Fréttablaðið - 29.12.2012, Síða 56
29. desember 2012 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 40TÍMAMÓT
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og stuðning vegna andláts
og útfarar
SIGRÍÐAR ÁRNADÓTTUR
Fyrrverandi bókasafnsfræðings
Akranesi.
Bragi Níelsson
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir, afi og bróðir,
STEFÁN JÓNSSON
vélvirki,
Stapasel 17,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum
aðfaranótt laugardags 22. desember.
Jarðarförin fer fram frá Seljakirkju 3. janúar
kl. 15.00.
Guðný Helgadóttir Blöndal
Jón Þór Stefánsson Vilborg Linda Indriðadóttir
Helgi Már Stefánsson Þorgerður Sigurbjörnsdóttir
Stefán Örn Stefánsson
Alexander Stefánsson
Dagný Jónsdóttir Pétur V. Hafsteinsson
Guðný Hafbjörg Jónsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir mín og systir okkar,
INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR
Kópavogsbraut 1b,
lést á Landspítalanum á aðfangadegi jóla.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju
á gamlársdag, 31. desember klukkan 11.00.
Hilmar Þór
Sigrún Auður Sigurðardóttir
Halldór Jón Sigurðsson
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÓLÖF ÞÓRANNA JÓHANNSDÓTTIR
ljósmóðir,
Ljósheimar 6, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju
föstudaginn 11. janúar kl 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarfélagið LÍF.
Þórhildur Hinriksdóttir Þórður Sigurjónsson
Sigurjón Þórðarson Jóhanna Jakobsdóttir
Ólöf Dís Þórðardóttir Birgir Örn Björnsson
Harpa Rún Þórðardóttir Romain Buchholtz
Þórður Ingi, Ari, Björn Hinrik og Daníel Snær.
24 tíma vakt
Sími 551 3485
Davíð H. Ósvaldsson S: 896 8284 Óli Pétur Friðþjófsson S: 892 8947
ÞEKKING–REYNSLA–ALÚÐ
ÚTFA
RARÞJÓNUSTA
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og vinur,
SÍMON KRISTJÁNSSON
frá Neðri-Brunnastöðum,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð
mánudaginn 17. desember, verður
jarðsunginn frá Kálfatjarnarkirkju
miðvikudaginn 2. janúar 2013 kl. 14.00.
Sigurður Rúnar Símonarson Valgerður Valtýsdóttir
Jóhann Sævar Símonarson Herdís Herjólfsdóttir
Þórdís Símonardóttir Hlöðver Kristinsson
Lovísa Símonardóttir Ormar Jónsson
Grétar Ingi Símonarson Valgerður Tómasdóttir
Magnea Sigrún Símonardóttir Einar Guðnason
Lilja Guðjónsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLMI SÆMUNDSSON
Laugarholti, Hrútafirði,
lést fimmtudaginn 20. desember á Sjúkra-
húsinu á Akranesi. Útförin fer fram
frá Prestbakkakirkju laugardaginn 5. janúar
kl. 14.00.
Ásdís Guðmundsdóttir
Ragnar Pálmason Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir
Guðmundur Pálmason Jenný Árnadóttir
Jóhann Sæmundur Pálmason Rut Jónsdóttir
barnabörn og langafabarn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUNNAR DÚI JÚLÍUSSON
lést á dvalarheimilinu Hlíð Akureyri,
fimmtudaginn 20. desember. Útför hans fer
fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
4. janúar kl 10.30.
Guðrún Gunnarsdóttir
Eyvör Gunnarsdóttir Björgvin R. Leifsson
Hreinn Gunnarsson
Benjamín Gunnarsson Dagbjörg K. Þórhallsdóttir
Svanhildur D. Karlsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Fyrirtækið heitir eftir afa mínum og
alnafna sem var byggingar meistari
hér í Reykjavík,“ segir Sveinbjörn
Sigurðs son, framkvæmdastjóri
byggingar fyrirtækisins Sveinbjörn
Sigurðsson. Það fagnaði samfelldri
starfsemi í sjötíu ár fyrir skemmstu
og í tilefni þess gaf það MS-félaginu
göngubraut og uppsetningu hennar og
frágang. Hvað kom til?
