Fréttablaðið - 29.12.2012, Síða 62
MENNING 29. desember 2012 LAUGARDAGUR
Gott framboð
var af myndlistar-
sýningum á árinu
2012 en gæðin mis-
jöfn eins og gengur
og gerist. Á höfuð-
borgarsvæðinu,
og á Akureyri, eru opinberu söfn-
in mest áberandi í sýningarhaldi
en einnig halda sjálfstæðir aðilar
eins og Kling og Bang áfram með
metnaðarfullt alþjóðlegt sýningar-
starf, sem og Nýlistasafnið og i8
gallerí. Minni sýningarstaðir voru
einnig margir með virkt sýningar-
hald. Þar má nefna Gallerí Gang,
Stúdíó Stafn, Gallerí Ágúst, Gallerí
Þoku, Neskirkju, Hallgrímskirkju,
Kunstschlager að ógleymdum jaðar-
stöðum eins og Gallerí Klósetti og
Gallerí Skilti, sölugalleríum eins
og Gallerí Fold, og Reykjavík Art
Gallerí, og föstum sumargalleríum
eins og Verksmiðjuna á Hjalteyri og
Gallerí 1.h.v.
Grasrótin á sinn samastað í sal
listfræðinema, Artíma galleríi, sem
er rekið í sal inn af Nýlistasafninu.
Sýning Listahátíðar vel heppnuð
Á miðju árinu bættist við mynd-
listarflóruna myndlistarhluti
Lista hátíðar í Reykjavík; Indep-
endent People, eða Sjálfstætt fólk.
Sýningar stjóri var hinn sænski
Jonatan Habib Engqvist. Sýningar
hátíðarinnar fóru að mestu leyti
fram á opinberum söfnum og í gall-
eríum, en einnig í almannarými.
Hugmyndin á bak við sýninguna
var skýr og áhugaverð, þar var lögð
áhersla á listamannahópa og sam-
starfsverkefni – að listamenn leggðu
sjálfið til hliðar. Út úr þessu komu
allnokkrar góðar sýningar, en það
var sýningarhugmyndin sjálf sem
á mesta hrósið skilið.
Sierra blés lífi í umræðuna
Sýningar erlendra listamanna hér á
landi eru mikilvægar fyrir listalífið
og samfélagið sem heild, og þegar
vel tekst til eru sýningarnar fersk-
ur andblær inn í umræðuna. Þetta
átti við um sýningu spænska lista-
mannsins Santiago Sierra snemma
á árinu þegar hann sýndi samantekt
umtalaðra myndbandsverka/gjörn-
inga sinna, auk þess sem hann lét
setja minnismerki fyrir framan
Alþingishúsið og lét keyra með risa-
stórt NO um allan bæ á opnum vöru-
bíl. Verk Sierra voru einnig til sýnis
í Sjónlistamiðstöðinni á Akureyri,
sem tók einmitt til starfa í byrjun
ársins. Sýningin þar hét Syntagma,
en með Sierra sýndu þær Hildur
Hákonardóttir, Ósk Vilhjálmsdóttir
og Steinunn Gunnlaugsdóttir.
Sjónlistamiðstöðin stóð fyrir
ýmsum sýningum og viðburðum á
árinu, þar á meðal var endurreisn
Íslensku sjónlistaverðlaunanna, en
Ragnar Kjartansson hlaut þau verð-
skuldað í ár.
Ýmsir miðlar
Ef gera á tilraun til að flokka mynd-
listarsýningar á árinu eftir miðl-
um, þá átti vídeólistin sína góðu
fulltrúa í Söru Björnsdóttur á sýn-
ingunni HA í Hafnarhúsinu, Sig-
urði Guðjónssyni í Kling og Bang
og Hafnar borg, og Agli Sæbjörns-
syni í i8. Ekki má heldur gleyma að
minnast á skemmtilegar sýningar á
myndbandsverkum á svæði Kling
og Bang í Hafnarhúsinu, sem var
hluti af Independent People.
Ljósmyndin átti góða fulltrúa í
Ingvari Högna Ragnarssyni í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur og Einari
Fal í Listasafni ASÍ. Myndlist og
vísindi blönduðust saman í þremur
sýningum á Listasafni Íslands, sýn-
ingu Ólafar Nordal, sýningu Olgu
Bergmann og Önnu Hallin, og yfir-
litssýningu Rúríar, en hjá henni
blandast inn í verkin náttúruvísindi
og pólitík. Samfélagslegur undir-
tónn var síðan í verki Angeli Novi á
Nýlistasafninu, Þú getur ekki staðið
í vegi fyrir framförum.
