Fréttablaðið - 29.12.2012, Síða 78

Fréttablaðið - 29.12.2012, Síða 78
29. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 62 Óvænt pabbahelgi Gísli Galdur Þorgeirsson og Benedikt Freyr Jónsson, DJ B-Ruff, ákváðu með stuttum fyrirvara að blása til einnar af sínum víðfrægu Pabbahelgum þar sem þeir eru báðir á landinu um þessar mundir og Gísli Galdur er ný- orðinn þrítugur. Veislan hefst hálftólf í kvöld í hliðarsal Faktorý og þeir æskja þess að sem flestir skrýðist slaufum, axlaböndum, kjólum og spariskóm í tilefni áramótanna. Benni á von á öðru barni sínu þannig að Pabbahelgar- nafnið hefur sjaldan átt eins vel við. - sh „Við Íslendingar erum náttúru- lega pínu klikkaðir í þennan enska bolta,“ segir Tómas Páll Þorvalds- son sálfræðinemi, en hann situr í fjórða sæti á heimslista Fantasy- deildarinnar sem byggir á ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Alls eru um 2,5 milljónir skráðar með lið í Fantasy-deildinni en leikurinn snýst um að stilla upp draumaliði sínu fyrir leiki hverrar umferðar enska boltans. Að hverri umferð lokinni hljóta liðin stig fyrir frammistöðu leik- mannanna. Þetta er í annað skipt- ið sem Tómas er með skráð lið í Fantasy og er árangurinn því undraverður. „Ég hef í rauninni engin trix. Mikilvægast í þessu er að ná að byrja nógu vel því leik- menn hækka og lækka í verði eftir því hversu margir kaupa einn ákveðinn leikmann. Það skiptir því miklu máli að ná að vera á undan öllum hinum að kaupa leikmenn sem síðar verða eftirsóttir,“ segir Tómas, en auk hans má finna tvo aðra Íslendinga á listan- um yfir 35 efstu liðin. „Ég veit ekki hvað það er en það er alveg ótrú- legt hvað Íslend- ingar virðast vera góðir í þessum leik. Þeir sem eru ofarlega eru mei r a og minna með sömu menn í liðinu og þar af leiðandi rokkar þetta ekki alveg Í fj órða sæti í Fantasy Sálfræðineminn Tómas Páll Þorvaldsson situr í fj órða sæti í Fantasy-deildinni í fótbolta. Alls eru um 2,5 milljónir þátttakenda skráðar til leiks í deildinni. FÁRÁNLEGA GÓÐUR Árangur Tómasar Páls er undraverður. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þrír Íslendingar eru í efstu 35 sætunum. Robin van Persie, leik maður Manchester Uni- ted, hefur safnað flestum stigum. Sigurvegari Fantasy- deildarinnar í ár hlýtur vikuferð til Bretlands með VIP-miðum á tvo leiki í ensku úrvals- deildinni sem og skoðunarferð um Lundúnaborg. Fantasy-staðreyndir jafn mikið. Ég er búinn að vera í fjórða sæti í heiminum í þrjár vikur í röð núna en það má samt lítið klikka til þess að maður falli niður listann,“ segir Tómas, sem sjálfur styður Liverpool í ensku deildinni, en Liverpool-liðið hefur aldrei staðið jafn illa að vígi á miðju tímabili eins og í ár. Tómas hefur þó trú á einum leik- manni liðsins. „Ég er alltaf með Luis Suarez í liðinu og er hann eini leikmaðurinn sem ég hef haft frá upphafi. Hann skilar sínu,“ segir Tómas. En sem gallharður stuðn- ingsmaður Liverpool, hvort myndi hann heldur vilja vinna Fantasy eða sjá Liverpool hampa titlinum í vor? „Ætli ég myndi ekki frek- ar vilja að ég ynni í Fantasy. Það eru engar líkur á því að Liverpool vinni deildina, svona ef við horfum raunhæft á þetta,“ segir Tómas og hlær. kristjana@frettabladid.is 2,5 MILLJÓNIR eru skráðar til leiks í Fantasy- deildinni. „Ég viðurkenni að þetta er mjög mikil vinna fyrir okkur en allir búningar verða að vera þrifnir og tilbúnir fyrir næstu sýningu sem oftast er daginn eftir,“ segir Leila Arge, yfirmaður búningadeildar Þjóðleikhússins. Leila, ásamt öðrum klæðskerum í búningadeild Þjóðleikhússins, sér um að viðhalda búningum Shakespeare-sýningarinnar