Fréttablaðið - 29.12.2012, Síða 4
29. desember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
Geta sakir ákærðu þó
ekki talist miklar.
Úr dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
DÓMSMÁL Fjölskipaður Héraðs-
dómur Reykjavíkur dæmdi í gær
Lárus Welding, fyrrverandi for-
stjóra Glitnis, og Guðmund Hjalta-
son, fyrrverandi yfirmann fyrir-
tækjasviðs bankans, í níu mánaða
fangelsi fyrir umboðssvik í svo-
kölluðu Vafningsmáli. Sex mán-
uðir refsingarinnar eru skilorðs-
bundnir.
Saksóknarinn í málinu, Hólm-
steinn Gauti Sigurðsson, hafði
farið fram á mun þyngri refsingu;
fimm og hálfs árs fangelsi yfir
Lárusi og fimm ára fangelsi yfir
Guðmundi.
Tvímenningarnir voru ákærð-
ir fyrir að hafa veitt Milestone
ólöglegt tíu milljarða lán í febrúar
2008 og stefna fjármunum Glitnis
með því í hættu.
Þeir báru því við að hafa aldrei
samþykkt lán til Milestone – það
hafi átt að fara til félagsins Vafn-
ings, sem hafi staðið utan Mile-
stone-samstæðunnar, en einhver
innan bankans hafi tekið ákvörðun
um það á síðustu stundu að skipta
um lántaka.
Í dómnum segir hins vegar að
þeir hafi engar trúverðugar skýr-
ingar gefið á því að undirritanir
þeirra sé að finna á svokallaðri
ádráttarbeiðni, sem æðstráðend-
ur bankans þurftu alla jafna ekki
að skrifa undir, auk þess sem
„fráleitt“ sé að undirmenn þeirra
í bankanum hafi, upp á sitt eins-
dæmi, ákveðið að veita Milestone
lánið í stað Vafnings.
Niðurstaða dómsins er því sú
að þeir Lárus og Guðmundur hafi
sannarlega farið út fyrir heimild-
ir sínar og misnotað aðstöðu sína
þegar þeir samþykktu að veita
hið ólögmæta lán, sem fór með
áhættuskuldbindingu bankans
gagnvart Milestone fjóra milljarða
yfir lögbundið hámark.
Hins vegar segir í dómnum að
tjónið af lánveitingunni sé veru-
lega ofmetið í ákærunni, enda sé
þar ruglað saman láninu til Mile-
stone og jafnháu láni sem Vafningi
var veitt þremur dögum síðar og
var notað til að greiða upp lánið til
Vafnings.
Ekki hafi verið færð rök fyrir
því að háttsemi ákærðu – að lána
Milestone tíu milljarða – hafi út
af fyrir sig leitt til fjártjóns fyrir
bankann, þótt Vafningslánið,
sem ekki var ákært fyrir, sé enn
ógreitt.
„Með hliðsjón af hinum skamma
tíma sem hið ólögmæta ástand
stóð yfir og takmarkaðri fjár-
tjónshættu, geta sakir ákærðu þó
ekki talist miklar,“ segir í niður-
stöðunni.
Þar segir jafnframt að við
ákvörðun refsingar sé til þess að
líta að „ákærðu leituðust ekki við
að afla sjálfum sér beins persónu-
legs ávinnings með brotum sínum
og töldu háttsemina þjóna hags-
munum Glitnis banka hf. og
íslenska fjármálakerfinu“.
Bæði saksóknari og verjendur
tóku sér frest til að ákveða hvort
niðurstöðunni yrði áfrýjað til
Hæstaréttar.
stigur@frettabladid.is
23.12.2012 ➜ 28.12.2012
TILBOÐ
UM LEIK Í
-myndum hafa borist
Ólafi Darra Ólafssyni.2
40.000
GESTIR komu í Kringluna og sami fjöldi kom í Smára-
lind á Þorláksmessu.
7.800
FÓLKSBÍLAR
hafa verið nýskráðir hér á landi á
þessu ári. Um 16.000 bílar voru
skráðir þegar mest var árið 2007.
GANGANDI
VEGFARENDUR
urðu fyrir bíl á árinu 2012.
55
34 MÖRK skoraði Alfreð Finnbogason
í opinberum leikjum á
alþjóðlegum vettvangi á
árinu 2012 og setti þar
með met.
Al
13
26,98
800.000
TONN
af áli eru
framleidd á
Íslandi á ári. 5 BÖRN fæddust á Land-
spítalanum á aðfangadag.
Nýting sjúkrarúma á
Landspítalanum hefur verið yfir
97%
á bráðadeildum í nóvember.
Æskilegt er að hlutfallið fari
ekki yfir 85%.
62 KÍLÓMETRAR
eru í loft línu á milli Litla-
Hrauns og Ásólfsstaða, þar
sem strokufanginn Matthías
Máni Erlingsson gaf sig fram.