Nokkrar yfirlitssýningar
Við fengum yfirlit yfir ævistarf
nokkurra listamanna á árinu. Í
fyrsta lagi var gaman að sjá yfir-
litssýningu á verkum Rúríar á
Listasafni Íslands og sjá þróunina
í verkum hennar. Verk Kristins G.
Harðarsonar, Kristins Péturssonar,
Ragnheiðar Jónsdóttur, Níelsar Haf-
stein og Eiríks Smith voru einnig til
sýnis, auk þess sem 70 ára ævistarfi
eins af meisturum 20. aldarinnar í
málaralist, Antoni Tàpies frá Spáni,
voru gerð góð skil á Kjarvalsstöðum.
Málverkið átti sína fulltrúa í sýn-
ingu Helga Þorgils og félaga hans í
Listasafni ASÍ síðsumars, en einn-
ig átti málverkið sinn fasta sama-
stað í Reykjavik Art Gallerí, Gall-
eríi Fold, Galleríi Ágúst og fleiri
stöðum.
Af einstökum einkasýningum
þá má nefna sýningu Hrafnkels
Sigurðs sonar í Hafnarborg, sýning
Ívars Valgarðssonar í i8 og svo auð-
vitað sýningu í Listasafni Íslands í
byrjun ársins á vel heppnuðu fram-
lagi Íslendinga á Feneyjatvíæringn-
um 2011 eftir listamannatvíeykið
Ólaf Ólafsson og Libiu Castro.
Í febrúar kom út bók J.B.K.
Ransu, Listgildi samtímans. Bækur
sem setja íslenska myndlist í sam-
hengi við strauma og stefnur eru
því miður fátíðar hér á Íslandi, og
útgáfan því fagnaðarefni.
Afmæli og samspil
Af afmælistengdum sýningum þá
hélt Myndhöggvarafélagið upp á
40 ára afmæli á þremur stöðum í
bænum og á Akureyri tók Sjónlista-
miðstöðin þátt í afmæli Akureyrar-
kaupstaðar með sýningunni Glóbal
lókal meðal annars.
Af einstökum þemasýningum
ársins má nefna Skugga í Hafnar-
borg, Ljóðheima á Kjarvals stöðum,
Nautn og notagildi í Listasafni
Árnesinga og síðast en ekki síst vel
heppnaða sýningu á húsum Hreins
Friðfinnssonar í Hafnarborg.
Samspilssýningar (ekki ósvipað-
ar og hugmyndin á bak við
Independent People) voru nokkrar.
Sýning Sólveigar Aðalsteinsdóttur
og Ingólfs Arnarsonar var frábær
í Gallerí 1.h.v.,( þetta voru reynd-
ar tvær sjálfstæðar einkasýningar
í sama rými), Gerður Helgadóttir
og Svava Björnsdóttir áttu í sam-
tali í Gerðarsafni, og teiknarar
tveggja alda leiddu saman hesta
sína í Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Heilt yfir þá var árið 2012 með-
algott ár í myndlistinni, en minn-
isstæðustu sýningarnar eru San-
tiago Sierra, Independent People,
Sólveig og Ingólfur í Gallerí 1.h.v.,
Undanfari Sigurðar Guðjónssonar
í Hafnar borg, Þú getur ekki stað-
ið í vegi fyrir framförum og Ljóð-
heimar á Kjarvalsstöðum.
SJÁLFSTÆTT FÓLK
Gott framboð var af myndlistarsýningum á árinu 2012 en gæðin misjöfn eins
og gengur og gerist. Þóroddur Bjarnason segir sýningar erlendra listamanna
vera mjög mikilvægar fyrir listalífi ð og samfélagið sem heild.
SIERRA Sýningar erlendra listamanna hér á landi eru mikilvægar fyrir listalífið og samfélagið sem heild og sýning Santiago
Sierra er gott dæmi um það.
Myndlist
2012
Jonathan Habib var
sýningarstjóri mynd-
listarsýningar Lista-
hátíðar í Reykjavík,
Independent
People. Hugmyndin
á bak við sýninguna
var skýr og áhugaverð, þar var lögð
áhersla á listamannahópa og sam-
starfsverkefni– að listamenn leggðu
sjálfið til hliðar. Út úr þessu komu
allnokkrar góðar sýningar, en það
var sýningarhugmyndin sjálf sem á
mesta hrósið skilið.
