nú þegar er uppselt
á fjölda sýninga og til að mæta þeirri eftirspurn sem
er eftir miðum var sýningaráætlun breytt í janúar og
febrúar og verður leikritið þá sýnt fimm sinnum í viku.
„Uppskriftabókin Heilsuréttir Hag-
kaupa er bók sem ég nota mikið
en Solla á Grænum kosti skrifaði
hana. Ég hef mikinn áhuga á hollri
matargerð og nota þessa bók til að
fá hugmyndir og gera eitthvað nýtt.
Það má eiginlega segja að þetta sé
hálfgert matarklám.“
Ásthildur Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur
og ÍAK einkaþjálfari
BÓKIN