Fréttablaðið - 29.12.2012, Side 57

Fréttablaðið - 29.12.2012, Side 57
LAUGARDAGUR 29. desember 2012 | TÍMAMÓT | 41 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN V GUÐJÓNSSON fyrrum framkvæmdastjóri, Fornuströnd 9, Seltjarnarnesi, lést á Landspítala Hringbraut 27. desember. F.h. aðstandenda, Elísabet Jónsdóttir Guðjón Jónsson Sigrún Ásta Bjarnadóttir Hafdís Jónsdóttir Björgúlfur Andrésson Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURVIN JÓNSSON matsveinn, er látinn. Útför hans verður gerð frá Áskirkju 3. janúar kl. 15. Oddný Lína Sigurvinsdóttir Guðbjörn Magnús Sigurvinsson Þórunn Einarsdóttir Viktor Jón Sigurvinsson Ólína Sverrisdóttir Sigurvin Heiðar Sigurvinsson Auður Auðunsdóttir Jón Ásgeir Sigurvinsson Elínborg Sturludóttir barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA PÁLSDÓTTIR lést á Dvalarheimilinu Grund 24. desember síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 3. janúar kl. 13.00. Einar Þór Guðmundsson Sigríður Hellen Sveinsdóttir Allan Møller Hjördís Erla Sveinsdóttir Alexander Eyjólfsson Páll Baldvin Sveinsson Anna Lísa Þorbergsdóttir Geir Grétar Sveinsson barnabörn og barnabarnabörn. Hjartkær bróðir okkar, mágur og frændi, JÓN ÚLFAR LÍNDAL áður til heimilis að Lálandi 23, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum að morgni jóladags, 25.desember. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 4. janúar kl. 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Landssamtökin Þroskahjálp eða Afmælissjóð Jóns Úlfars Líndal, bankanúmer 0111- 05-261084, kt. 120752-6509. Þórhildur Líndal Eiríkur Tómasson Björn Líndal Sólveig Eiríksdóttir Páll Jakob Líndal Sigurlaug Jónsdóttir og systkinabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRIR STURLA KRISTJÁNSSON byggingarmeistari, Erluási 74, Hafnarfirði, lést á krabbameinsdeild Landspítalans Hringbraut föstudaginn 21. desember. Hann verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði fimmtudaginn 3. janúar kl. 13.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins. Guðmunda Inga Veturliðadóttir Hulda Guðborg Þórisdóttir Davíð Þór Sigurbjartsson Jón Friðgeir Þórisson Steinunn Sigurmannsdóttir Gunnar Þórisson Nina Kristiansen Ingi Sturla Þórisson Sigrún Líndal Pétursdóttir Daði Freyr, Þórir Már og Lára Sif Davíðsbörn Lóa María og Viktoría Jónsdætur Lilja Rán, Sóley Dögg og Jónas Hrafn Gunnarsbörn Karólína Björk Líndal og Dagur Ingi Líndal Ingabörn.Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, HANNES KRISTMUNDSSON Borgarheiði 13h, Hveragerði, lést á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði 25. desember. Hann verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 5. janúar kl. 14.00. Sigurbjörg Gísladóttir Kristmundur Stefán Hannesson Sigurður Elí Hannesson Helena Sif Ericson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN T. GUNNLAUGSSON húsgagnasmiður, Bólstaðarhlíð 41, áður Njálsgötu 112, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum aðfaranótt sunnudagsins 16. desember. Útför hans fer fram í Hallgrímskirkju fimmtudaginn 3. janúar kl. 13.00. Helga Ágústsdóttir Anna Ásdís Björnsdóttir Kolbeinn Gunnarsson Sigurveig Björnsdóttir Árni S. Eggertsson Gunnlaugur A. Björnsson Jóhanna Sveinsdóttir barna- og barnabarnabörn. Styrktarsjóður Guðmundu Andrés- dóttur hefur á sinni stefnuskrá að