„Við höfum tvívegis byggt fyrir
MS-félagið á Íslandi og komist í kynni
við það gríðargóða starf sem þar er
unnið. Afi var mikill góðgerðakarl og
við viljum halda merki hans á lofti í
þeim efnum eins og öðrum. Á þessu ári
voru 70 ár frá því hann byggði fyrsta
húsið og við vorum að hugsa um að
halda stóra veislu, kalla til lærlinga
sem hafa verið hér, samstarfsmenn,
birgja og velunnara. Ég var byrjaður
að huga að því en sagði svo við sjálf-
an mig: Eitt svona partý kostar örugg-
lega tvær, þrjá milljónir með öllu, yrði
eflaust skemmtilegt en er búið daginn
eftir. Af hverju ekki að gera góðverk
sem endist lengur? Við ákváðum því að
halda veislu bara fyrir starfsmennina
okkar í nóvemberlok og nota afganginn
til að styrkja MS-félagið. Í samráði við
stjórnendur þess gáfum við því göngu-
lyftibúnað sem var gengið frá í húsa-
kynnum félagsins og auðveldar MS-
sjúklingum þjálfun og endurhæfingu.“
Sveinbjörn segir afa sinn hafa byrj-
að með tvær hendur tómar fyrir 70
árum. „Afi var vinnukarl af gamla
skólanum sem hóf ferilinn á að byggja
tvílyft íbúðarhús að Bollagötu 7.
Þetta var rétt eftir stríð þegar mikil
húsnæðis ekla var á Íslandi og eitt
verkefni tók við af öðru. Af stærri
verkefnum má nefna Hrafnistu, marga
leikskóla og grunnskóla í borginni og
Borgarleikhúsið. En 1990 dró afi sig
út úr forystunni í fyrirtækinu og þrír
af fjórum sonum hans tóku við. Ég
er þriðji ættliðurinn sem tekur þátt í
rekstrinum.“
Sveinbjörn segir 60-70 manns í
vinnu hjá fyrirtækinu nú, auk margra
undirverktaka. „Stærsta verkefnið í
dag er stúdentagarðar við Sæmundar-
götu, þar erum við að byggja 300 nett-
ar íbúðir. Höfum áður byggt 80 íbúð-
ir fyrir Félagsstofnun stúdenta niðri í
Fossvogi. Við vorum líka að klára 49
íbúða blokk í Breiðholtinu fyrir Félag
eldri borgara. Þar er fólk að flytja
inn.“ gun@frettabladid.is
Langaði að gera
góðverk sem entist
Byggingaverktakinn Sveinbjörn Sigurðsson hf. fagnaði 70 ára starfsaf-
mæli á árinu. Fyrirtækið hefur verið í eigu sömu fj ölskyldunnar alla tíð. Í
stað þess að halda stórveislu gaf það MS-félaginu gjöf.
AFHENDING Synir frumkvöðulsins, þeir Sigurður, Árni og Sveinbjörn, afhenda Berglindi Guðmundsdóttur, formanni MS-félagsins, gjöfina í
sjúkraþjálfunarsal MS-Setursins.
Bandaríski uppfinningamaðurinn Thomas
Alva Edison fékk skráð einkaleyfi á út-
varpstækni þennan dag árið 1891. Sú
tækni fólst í að notast við útvarpsbylgjur
til að miðla upplýsingum þráðlaust.
Edison (1847-1931), sem var sjálf-
menntaður, varð frægur fyrir fjölmargar
uppfinningar sínar. Hann endurbætti
ljósaperuna, símann, fann upp hljóð-
ritun og kvikmyndun, smíðaði fyrsta
kvikmyndaverið og stóð fyrir raflýsingu
New York-borgar. Samtals fékk hann skráð
1.093 einkaleyfi um ævina.
Hann var heyrnarsljór og átti það nokk-
urn þátt í því hvaða stefnu líf hans tók.
Eftir að hafa starfað sem ritsímavörður
helgaði hann líf sitt uppfinningum þegar
hann var tuttugu og tveggja ára gamall.
Sjö árum síðar setti hann upp eigin rann-
sóknastofu í Menlo Park í New Jersey og
var síðari hluta ævinnar gjarnan kallaður
galdramaðurinn í Menlo Park.
29. DESEMBER 1891
Edison fékk einkaleyfi á útvarpi