Fréttablaðið - 29.12.2012, Page 48
KYNNING − AUGLÝSINGLíkamsrækt & næring LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 20128
HREINSUM HÚÐINA EFTIR
JÓLASUKKIÐ
Eftir smákökuát og annan ólifn-
að um jólin er gott að fríska upp á
húðina fyrir gamlársgleðina. Ef þú
kemst ekki á snyrtistofuna er lítið
mál að opna eldhússkápana og
blanda góðan maska.
Haframjölsmaski fyrir andlit:
1 egg
½ bolli soðið haframjöl
1 tsk. ólífuolía
Hrærið saman. Berið á andlitið og
látið liggja í 15 mínútur. Hreinsið
með volgu vatni.
Uppskrift fengin af:
www.strecher.com.
OF MIKIÐ SALT
Norðurlandabúar borða of
mikið salt. Það hafa rannsóknir
í Svíþjóð og Danmörku sýnt.
Saltátið er til dæmis allt of mikið
um jól. Ný rannsókn sýnir að
hægt sé að bjarga mörgum
mannslífum með því að minnka
saltnotkun. Minnka þarf salt-
inntöku um að minnsta kosti þrjú
grömm á dag. Of mikið salt getur
orsakað of háan blóðþrýsting
en hann getur valdið hjartasjúk-
dómum og blóðtappa. Meðal-
neysla Svía af salti á dag er um
10-12 grömm en ætti að vera 5-6
grömm. Danir borða svipað magn
af salti og Svíar. Þar hefur verið
reiknað út að heilbrigðiskerfið
gæti sparað 330 milljónir danskra
króna ef saltneysla minnkaði.
Mestan hluta saltsins innbyrðum
við í gegnum unnar kjötvörur og
skyndimat en sífellt fleiri lifa á
slíku fæði. Saltneysla hefur aukist
mikið á undanförnum árum. Á
sjötta áratugnum var saltneysla 5
grömm á dag að meðaltali. Fólk
ætti að skoða innihaldslýsingar
á matvælum vel þegar þau eru
keypt eða forðast unnar vörur vilji
það passa mataræðið.
Allir hafa þörf fyrir að nasla, líka þeir sem eru í aðhaldi, og þá er
heimalagað poppkorn vænlegur kostur. Popp inniheldur þó nokkuð af
B-vítamínum sem gefa orku og töluvert af andoxunarefnum. Það er hins
vegar meðhöndlun poppsins sem getur verið óheilsusamleg en henni er
alfarið hægt að stjórna heima.
Notið eins litla olíu og kostur er og saltið með örlitlu sjávarsalti. Hægt er
að bragðbæta poppið með því að bæta kanil út í og á tyllidögum má
jafnvel bæta örlitlum hrásykri við. Eins er gott að bragðbæta poppið með
kóríanderdufti og cayenne-pipar en með því að krydda poppið verður
minni þörf á að salta. Þegar poppið er kryddað þarf að hrista pottinn
nokkrum sinnum á meðan baunirnar poppast til að bragðefnin dreifist vel.
BRAGÐBÆTT POPP Í STAÐ SÆLGÆTIS
Þökkum heilshugar fyrir árið sem er að líða og
óskum ykkur öllum hamingju og góðrar heilsu!
Opnunartími um áramótin:
Lokað er 31/12 á öllum stöðum
opið alla aðra daga!
ÍSLENDINGAR!KÆRU
Allur matur er úr gæðahráefni, allar marineringar eru
heimatilbúnar, beint frá ♥ og án allra aukefna.
Við notum ekki hvítan sykur og ekkert hvítt hveiti.
- líka nýársdag!
Fínt að byrja strax á nýárs-
heitinu!