styrkja unga myndlistarmenn sem hafa lokið BA-prófi í myndlist eða sambærilegu námi. Þau sem hlutu þá nú í lok þessa árs eru Anna Rún Tryggvadóttir vegna náms við Con- cordia-háskóla í Montreal í Kanada, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísar- dóttir sem fékk styrk til náms við School of Visual Arts (SVA) í New York, Páll Haukur Björnsson vegna náms við California Institute of the Arts (CalArts) og Sirra Sigrún Sigurðar dóttir vegna náms við School of Visual Arts (SVA) New York. Hvert um sig fékk 950 þúsund krónur. Guðmunda Andrésdóttir til heyrir þeirri kynslóð listamanna sem á sjötta áratug síðustu aldar ruddi abstraktlistinni braut í íslenskri listasögu. Innan þess tjáningarforms tókst henni að þróa persónulega list- sköpun sem gerir framlag hennar til samtíma listar á Íslandi sterkt og áhrifa mikið. Hún lést árið 2002 og arfleiddi Listasafn Íslands, Listasafn Háskóla Íslands og Listasafn Reykja- víkur að verkum sínum. Samkvæmt erfðaskrá hennar var einnig stofnað- ur styrktarsjóður í hennar nafni sem er í vörslu Listasafns Íslands. Mark- mið hans er að styrkja og hvetja unga og efnilega myndlistarmenn til náms. Ráðstöfunar fé sjóðsins er raunvextir af höfuðstólnum. Fengu tæpa milljón hvert Fjórir einstaklingar í listnámi hlutu nýlega styrki til framhaldsnáms úr Styrktarsjóði Guðmundu Andrésdóttur listmálara. VIÐ AFHENDINGU Anna Rún Tryggvadóttir, Sirra Sigrún Sigurðardóttir, Marteinn Hauksson, fyrir hönd Páls Hauks bróður síns, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir og Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands. Fjölbrautaskólinn í Garðabæ braut- skráði 76 nemendur föstudaginn 21. desember. Sjötíu og þrír þeirra voru með stúdentspróf af eftirtöldum braut- um; listnámsbraut, félagsfræðabraut, náttúrufræðibraut, viðskipta- og hag- fræðibraut, íþróttabraut og málabraut. Einn nemandi útskrifaðist af náms- braut fyrir leikskólaliða, annar með lokapróf af listnámsbraut og þriðji með lokapróf frá FG. Skólameistara var tíðrætt í ræðu sinni um skýrslu þá sem unnin var á vegum forsætisráðuneytisins undir nafninu „Allir stundi nám og vinnu við sitt hæfi“ en þar kemur fram að færri nemendur stundi verknám hér á landi en í viðmiðunarlöndum okkar og brott- fall sé meira, samkvæmt mælingum. Benti skólameistari á að kennsla í list- og verkgreinum væri góð undirstaða undir slíkt nám en sagði kennsluað- stöðu þeirra greina hins vegar óvið- unandi í FG. Hann sagði skólann hafa beðið í allmörg ár eftir viðbyggingu fyrir þær námsgreinar auk þess sem starfsbraut skólans fengi þá viðunandi starfsaðstöðu. Dúx skólans var Álfheiður Gló Einars dóttir, stúdent af listnámsbraut, með einkunnina 9,03. Allmargir nemendur hlutu viður- kenningar fyrir framúrskarandi náms- árangur. Nýstúdentar fluttu alla tón- list við athöfnina, Álfheiður Gló lék á harmóniku verkið Arabesque No. 1 eftir Debussy og Dagbjört Kristín Helgadóttir, Jón Rúnar Ingimarsson, Kristinn Þór Óskarsson og Pétur Emil Júlíus Gunnlaugsson fluttu Summer- time eftir Gershwin. - gun Dúxinn spilaði á harmóniku Sjötíu og sex nemendur útskrifuðust nýlega frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ við hátíðlega athöfn. BRAUTSKRÁNING Föngulegur hópur stúdenta og annarra útskriftarnema frá Fjölbraut í Garðabæ.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.