LEIÐRÉTT
Í blaðinu í gær var fullyrt að Marzieh
Vahid Dastjerdi væri eina konan sem
hefði gegnt ráðherrastörfum í Íran.
Hún er að vísu sú eina sem gegnt hefur
ráðherraembætti frá byltingunni 1979
en á valdatíma Mohammeds Reza
Pahlavi keisara voru nokkrar konur
ráðherrar.
Það var Hjálparsveit skáta í Reykjavík,
ekki í Kópavogi, sem undirbjó flug-
eldasölu á forsíðumynd blaðsins í gær.
OPIÐ
Laug og sun 10 til 18:30
Stór humar-humarsúpa
Skötuselur-Lúða
Sakfellt í Vafningsmálinu
TJÁÐI SIG EKKI Lárus vildi ekkert tjá sig við fjölmiðla í gær, frekar en á fyrri stigum
málsins. Það vildi verjandi hans ekki heldur gera. Þórður Bogason, verjandi Guðmund-
ar, sagði saksóknara hafa reitt hátt til höggs og eftirtekjan væri rýr. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þrátt fyrir sektardóminn er Lárusi og Guðmundi aðeins gert að bera
helming sakarkostnaðarins sjálfir. Hinn helmingurinn fellur á ríkið. Eini
sakarkostnaðurinn í málinu er málsvarnarlaun verjenda, sem nema sam-
tals 20 milljónum.
Ástæða þess að ríkið er látið bera helming kostnaðarins er meðal
annars sú að „ákæra tengir tjón samkvæmt hinni refsiverðu háttsemi
ranglega við lánveitingu til Vafnings ehf., sem leitt hefur til þess að vörn
ákærðu hefur orðið mun umfangsmeiri en efni stóðu til,“ eins og segir í
niðurstöðu dómsins.
Þá er horft til þess að „tveir starfsmenn Embættis sérstaks saksóknara
hafa sætt kæru í tengslum við störf sín fyrir skiptastjóra þrotabús Mile-
stone ehf., en verjendum var nauðsynlegt að huga að réttarstöðu ákærða
með hliðsjón af upplýsingum um það efni.“
Vörnin varð umfangsmeiri en þurfti
Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason dæmdir í níu
mánaða fangelsi fyrir umboðssvik. Þar af eru sex mán-
uðir skilorðsbundnir. Vörn þeirra sumpart sögð fráleit.
Ollu bankanum þó í raun engu tjóni, segir í dómnum.
BANDARÍKIN, AP Bandarísk verð-
bréf hafa lækkað jafnt og þétt í
verði síðustu daga af ótta við að
ekki náist samkomulag í fjárlaga-
deilunni á Bandaríkjaþingi fyrir
áramót. Barack Obama kom fyrr
heim úr jólafríi sínu en áætlað
var og kallaði þingið til funda yfir
helgina, í von um lausn á síðustu
stundu.
Takist ekki samkomulag falla
sjálfkrafa úr gildi lög um skatta-
afslátt og ýmsa útgjaldaliði ríkis-
ins. Þetta myndi þýða að skattar
hækkuðu verulega á alla tekju-
hópa og ýmis fjárframlög úr ríkis-
sjóði yrðu felld niður. Óttast er
að þetta geti haft í för með nýja
kreppu í Bandaríkjunum með
stórauknu atvinnuleysi, sem jafn-
framt hefði töluverð áhrif á helstu
viðskiptalönd Bandaríkjanna.
Lítill sáttahugur hefur verið í
repúblíkönum vegna málsins. - gb
Fjárlagaþverhnípið nálgast:
Þingið fundar
um helgina
BARACK OBAMA Kom fyrr heim úr
jólafríi og boðaði þingið á fund.
NORDICPHOTOS/AFP
Veðurspá
Gamlársdagur
8-15 m/s.
VIÐVÖRUN– OFSAVEÐUR Norðan og norðaustan 20-33 m/s á norðvestan og
vestanverðu landinu í dag. Snjókoma og stórhríð norðanlands en slydda eða rigning
eystra. Veður gengur smám saman niður í kvöld og nótt.
-2°
30
m/s
0°
26
m/s
2°
30
m/s
5°
7
m/s
Á morgun
10-18 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
-3°
-4°
-3°
-4°
-3°
Alicante
Basel
Berlín
18°
7°
7°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
7°
9°
8°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
6°
6°
22°
London
Mallorca
New York
12°
18°
1°
Orlando
Ósló
París
24°
4°
12°
San Francisco
Stokkhólmur
10°
4°
2°
6
m/s
5°
12
m/s
4°
6
m/s
2°
15
m/s
0°
9
m/s
0°
23
m/s
0°
10
m/s
-2°
-4°
-2°
-3°
-3°
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is
og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is