Macbeth, sem er subbu- legri en flestar aðrar leiksýningar. Um 35 lítrum af gerviblóði er úthellt í hverri sýningu og því eru mikil þrif að sýningu lokinni. „Þetta er ein mesta þvottasýning sem ég hef unnið við. Ég er samt ekki klár á því hversu margar vélar við þurfum að þvo eftir hverja sýningu, en við erum sem betur fer fjórar í þessu,“ segir Leila en full- yrðir þó að nokkuð auðvelt sé að ná gerviblóðblönd- unni úr fötunum. „Við gerðum nokkrar prufur til að sjá hvaða blanda næðist best úr. Við skolum allt vel og setjum svo í þvottavél. Við erum með mjög fína þvottaaðstöðu hérna svo við getum ekki kvartað.“ Gerviblóðið er gert úr matarlit, sírópi og blaut- sápu og er óneitanlega klístrað. „Það eru allir á fullu að þrífa eftir hverja sýningu en blóðið fer út um allt á sviðinu og á leikmuni. En það er partur af þessu.“ Macbeth er jólasýning Þjóðleikhússins í leikstjórn Benedicts Andrews og með aðalhlutverk fara Björn Thors, Margrét Vilhjálmsdóttir, Vigdís Hrefna Páls- dóttir, Hilmir Snær Guðnason og Arnar Jónsson. - áp Þrífa upp blóðið eft ir Macbeth Jólasýningin Macbeth ein mesta þvottasýning Þjóðleikhússins frá upphafi . ÞRÍFA MARGAR VÉLAR Leila Arge og Ásdís Guðný Guð- mundsdóttir í búningadeild Þjóðleikhússins sjá um að þrífa blóðið úr búningum Macbeth. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Gull á einni viku Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti sló eftirminnilega í gegn á árinu með sinni fyrstu plötu, Dýrð í dauðaþögn. Hún seldist jafnt og þétt á haust- mánuðum og náði salan hámarki síðustu vikuna fyrir jól þegar yfir fimm þúsund eintök fóru yfir búðar- borðið, sem er gullsala. Þegar allir sölustaðir eru teknir með í reikn- inginn seldist platan í um 22 þúsund eintökum á árinu. Það er aðeins um átta þúsund eintökum minna en Mugison seldi af Hagléli á síðasta ári. - fb Boltamenn upp að altarinu Knattspyrnukapparnir Indriði Sigurðsson og Davíð Þór Viðarsson ganga upp að altarinu í dag. Ekki þó saman því Indriði gengur að eiga fimleikadrottninguna Jóhönnu Sigmundsdóttur í Vesturbænum. Indriði er fyrirliði knattspyrnuliðsins Viking. Davíð Þór, sem spilar með Vejle Boldklub, kvænist unnustu sinni, Sigríði Erlu Viðars- dóttur, í heimabæ þeirra Hafnar- firði í dag. - áp „Af hverju ætti ég að slaka á? Þvílík endemis leiðindi. Ég lifi mjög heil- brigðu lífi: Ég reyki ekki, borða ekki of mikið, drekk ekki áfengi, nota ekki eiturlyf. Höfuðið mitt er tært eins og kristalkúla og ég hef enga þörf fyrir að hægja á mér.“ HINN 79 ÁRA TÍSKUMÓGÚLL KARL LAGERFELD Í VIÐTALI VIÐ BBC, SPURÐUR HVORT HANN ÆTLAÐI EKKI AÐ SETJAST Í HELGAN STEIN. Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 Smár humar Tilvalinn í súpuna, salatið, einnig góður til pönnusteikingar. Lausfrystur 1 kg í poka. Skelflettur humar Humar án skeljar. Fullhreinsaður, lausfrystur og flottur, tilbúinn í hvað sem er. Humarsoð 100% soð af humarskeljum. Flott uppskrift á boxinu. Ferskar Hollenskar ostrur Stór humar Sá stærsti, góður í hvað sem er. Grillið, pönnuna, ofninn. 1. flokks humar. Stærð 24-30 Millistærð af humri Hentar vel að steikja á pönnu, setja í ofninn eða á grillið. Stærð 7-12 Stærð 18-24 ÁRAMÓTAHUMAR Þessi raketta kostaði 6.500 kr. hún gefur ánægju í um það bil 20 sek . Ef þið kaupið flugelda endilega styrkið Björgunarsveitirnar eða íþróttafélögin 1 kg af úrvals Humarhölum kostar 3.900 kr.kg. Gefur ánægju fyrir 5-6 manneskjur í c.a. 30-60 mínútur. 1 kg. dugir fyrir 2-3 manneskjur í aðalrétt eða 5-6 í forrétt. Opið í dag 10-18 Sunnudag 12-17 Gamlársdag 8-13 VERÐSAMANBURÐUR!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.