Ólöf Nordal var á
meðal listamanna
sem settu upp
sýningu á árinu
þar sem vísindi og
myndlist blönduðust
saman. Sýning Ólafar
var í Listasafni Íslands rétt eins og
sýning Olgu Bergmann og Önnu
Hallin þar sem myndlist og vísindi
áttu samleið og sama má segja um
yfirlitssýningu Rúríar.
Ragnar Kjartansson
hlaut sjónlistaverð-
launin árið 2012
en þau voru af-
hent við hátíðlega
viðhöfn í Hofi á
Akureyri. Ragnar hlaut
verðlaunin fyrir sýningarnar
The End, sem var framlag Íslands á
Feneyjatvíæringnum árið 2009, Bliss
á Performa-hátíðinni í New York,
2011 og Song í Carnegie-safninu í
Pittsburgh árið 2011.
Rúrí leit yfir fjöl-
skrúðugan feril á
yfirlitssýningu sem
opnaði á vordög-
um. Á henni gaf að
líta þekktustu verk
hennar auk mynda af
helstu gjörningum hennar. Það
var gaman að sjá þróunina í verkum
hennar en hjá henni blandast inn í
listaverkin náttúruvísindi og pólitík.
segir gagnrýnandi Fréttablaðsins.
Ólafur Ólafsson og
Líbía Castro voru
fulltrúar Íslands
á Feneyjatvíær-
ingnum árið 2011.
Sýning á vel heppn-
uðu framlagi þeirra á
tvíæringnum var opnuð í Listasafni Ís-
lands í byrjun árs. Sýningin bar heitið
Í afbyggingu, Under Deconstruction.
Verkin á sýningunni voru þrjú og eitt
af þeim, herferðin Landið þitt er ekki
til, var sett fram í fjórum birtingar-
myndum; málverk, neontextaskilti,
myndbandsverk og gjörningur.
SAMVINNUVERKEFNI, SAMSPIL LISTA OG VÍSINDA, TVÍÆRINGUR OG YFIRLITSSÝNINGAR
Kaffipúðarnir passa í venjulegar skeiðar Senseo vélanna
NÝTT
UPPGÖTVAÐU NÝJAN BRAGÐHEIM SENSEO
HOT CHOCO
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
N
M
5
5
8
12
5
8
12
„Kaffipúðarnir
passa í allar
tvöfaldar skeiðar sem
fylgja með Senseo
vélum“
Ert þú íslenskur háskólanemi á aldrinum
21-28 ára við góða heilsu en stundar ekki
reglulega líkamsrækt eða útivist?*
Við leitum að áhugasömum einstaklingum til að taka þátt í rannsókninni
Breathing Spaces: Relating to nature in the everyday and its connections
to health and wellbeing (BREATH). Um er að ræða þverfaglega rannsókn
á sviði heilsu- og umhverfissálfræði, lífeðlisfræði, lýðheilsufræði og heilsuland-
fræði á áhrifum umhverfis á líðan og heilsu.
Þátttakendur þurfa að koma í mælingu einu sinni á tímabilinu janúar-febrúar
og í annað sinn í apríl-maí 2013. Þá verða lagðir fyrir spurningalistar og
athyglispróf, tekið hjartalínurit og munnvatnssýni fyrir og eftir göngu um
náttúruna eða í líkamsræktarstöð. Áætlað er að ferlið taki u.þ.b. 1.5 klst.
í hvort skipti. Mögulega yrði einnig óskað eftir viðtali í kjölfarið.
Ekki verður greitt sérstaklega fyrir þátttökuna en möguleiki er á að
vinna sér inn 400 Evrur fyrir viðvikið. Í byrjun júní 2013 verða dregin út
fjögur nöfn úr hópi þátttakenda sem hljóta þá upphæð hvor fyrir sig.
Nánari upplýsingar gefur ábyrgðarmaður rannsóknarinnar Gunnþóra Ólafsdóttir
landfræðingur (Ph.D) sem hefur aðsetur hjá Lífeðlisfræðistofnun Háskóla Íslands
á meðan á gagnasöfnun stendur, í síma 866 4808 eða í tölvupósti:
gunnthora.olafsdottir@uni.lu. Áhuga á þátttöku þarf að tilkynna
fyrir 31. desember 2012. Gagnasöfnun hefst 7. janúar 2013.
*Þeir sem stunda líkamsrækt allt að tvisvar í viku að meðaltali mega taka þátt.
Við leitum
að þátttakendum!
Fjórir þátttakendur fá vinning!
BREATHING SPACES
Fjórir þátttakendur fá vinning!